Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 34
FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Beitir Ólafsson er ekki þekktasta nafnið í íslenskri knattspyrnu. Og hvað þá árið 2017 þegar KR ákvað að fá hann til liðs við félagið. Nú stendur Beitir uppi sem Íslands- meistari með KR og varði mark liðs- ins af stakri prýði enda hefur KR haldið hreinu í átta leikjum á Ís- landsmótinu af tuttugu. Morgun- blaðið hafði samband við Beiti og spurði hvernig upplifun það væri að verða Íslandsmeistari? „Þetta er virkilega þægileg upp- lifun. Ég dreg ekkert úr því. Auk þess er fínt fyrir okkur að vera bún- ir að klára dæmið og þurfa ekki að stressa okkur á þessu í lokaleikj- unum. Á þessum árstíma fer veðrið líka að setja svip sinn á leikina og bitnar á spilamennskunni. Líðanin er góð og komið hefur mér virkilega á óvart hversu margir samgleðjast manni í þesssari stöðu. Ég hef feng- ið mörg skilaboð en einnig sam- gleðst fólk manni á vinnustaðnum eða bara úti í búð,“ sagði Beitir sem býr þó ekki í Vesturbæ Reykjavíkur heldur í Kópavoginum en það breyt- ir engu. „Hér hikar enginn við að óska mér til hamingju sem er yndis- legt.“ Markvörðurinn segir KR-inga hafa verið hárrétt stillta þegar Ís- landsmótið hófst og velgengni hafi því ekki komið honum á óvart. „Mér fannst við vera á rosalega góðri veg- ferð í vetur og unnum það sem hægt var að vinna í vetur og vor. Við fór- um því fullir sjálfstrausts inn í sum- arið og höfðum fulla trú á því sem við vorum að gera. Andrúmsloftið var þannig að maður fann fyrir því- líkum meðbyr og andinn í hópnum geggjaður. Við vorum allir á sömu blaðsíðu. Maður hafði ekki trú á því að við gætum tapað eins og sýndi sig þegar við lentum 0:2 undir á móti Val en unnum það upp. Hugarfarið var þannig að ekkert gæti brotið okkur niður og við gætum alltaf komist aftur inn í leikina.“ Mótlætið er góður skóli Þegar KR-ingar fóru að sýna hvað í þeim býr jókst einnig stemn- ingin á áhorfendapöllunum til muna en mætingin á KR-völlinn hafði dottið nokkuð niður síðustu sumur. „Já, er þetta ekki alltaf þannig að þegar fer að ganga vel þá koma fleiri á völlinn? Maður finnur virki- lega fyrir því í Vesturbænum þegar vel gengur en þegar gengur illa þá finnur maður einnig fyrir því. Það er allt í lagi. Þegar illa gengur þá er í góðu lagi að upplifa það og finna að fólk sé óánægt. Þá er bara spurning úr hverju þú ert gerður til þess að geta haldið áfram og gera betur. Þegar fer að ganga betur þá fær maður það margfalt til baka frá fólki. Þetta er náttúrlega svolítið sérstakt andrúmsloft í kringum KR og það er góður skóli fyrir leikmenn að ganga í gegnum þegar liðinu gengur illa. Hefðin er sú að ávallt er stefnt á að vinna titilinn. Ef þú ætlar að vera í KR þá verður þú bara að standa undir því,“ benti Beitir á. Kallið kom frá þingmanninum Ferill Beitis er nú nokkuð frá- brugðinn því sem gengur og gerist hjá fastamönnum í Íslandsmeist- araliði. Hann lék talsvert í neðri deildunum eftir að hafa fengið sitt knattspyrnuuppeldi í HK en var síð- an fyrirliði HK í nokkur ár þar sem hann varð m.a. meistari í 2. deild ár- ið 2013. Þegar hann var um þrítugt lék hann með Keflavík árið 2016. Tók hann sér pásu frá sparkinu í eina sjö mánuði og var með hugann við annað þegar kallið frá KR kom óvænt. KR-ingar lentu þá í vand- ræðum með markvarðarstöðuna og þáverandi þjálfari KR, og núverandi alþingismaður, Willum Þór Þórsson, fékk Beiti í KR árið 2017. Nú tveim- ur árum síðar stendur Beitir uppi sem Íslandsmeistari 33 ára gamall. „Ég lauk tímabilinu 2016 með Keflavík og ákvað einbeita mér að öðru í einhvern tíma. Ég var ekki endilega hættur en hafði ekki æft í sjö eða átta mánuði. Þar af leiðandi var ég að sjálfsögðu ekki með hug- ann við úrvalsdeildina og hvað þá KR. Þegar hringt var í mig þá ákvað ég að taka slaginn. Maður segir ekki nei við stærsta félag á Íslandi. Að vera nú Íslandsmeistari er eitthvað sem gerir mikið fyrir ferilinn. Það er rosalega skemmtileg viðurkenning að fá að taka þátt í því að vinna titil og vera í svo geggjuðu liði.