Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 27
að búa hjá ykkur í ferðum mínum til Minneapolis; eftirminnilegast fyrir nokkrum árum þegar ég sárlasin hírðist á hóteli við há- skólann og þú vildir láta Örn sækja mig svo mér gæti batnað almennilega. Þið voruð okkar fjölskylda í margvíslegum skiln- ingi og nú eigið þið ótrúlega stór- an barnahóp, auk hins myndar- lega hóps sem stendur ykkur næst. Það er svo dýrmætt að hafa fengið að njóta vináttu þinnar og ykkar Arnar í öll þessi ár. Sér- staklega var gaman að þið skyld- uð koma í sextugsafmælið okkar Arnórs í Gróttu fyrir tveimur ár- um. Þú áttir orðið erfitt með tal en lést það ekki á þig fá og not- aðir I-paddinn til að tala við fólk. Áhuginn fyrir fólki og málefnum var samur og fyrr og gleðin í fyr- irrúmi. Við sendum Erni, Önnu, Rann- veigu, Bernharði, Kristjáni og þeirra fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Megi góðar minningar um yndislega konu ylja ykkur í sorginni. Helga og Arnór. Þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót, Við í stjórn Hollvinafélags Minnesotaháskóla viljum minn- ast Margrétar Arnar eða Maddýjar, eins og hún var alltaf kölluð, með nokkrum orðum. Íslendingar hafa ætíð verið víðförulir, sótt sér menntun er- lendis eða ákveðið að flytjast bú- ferlum. Þá skiptir samveran við landann miklu máli. Fjölmargir Íslendingar hafa sótt menntun sína til Háskólans í Minnesota (University of Minnesota) í Bandaríkjunum og í því ríki er einnig fjöldi Vestur-Íslendinga. Þannig hófst saga Maddýjar Arnar vestanhafs þegar hún fluttist með eiginmanni sínum, Erni Arnar lækni, sem var að hefja sérnám við Minnesotahá- skóla. Þau hjón tóku virkan þátt í samfélagi Íslendinga og Vestur- Íslendinga sem var og er mjög samheldið. Maddý var ein af máttarstólpum þessa samfélags, hún tók virkan þátt í starfi „The Hekla Club“, elsta kvenfélagsins í Vesturheimi, ásamt því að sinna menningarstarfi og var óþreyt- andi að kynna land og þjóð. bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót. (Stephan G. Stephansson) Ætíð var talað um Maddý og Örn í sömu andrá, þau voru teymi og sinntu af mikilli trúmennsku vesturíslenska samfélaginu auk annarra Íslendinga sem fluttust búferlum eða dvöldu í Minnesota til skamms tíma. Að vera stúdent erlendis getur verið flókið en jafnframt spennandi. Það tekur tíma að koma sér fyrir í öðru landi og annarri menningu, kynn- ast kerfinu og takast á við annað það sem fylgir. Það fyrsta sem ís- lenskir stúdentar fengu að vita var að alltaf væri hægt að leita til Maddýjar og Arnar eftir aðstoð eða upplýsingum og síðan var heimboð að hausti eða vori á heimili þeirra hjóna, sem þau nefndu Arnarhól. Heimili þeirra var mikið menningarheimili og þau höfðingjar heim að sækja. Einnig verður að minnast á óþrjótandi starf þeirra hjóna við að styðja við stúdenta frá Há- skóla Íslands sem komu til Minnesota í gegnum Styrktar- sjóð Valdimars Björnssonar. Maddý og Örn hafa unnið mikið starf við að bæði efla sjóðinn og kynna hann. Maddý sinnti óeigingjörnu starfi fyrir samfélagið fyrir vest- an meðfram því að sinna sínu eig- in heimili og stórri fjölskyldu. Hún tók öllum fagnandi með sínu fallega viðmóti og hafði einlægan áhuga á því sem hver og einn var að gera í sínu námi og vellíðan þeirra. Fyrir það verður seint fullþakkað. Stjórn Hollvinafélags Minne- sotaháskóla sendir Erni, börnum og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Hugur okkar er fyrir vestan á þessari kveðju- stund. Fyrir hönd stjórnar Hollvina- félags Minnesotaháskóla, Jónína Kárdal formaður. