Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 40
Teiknimyndin Lói – Þú flýgur aldrei einn verður sýnd við lifandi flutning Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hamraborg í Hofi á sunnudag kl. 16. Atli Örvarsson, höfundur tónlistar- innar, stýrir sjálfur sveitinni og sér- stakur gestur er Högni Egilsson, en báðir ræða þeir við áhorfendur áður en myndin byrjar. Sýningin er hluti af dagskrá RIFF 2019. Íslenskt hljómleikabíó í Hofi á sunnudag FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Beitir Ólafsson, markvörður Ís- landsmeistaraliðs KR í knatt- spyrnu, er í viðtali í blaðinu í dag en ferill hans er í óvenjulegri kant- inum fyrir Íslandsmeistara. Hann hafði verið í pásu frá boltanum og var um þrítugt þegar KR-ingar föl- uðust eftir kröftum hans árið 2017. Átti því alls ekki von á að eiga eftir að leika í úrvalsdeildinni. »34 Óvenjulegur ferill hjá Íslandsmeistara ÍÞRÓTTIR MENNING Fiðluleikararnir Guðný Guðmunds- dóttir og Anton Miller og Rita Por- firis víóluleikari koma fram á há- degistónleikum á Kjarvalsstöðum í dag kl. 12.15. Á efnisskránni eru Sil- ent Moon eftir Augustu Read Thomas, Por una Cabeza eftir Carl- os Gardel, sónata fyrir tvær fiðlur eftir Jean-Maria Leclaire, fúga eftir Johann Sebastian Bach, valdir þættir úr strengjatríói eftir Antonin Dvor- ák og síðasti þátt- ur úr kvöldlokku eftir Zoltán Kod- ály. Aðgangur er ókeypis. Tangó, sónata, fúga og kvöldlokka í hádeginu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nemendur í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum, foreldrar þeirra og starfsfólk komu saman á Klambra- túni í Reykjavík í gærmorgun af því tilefni að fyrsti Waldorfskólinn hóf göngu sína í Stuttgart í Þýskalandi í september 1919 og verður haldið upp á tímamótin víða um heim. Austurríski heimspekingurinn Ru- dolf Steiner kynnti hugmyndir að nýrri samfélagsskipan eftir fyrri heimsstyrjöldina. Þær gengu út á að frelsi skyldi vera leiðarljós menning- arlífsins, jafnrétti leiðarljós réttar- kerfisins og bræðralag leiðarljós við- skiptalífsins. Emil Molt, eigandi Waldorf Astoria-verksmiðjunnar í Stuttgart, hreifst af hugmyndunum og fékk Steiner til þess að leiða stofn- un skóla fyrir börn starfsfólksins. Hagnaður ársins 1918 var notaður til að fjármagna framkvæmdina. Nokkrir Íslendingar, sem höfðu lært um hugmyndir Steiners og kynnst starfseminni á Sólheimum í Grímsnesi, stofnuðu fyrsta íslenska Waldorfleikskólann í Lækjarbotnum 1. desember 1990 með uppeldisfræði heimspekingsins í huga. Haustið eftir að leikskólinn Ylur var stofnaður hóf Waldorfskólinn í Lækjarbotnum starfsemi með fjóra nemendur. Nú eru um 70 nemendur í 1. til 10. bekk, en annar sambærilegur skóli er í Reykjavík, Waldorfskólinn Sólstafir. Góður árangur Aðalheiður Ólafsdóttir kennari segir að vel hafi tekist til. Mikil áhersla sé lögð á handverk, tengsl við náttúruna, útiveru og listir og námið hafi reynst góður grunnur fyrir fram- haldsnám. „Nemendum okkar hefur verið hrósað fyrir námsáhuga og fróðleiksfýsn. Má ætla að námskrá Waldorfskólanna, þar sem lögð er áhersla á heildrænan þroska barns- ins með áherslu á listræna og verk- lega þætti, styðji þetta.“ Árlegur jólabasar skólans verður laugardaginn 16. nóvember og verða býflugur afmælisþemað að þessu sinni. Aðalheiður segir að mikið sé lagt upp úr basarnum og allir leggi sitt af mörkum. Starfsfólk, foreldrar og nemendur vinni saman í litlum hópum í þeim tilgangi að efla fé- lagsleg tengsl. Á sérstökum þema- dögum sé öllum bekkjum blandað saman og unnið í hópum að sér- stökum verkefnum til að selja á bas- arnum. Jurtatínsla sé í gangi allt sumarið, ræktun fari fram í gróður- húsi, krakkarnir séu með skólagarða, farið sé í berjamó og afurðirnar nýtt- ar í eldhúsi skólans og á basarnum. „Við tengjum vel saman starf og leik,“ segir Aðalheiður. Einkunnarorð skólans í Lækjar- botnum eru hugur, hjarta og hönd. Foreldrarnir og starfsfólkið skipta sér í hópa, tileinkaða ákveðnum verk- efnum. Hugurinn sér um upplýs- ingar, efni og fræðslu. Hjartahóp- urinn hugsar um félagsleg tengsl og samskipti út á við, en höndin sinnir verklegum þáttum, viðhaldi á húsum, garðvinnu og fleira. „Lækjarbotnar eru mikil náttúruperla og nemendur njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða.“ Morgunblaðið/Eggert Á Klambratúni Foreldrar, nemendur og starfsfólk Waldorfskólans í Lækjarbotnum skemmtu sér í gærmorgun. Hugur, hjarta og hönd  Fyrsti Waldorfskólinn hóf göngu sína fyrir 100 árum  Tímamótanna minnst á Klambratúni og víða um heim FLOTTAR UMGJARÐIR KOMNAR Í HÚS VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi | Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9:30–18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.