Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019 lega á svæðinu. Það er svolítið sér- stakt, svona langur tími af þessari einu vindátt,“ segir Sævar, sem seg- ir norðaustanáttina hafa verið ríkjandi framan af veiðitímabilinu. Segir hann að mest hafi genginn kílómetrafjöldi farið yfir 30 kíló- metra á einum degi en veiðiferð- irnar voru mislangar, allt frá tveim- ur klukkutímum og upp í sólarhring. „Það fer bara eftir því hvar dýrin eru og hvernig gengur að veiða og hvernig gengur að komast að dýr- unum,“ segir Sævar. Andhverfan við tarfana Sjálfur léttist Sævar um níu kíló á tímabilinu sem hann segir að sé van- inn á sumrin. „Ég er andhverfan við tarfana. Þeir fitna á sumrin og horast á vet- urna en ég fitna á veturna og horast á sumrin,“ segir Sævar og hlær. Sævar segir að veiðimennskan hafi almennt gengið vel og það sé eftirtektarvert hversu vel undir- búnir menn hafi verið á tímabilinu. „Maður er náttúrlega að fá sömu mennina ár eftir ár og þá svona læra menn þetta. Menn kunna þetta orð- ið betur. Svo byggist ákveðið traust upp á milli leiðsögumanna og veiði- manna,“ segir hann og bætir við að skotprófin hjálpi að auki verulega. Ekki mikið um feilskot „Það er ekki mikið um feilskot og vandamál sem getur auðvitað alltaf gerst. En þá er ég alltaf til staðar til að fella dýrið,“ segir hann. Sævar segist hafa tekið eftir því að dýrin hafi heilt yfir verið nokkru léttari en oft áður. „Það er eins og þessi veðrátta hafi ekki hentað þeim mjög vel. Gróður- inn var ekkert voðalega öflugur,“ segir hann. Sævar segir ánægjulegt hversu góð samvinnan hafi verið á milli leið- sögumanna og Umhverfisstofnunar. „Traust er að aukast milli manna og það hjálpar öllum. Það verður allt auðveldara og skemmtilegra þegar menn vinna saman,“ segir hann. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Sævar Guðjónsson, leiðsögumaður og eigandi ferðaþjónustunnar á Mjóeyri, leiðsagði 101 veiðimanni á hreindýraveiðum á svæðum 5, 6 og 2 á hreindýraveiðitímabilinu sem lauk formlega 20. september sl. Hann staðfestir í samtali við Morgunblaðið að þetta sé metfjöldi veiðimanna sem hann hefur farið með á veiðar en hann hefur mest farið með 80-90 veiðimenn áður. Segist Sævar ekki vita hver ástæð- an fyrir fjölguninni er en giskar á að sú staðreynd að kvótinn á þeim svæðum sem hann vinnur á sé mik- ill hafi þar sitt að segja en bendir einnig á að leiðsögumenn á svæðinu séu farnir að eldast og fækki með hverju árinu. Sævar fór í yfir 50 veiðiferðir á tímabilinu og gekk að eigin sögn yf- ir 900 kílómetra. Mestum tíma eyddi hann með veiðimönnum á svæði 5 þar sem mest veiddist, það er í Fjarðabyggð; Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði, en einnig veiddust dýr á svæði 6, Stöðvarfirði og Fá- skrúðsfirði. Segist Sævar sömuleiðis hafa farið einn túr á svæði 2 í Fljóts- dalshreppi og hluta Fljótsdalshér- aðs. Norðaustanáttin verst til veiða Veiðitímabilið var að sögn Sævars sérstakt að mörgu leyti. Þá segir hann að veðrið hafi ekki verið sem best. Norðanáttir hafi verið ríkjandi sem hafi valdið því að dýrin héldu sig á óvanalegum stöðum. Verst segir hann að norðaustan- áttin hafi verið en með henni komi gjarnan þoka sem geri veiðimönnum erfiðara fyrir að finna hreindýrin. „Svo bíta þau alltaf upp í vindinn svo þau voru komin mjög norðar- Ljósmynd/Sævar Guðjónsson Veiðimaður Gunnar Örn Arnarsson, einn veiðimannanna sem Sævar leiðsagði, ánægður með feng sinn í Vöðlavík. Gekk 900 km með 101 hrein- dýraveiðimann  Aldrei farið með fleiri á veiðar áður Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veiðileiðsögumaður Sævar Guðjónsson hefur mikla reynslu af veiðum. Deilur hafa verið milli starfsmanna og stjórnar Eflingar en tveir starfs- menn félagsins, Kristjana Valgeirs- dóttir fjármálastjóri og Elín Hanna Kjartansdóttir bókari, sendu frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Viðars Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Eflingar, í fréttum Stöðvar 2 í fyrra- dag. Sagði hann þar að ásakanir sem birst hefðu í fjölmiðlum væru til þess fallnar að þvinga Eflingu til að „gera óeðlilega samninga sem eru langt umfram réttindi samkvæmt ráðning- arsamningi og kjarasamningi við sig“. Þetta þvertaka þær fyrir og segja Viðar og Sólveigu Önnu Jóns- dóttur, formann Eflingar, fara með ósannindi. Telja að