Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég ólst upp við þetta sem barn,
aftur í fornöld. Þetta var mikið not-
að þá, á árunum á milli 1940 og
1950,“ segir Davíð Atli Ásbergs
efnaverkfræðingur sem keypti slát-
ur á sláturmarkaði SS í verslun
Hagkaupa í Kringlunni í gær.
Sláturmarkaðurinn var opnaður
í gær. Hann er í þessari einu versl-
un Hagkaupa en einnig verður slát-
ur frá SS í verslun Krónunnar á
Selfossi frá og með 24. þessa mán-
aðar.
Vekur góðar minningar
Davíð Atli segir að sláturgerð
hafi lagst af en „ég og mín fjöl-
skylda tókum þetta aftur upp á
miðjum aldri. Það var skemmtileg
fjölskyldusamkoma að vinna þetta
saman.“
Hann er nú einn og segist taka
slátur annað hvert ár eða svo. Hann
keypti í gær kassa með þremur
slátrum og byrjaði strax á slátur-
gerðinni en reiknaði með að ljúka
henni í dag. „Þetta er ekki mikið
mál þegar maður er byrjaður. Mér
finnst gaman að stússa í þessu og
það vekur góðar minningar.“
Davíð Atli er ekki einn um það að
vilja halda í hefðirnar og taka slát-
ur. Þetta er ódýr matur. Hagkaup
vekja til að mynda athygli á því að
þrjú slátur duga í níu máltíðir fyrir
fjögurra manna fjölskyldu ef allt
hráefnið er notað og bæði gerð
lifrarpylsa og blóðmör. Hægt er að
fá slátrið bæði ferskt og frosið í
kössum. Í kössunum eru 3 eða 5
slátur með blóði, söxuðum mör,
nýrum, hjörtum, lifur, sviðnum
hausum og próteinkeppum. Fólk
getur einnig keypt kalónaðar
vambir aukalega.
Unga fólkið fúlsar við blóðmör
Það virðist mest vera eldra fólk
sem tekur slátur enda fór slátur-
gerð mjög þverrandi í þéttbýli eftir
miðja 20. öldina.
Davíð segist aðallega gera slátur
fyrir sjálfan sig en gefi þó þeim ætt-
ingjum sem vilja með sér. Hann
segir að lifrarpylsan sé vinsæl hjá
öllum aldursflokkum en blóðmör-
inn síður.
Ólst upp við sláturgerð
Davíð Atli keypti þrjú slátur við opnun sláturmarkaðar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sláturmarkaður Davíð Atli Ásbergs heldur við gömlum hefðum og tekur slátur, þó ekki alveg á hverju ári.
„Matarsóun er meðal brýnustu við-
fangsefna nútímans,“ segir Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, um-
hverfis- og auðlindaráðherra, sem
hefur hrundið af stað verkefnum til
að vinna gegn matarsóun á Íslandi.
Eru þau liður í aðgerðaáætlun
landsins í loftslagsmálum og verða í
umsjón Umhverfisstofnunar.
Könnun á viðhorfi Íslendinga til
matarsóunar verður meðal aðgerða
en einnig verður efnt til viðburðar
um matarsóun þar sem boðið verður
upp á illseljanlegar og útlitsgallaðar
matvörur til að vekja athygli á hve
miklum matvælum er sóað.
Ráðist verður í samstarfsverkefni
með Matvælastofnun og heilbrigðis-
eftirlitum sveitarfélaga þar sem
matvælaöryggiskröfur eftirlitsaðila
verða endurskoðaðar með tilliti til
matarsóunar. Umhverfisstofnun
stendur að auki að rannsókn á um-
fangi matarsóunar en niðurstöður
rannsóknarinnar verða lagðar til
grundvallar vinnu starfshóps um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins
sem mun sjá um að koma með til-
lögur að fleiri aðgerðum til að draga
úr matarsóun.
Vinna gegn
matarsóun
á Íslandi
Bjóða upp á útlits-
gallaðar matvörur
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
„Aðalatriðið er að samkomulagið
sem er í smíðum er um stórfellda
uppbyggingu á samgöngum á höfuð-
borgarsvæðinu til að greiða fyrir
umferð,“ sagði Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra í umræðum á Al-
þingi í gær.
