Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 ✝ Loftur Þor-steinsson fædd- ist í Haukholtum, Hrunamanna- hreppi, 30. maí 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 5. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru hjónin Ást- björt Oddleifsdótt- ir, f. 28. júlí 1913, d. 11. febrúar 1983, og Þorsteinn Loftsson, f. 23. september 1905, d. 25. janúar 1991. Bróðir Lofts er Oddleifur, f. 3. maí 1936, eig- inkona hans er Elín Kristmunds- dóttir, f. 12. mars 1942. Eftirlifandi eiginkona Lofts er Hanna Lára Bjarnadóttir frá Hörgsdal á Síðu, f. 10. ágúst 1951, dóttir Dórótheu Theo- dórsdóttur, f. 24. maí 1926, d. 19. desember 2016, og Bjarna Bjarnasonar, f. 12. maí 1902, d. 6. júlí 1992. Börn Lofts og Hönnu eru: 1) Þorsteinn, f. 19.6. 1981, eiginkona hans er Stein- unn Lilja Heiðarsdóttir, f. 17.10. 1986. Börn þeirra eru: a) Loftur, prófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1961. Loftur hóf sinn búskap í félagsbúi með föður sínum Þorsteini. Síðar var Loft- ur í félagsbúi með Oddleifi bróð- ur sínum í Haukholtum, en þeir skiptu síðan búinu þegar sveit- arstjórnarmálin fóru að taka yf- ir hjá Lofti. Fjárbúskap stund- aði Loftur til 2004 þegar synir hans tóku við búrekstrinum. Loftur starfaði í stjórn ung- mennafélags Hrunamanna um árabil og var virkur í leikhópi félagsins í fjölda ára. Hann var kjörinn í hreppsnefnd Hruna- mannahrepps 1978 og sat þar í samtals 24 ár, þar af 20 ár sem oddviti og sveitarstjóri. Það var á miklu uppbyggingartímabili á Flúðum. Loftur var formaður Sambands sunnlenskra sveitar- félaga árin 1990-1991 og starf- aði í fjölmörgum nefndum og ráðum á vettvangi sveitar- stjórna, sem og í heimasveit sinni. Þegar Loftur sagði skilið við oddvita- og sveitarstjórastól- inn 2002 setti hann orku sína í fjárbúið í Haukholtum og ýmis önnur störf tengd búskap og fleiru, t.d. fóðureftirlit, sauð- fjármarkavörslu og störf í rétt- inni í sláturhúsi Suðurlands svo eitthvað sé nefnt. Útför Lofts fer fram frá Skál- holtsdómkirkju í dag, 20. sept- ember 2019, klukkan 14. f. 12.3. 2014, b) Víg- lundur, f. 12.5. 2015, og c) Heiðdís Hanna, f. 21.7. 2019. 2) Magnús Helgi, f. 3.8. 1983, sambýliskona hans er Alina Elena Balusanu, f. 13.4. 1980. Börn þeirra eru: a) Anna María, f. 22.8. 2005, og b) Ástbjört, f. 1.1. 2008. 3) Berglind Ósk, f. 6.3. 1987, sonur hennar er a) Anton Ýmir, f. 24.10. 2013. Synir Hönnu og stjúpsynir Lofts eru: 4) Edvin, f. 4.9. 1971, og 5) Ólaf- ur Bjarni, f. 20.8. 1973, eig- inkona hans er Marlín Aldís Stefánsdóttir, f. 12.5. 1982. Börn þeirra eru: a) Baldur Þór, f. 4.12. 2005, og b) Eva Ósk, f. 23.2. 2009. Dóttir Marlínar er Árdís Lilja, f. 4.9. 2001. Loftur ólst upp í Haukholtum og átti heima þar lengst af. Árið 2007 fluttu Loftur og Hanna að Ásastíg á Flúðum. Eftir nám í íþróttaskólanum í Haukadal lauk Loftur búfræði- Með kökk í hálsi og tárvot augu hef ég sest niður síðustu daga og gert tilraunir til að hefja skrif en ekki fundið réttu orðin. Nú loks hef ég áttað mig á því að það eru engin orð rétt eða röng í minning- argrein um föður sinn en ég ætla að byrja með smá texta sem ég fann á netinu rétt fyrir andlát föð- ur míns. Ég þýddi hann yfir á ís- lensku. „Sorg, hef ég lært að er í raun bara ást. Það er öll sú ást sem þig langar að gefa en getur ekki. Öll þessi ónotaða ást safnast saman í hvarmi auga þíns, kökkurinn í hálsinum og holrúmið í brjóstinu. Sorg er í raun ást sem hefur engan samastað.