Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
✝ Loftur Þor-steinsson fædd-
ist í Haukholtum,
Hrunamanna-
hreppi, 30. maí
1942. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 5. sept-
ember 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Ást-
björt Oddleifsdótt-
ir, f. 28. júlí 1913, d.
11. febrúar 1983, og Þorsteinn
Loftsson, f. 23. september 1905,
d. 25. janúar 1991. Bróðir Lofts
er Oddleifur, f. 3. maí 1936, eig-
inkona hans er Elín Kristmunds-
dóttir, f. 12. mars 1942.
Eftirlifandi eiginkona Lofts
er Hanna Lára Bjarnadóttir frá
Hörgsdal á Síðu, f. 10. ágúst
1951, dóttir Dórótheu Theo-
dórsdóttur, f. 24. maí 1926, d.
19. desember 2016, og Bjarna
Bjarnasonar, f. 12. maí 1902, d.
6. júlí 1992. Börn Lofts og
Hönnu eru: 1) Þorsteinn, f. 19.6.
1981, eiginkona hans er Stein-
unn Lilja Heiðarsdóttir, f. 17.10.
1986. Börn þeirra eru: a) Loftur,
prófi frá Bændaskólanum á
Hvanneyri 1961. Loftur hóf sinn
búskap í félagsbúi með föður
sínum Þorsteini. Síðar var Loft-
ur í félagsbúi með Oddleifi bróð-
ur sínum í Haukholtum, en þeir
skiptu síðan búinu þegar sveit-
arstjórnarmálin fóru að taka yf-
ir hjá Lofti. Fjárbúskap stund-
aði Loftur til 2004 þegar synir
hans tóku við búrekstrinum.
Loftur starfaði í stjórn ung-
mennafélags Hrunamanna um
árabil og var virkur í leikhópi
félagsins í fjölda ára. Hann var
kjörinn í hreppsnefnd Hruna-
mannahrepps 1978 og sat þar í
samtals 24 ár, þar af 20 ár sem
oddviti og sveitarstjóri. Það var
á miklu uppbyggingartímabili á
Flúðum. Loftur var formaður
Sambands sunnlenskra sveitar-
félaga árin 1990-1991 og starf-
aði í fjölmörgum nefndum og
ráðum á vettvangi sveitar-
stjórna, sem og í heimasveit
sinni. Þegar Loftur sagði skilið
við oddvita- og sveitarstjórastól-
inn 2002 setti hann orku sína í
fjárbúið í Haukholtum og ýmis
önnur störf tengd búskap og
fleiru, t.d. fóðureftirlit, sauð-
fjármarkavörslu og störf í rétt-
inni í sláturhúsi Suðurlands svo
eitthvað sé nefnt.
Útför Lofts fer fram frá Skál-
holtsdómkirkju í dag, 20. sept-
ember 2019, klukkan 14.
f. 12.3. 2014, b) Víg-
lundur, f. 12.5.
2015, og c) Heiðdís
Hanna, f. 21.7.
2019. 2) Magnús
Helgi, f. 3.8. 1983,
sambýliskona hans
er Alina Elena
Balusanu, f. 13.4.
1980. Börn þeirra
eru: a) Anna María,
f. 22.8. 2005, og b)
Ástbjört, f. 1.1.
2008. 3) Berglind Ósk, f. 6.3.
1987, sonur hennar er a) Anton
Ýmir, f. 24.10. 2013. Synir
Hönnu og stjúpsynir Lofts eru:
4) Edvin, f. 4.9. 1971, og 5) Ólaf-
ur Bjarni, f. 20.8. 1973, eig-
inkona hans er Marlín Aldís
Stefánsdóttir, f. 12.5. 1982. Börn
þeirra eru: a) Baldur Þór, f.
4.12. 2005, og b) Eva Ósk, f. 23.2.
2009. Dóttir Marlínar er Árdís
Lilja, f. 4.9. 2001.