Enn er beðið kynningar á sam-
komulagi ríkis og sveitarfélaga um
uppbyggingu samgangna á höfuð-
borgarsvæðinu. Komið hefur fram í
fjölmiðlum að bæjarstjórum á höfuð-
borgarsvæðinu hafi verið send ný
drög að samkomulagi fyrr í vikunni.
Stýrihópur Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu fundaði í gær
um samkomulagsdrögin. Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ,
sagði í fréttum RÚV að ekki kæmi til
greina að skrifa undir umrædd drög
því í þeim væru setningar sem hann
hefði ekki umboð til að skrifa undir.
Morgunblaðið náði hvorki í Gunnar í
gær né Rósu Guðbjartsdóttur,
bæjarstjóra í Hafnarfirði.
Rætt var um þessa stöðu mála á
þingi í gær og samráðsleysi við
minnihluta meðal annars gagnrýnt.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, sagði að sér
virtist sem fólk ætti að greiða fyrir
það eitt að fara um götur borgarinn-
ar sem það hefði þegar verið búið að
borga með sköttum. Sigurður Ingi
Jóhannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, sagði að allir þing-
menn hefðu komið að vinnu sam-
gönguáætlunar. Hann benti á að
starfshópur, með fulltrúum allra
flokka, hefði verið skipaður þar sem
rætt væri um umferðarvandræði á
höfuðborgarsvæðinu.
Bíða enn kynning-
ar á samkomulagi
Umræða um veggjöld á Alþingi
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Búist er við að áfram muni rigna
töluvert á Vesturlandi í dag en Veð-
urstofa Íslands gaf út appelsínugula
viðvörun fyrir Faxaflóa og Breiða-
fjörð upp úr hádegi í gær vegna úr-
hellisrigningar. Varað er við aukn-
um líkum á skriðuföllum á
vesturhelmingi landsins. Skriður
hafa þegar fallið, m.a. á Skarðs-
strönd við Breiðafjörð í gær.
„Þetta er mestallur vesturhelm-
ingur landsins sem við erum að
fylgjast með,“ sagði Einar Bessi
Gestsson, sérfræðingur í vatnafari
hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld. Einar
kveður vatnavexti vera í fjölda áa og
lækja á vesturhelmingi landsins og
segir Norðurá í Borgarfirði til að
mynda hafa risið hratt frá því í
fyrrinótt.
Segir hann að sérstaklega hafi
verið mikil úrkoma á Snæfellsnesi
og sunnanverðum Vestfjörðum í
gær.
Ferðamenn í sjálfheldu
Úrhellisrigningin hefur valdið
ýmiss konar vandræðum í þjóð-
félaginu síðustu daga. Niðurföll hafa
til að mynda víða stíflast og flætt
hefur í kjallara og bílskúra fólks.
Íslenska Umhverfishetjan lét slag
standa á móti veðrinu og losaði m.a.
stífluð niðurföll. Í samtali við mbl.is
segir ofurhetjan, sem er grímu-
klædd og hefur enn ekki komið
fram undir nafni, það vera valdefl-
andi að láta gott af sér leiða.
Þrír ferðamenn lentu einnig í
sjálfheldu vegna rigningarinnar en
þeir urðu innlyksa í Langavatnsdal
þar sem vegur fór í sundur vegna
vatnavaxta. Þurfti að kalla til þyrlu
Landhelgisgæslunnar þeim til
bjargar.
Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir í
samtali við Morgunblaðið að áfram
sé spáð töluverðri rigningu í dag.
Segir hann þó von á að laugardag-
urinn verði töluvert úrkomuminni
þó að áfram verði vætusamt. Veður
fer þó hlýnandi, en spáð er allt að 20
stigum á norðaustanverðu landinu á
sunnudag.
Úrhellið víða til vandræða
Björgunarsveitir og ofurhetjur hafa látið til sín taka vegna veðurs
Ljósmynd/Landsbjörg
Vatnavextir Björgunarsveitir og Vegagerðin voru að störfum í Langavatnsdal í gær og lokuðu veginum.