“ (Jamie Anderson) Ég lærði það frekar ung að ég þyrfti að deila athygli föður míns með mörgum, þá er ég ekki bara að tala um bræður mína fjóra og mömmu heldur allt sveitarfélagið eins og það lagði sig. Það gat oft reynst erfitt verandi algjör pabbastelpa. Því var ekki óalgeng sjón að sjá stelpuskottið seinnipart dags eftir skóla inni á hreppsskrifstofunni að sniglast í kringum föður sinn. Ófá heimalærdómsverkefnin voru afgreidd þar með dyggri aðstoð hans því alltaf gat hann litið upp úr sínum verkefnum til þess að aðstoða litla skottið með heima- námið. Samband okkar pabba var á margan hátt einstakt. Við höfðum mjög ólíkar skoðanir á mörgum hlutum og mögulega hefði ég ekki getað valið mér ólíkara líf en hans. En það sem hélt okkur nánum fram á síðasta dag var virðing. Ég virti hann og hans skoðanir og hann virti mig og mínar. Það eru ófáir hlutirnir sem pabbi kenndi mér sem ég hef í far- teskinu í gegnum lífið. Má þar telja; virðingu fyrir náunganum, hreinskilni, dugnað, samkennd, þrjósku, þolinmæði, brúkun ham- ars, naglhreinsun dekkja, rjóma- ísát og svo margt fleira, listinn er langur. Síðustu vikurnar áttum við pabbi margar einlægar stundir, þótt ég vissulega vildi óska að þær hefðu verið fleiri. Eftirminnileg- ust er sjálfsagt sú þegar ég er að keyra hann frá Reykjavík á Sel- foss eftir miklar rannsóknir á spítalanum. Við ræddum á leiðinni um heima og geima. Þarna vorum við sjálfsagt farin að átta okkur að- eins á alvarleika veikinda hans. En þegar við komum að Kamba- brún þögnum við bæði, ég hægi ögn á bílnum og ég finn hvernig hann sýgur í sig útsýnið. Það var heiðskírt og bjart, sást vel alla leið til Vestmannaeyja og við sáum hvernig haustlitirnir voru að byrja að taka yfir. Fegurð náttúr- unnar tók alla okkar athygli. Þar með var uppáhaldsárstími pabba genginn í garð, haustið. Þegar ég hugsa til baka um tíma okkar pabba saman er þakk- læti mér efst í huga. Þakklátust er ég fyrir að sonur minn hafi fengið að kynnast afa sínum og sé orðinn nógu gamall til að hægt sé að við- halda minningunni um afa Loft með sögum og upprifjunum. Hvíldu í friði, elsku pabbi, ég mun alltaf sakna þín. Litla stelpuskottið þitt, Berglind Ósk. Elsku faðir minn, Loftur Þor- steinsson, verður jarðsunginn í dag. Ég á þér svo margt að þakka og minningarnar margar og góð- ar. Eitt er víst að alltaf varst þú til í að hjálpa mér í einu og öllu. Sama hvert verkefnið var. Man ég að sem unglingur setti ég mér það markmið að gerast sjómaður. Þá studdir þú mig í því og keyrðir mig þangað sem ég þurfti að fara, enda ég ekki kominn með aldur til að keyra sjálfur. Alltaf vissir þú hvar báturinn minn var á veiðum því þú fylgdist alltaf með og ég veit að þú gerir það enn. Ég fann alltaf öryggi í því að þú værir með puttann á púlsinum í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Í bú- skapnum var alltaf hægt að leita til þín um ráðleggingar. Þótt við værum ekki alltaf sammála kom- umst við oftast á góðar niðurstöð- ur. Ómetanlegt er hversu mikið þú hjálpaðir Alinu þegar ég var í burtu og hjálpaðir henni sem þú gast og það var gríðarlegt öryggi bæði fyrir mig sem og hana. Ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, Alinu, Önnu og Ástbjörtu. Ég þakka þér allan þennan tíma sem ég hef haft þig með mér til að kenna mér og leið- beina. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður guð þina sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima Mun minning þin lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Hvíldu í friði, elsku faðir. Magnús Helgi. Í dag kveð ég tengdaföður minn. Fyrir 15 árum kynntist ég Lofti og með sínu hlýja brosi bauð hann mig velkominn í fjölskyldu sína. Hann var mikill bóndi með sterkar skoðanir og ég lærði mik- ið af honum. Sauðburður var fyrir honum eins og jól fyrir börnin; til- hlökkun og gleði þar í fyrirrúmi. Loftur var góður maður sem var alltaf tilbúinn til að hjálpa öðrum. Frábær afi sem sinnti barna- börnunum sínum sem best hann gat. Ég vil þakka þér samfylgdina og alla þá ást og hlýju sem þú hef- ur veitt mér. Þú mátt vita það að þú ert demantur bjartur. Ég veit ég hef sagt það áður, En ég bara verð að segja það aftur. Það sem þú hefur gert fyrir mig er svo ótrúlega margt. Ég get ekki þakkað þér nóg, hvað get ég meira sagt? Ég veit þó að þakklæti mitt er mjög svo breitt, Góðir hlutir hafa einungis af þér leitt. (Birna Rún) Þökk fyrir allt og hvíldu í friði. Alina. Nú minnumst við hins frábæra manns Lofts Þorsteinssonar afa okkar. Hann var alltaf með tyggjó á sér til að geta gefið okkur. Afi var líka svo mikill ískall, alltaf með besta ísinn og það klikkaði ekki að þegar við vorum í heim- sókn átti hann ís í frystikistunni og gaf okkur. Fékk sér líka, okkur til samlætis. Þegar við vorum yngri gaf hann okkur alltaf nammi á laugardögum. Honum fannst aldrei leiðinlegt að spila við okkur eða tefla. Hann hjálpaði okkur líka með allt heimanámið og bara að læra allt um hverdags- lífið. Ef það vantaði einhvern til að skutla okkur eða ná í okkur var afi alltaf reiðubúinn. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, kæri afi. Anna María og Ástbjört. Elsku afi minn, ég mun elska þig að eilífu. Mér fannst svo gam- an að tefla við þig þegar ég kom og var hjá ykkur ömmu í sveitinni. Göngutúrarnir okkar saman „afa- hringinn“ voru alltaf skemmtileg- ir. Takk fyrir að eiga alltaf handa mér grænmeti á borðinu, skyr í ís- skápnum og ís í frystinum. Mamma segir að þú sért orðinn engill sem vakir yfir mér og ég veit þá að ég verð alltaf öruggur. En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú.“ (Katrín Ruth, 1979) Þú varst besti afinn og ég mun aldrei gleyma þér. Þinn dóttursonur, Anton Ýmir. Þú Árnesþing ég elska nafnið þitt. Þar upp til fjalla er helgisetrið mitt. Þessar línur úr ljóði Eiríks Einarssonar frá Hæli komu upp í hugann þegar föðurbróðir okkar, hann Loftur frændi, var látinn. Héraðinu sínu unni hann og helg- aði stóran hluta ævistarfsins. Helgisetrið hans upp til fjalla var Haukholt, þar fæddist hann, þar ólst hann upp og þar bjó hann nær alla sína ævi. Loftur var glaðsinna og góður maður. Minningar um hann eru margar, sérstaklega frá barn- æsku okkar. Þá bjuggu þeir bræður pabbi og Loftur félagsbúi. Fjósið var sameiginlegt, þó að kýrnar væru í séreign. Mjalta- tímarnir voru því samverustundir tvisvar á dag alla daga. Samvinna var við öll önnur helstu störf eins og heyskap, sauðburð, smala- mennskur og klakveiði á haustin. Loftur var foringinn, hann var stjórnsamur en stjórnaði af hóg- værð og kænsku. En Loftur var líka stríðinn og naut þess að gera at í okkur krökkunum. Þegar nóg var komið og þolinmæði okkar á þrotum þá brosti hann góðlátlega út í annað munnvikið. Pípan var í hinu. Til margra ára átti Loftur sterkan og góðan bleikálóttan fjallhest sem hét Stormur. Það ríkti mikil eftirvænting hjá okkur þegar farið var á móti safninu inn að afréttargirðingu að sjá þegar þeir birtust félagarnir Loftur og Stormur. Ekki