Loftur ólst upp í Haukholtum
og átti heima þar lengst af. Árið
2007 fluttu Loftur og Hanna að
Ásastíg á Flúðum.
Eftir nám í íþróttaskólanum í
Haukadal lauk Loftur búfræði-
Með kökk í hálsi og tárvot augu
hef ég sest niður síðustu daga og
gert tilraunir til að hefja skrif en
ekki fundið réttu orðin. Nú loks
hef ég áttað mig á því að það eru
engin orð rétt eða röng í minning-
argrein um föður sinn en ég ætla
að byrja með smá texta sem ég
fann á netinu rétt fyrir andlát föð-
ur míns. Ég þýddi hann yfir á ís-
lensku.
„Sorg, hef ég lært að er í raun bara ást.
Það er öll sú ást sem þig langar að gefa
en getur ekki. Öll þessi ónotaða ást
safnast saman í hvarmi auga þíns,
kökkurinn í hálsinum og holrúmið í
brjóstinu. Sorg er í raun ást sem hefur
engan samastað.“
(Jamie Anderson)
Ég lærði það frekar ung að ég
þyrfti að deila athygli föður míns
með mörgum, þá er ég ekki bara
að tala um bræður mína fjóra og
mömmu heldur allt sveitarfélagið
eins og það lagði sig. Það gat oft
reynst erfitt verandi algjör
pabbastelpa.
Því var ekki óalgeng sjón að sjá
stelpuskottið seinnipart dags eftir
skóla inni á hreppsskrifstofunni
að sniglast í kringum föður sinn.
Ófá heimalærdómsverkefnin voru
afgreidd þar með dyggri aðstoð
hans því alltaf gat hann litið upp
úr sínum verkefnum til þess að
aðstoða litla skottið með heima-
námið.
Samband okkar pabba var á
margan hátt einstakt. Við höfðum
mjög ólíkar skoðanir á mörgum
hlutum og mögulega hefði ég ekki
getað valið mér ólíkara líf en hans.
En það sem hélt okkur nánum
fram á síðasta dag var virðing. Ég
virti hann og hans skoðanir og
hann virti mig og mínar.
Það eru ófáir hlutirnir sem
pabbi kenndi mér sem ég hef í far-
teskinu í gegnum lífið. Má þar
telja; virðingu fyrir náunganum,
hreinskilni, dugnað, samkennd,
þrjósku, þolinmæði, brúkun ham-
ars, naglhreinsun dekkja, rjóma-
ísát og svo margt fleira, listinn er
langur.
Síðustu vikurnar áttum við
pabbi margar einlægar stundir,
þótt ég vissulega vildi óska að þær
hefðu verið fleiri. Eftirminnileg-
ust er sjálfsagt sú þegar ég er að
keyra hann frá Reykjavík á Sel-
foss eftir miklar rannsóknir á
spítalanum.
Við ræddum á leiðinni um
heima og geima. Þarna vorum við
sjálfsagt farin að átta okkur að-
eins á alvarleika veikinda hans.
En þegar við komum að Kamba-
brún þögnum við bæði, ég hægi
ögn á bílnum og ég finn hvernig
hann sýgur í sig útsýnið. Það var
heiðskírt og bjart, sást vel alla leið
til Vestmannaeyja og við sáum
hvernig haustlitirnir voru að
byrja að taka yfir. Fegurð náttúr-
unnar tók alla okkar athygli.
Þar með var uppáhaldsárstími
pabba genginn í garð, haustið.
Þegar ég hugsa til baka um
tíma okkar pabba saman er þakk-
læti mér efst í huga. Þakklátust er
ég fyrir að sonur minn hafi fengið
að kynnast afa sínum og sé orðinn
nógu gamall til að hægt sé að við-
halda minningunni um afa Loft
með sögum og upprifjunum.
Hvíldu í friði, elsku pabbi, ég
mun alltaf sakna þín.