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 ✝ Halldóra Dav-íðsdóttir fædd- ist 19. október 1926 í Dældarkoti í Helgafellssveit og ólst þar upp. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir 10. september 2019. Halldóra var dóttir Davíðs Guð- mundar Davíðsson- ar sem var fæddur í Helludal í Beruvík undir Jökli 1879. Hann fórst með vélbáti frá Elliðaey 1935. Móðir Halldóru var Katrín Júlíana Albertsdóttir. Hún var fædd á Gríshóli í Helga- fellssveit 1883. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Grund 1968. Systir Halldóru var Dagbjört Davíðsdóttir fædd 21. október 1922 í Hrappsey. Hún lést 6. maí. Hálfsystkini Halldóru sam- feðra voru: 1) Eggert Svein- björn, fæddur á Hraunhálsi í Helgafellssveit 1901. Hann lést lést 1952. 2) Guðráður Þorsteinn Cesil fæddur á Hraunhálsi 1904. Hann lést 2003. 3) Kristín Bryn- hildur fæddist á Hraunhálsi 1908. Hún lést 2007. Halldóra giftist árið 1951 Andrési Árnasyni húsasmíða- meistara og verktaka, f. 2. mars 1926, frá Vík í Mýrdal. Foreldrar fædd 23. apríl 1957, prests- og leiðtogamenntuð í Svíþjóð. Börn Elínborgar og Árna Jóhanns- sonar eru: a) Andrés Heimir, fæddur 17. mars 1981, verkfræð- ingur. Sambýliskona hans er Berglind Rósa Halldórsdóttir. Sonur Andrésar og Berglindar er Kristófer Högni, fæddur 2016. b) Sandra Theódóra, fædd 26. júní 1986, lögfræðingur. Sam- býlismaður hennar er Einar Jónsson vélfræðingur. Börn Söndru og Einars eru Aldís Eva, fædd 2014, og drengur fæddur 4 ágúst 2019. 4) Hannes Bergur Andrésson, fæddur 8. júní 1958, trésmiður. Maki er Ingibjörg Jóna Baldursdóttir, fædd 14. maí 1955. Barn Ingibjargar, fóst- ursonur Hannesar er: a) Baldur Andri Regal. Sambýliskona hans er Elínborg Sigurðardóttir. Baldur á tvö börn; Petru og Sig- urð Rúnar. b) Helgi Pétur, fædd- ur 7. júlí 1983, tónlistarmaður og matreiðslumaður. Sambýliskona hans er Inga Huld Tryggvadótt- ir. Þeirra dóttir er Jóní, fædd 2017. Sonur Helga er Flóki, fæddur 2009. Móðir hans er Andrea Marel Þorsteinsdóttir. Barn Andrésar Árnasonar og Guðbjargar Guðmundsdóttur var Guðmundur, fæddur 31. maí 1948. Hann lést 13. júní 2011. Halldóra var húsmóðir og eftir hana liggur mikið safn mál- verka, leirmuna og margar aðr- ar gerðir af listaverkum. Útför Halldóru fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 20. sept- ember 2019, klukkan 11. hans voru Árni Einarsson versl- unarmaður frá Vík í Mýrdal og Arnbjörg Sigurðardóttir hús- móðir frá Akranesi. Andrés lést 5. nóv- ember 1988 í Reykjavík. Andrés og Hall- dóra eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Arnbjörg Andrésdóttir, fædd 30. janúar 1950. Hún á einn son Þorstein Sigurðsson fæddur 2. september 1973, hugbúnaðarfræðingur. 2) Davíð Karl Andrésson, fæddur 23. ágúst 1951, húsasmíðameist- ari og matsmaður. Davíð á þrjú börn, þau eru: a) Snorri Páll, fæddur 8. júní 1970, líffræð- ingur. Móðir hans er Greta Þur- íður Eyland Pálsdóttir. b) María Sjöfn Dupuis, fædd 7. febrúar 1974, myndlistarkona, hönnuður og kennari. c) Styrmir Þór, fæddur 16. maí 1976, húsasmíða- meistari. Sambýliskona hans er Fanný Kolbrún Bogadóttir. Dæt- ur þeirra eru Birna Ósk, fædd 2009, og Elísa Unnur, fædd 2012. Móðir Maríu Sjafnar og Styrmis er Bonnie Laufey Dupuis fædd í Bandaríkjunum 1954. 