má heldur gleyma hundinum honum Smala. Ávallt komu þeir á vesturkantinum og þekktust langt að. Loftur var mikill leikari og tók virkan þátt í leikstarfi Ung- mennafélags Hrunamanna. Hann var hæfileikaríkur og gat leikið hvaða hlutverk sem var. Æfingar voru tíðar og oft langt fram á nótt. Eftir frumsýningu tóku við leik- ferðir um allt Suðurland. Þegar önnur leikfélög komu með verk sín á Flúðir tók Loftur okkur gjarnan með á þær sýningar og hvatti okkur til að njóta leiklist- arinnar. Það má með sanni segja að Loftur var ákaflega félagslyndur maður, hann naut sín vel innan um fólk og hafði sterkar skoðanir á samfélagsmálum. Hann var ræðinn og sagði skemmtilega frá enda vel að sér um menn og mál- efni. Það kom því ekki á óvart hversu mikinn hluta starfsævinn- ar hann helgaði ýmiss konar fé- lags- og sveitarstjórnarmálum. Þau áttu hug hans allan og þessi störf stundaði hann af alúð og kappi. Loftur var oddviti og sveit- arstjóri í Hrunamannahreppi í tvo áratugi og lagði sig allan fram um að sinna því starfi. Sumarfrí eða frí til að sinna búrekstrinum tók hann sjaldan, þjónustan við sam- félagið var númer eitt. Við erum stolt af Lofti frænda og þeirri óeigingjörnu vinnu sem hann vann fyrir sveitina. Eftir að Loftur og Hanna fluttu heimili sitt að Flúðum kom hann nær daglega upp í Haukholt, til að leggja lið og líta eftir. Alltaf kom hann við í kaffi hjá foreldrum okk- ar í þessum ferðum, nærri því til síðasta dags. Þau munu sakna þessara samverustunda sem og gamalla tíma. Það er tómlegra um að litast á hlaðinu í Haukholtum eftir fráfall Lofts. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi Valdimar Skúlason) Ásta, Elín og Jón Þorsteinn. Að morgni 5. september síðast- liðins hringdi hún Berglind frænka mín í okkur Guðbjörgu til að láta okkur vita að faðir hennar og frændi minn og vinur Loftur Þorsteinsson hefði látist þá um nóttina. Þetta hefði svo sem ekki átt að koma mér á óvart því við Guð- björg höfðum heimsótt hann á sjúkrahúsið á Selfossi tveimur dögum fyrr og duldist okkur ekki að hann var orðinn mjög veikur. Eins og tíðkaðist í æsku minni var ég sendur ungur í sveit á sumrin. Það varð gæfa mín að fá að vera krakki hjá Þorsteini föð- urbróður mínum og hans góðu konu Ástu eins og hún var æv- inlega kölluð þótt rétta nafnið hennar væri Ástbjört, en þau voru bændur í Haukholtum í Hruna- mannahreppi, þar sem faðir minn var uppalinn. Þau Ásta og Steini áttu tvo syni, Oddleif og Loft, en Loftur var tveimur árum eldri en ég og tókst því strax góð vinátta á milli okkar. Ég endaði á að vera sjö sumur hjá þeim og lauk veru minni sem vetrarmaður þegar Loftur fór í bændaskólann á Hvanneyri. Ég naut þess auðvitað að Loftur kunni vel til verka við bústörfin strax á unga aldri og hann kenndi mér svo margt. Hann kenndi mér að raka með hrífu, slá með orfi og ljá, kenndi mér að raka með hestaraksturs- vél, reka kýrnar og mjólka. Hann kenndi mér að þekkja fjármörkin á bænum, „sýlt og fjöður framan hægra, hálft af framan vinstra“. Þegar hann sagði mér þetta „hálft af framan vinstra“ þótti mér það alveg rosa- legt, en hann sýndi mér þá hvern- ig þetta leit út og þá fannst mér þetta ekkert rosalegt. „Tvírifað í sneitt framan hægra, boðbíldur framan og fjöður aftan vinstra.