Litla stelpuskottið þitt,
Berglind Ósk.
Elsku faðir minn, Loftur Þor-
steinsson, verður jarðsunginn í
dag. Ég á þér svo margt að þakka
og minningarnar margar og góð-
ar. Eitt er víst að alltaf varst þú til
í að hjálpa mér í einu og öllu.
Sama hvert verkefnið var. Man ég
að sem unglingur setti ég mér það
markmið að gerast sjómaður. Þá
studdir þú mig í því og keyrðir
mig þangað sem ég þurfti að fara,
enda ég ekki kominn með aldur til
að keyra sjálfur. Alltaf vissir þú
hvar báturinn minn var á veiðum
því þú fylgdist alltaf með og ég
veit að þú gerir það enn. Ég fann
alltaf öryggi í því að þú værir með
puttann á púlsinum í öllu sem ég
hef tekið mér fyrir hendur. Í bú-
skapnum var alltaf hægt að leita
til þín um ráðleggingar. Þótt við
værum ekki alltaf sammála kom-
umst við oftast á góðar niðurstöð-
ur.
Ómetanlegt er hversu mikið þú
hjálpaðir Alinu þegar ég var í
burtu og hjálpaðir henni sem þú
gast og það var gríðarlegt öryggi
bæði fyrir mig sem og hana. Ég
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig, Alinu, Önnu og
Ástbjörtu. Ég þakka þér allan
þennan tíma sem ég hef haft þig
með mér til að kenna mér og leið-
beina.
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og
góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei aftur á ný.
Megi algóður guð þina sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
Mun minning þin lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Hvíldu í friði, elsku faðir.
Magnús Helgi.
Í dag kveð ég tengdaföður
minn. Fyrir 15 árum kynntist ég
Lofti og með sínu hlýja brosi bauð
hann mig velkominn í fjölskyldu
sína.
Hann var mikill bóndi með
sterkar skoðanir og ég lærði mik-
ið af honum. Sauðburður var fyrir
honum eins og jól fyrir börnin; til-
hlökkun og gleði þar í fyrirrúmi.
Loftur var góður maður sem var
alltaf tilbúinn til að hjálpa öðrum.
Frábær afi sem sinnti barna-
börnunum sínum sem best hann
gat. Ég vil þakka þér samfylgdina
og alla þá ást og hlýju sem þú hef-
ur veitt mér.
Þú mátt vita það að þú ert demantur
bjartur.
Ég veit ég hef sagt það áður,
En ég bara verð að segja það aftur.
Það sem þú hefur gert fyrir mig er svo
ótrúlega margt.
Ég get ekki þakkað þér nóg, hvað get
ég meira sagt?
Ég veit þó að þakklæti mitt er mjög
svo breitt,
Góðir hlutir hafa einungis af þér leitt.
(Birna Rún)
Þökk fyrir allt og hvíldu í friði.
Alina.
Nú minnumst við hins frábæra
manns Lofts Þorsteinssonar afa
okkar. Hann var alltaf með tyggjó
á sér til að geta gefið okkur. Afi
var líka svo mikill ískall, alltaf
með besta ísinn og það klikkaði
ekki að þegar við vorum í heim-
sókn átti hann ís í frystikistunni
og gaf okkur. Fékk sér líka, okkur
til samlætis. Þegar við vorum
yngri gaf hann okkur alltaf
nammi á laugardögum. Honum
fannst aldrei leiðinlegt að spila við
okkur eða tefla. Hann hjálpaði
okkur líka með allt heimanámið
og bara að læra allt um hverdags-
lífið. Ef það vantaði einhvern til að
skutla okkur eða ná í okkur var afi
alltaf reiðubúinn.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði, kæri afi.
Anna María og Ástbjört.
Elsku afi minn, ég mun elska
þig að eilífu. Mér fannst svo gam-
an að tefla við þig þegar ég kom
og var hjá ykkur ömmu í sveitinni.
