Morgunblaðið - 03.09.2019, Page 37
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Um hvað hugsarðu þegar þú fróar
þér? Þannig hljómaði ein hinna mörgu
spurninga sem ástralski texta- og
lagasmiðurinn Nick Cave fékk á
spjalltónleikum sínum í Eldborg á
laugardag. Kjánahrollurinn hríslaðist
um mig þegar þessi skelfilega spurn-
ing var borin upp og hann gerði það
nokkrum sinnum þetta bráðskemmti-
lega kvöld. Cave svaraði þó eins og
ekkert væri og sagði, auðvitað, „eigin-
konu mína“.
Cave hefur verið á flakki um
heiminn og hleypt aðdáendum og
gestum nær sér en nokkru sinni fyrr.
Syrpan nefnist Conversations with
Nick Cave, þ.e. Samræður við Nick
Cave og er bókstaflega allt opið og
leyfilegt. Cave kallar þetta æfingu í að
tengjast og má spyrja hann að hverju
sem er. Það eina sem gestir þurfa að
gera er að rétta upp hönd og biðja um
hljóðnema. Kom mér á óvart hversu
hugaðir gestir Eldborgar voru, alltaf
voru nokkrir sem biðu eftir að fá orðið.
Sumir hverjir vel í glasi, til dæm-
is maðurinn á fremsta bekk sem viður-
kenndi fyrir Cave að hann væri ofur-
ölvi. Þótti Cave það spaugilegt, líkt og
öðrum viðstöddum. Eðlilega átti mað-
urinn erfitt með að bera upp spurn-
ingu sína og var ekki einn um það
þetta kvöld. Sumir virtust hafa beðið
um orðið af þeirri ástæðu einni að geta
ávarpað átrúnaðargoð sitt og höfðu
einskis að spyrja. Þurftu bara að láta
Cave vita af því hversu mikil áhrif
hann hefði haft á þá og hversu frábært
væri að fá að tala við hann. Sumir og
þá bæði karlar og konur vildu líka fá
að faðma hann, þ.e. þeir sem voru
nógu nálægt honum. Jú, jú, Cave var
alveg til í það og fékk líka blóm. Hann
bað gesti um að sýna tillitsemi því erf-
itt væri að standa frammi fyrir slíkum
mannfjölda með hljóðnema og bera
upp spurningu.
Spaugilega hliðin
Hjalti á fremsta bekk trúði full-
setnum Eldborgarsal fyrir því að hann
Allt og ekkert með Nick Cave
Ljósmynd/Daniel Boud
Opinn Myndatökur voru ekki leyfðar á spjalltónleikum Cave í Eldborg en hér má sjá hann á sambærilegum tón-
leikum í óperuhúsinu í Sydney í Ástralíu fyrir ekki svo löngu. Cave er einkar opinskár og heiðarlegur í svörum.
og unnusta hans myndu brátt ganga í
hjónaband og ætluðu þá að leika
„Into my Arms“. Átti það erindi við
viðstadda? Varla, en skemmtigildið
var ótvírætt og fleiri lögðu sín lóð á
vogarskálarnar hvað það varðar og
þau oft býsna þung. Þó sjaldnast vilj-
andi. Kona ein sagði Cave t.d. frá því
að hún hefði verið í sértrúarsöfnuði
þar sem illska og kynlíf komu mjög
við sögu. Cave hefur nú marga fjör-
una sopið en virtist nokkuð hissa á
þessari játningu. Önnur kona spurði
hvort hann gæti bjargað mannkyni
sem stendur ógn af loftslagsbreyt-
ingum. Nei, Cave sagðist nú ekki
geta það, hann væri ekki bjargvættur
heimsins en reyndi sitt besta í að vera
bjargvættur sálna.
Miðað við sumar spurninganna
þetta kvöld virðast margir líta á Cave
sem einhvers konar vitring, mann
sem kunni svör við öllum heimsins
spurningum. Og hann kunni þau
mörg þó að spurningarnar væru
margar hverjar óskiljanlegar, var
alltaf kurteisin uppmáluð, algjör
séntilmaður og auðvitað í jakkafötum
og fleginni skyrtu. Cave á ekki galla-
buxur og stuttermabol, hefur aldrei
spilað rúgbí og hefur ekki gaman af
rúgbíi eða öðrum boltaíþróttum.
Hann hleypur ekki og hjólar ekki.
Þetta kom allt fram í svörum kvölds-
ins.
Efast um eigin getu
Ekki ber þó svo að skilja að allar
spurningar kvöldsins hafi verið inni-
haldsrýrar og undarlegar, alls ekki.
Cave var m.a. spurður um sköpunar-
ferlið, tuttugu ára glímu sína við
heróín, sorgina og ýmislegt fleira
áhugavert. Sagði hann að þvert á það
sem margir héldu dvínaði sköpunar-
gáfan ekki með því að verða edrú.
Hann hefði aldrei verið eins frjór og
afkastamikill og eftir að hann losnaði
við vímuefnadjöfulinn. Ein áhuga-
verðasta spurningin var sú sem sneri
að svokölluðu blekkingarheilkenni
sem virðist hrjá ótrúlega marga og
felst í því að fólk trúir ekki eða við-
urkennir eigin getu og hæfileika.
Sagðist Cave vissulega hafa fundið
fyrir því og gerði enn. Þætti sem
hann væri alls enginn tónlistarmaður
og stundum utangarðs þegar hann
væri innan um slíka. Bíddu nú hægur,
Nick Cave með blekkingarheilkenni?!