3) El- ínborg Hanna Andrésdóttir, Mamma er farin. Ég hef oft hugsað um að það kæmi að því. Mamma elskaði börnin sín og gerði miklar kröfur á móti. Hún var dæmigerð húsmóðir eins og var á sjötta áratugnum. Ég man eftir henni í stígvélum í þvotta- húsinu. Þvottavél með spaða og vindu sem var handsnúin. Síðan var þvotturinn settur í bala og slanga ofan í til að skola þvottinn. Hún söng af hjartans lyst. Það sama var að ske hjá hús- móðurinni uppi. Við vorum sendar til að kaupa inn, Svana dóttir Sig- ríðar uppi og ég. Við stálumst til að kaupa sælgæti. Akranesárin voru skemmtileg. Mamma fór með Akraborginni til Reykjavíkur og keypti föt á sig og okkur krakk- ana. Hún var flott til fara eins og konur voru á þessum árum. Ég var eins og sést best á myndum mjög flott klædd. Eldri systir mömmu giftist ekki og kom oft frá Reykjavík til Akraness. Það var skemmtilegt. Hún gaf okkur þvílíkar gjafir. Pabbi vann og vann. Það kom strákur í heimsókn. Við fórum í leiki, mjög gaman. Mamma sagði mér að hann væri bróðir minn, Guðmundur. Pabbi átti hann áður. Þetta fannst mér toppurinn þá stundina. Ég fór með pabba að heimsækja hann og tína egg. Á Akranesi voru bræðurnir Karl Sighvatsson og Sigurjón Sig- hvatsson. Þeir áttu heima í næstu götu. Ameríkanar voru mikið á ferðinni að taka myndir og gefa krökkum sælgæti. Við fluttum í Kópavog 1961. Pabbi fékk betri vinnu hjá Vita- og hafnamálum að byggja bryggjur úti um allt land og í Sundahöfn. Hann sá um hita- veituframkvæmdir í Kópavogi og víðar. Mamma var mikill dýravinur. Í sveitinni þar sem hún ólst upp átti hún hvítan hest sem hún nefndi Fjöður. Hundur sem kallaður var Kaffon var dýrkaður. Mamma tal- aði aldrei illa um foreldra sína. Faðir hennar fórst með vélbát frá Elliðaey þegar hún var níu ára. Hún var hjá fósturforeldrum í Dældakoti eftir það. Heitir núna Borgarland. Mamma fór á Hús- mæðraskólann á Staðarfelli í Döl- um. Hún kynntist pabba um það leyti á balli á Skildi í Helgafells- sveit. Þau hófu búskap fljótlega eftir það á Akranesi, á Kirkju- braut. Það var sami sjarminn og alltaf. Oddur í Brú, karl sem var hinum megin við götuna seldi Moggann. Mamma átti vinkonur á Akranesi; Henný Didda og Hadda, Dúnna og Hedda. Hedda var frá Bolungarvík og var snill- ingur í heimilisstörfum að strauja og stífa. Mamma elskaði barnabörnin sín og að fylgjast með öllu. Eftir að við fluttum í Kópavog var mamma í Samkór Kópavogs í mörg ár. Mamma átti vinkonur í Kópavogi. Man ég eftir konu sem var kölluð Lóa, einnig var Ásta og fleiri. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá mömmu síðustu stundirnar sem hún lifði. Hún var falleg kona og sérstaklega aðlað- andi. Ég kveð þig, elsku mamma, en vildi samt vilja hafa þig alltaf. Þín dóttir Arnbjörg. Amma mín og ég deildum sömu ástríðunni fyrir myndlistinni sem hafði áhrif á mig í uppvextinum og líklega vegna áhrifa hennar fór ég listabrautina í lífinu. Ég mun sakna samræðna okkar um listina og þeirra óendanlegu hugmynda sem við ræddum fram og til baka en aldrei skorti á hugmyndaauðgi hennar varðandi listina (og aldrei var léttur húmorinn langt und- an!). Hún vann myndlist sína í mismunandi miðla, sem dæmi málverk, leirverk og textílverk, og fjallaði hún þá helst um náttúru og landslag. Ég kveð ömmu mína með sorg en í senn með þakklæti í hjarta fyrir að auðga líf mitt. María Sjöfn. Halldóra Davíðsdóttir ✝ Hlynur Jón-asson fæddist 26. janúar 1944 á Rifkelsstöðum í Eyjafjarðarsveit. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 14. september 2019. Hann var sonur hjónanna Þóru Kristjánsdóttur, f. 9.5. 1909, d. 25.4. 1995, og Jónasar Halldórssonar, f. 9.11. 1903, d. 5.2. 1987. Hann átti fimm systkini, þau eru: Marselína, f. 9.12. 1933, Kristján, f. 4.3. 1937, d. 6.5. 1998, Gunnar, f. 16.8. 