Göngutúrarnir okkar saman „afa-
hringinn“ voru alltaf skemmtileg-
ir. Takk fyrir að eiga alltaf handa
mér grænmeti á borðinu, skyr í ís-
skápnum og ís í frystinum.
Mamma segir að þú sért orðinn
engill sem vakir yfir mér og ég
veit þá að ég verð alltaf öruggur.
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann
í himnaríki fer hann nú
þar verður hann glaður, það er mín trú
Því þar getur hann vakað yfir okkur dag
og nótt
svo við getum sofið vært og rótt
hann mun ávallt okkur vernda
vináttu og hlýju mun hann okkur senda
Elsku afi, guð mun þig geyma
yfir okkur muntu sveima
en eitt vil ég þó að þú vitir nú
minn allra besti afi, það varst þú.“
(Katrín Ruth, 1979)
Þú varst besti afinn og ég mun
aldrei gleyma þér.
Þinn dóttursonur,
Anton Ýmir.
Þú Árnesþing ég elska nafnið þitt.
Þar upp til fjalla er helgisetrið mitt.
Þessar línur úr ljóði Eiríks
Einarssonar frá Hæli komu upp í
hugann þegar föðurbróðir okkar,
hann Loftur frændi, var látinn.
Héraðinu sínu unni hann og helg-
aði stóran hluta ævistarfsins.
Helgisetrið hans upp til fjalla var
Haukholt, þar fæddist hann, þar
ólst hann upp og þar bjó hann nær
alla sína ævi.
Loftur var glaðsinna og góður
maður. Minningar um hann eru
margar, sérstaklega frá barn-
æsku okkar. Þá bjuggu þeir
bræður pabbi og Loftur félagsbúi.
Fjósið var sameiginlegt, þó að
kýrnar væru í séreign. Mjalta-
tímarnir voru því samverustundir
tvisvar á dag alla daga. Samvinna
var við öll önnur helstu störf eins
og heyskap, sauðburð, smala-
mennskur og klakveiði á haustin.
Loftur var foringinn, hann var
stjórnsamur en stjórnaði af hóg-
værð og kænsku.
En Loftur var líka stríðinn og
naut þess að gera at í okkur
krökkunum. Þegar nóg var komið
og þolinmæði okkar á þrotum þá
brosti hann góðlátlega út í annað
munnvikið. Pípan var í hinu.
Til margra ára átti Loftur
sterkan og góðan bleikálóttan
fjallhest sem hét Stormur. Það
ríkti mikil eftirvænting hjá okkur
þegar farið var á móti safninu inn
að afréttargirðingu að sjá þegar
þeir birtust félagarnir Loftur og
Stormur. Ekki má heldur gleyma
hundinum honum Smala. Ávallt
komu þeir á vesturkantinum og
þekktust langt að.
Loftur var mikill leikari og tók
virkan þátt í leikstarfi Ung-
mennafélags Hrunamanna. Hann
var hæfileikaríkur og gat leikið
hvaða hlutverk sem var. Æfingar
voru tíðar og oft langt fram á nótt.
Eftir frumsýningu tóku við leik-
ferðir um allt Suðurland. Þegar
önnur leikfélög komu með verk
sín á Flúðir tók Loftur okkur
gjarnan með á þær sýningar og
hvatti okkur til að njóta leiklist-
arinnar.
Það má með sanni segja að
Loftur var ákaflega félagslyndur
maður, hann naut sín vel innan
um fólk og hafði sterkar skoðanir
á samfélagsmálum. Hann var
ræðinn og sagði skemmtilega frá
enda vel að sér um menn og mál-
efni. Það kom því ekki á óvart
hversu mikinn hluta starfsævinn-
ar hann helgaði ýmiss konar fé-
lags- og sveitarstjórnarmálum.