Hvernig í ósköpunum má það vera að
þessi mikli meistari og orðsins mað-
ur, sem á ógrynni frábærra laga í
sarpi sínum, efist um sjálfan sig? Er
það ekki okkar meðal-Jónanna og
lúseranna að bera slíka byrði? Nei,
greinilega ekki. Þessi merkilegi lista-
maður, með sínar milljónir aðdáenda
sem líta jafnvel á hann sem hálfguð
og andlegan leiðtoga, efast líka um
sjálfan sig og eigin getu. Cave er bara
venjulegur maður eftir allt saman,
þrátt fyrir að líta út eins og kölski
sjálfur í sparifötunum. Eða kannski
óhefðbundin útgáfa af frelsaranum?
Inn á milli hugvekjandi svara við
spurningum um allt og ekkert lék
Cave á flygil mörg af sínum bestu
lögum sem og önnur minna þekkt.
Var það dásemdin ein, hljómburður-
inn fullkominn í Eldborg og barítón-
röddin ögn hrjúf en falleg sem fyrr.
Cave fékk góða spurningu henni að
lútandi, hvernig hann upplifði söng-
röddina þegar hann hlustaði á upp-
tökur af lögunum sínum. Líkt og við
hin upplifir hann hana með allt öðr-
um hætti inni í höfðinu en utan þess.
Röddin hljómar frábærlega inni í
höfðinu mér, upplýsti Cave og glotti
við tönn, en ekki eins vel á hinn veg-
inn. Lýsti svo þeim vonbrigðum sín-
um á yngri árum að vera ekki með
rokkrödd og að hafa verið líkt við
krúnera.
Með opið hjarta
Cave missti son sinn, Arthur,
fyrir fjórum árum. Arthur var 15 ára
og undir áhrifum LSD þegar hann
féll fram af kletti og dó. Í Eldborg
fjallaði Cave opinskátt um andlátið
og lamandi sorgina og það var sér-
stök stund. Sorgin jafnar allt út,
sagði Cave, gerir alla menn að jafn-
ingjum. Hans sorg hefði verið mikil
en jafnaðist þó ekki á við sorg móður
sem misst hefði barn sitt. Ekki man
ég til þess að hafa séð listamann opna
sig með þessum hætti fyrir ókunnug-
um.
Þessi tilraun Cave, að leyfa tón-
leikagestum að spyrja hann að
hverju sem er, er áhugaverð og býð-
ur auðvitað upp á kjánahroll, spaugi-
legar uppákomur, áhugaverða innsýn
í huga listamanns, miklar játningar
og jafnvel geðhreinsun. Eitt sinn
kaldhæðinn rokkari með úfið hár í
rifnum bol, nú vel greiddur sextugur
maður í jakkafötum að ná sér eftir
mesta áfall lífs síns. Hvernig ætli
spurningarnar hafi verið í öðrum
borgum? Var fulli karlinn þar líka á
fremsta bekk eða Hjalti að fara að
gifta sig? Konan sem slapp frá djöful-
legum sértrúarsöfnuði? Maður spyr
sig.
Að lokum vil ég geta þess að
Cave svarar völdum spurningum
skriflega á vefnum The Red Hand
Files, á slóðinni theredhandfiles.com.
Eru þær að sjálfsögðu misgáfulegar,
líkt og spurningarnar í Eldborg.
»Hvernig í ósköp-unum má það vera
að þessi mikli meistari
og orðsins maður, sem á
ógrynni frábærra laga í
sarpi sínum, efist um
sjálfan sig?
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Ertu klár fyrir
veturinn?
Við hreinsum úlpur, dúnúlpur,
kápur og frakka
» Kvikmyndin Joker íleikstjórn Todds Phil-
lips var um helgina frum-
sýnd á Kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum. Í aðalhlut-
verkum eru Joaquin Phoe-
nix, Zazie Beetz og Robert
De Niro, en tónlistina
samdi Hildur Guðnadóttir.
Eins og titillinn gefur til
kynna fjallar myndin um
helsta óvin Leðurblöku-
mannsins og sýnir hvernig
Jókerinn varð að illmenni.
Joker frumsýnd á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
Áritun Joaquin Phoenix gaf sér
tíma til að árita plakat fyrir gesti.
Litrík Zazie Beetz í litríkum
kjól á rauða dreglinum.
Gleði Vel fór á með leikurunum Zazie Beetz og Joaquin Phoenix og leikstjóranum Todd Phillips í Feneyjum.
Leikarinn Kevin Hart var um helgina fluttur á sjúkrahús
alvarlega slasaður á baki eftir bílveltu í Los Angeles.
Samkvæmt frétt BBC var Hart farþegi í bíl sem Jared
Black ók. Black mun hafa misst stjórn á bílnum með
þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar. Black og
unnusta hans, Rebecca Broxterman, sluppu án meiðsla.
Broxterman er líkamsræktarþjálfari Eniko Parrish,
eiginkonu Hart. Lögreglan hefur staðfest að Black var
ekki undir áhrifum áfengis þegar slysið átti sér stað. Bif-
reiðin, sem er af gerðinni Plymouth Barracuda frá 1970
og Hart gaf sjálfum sér í fertugsafmælisgjöf fyrr í sum-
ar, mun vera gjöreyðilögð. Aðeins örfáum klukkutímum fyrir slysið birti
Hart myndband á Instagram þar sem hann leikur sér að því að reykspóla.
Myndbandið hefur nú verið fjarlægt.
Alvarlega slasaður eftir bílslys
Kevin Hart
AFP