“ Yfirlýsing Rúnars Skömmu fyrir Íslandsmótið lét Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, þau ummæli falla opinberlega að Beitir væri besti markvörður í deildinni. Svelgdist Beiti ekkert á kaffiboll- anum þegar hann heyrði þessa yfir- lýsingu? „Nei nei. Ég held að þarna hafi verið umfjöllun um einhvers konar einkunnagjöf þar sem við markverð- irnir í KR komum ekki vel út. Rúnar var auðvitað á vissan hátt að verja sínar ákvarðanir því í þessu fólst gagnrýni á hann sem þjálfara að velja þessa markverði. Hann var í leiðinni að verja sína menn og var í raun að segja að þessi gagnrýni ætti ekki rétt á sér. Á sama tíma þurft- um við auðvitað að standa okkur fyrst hann henti þessu fram. Þá þurftum við að standa okkar plikt og gera þetta eins og menn,“ sagði Beitir og hló en hann bætti því við að sjálfstraustið hefði verið til stað- ar hjá honum hvort sem var eftir gott gengi í undirbúningsmótunum. Heillaóskum rignir yfir markvörð meistaraliðsins  Beitir Ólafsson var í pásu frá sparkinu þegar kallið kom frá KR Morgunblaðið/Árni Sæberg Úthlaup Beitir Ólafsson kominn út í teiginn í leik gegn Stjörnunni í Garðabænum í sumar. 34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 AÐEIN S 12 SÆ TI LAUS Evrópudeild UEFA A-RIÐILL: APOEL Nikósía – Dudelange................. 3:4 Qarabag – Sevilla...................................... 0:3  Sevilla 3 stig, Dudelange 3, APOEL 0, Qarabag 0. B-RIÐILL: Dynamo Kiev – Malmö............................ 1:0  Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 86 mínúturnar með Malmö. FC Köbenhavn – Lugano ........................ 1:0  Dynamo Kiev 3, FC Köbenhavn 3, Malmö 0, Lugano 0. C-RIÐILL: Basel – Krasnodar ................................... 5:0  Jón Guðni Fjóluson var á varamanna- bekk Krasnodar. Getafe – Trabzonspor .............................. 1:0  Basel 3, Getafe 3, Trabzonspor 0, Kras- nodar 0. D-RIÐILL: LASK Linz – Rosenborg ......................... 1:0 PSV Eindhoven – Sporting Lissabon..... 3:2  PSV 3, LASK 3, Sporting 0, Rosenb. 0. E-RIÐILL: CFR Cluj – Lazio ..................................... 2:1 Rennes – Celtic......................................... 1:1  CFR Cluj 3, Celtic 1, Rennes 1, Lazio 0. F-RIÐILL: Eintracht Frankfurt – Arsenal ............... 0:3 Standard Liege – Vitória Guimaraes. .... 2:0  Arsenal 3, Standard 3, Frankfurt 0, Vi- tória Guimaraes 0. G-RIÐILL: Porto – Young Boys ................................. 2:1 Rangers – Feyenoord .............................. 1:0  Porto 3, Rangers 3, Young Boys 0, Feyenoord 0. H-RIÐILL: Ludogorets – CSKA Moskva .................. 5:1  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA en Arnór Sigurðsson er meiddur. Espanyol – Ferencváros.......................... 1:1  Ludogorets 3, Ferencváros 1, Espanyol 1, CSKA 0. I-RIÐILL: Gent – Saint-Étienne ............................... 3:2 Wolfsburg – Oleksandriya....................... 3:1  Wolfsburg 3, Gent 3, Saint-Étienne 0, Oleksandriya 0. J-RIÐILL: Mönchengladbach – Wolfsberger........... 0:4 Roma – Istanbul Basaksehir................... 4:0  Wolfsberger 3, Roma 3, Basaksehir 0, Mönchengladbach 0. K-RIÐILL: Slovan Bratislava – Besiktas................... 4:2 Wolves – Braga......................................... 0:1  Braga 3, Slovan Bratislava 3, Besiktas 0, Wolves 0. L-RIÐILL: Manchester United – Astana.................. 1:0  Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik- inn með Astana. Partisan Belgrad – AZ Alkmaar ........... 2:2  Albert Guðmundsson var á varamanna- bekk AZ.  Man Utd 3, AZ 1, Partisan 1, Astana 0. KNATTSPYRNA Það gekk á ýmsu hjá Skagakonunni Valdísi Þóru Jónsdóttur á fyrsta hringnum á opna Lacoste Ladies Open-mótinu í golfi í Frakklandi í gær en mótið er hluti af LET- Evrópumótaröðinni, þeirri sterk- ustu hjá atvinnukylfingum í Evrópu í kvennaflokki. Valdís Þóra var í góðum málum eftir fyrri níu holurnar en hún var þá á einu höggi undir pari. Hún hóf seinni hlutann með því að fá par á 10. og 11. holu en fékk svo fjórfald- an skolla á 12. holunni og fékk svo síðar þrjá skramba í röð. Valdís kom í hús á 79 höggum eða á átta höggum yfir pari og er í 96. sæti sæti af 108 keppendum. Valdís var fyrir mótið í 78. sæti á stigalista mótaraðarinnar en henn- ar besti árangur í ár er 5. sæti. Skrautlegt skorkort Valdísar Ljósmynd/LET 79 Valdís Þóra Jónsdóttir var ekki á góðu skori í Frakklandi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.