Þau áttu hug hans allan og þessi
störf stundaði hann af alúð og
kappi. Loftur var oddviti og sveit-
arstjóri í Hrunamannahreppi í tvo
áratugi og lagði sig allan fram um
að sinna því starfi. Sumarfrí eða
frí til að sinna búrekstrinum tók
hann sjaldan, þjónustan við sam-
félagið var númer eitt. Við erum
stolt af Lofti frænda og þeirri
óeigingjörnu vinnu sem hann
vann fyrir sveitina.
Eftir að Loftur og Hanna fluttu
heimili sitt að Flúðum kom hann
nær daglega upp í Haukholt, til að
leggja lið og líta eftir. Alltaf kom
hann við í kaffi hjá foreldrum okk-
ar í þessum ferðum, nærri því til
síðasta dags. Þau munu sakna
þessara samverustunda sem og
gamalla tíma. Það er tómlegra um
að litast á hlaðinu í Haukholtum
eftir fráfall Lofts.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Ásta, Elín og Jón Þorsteinn.
Að morgni 5. september síðast-
liðins hringdi hún Berglind
frænka mín í okkur Guðbjörgu til
að láta okkur vita að faðir hennar
og frændi minn og vinur Loftur
Þorsteinsson hefði látist þá um
nóttina.
Þetta hefði svo sem ekki átt að
koma mér á óvart því við Guð-
björg höfðum heimsótt hann á
sjúkrahúsið á Selfossi tveimur
dögum fyrr og duldist okkur ekki
að hann var orðinn mjög veikur.
Eins og tíðkaðist í æsku minni
var ég sendur ungur í sveit á
sumrin. Það varð gæfa mín að fá
að vera krakki hjá Þorsteini föð-
urbróður mínum og hans góðu
konu Ástu eins og hún var æv-
inlega kölluð þótt rétta nafnið
hennar væri Ástbjört, en þau voru
bændur í Haukholtum í Hruna-
mannahreppi, þar sem faðir minn
var uppalinn. Þau Ásta og Steini
áttu tvo syni, Oddleif og Loft, en
Loftur var tveimur árum eldri en
ég og tókst því strax góð vinátta á
milli okkar. Ég endaði á að vera
sjö sumur hjá þeim og lauk veru
minni sem vetrarmaður þegar
Loftur fór í bændaskólann á
Hvanneyri. Ég naut þess auðvitað
að Loftur kunni vel til verka við
bústörfin strax á unga aldri og
hann kenndi mér svo margt.
Hann kenndi mér að raka með
hrífu, slá með orfi og ljá, kenndi
mér að raka með hestaraksturs-
vél, reka kýrnar og mjólka.
Hann kenndi mér að þekkja
fjármörkin á bænum, „sýlt og
fjöður framan hægra, hálft af
framan vinstra“. Þegar hann
sagði mér þetta „hálft af framan
vinstra“ þótti mér það alveg rosa-
legt, en hann sýndi mér þá hvern-
ig þetta leit út og þá fannst mér
þetta ekkert rosalegt. „Tvírifað í
sneitt framan hægra, boðbíldur
framan og fjöður aftan vinstra.“
Boðbíldur framan, hver gat eig-
inlega munað svona skrítið orð.
Það fór svo að ég fór að geta sagt
til um hver af bænum átti kind
sem ég sá úti í haga.
Ég átti þess kost í nokkur ár að
smala með honum Lofti heima-
hagana í Haukholtum og á nær-
liggjandi bæjum. Það var ótrúlegt
að fá að fylgjast með honum Lofti
frænda, hvernig hann gat beitt
hundinum sínum, sem stökk til
þegar húsbóndinn hvatti hann,
lagðist niður og beið nýrra fyrir-
skipana og stökk svo af stað aftur.