“ Boðbíldur framan, hver gat eig- inlega munað svona skrítið orð. Það fór svo að ég fór að geta sagt til um hver af bænum átti kind sem ég sá úti í haga. Ég átti þess kost í nokkur ár að smala með honum Lofti heima- hagana í Haukholtum og á nær- liggjandi bæjum. Það var ótrúlegt að fá að fylgjast með honum Lofti frænda, hvernig hann gat beitt hundinum sínum, sem stökk til þegar húsbóndinn hvatti hann, lagðist niður og beið nýrra fyrir- skipana og stökk svo af stað aftur. Þannig hjálpuðust þeir að. Þá var ekki síður ótrúlegt að fylgjast með samspili manns og hests við smalamennskurnar. Hvernig hvor um sig treysti hinum og hvernig þeir leystu úr vanda- málum sem virtust blasa við mér borgarbarninu. Mér er svo minn- isstætt þegar við vorum eitt sinn að smala í Haukholtum og ég var að reyna að teyma hestinn sem ég var með niður allbratta brekku, en hann vildi hvergi fara. Þá kom Loftur þar að, steig af baki og al- gjörlega átakalaust teymdi hest- inn sinn niður brekkuna, svo vel treysti klárinn honum, en ég valdi mér aðra leið. Loftur var mikill félagsmála- maður, gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sveitina sína var m.a. í hreppsnefnd í 24 ár og þar af sem oddviti í 20 ár. Við Guðbjörg og fjölskyldan okkar þökkum Lofti fyrir sam- fylgdina og sendum eftirlifandi eiginkonu hans, henni Hönnu Láru, og börnunum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur, jafn- framt sendum við bróður hans Oddleifi og fjölskyldu hans sam- úðarkveðjur. Ragnar Snorri Magnússon. Augun hans Lofts leiftruðu af húmor og gleði. Hann unni sveit- arfélagi sínu, Hrunamanna- hreppi, sem naut starfskrafta hans um langan tíma, fyrst sem virks ungmennafélaga og síðar sem sveitarstjórnarmanns, odd- vita og sveitarstjóra. Hann var einnig góðbóndi í Haukholtum, bjó lengi í félagsbúi með Oddleifi bróður sínum og fjölskyldum þeirra bræðra. Ég rifja það gjarnan upp þegar ég varð sveitarstjóri á Hvolsvelli í ársbyrjun 1990 að gömlu góðu oddvitarnir í Árnessýslu tóku „strákinn“ undir vænginn, þeir Loftur í Haukholtum, Gísli í Kjarnholtum, Jón í Vorsabæ, Böðvar á Búrfelli og ekki má gleyma Páli í Sandvík. Allir þessir höfðingjar hafa nú kvatt þetta jarðlíf og ég verð þeim ævarandi þakklátur enda var ég þá nýr, kominn úr öðru umhverfi og óreyndur á þessu sviði. Í huga minn kemur lítil vísa eftir föður minn sem hljóðar svo: Gatan er vörðuð gleði og sorgum, gjöf er vort æviskeið. Einn í dag svo annar á morgun, allir á sömu leið. Dauðinn er órjúfanlegur hluti lífsgöngunnar. Eftir standa marg- ar góðar minningar, söknuður og þakklæti. Þessir góðu sveitar- höfðingjar urðu síðar góðir liðs- menn þegar ég tók þátt í lands- málapólitíkinni. Seinna varð ég sveitarstjóri í Hrunamannahreppi á ólgu- og óróatíma í sveitinni og ég minnist þess hve Loftur fagn- aði komu minni á Flúðir og var mér hjálpsamur og jákvæður í alla staði. Í oddvita- og sveitarstjórnartíð hans varð mikil uppbygging á Flúðum og á vissan hátt má segja að Flúðir hafi orðið að einum vinsælasta ferðamanna- stað landsins og líkist yfir sum- artímann meira litlum ferða- mannabæ í Danmörku en sveita- þorpi á Íslandi. Hann brann fyrir framgangi sveitarinnar. Sunnlendingar fengu einnig notið starfskrafta Loftur Þorsteinsson Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÚLÍUS JÓNSSON húsgagnasmiður, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold, Garðabæ, mánudaginn 16. september. Útför fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 27. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin. Björk Garðarsdóttir Bylgja Júlíusdóttir Sveinbjörn Rögnvaldsson Skúli Júlíusson Linda Pehrsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.