Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
Sími 577 1313 • kistufell.com
Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13
Allar almennar bílaviðgerðir
Sérfræðingar í vélum
Eigum úrval af varahlutum á
góðu verði í flestar gerðir bíla
Við höfum endurnýtt og
byggt vélar og vélahluti
frá árinu 1952
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Rannveig Sig-
urðardóttir og
Unnur Gunn-
arsdóttir hafa
verið fluttar í
starf varaseðla-
bankastjóra en í
nýjum lögum
um Seðlabanka
Íslands sem
samþykkt voru í
júní síðast-
liðnum er kveð-
ið á um að skipaðir verði þrír
varaseðlabankastjórar til fimm
ára í senn.
Einn varaseðlabankastjóri á að
leiða málefni sem varða pen-
ingastefnu, annar málefni er
varða fjármálastöðugleika og sá
þriðji málefni er varða fjármála-
eftirlit. Þetta kemur fram í til-
kynningu á vef fjármálaráðu-
neytisins.
Rannveig var áður aðstoðar-
seðlabankastjóri og hóf störf í
því starfi í júlí í fyrra. Unnur
var áður forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins. Katrín Jakobsdóttir hef-
ur flutt Rannveigu Sigurðar-
dóttur í starf varaseðlabanka-
stjóra peningastefnu frá og með
1. janúar 2020 með hliðsjón af
bráðabirgðaákvæði hinna nýju
laga. Í því kemur fram að emb-
ætti aðstoðar-
seðlabanka-
stjóra verði
lagt niður þeg-
ar lögin öðlast
gildi um næstu
áramót og að
forsætisráð-
herra sé heim-
ilt án auglýs-
ingar að flytja
núverandi að-
stoðarseðla-
bankastjóra í nýtt embætti vara-
seðlabankastjóra.
Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra,
hefur þá flutt Unni Gunn-
arsdóttur í starf varaseðla-
bankastjóra fjármálaeftirlits
frá og með 1. janúar 2020 með
hliðsjón af bráðabirgðaákvæði
laga um opinbert eftirlit með
fjármálastarfsemi.
Þar kemur fram að embætti
forstjóra Fjármálaeftirlitsins
verði lagt niður þegar samein-
ing Seðlabanka Íslands og Fjár-
málaeftirlitsins öðlast gildi um
næstu áramót sem og að fjár-
mála- og efnahagsráðherra sé
heimilt án auglýsingar að flytja
forstjóra Fjármálaeftirlitsins í
nýtt embætti varaseðla-
bankastjóra.
Skipaðar vara-
seðlabankastjórar
Rannveig
Sigurðardóttir
Unnur og Rannveig í ný embætti
Unnur
Gunnarsdóttir
Fyrirtæki leita margvíslegra leiða
til þess að auglýsa sig og vörur sín-
ar og er Reyka Vodka sem fram-
leitt er í brugghúsi í Borgarnesi
fyrir William Grant & Sons engin
undantekning, en í fyrsta skipti í
sögu mannkyns verður þar starf-
ræktur „jöklabar“ þegar Reyka
Vodka Bar heldur opnum bar í
fimm daga á Langjökli 16. til 20.
október næstkomandi, að því er
segir í fréttatilkynningu frá Reyka
Vodka. Væntanlegum gestum verð-
ur þó ekki einfölduð ferðin á barinn
þar sem þeim eru aðeins gefin
GPS-hnit svo þeir geti ratað þang-
að.
Taka við umsóknum
William Grant & Sons segist vera
að höfða til „innri víkings“ Breta
með því að gefa þeim tækifæri til
þess að gerast norrænir sjófarar og
fá einstaka íslenska upplifun. Telur
fyrirtækið gestina verða uppfulla af
undrun við að heimsækja fyrsta bar
á jökli. „Langjökull er í hjarta Ís-
lands og vill svo til að vatnið sem
notað er við framleiðslu Reyka
Vodka er úr Langjökli,“ segir í
markaðssetningu barsins.
Áhersla á hreinleika Íslands
Ferðalöngum sem leggja leið
sína á Langjökul og finna barinn
fyrirheitna verður boðið upp á
Puffin Collins, sem er sérstakur
kokteill hannaður fyrir Reyka
Vodka. Þeim sem kunna að hafa
áhuga á að fá ferð á hið umrædda
öldurhús er bent á að senda inn
umsókn á vef Reyka Vodka, en
skorað er á þá sem eru svo óheppn-
ir að verða ekki fyrir valinu að
komast á barinn aðeins með GPS-
hnitin sem leiðsögn.
Vodkinn kom fyrst á markað árið
2005 og hefur hann orðið æ vinsælli
með árunum. Vann hann meðal
annars til verðlauna árið 2011 á al-
þjóðlegri vínsýningu í Lundúnum.
Varan er markaðssett sem hágæða-
vodki og er hreinleiki íslenskrar
náttúru fyrirferðarmikill í markaðs-
setningu vörunar. gso@mbl.is
Ljósmynd/Reyka Vodka
Kaldur Það er allsendis óvíst hve margir gætu verið reiðubúnir að leggja
leið sína á Langjökul í leit að vodka, en ferðin gæti orðið eftirminnileg.
Fyrsta öldurhúsið
opnað á Langjökli
Jökulbarinn
fyrsti sinnar
tegundar