Þannig hjálpuðust þeir að. Þá var
ekki síður ótrúlegt að fylgjast
með samspili manns og hests við
smalamennskurnar. Hvernig
hvor um sig treysti hinum og
hvernig þeir leystu úr vanda-
málum sem virtust blasa við mér
borgarbarninu. Mér er svo minn-
isstætt þegar við vorum eitt sinn
að smala í Haukholtum og ég var
að reyna að teyma hestinn sem ég
var með niður allbratta brekku,
en hann vildi hvergi fara. Þá kom
Loftur þar að, steig af baki og al-
gjörlega átakalaust teymdi hest-
inn sinn niður brekkuna, svo vel
treysti klárinn honum, en ég valdi
mér aðra leið.
Loftur var mikill félagsmála-
maður, gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir sveitina sína var
m.a. í hreppsnefnd í 24 ár og þar
af sem oddviti í 20 ár.
Við Guðbjörg og fjölskyldan
okkar þökkum Lofti fyrir sam-
fylgdina og sendum eftirlifandi
eiginkonu hans, henni Hönnu
Láru, og börnunum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur, jafn-
framt sendum við bróður hans
Oddleifi og fjölskyldu hans sam-
úðarkveðjur.
Ragnar Snorri Magnússon.
Augun hans Lofts leiftruðu af
húmor og gleði. Hann unni sveit-
arfélagi sínu, Hrunamanna-
hreppi, sem naut starfskrafta
hans um langan tíma, fyrst sem
virks ungmennafélaga og síðar
sem sveitarstjórnarmanns, odd-
vita og sveitarstjóra. Hann var
einnig góðbóndi í Haukholtum,
bjó lengi í félagsbúi með Oddleifi
bróður sínum og fjölskyldum
þeirra bræðra.
Ég rifja það gjarnan upp þegar
ég varð sveitarstjóri á Hvolsvelli í
ársbyrjun 1990 að gömlu góðu
oddvitarnir í Árnessýslu tóku
„strákinn“ undir vænginn, þeir
Loftur í Haukholtum, Gísli í
Kjarnholtum, Jón í Vorsabæ,
Böðvar á Búrfelli og ekki má
gleyma Páli í Sandvík. Allir þessir
höfðingjar hafa nú kvatt þetta
jarðlíf og ég verð þeim ævarandi
þakklátur enda var ég þá nýr,
kominn úr öðru umhverfi og
óreyndur á þessu sviði. Í huga
minn kemur lítil vísa eftir föður
minn sem hljóðar svo:
Gatan er vörðuð gleði og sorgum,
gjöf er vort æviskeið.
Einn í dag svo annar á morgun,
allir á sömu leið.
Dauðinn er órjúfanlegur hluti
lífsgöngunnar. Eftir standa marg-
ar góðar minningar, söknuður og
þakklæti. Þessir góðu sveitar-
höfðingjar urðu síðar góðir liðs-
menn þegar ég tók þátt í lands-
málapólitíkinni. Seinna varð ég
sveitarstjóri í Hrunamannahreppi
á ólgu- og óróatíma í sveitinni og
ég minnist þess hve Loftur fagn-
aði komu minni á Flúðir og var
mér hjálpsamur og jákvæður í
alla staði. Í oddvita- og
sveitarstjórnartíð hans varð mikil
uppbygging á Flúðum og á vissan
hátt má segja að Flúðir hafi orðið
að einum vinsælasta ferðamanna-
stað landsins og líkist yfir sum-
artímann meira litlum ferða-
mannabæ í Danmörku en sveita-
þorpi á Íslandi.
Hann brann fyrir framgangi
sveitarinnar. Sunnlendingar
fengu einnig notið starfskrafta
Loftur
Þorsteinsson
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÚLÍUS JÓNSSON
húsgagnasmiður,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold, Garðabæ,
mánudaginn 16. september.
Útför fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 27. september
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Alzheimersamtökin.
Björk Garðarsdóttir
Bylgja Júlíusdóttir Sveinbjörn Rögnvaldsson
Skúli Júlíusson Linda Pehrsson
og barnabörn