Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
NÝTT!
FERSKARA
BROS MEÐ
JORDAN
Elskaðu tennurnar þínar
Ferskleiki í allt
að 12 tíma
Kemur í veg fyrir
andremmu
Fer vel með
glerunginn
50 ára Heiðdís er frá
Götu í Holtum í Rang-
árvallasýslu en býr í
Reykjavík. Hún er hár-
snyrtimeistari og leið-
sögumaður að mennt
og er einnig með BA-
gráðu í ensku frá Há-
skóla Íslands og MA-gráðu í menningar-
miðlun sömuleiðis frá Háskóla Íslands.
Hún er sölustjóri FlyOver Iceland og enn
fremur stundakennari í Leiðsöguskóla
Íslands.
Börn: Einar Jarl Björgvinsson, f. 1998,
og Ýmir Karl Björgvinsson, f. 2001.
Foreldrar: Einar Brynjólfsson, f. 1937, og
Sigrún Ingólfsdóttir, f. 1938, bændur í
Götu.
Heiðdís
Einarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að setjast niður og fara í
gegnum það hvernig þú verð tíma þínum
og með hverjum. Stattu fast á þínu og
láttu aðra um sitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki aðfinnslur annarra í þinn
garð hafa of mikil áhrif á þig. Mundu að
áhyggjur breyta engu um gang mála.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fólk hrífst af færni þinni til að
átta þig á heildarmyndinni í stað þess að
dvelja við smáatriði. Þú ert með við-
skiptahugmynd sem þú ættir að skoða
betur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú býrð yfir mikilli orku sem þú
getur sótt í þegar aðstæður krefjast. Þér
líkar ekki þegar einhver tekur eigur þínar
traustataki.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sinntu vinum þínum og gefðu þér
tíma til að hlusta á þá. Slakaðu á taumn-
um í samskiptum við unglinginn á heim-
ilinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér bjóðast góðir fjárfestingar-
möguleikar og þér á eftir að reynast auð-
velt að fá lánað fé. Sýndu klærnar er ein-
hver ætlar að vaða yfir þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að huga að því hvernig þú
getur samræmt líf þitt hugsjónum þínum.
Haltu þig í góðri fjarlægð frá fólki sem
þrífst á neikvæðni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú verður að gefa þér meiri
tíma til að slaka á og vera í einrúmi. Eng-
inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Yfirmaðurinn sér eitthvað í
þér og gefur þér tækifæri til að blómstra.
Þú ert óviss um framhald ástarsambands.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert reiðubúinn til að leggja
þig fram við að bæta afkomu þína. Vin-
skapur stendur á brauðfótum, en það er
hægt að bjarga honum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Eldri vinur kemur þér til að-
stoðar í dag. Það er auðvelt að vera vitur
eftir á. Láttu sem ekkert sé þótt kjafta-
sögur grasseri um þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur vanrækt heimilisstörfin
og þarft að taka þér tak og sinna þeim
málum. Stefnumót á eftir að umturna lífi
þínu.
Björn Valur hefur samið fjölda laga
og texta og hafa nokkur þeirra verið
gefin út á geisladiskum hljómsveit-
arinnar.
„Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga
áhöfninni á Kleifabergi ÓF-2 hljóm-
sveitina Roðlaust og beinlaust sem
gaf út nokkra geisladiska með sjó-
mannalögum sem seldir voru til
styrktar Slysavarnaskóla sjómanna.
B
jörn Valur Gíslason
fæddist 20. september
1959 í Ólafsfirði og ólst
þar upp. Hann bjó í
Ólafsfirði fram til 2007
þegar fjölskyldan flutti til Akureyr-
ar þar sem hann hefur verið búsett-
ur síðan.