1939, Héðinn, f. 20.7. 1946, og Sigurður, f. 21.10. 1954. Hlynur kvæntist Vilborgu Gautadóttur árið 1976. Þau eiga þrjár dætur: Ragnheiði Baldursdóttur, gift Sigfúsi Að- alsteinssyni; Eddu J. Baldursdóttur, gift Sigmari Grét- arssyni; og Þóru Hlynsdóttur, gift Hallgrími Friðriki Sigurðarsyni. Barnabörn hans eru sex talsins, Guðrún, Egill og Hlynur Sigfúsar- börn, Orri og Álf- heiður Sigmars- börn og Iðunn Vil- borg Hallgrímsdóttir. Hlynur ólst upp á Rifkels- stöðum, fluttist svo til Akur- eyrar og bjó þar til dán- ardags. Hann starfaði sem mjólkurbílstjóri, vörubílstjóri hjá Stefni og frá 1979-2011 á skrifstofu Menntaskólans á Akureyri. Útför Hlyns fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 20. sept- ember 2019, klukkan 10.30. Kær skólabróðir minn og vinur er nú fallinn frá. Í haust eru 60 ár síðan við hittumst fyrst við setn- ingu á Laugaskóla í Reykjadal. Þar dvöldum við í þrjá vetur og með okkur tókst mikil og góð vin- átta sem aldrei hefur borið skugga á. Við tókum námið ekki alltaf mjög alvarlega og oft stóð- um við að ýmsum prakkarastrik- um, sem okkur hefur þótt gaman að rifja upp í hópi skólafélaga okkar. Við stríddum oft hvor öðr- um enda vorum við sessunautar öll árin á Laugum. Eitt sinn þeg- ar mér varð á að dotta í tíma, þá hnippir Hlynur í mig og segir að kennarinn sé að kalla á mig upp að töflu, þar stóð ég eins og illa gerður hlutur, horfði á kennarann sem var ekki minna hissa því hann hafði ekkert verið að kalla á mig! Ég launaði honum þetta seinna. Hlynur var góður í brids og oft spiluðum við einnig borðtennis saman, en fótboltinn var í uppá- haldi hjá honum og það varð hlut- skipti hans að verja markið í Laugaliðinu. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á fótbolta bæði sem stuðningsmaður KA og ekki síst fylgdist hann vel með sínu uppá- haldsliði, Manchester United, og fór hann stundum utan til að horfa á þá leika í ensku deildinni. Mér er minnisstætt hvað það var gaman að fara með honum á krá og horfa á leiki í ensku deildinni og hversu vel hann lifði sig inn í leikinn. Á síðari árum höfum við Bjarn- ey átt því láni að fagna að ferðast oft með þeim hjónum Hlyni og Vilborgu bæði innanlands og utan og betri ferðafélaga er ekki hægt að hugsa sér. Nú seinast í ágúst fórum við saman að Laugarhóli í Bjarnarfirði og áttum þar skemmtilega daga með útskrift- arhópnum okkar frá Laugum eins og svo oft áður. Þar var Hlynur hress og kátur að vanda og tók þátt í umræðum um hvar og hve- nær hópurinn ætti að hittast næst. Það var einnig mjög gaman að vera boðinn í grill í fallega sum- arbústaðinn þeirra hjóna. Hlynur var íhugull og fylgdist vel með þjóðmálaumræðunni og það var gaman að ræða við hann um framfaramál, sérstaklega málefni sem snerta Akureyri og Eyjafjörð. Eftir því sem hann ferðaðist meira varð hann æ sannfærðari um að þetta land- svæði væri eitt það besta á jörð- inni. Nú hefur Hlynur yfirgefið þessa jörð en eftir sitja minningar um góðan dreng og þakklæti fyrir vináttu og ófáar samverustundir. Vilborgu og fjölskyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur, Haukur og Bjarney. Kveðja frá Mennta- skólanum á Akureyri Við kveðjum með söknuði Hlyn Jónasson fyrrverandi starfsmann Menntaskólans á Akureyri. Hlyn- ur vann við skólann í 33 ár og var skólanum trúr og hollur starfs- maður. Hann starfaði lengst af við ljósritun og bóksölu en gekk í þau störf sem þurfti. Starfsstöð hans var framan af í suðurenda Gamla skóla en þegar nýjasta byggingin, Hólar, var tekin í notkun var hans bækistöð í and- dyri hennar. Hann var því alltaf í miklum og góðum samskiptum við nemendur. Þegar hann lét af störfum gáfu nemendur skólan- um trjáplöntu, hlyn, sem gróður- sett var sunnan við Gamla skóla og dafnar þar og vex. Hlynur var fjölhæfur sam- starfsmaður og úrræðagóður og gott að leita til hans með hvað eina. Menntaskólinn á Akureyri minnist Hlyns með þökkum og sendir eiginkonu hans og fjöl- skyldu samúðarkveðjur. Menntaskólanum á Akureyri, Jón Már Héðinsson skólameistari. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði, kæri vinur, með kærri þökk fyrir allt. Karl Ottesen, Sigurjóna Þórhallsdóttir og fjölskylda. Hlynur Jónasson í sveitina til afa og ömmu, þar tóku þau á móti okkur með opn- um örmum og besta hafragraut í heimi. Hjá þeim lærðum við að bera virðingu fyrir öllu lifandi en þau voru bæði natin og um- hyggjusöm gagnvart dýrunum og hugsuðu vel um gróðurinn. Sumrin í Hjarðardal gáfu okkur þær dýrmætustu minn- ingar sem við berum í brjósti. Fegurð fjarðarins og væntum- þykjan alltumvefjandi frá bæði afa og ömmu. Dagarnir voru teknir snemma í mjöltum, Bragi fór snemma að fá ýmis krefj- andi störf. Allt frá því að rabba við Sokku og Ljómalind (kýr), leika við Kát og Snotru (hundar), gefa morguntöðuna og rölta með kýrnar í úthagann. Afi var okkur fyrirmynd í nánast öllu. Hann var gríðar- lega vinnusamur og sinnti því sem sinna þurfti án þess að þurfa sérstaka hvatningu til. Sveitastörfin voru mörg og ekki einangruð við hefðbundin hús- dýr heldur sinnti hann æðar- varpi, herti fisk, reykti kjöt og verkaði. Við sem vorum svo heppin að eiga þennan afa fengum svo að fylgja með í flest verk enda sótti hann í félagsskap og hafði gaman af fólki. Þegar fólk upp- lifir einstaklinga eins og Haga- lín afa er erfitt að einangra fá atvik sem skilgreina manneskj- una. Nóg er að hugsa um afafang, ímynda sér lyktina og hlýjuna og finna ástina sem streymdi fá honum til okkar allra. Þegar amma og afi fluttu í Kópavoginn nutum við þess að hafa þau nær okkur. Afi kom og passaði þegar eitthvert okkar var lasið, keyrði í tónlistarskól- ann, fór með á slysó og bakaði heimsins bestu jólakökur og hafrakex, sem var svo smurt með allt of miklu smjöri. Honum var margt til lista lagt og þurfti alltaf að hafa eitt- hvað fyrir stafni. Hann tók upp glerlist og bók- band eftir að amma dó og var sérstaklega iðinn við glerlistina. Varla er til það heimili Önfirð- inga sem ekki skartar glerlist eftir afa. Að minnsta kosti eru heimili okkar skreytt með listaverkum eftir afa sem við höldum mikið upp á og þykir vænt um. Þó að honum þætti nú gott að fá kökur og sérstaklega ís, þá passaði þessi mikli sælkeri sig alltaf á því að gæta hófs. Hann hugsaði vel um heilsuna, borðaði hollt og hreyfði sig mikið á hverjum degi og gaf okkur oft góð ráð varðandi heilsu. Það var alltaf stillt á Rás 1 hjá afa og hann tók samvisku- samlega þátt í morgunleikfim- inni í útvarpinu á hverjum degi. Þegar við vorum saman í bú- staðnum okkar í Hjarðardal tók- um við að sjálfsögðu líka þátt í henni. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að hafa afa hjá okk- ur öll þessi ár og hugsum til baka með hlýju í hjarta. Hagalín afi er í okkar huga allt það besta sem mannkynið hefur boðið upp á. Enn þann dag í dag höfum við ekki hitt manneskju sem getur talað um afa Hagalín á neikvæðan hátt. Hann var hjálp- samur, góður við bæði dýr og menn og tók ábyrgð sína í sam- félagi manna alvarlega. Bragi Skaftason, Sólveig Skaftadóttir, Sigrún Skaftadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.