brotið hafi verið á sér Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudag að tveir fyrrverandi starfsmenn Eflingar teldu að brotið hefði verið á réttindum sínum og hefðu leitað til lögmannsins Láru V. Júlíusdóttur. Kristjana og Elín Hanna, sem báðar eru starfsmenn Eflingar, hafa einnig leitað til Láru með sömu kröfu en þær fóru í veikindaleyfi síð- asta haust. Þær sögðust þá hafa hrökklast úr starfi vegna framkomu nýrrar forystu félagsins og vildu að samið yrði um starfslok við þær. Í yfirlýsingu Eflingar sem birtist á vefsíðu stéttarfélagsins á föstudags- kvöld í kjölfar fréttaflutnings Stöðv- ar 2 segir m.a. að öll réttindi starfs- manna Eflingar sem varin eru í ráðningarsamningum, kjarasamn- ingum og lögum hafi verið virt í einu og öllu. „Á það bæði við um fyrrver- andi starfsmenn sem og núverandi starfsmenn í veikindaleyfi. Ásakanir um annað eru tilhæfulausar,“ segir í yfirlýsingunni. Viðar Þorsteinsson sagði jafn- framt í fréttum Stöðvar tvö í fyrra- dag að í kröfum fyrrverandi stjórn- enda Eflingar væri farið fram á starfslokasamning sem jafngilti 40- 50 milljónum króna. Í yfirlýsingu Kristjönu og Elínar Hönnu segir Kristjana að Viðar Þor- steinsson og Sólveig Anna Jónsdótt- ir hafi neytt sig í veikindaleyfi og reynt að bola sér úr starfi. Segir hún að Viðar gleymi því vísvitandi að at- hugasemdir hennar og Elínar Hönnu vegna ósamþykktra fjárút- láta til vildarvina hans og formanns félagsins hafi leitt til þess að þeim hafi verið gert ókleift að starfa og hafi hrökklast í veikindaleyfi. Krist- jana fullyrðir einnig að þeim hafi verið gefin upp kröfugerð sem aldrei hafi komið fram. „Staðreyndin er sú að þau Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteins- son hafa aldrei léð máls á neinum samningum við okkur starfsmenn. Þau tala eingöngu við okkur í gegn- um lögfræðinga sína og hafa aldrei, á undanförnum mánuðum, fallist á samningaviðræður. Tugmilljóna- kröfur er því ekkert annað en áróð- ur,“ segir Kristjana í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingu Elínar Hönnu segir hún frá því að veikindi hennar séu rakin til framkomu og atburða af hálfu stjórnenda félagsins. „Ég á ekki nógu sterk orð yfir það virðingarleysi sem formaður og framkvæmdastjóri Eflingar hafa sýnt okkur starfsmönnum og fé- lagsmönnum með þessum málflutn- ingi,“ segir hún í yfirlýsingunni. Víki frá reglum um starfslok Í samtali við mbl.is í fyrradag sagði Lára V. Júlíusdóttir hæsta- réttarlögmaður að hún gæfi lítið fyr- ir útskýringar Eflingar og segir stéttafélagið víkja algjörlega frá þeim sjónarmiðum og reglum sem hafa gilt um starfslok um að það eigi að fara eftir bestu samningum sem Efling geri að hverju sinni. „Þeir líta algjörlega framhjá því og segja að það sé ekki verið að brjóta neina kjarasamninga. Með því er Efling ekki að virða þær sam- þykktir sem hafa verið gerðar í stjórn Eflingar og gilt hingað til varðandi starfslok starfsmanna,“ segir hún vil mbl.is. Þvertaka fyrir yfirlýsingar Eflingar  Tveir starfsmenn Eflingar sem telja að brotið hafi verið á sér segja stéttarfélagið fara með ósannindi í yfirlýsingu  Forsvarsmenn Eflingar segja að öll réttindi starfsmanna hafi verið virt í einu og öllu Ljósmynd/Efling Efling Miklar deilur hafa verið milli starfsmanna og stjórnar Eflingar. 27 hreindýr, fimm tarfar og 22 kýr, af 1.451 dýrs kvóta, voru óveidd þegar hefðbundnu veiði- tímabili hreindýra lauk 20. sept- ember sl. samkvæmt upplýs- ingum frá Umhverfisstofnun. Tarfaveiðarnar hófust 15. júlí og stóðu til 15. september en haust- veiði á hreinkúm var heimiluð frá 1. ágúst til enda tímabilsins. Alls samanstóð kvótinn af 408 törfum og 1.043 kúm. Felld voru alls 1.326 dýr, 923 kýr og 403 tarfar. Haustkvóti kúa var í ár 945. Kvóti kúa fyrir seinna veiði- tímabil hreinkúa á svæði 8 og 9 er því 98 dýr. Í nóvember verður heimilt að fella 34 kýr á svæði 8 og 64 á svæði 9. Aðeins veiddist allur kvótinn af bæði törfum og kúm á einu svæði, svæði 7, en allur kvóti tarfa veiddist á fjórum svæðum: 2, 5, 6 og 9. 27 dýr gengu af kvótanum ALLUR KVÓTINN VEIDDIST Á SVÆÐI 7 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 e st án fyr irv ar a. Sardinía slí ku .A th. a vee etu rb re 10. október í 7 nætur Verð frá kr. 159.995 Eyjan fagra Flug frá kr. 89.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.