Björn Valur útskrifaðist með 3.
stigs skipstjórnarpróf frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1984,
hann lauk kennsluréttindanámi frá
Háskólanum á Akureyri sem fram-
haldsskólakennari árið 2006 og tók
fanskt skipstjórnarpróf í Concarn-
eau í Frakklandi haustið 2018. Hann
hefur jafnframt lokið fjölmörgum
starfstengdum réttindanámskeiðum
hér heima og erlendis á undan-
förnum árum.
Björn Valurbyrjaði til sjós 15 ára
gamall á bátum í Ólafsfirði. Hann
var sjómaður og síðar stýrimaður og
skipstjóri á bátum og togurum frá
Ólafsfirði, þ.á m. sumum af farsæl-
ustu togurum Íslands t.d. Sólbergi
ÓF-12 og Kleifabergi ÓF-2. Hann
var yfirmaður á norskum flutninga-
skipum á árunum 2013-2016. „Ég
hef frá árinu 2017 starfað sem skip-
stjóri í Frakklandi og tók vorið 2018
við togaranum EMERAUDE, nýj-
um og fullkomnum frystitogara
gerðum út frá Saint Malo í Frakk-
landi og er skipstjóri á því skipi í
dag.“ Björn Valur hafði umsjón með
og kenndi fyrsta stig skipstjórnar í
Ólafsfirði í tvö ár og hélt fjölda nám-
skeiða fyrir smábátasjómenn á
Norðurlandi í mörg ár, svokallað
pungapróf.
Björn Valur var bæjarfulltrúi
Vinstrimanna og óháðra í Ólafsfirði
á árunum 1986-1998 og gegndi fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum fyrir bæj-
arfélagið á þeim tíma. Hann var
kjörinn á Alþingi fyrir Norðaustur-
kjördæmi vorið 2009 og sat á þingi
til 2013. Björn Valur var varafor-
maður og síðar formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis á árunum eftir
hrun, formaður samgöngunefndar,
formaður þingflokks Vinstri-
grænna og varaformaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs í
nokkur ár, svo fátt eitt sé nefnt.
Björn Valur starfrækti ásamt
á tónlist, hlustað mikið á tónlist og
lærði á gítar í nokkur ár. Ég hef frá
barnsaldri stundað stangveiðar í ám
og vötnum á Norðurlandi og geri
enn.“
Björn Valur Gíslason skipstjóri – 60 ára
Fjölskyldan Björn Valur og Þuríður Lilja ásamt dætrunum Kötlu Hrund, Berglindi Hörpu og Sigurveigu Petru.
Stýrir frönskum frystitogara í dag
Þingmenn Björn Valur og Pétur Blöndal heitinn.
„Við vorum ágætir mátar.“
EMERAUDE Frystitogarinn sem Björn Valur er skipstjóri á.
Í dag eiga gullbrúð-
kaupsafmæli annars vegar
Anna Rósa Skarphéð-
insdóttir og Sigurður J.
Ágústsson og hins vegar og
Pétur Skarphéðinsson og
Sigríður Guttormsdóttir. Þau
voru gefin saman 20. sept-
ember 1969 í Dómkirkjunni af
sr. Skarphéðni Péturssyni,
föður Önnu Rósu og Péturs.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
50 ára Sveinn er
Akureyringur en býr
á Syðra-Felli í Eyja-
fjarðarsveit. Hann er
kjötiðnaðarmaður að
mennt frá VMA og
hefur unnið hjá
Kjarnafæði frá 17 ára
aldri. Hann er líka hobbíbóndi, með
hross og kindur.
Maki: Sandra Einarsdóttir, f. 1984,
vinnur á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
Börn: Heiðmar Kári, f. 2010, og Ingi-
mar Atli, f. 2013.
Foreldrar: Kjartan Friðriksson, f. 1952,
vörubílstjóri hjá Norðurorku, og Hjördís
Björk Bjarkadóttir, f. 1956, leikskóla-
kennari á Síðuseli. Þau eru búsett á
Akureyri.
Sveinn Ingi
Kjartansson
Til hamingju með daginn