Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019 40 ára Hrönn er Hafn- firðingur. Hún er íþróttafræðingur frá Kennaraháskólanum, með meistaragráðu í íþróttasálfræði frá Bandaríkjunum og við- skiptafræðigráðu frá HR. Hún starfar sem umsjónarkennari í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði. Hún er í fag- teymi Skíðasambands Íslands og starfar með skíðafélögum og Sundsambandi Íslands. Sonur: Sigþór Meldal Óskarsson, f. 2017. Foreldrar: Árni Brynjólfsson, f. 1945, rennismiður, búsettur í Hafnarfirði, og Herdís Matthildur Guðmundsdóttir, f. 1948, d. 2017, skrifstofumaður. Hrönn Árnadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Margir fá snilldarlegar skyndi- hugmyndir, en þú ert ein/n af þeim fáu sem kunna að láta þær þróast áfram. Hugsaðu um heilsuna. 20. apríl - 20. maí  Naut Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Sjálfstraust snýst m.a. um það að hafa ekki áhyggjur af skoðunum annarra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu það eftir þér að staldra við og njóta ávaxta erfiðis þíns. Leitaðu tækifæra til að tjá væntumþykju þína. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hafðu trú á getu þinni til að skapa. Stutt ferðalag gæti gert kraftaverk fyrir þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það getur stundum verið erfitt að spá í fyrirætlanir annarra. Ef þú hefur fengið neitun á einhverju er þetta frábær dagur til að reyna aftur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Að líta inn á við fær mann til að gera sér grein fyrir ýmsu. Mundu að seinna kemur að þér að endurgjalda greiða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gættu þín í samtölum við ættingja og ástvini, þú gætir sagt of mikið án þess að ætla þér það eða krítað liðugt alveg óvart. Gott er að vita hverju maður áorkar einn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að gefa þér tíma til þess að styrkja þau tengsl við aðra sem eru þér einhvers virði. Dagurinn hentar vel til viðskipta þar sem þú átt auðvelt með að telja aðra á þitt mál. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Skipuleggðu tíma þinn mjög nákvæmlega. Dagurinn í dag hentar lík- lega ekki fyrir stefnumót. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að endurskoða dag- skrá þína því þú hefur hrúgað of mörgum verkefnum á daginn. Notaðu ímyndunar- aflið betur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ákveðni þín vekur aðdáun vinnufélaga. Rómantíkin birtist upp úr þurru í lífi þínu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert svo kappsfullur að þér hættir til að sýna öðrum óþolinmæði. Láttu aðra vita hversu vænt þér þykir um þá. H refna Ösp Sigfinns- dóttir er fædd í Reykjavík 23. sept- ember 1969. Hún ólst upp í Kópavogi til fjögurra ára aldurs en þá flutti hún ásamt foreldrum sínum til Edin- borgar þar sem þau stunduðu fram- haldsnám í eitt ár. „Eftir heimkomuna fluttum við austur í Gnúpverjahrepp þar sem faðir minn var sóknarprestur og móðir mín var kennari við grunn- skólann og kenndi m.a. mér og vin- um mínum. Þarna eignaðist ég marga af mínum bestu vinum. Þeg- ar ég var 16 ára fluttum við suður og aftur í Kópavoginn. Við bjuggum líka í eitt ár Bandaríkjunum þar sem foreldrar mínir fóru í enn frek- ara nám, pabbi sérhæfði sig í að verða sjúkrahúsprestur og mamma lærði tölvunarfræði. Það var gott að alast upp í sveit- inni, ég var mikið í hestum og á margar góðar minningar úr út- reiðartúrum. Ég var tíu ára gömul í vist tvö sumur í röð til systur mömmu minnar norður á Akureyri og passaði börnin hennar þrjú. Í sveitinni vann ég ýmis störf og var m.a. í sveit á Ásum í Gnúpverja- hreppi hjá þeim prýðishjónum Höllu Guðmundsdóttur og Viðari Gunngeirssyni. Ég sótti síðan í að fá að fara í bæinn og vinna fyrir afa minn sem stofnaði BYKO, vann ým- is störf hjá honum m.a. í málningar- deildinni, pípulagnadeild, timbur- sölu og síðan á skrifstofunni.“ Hrefna fór í Menntaskólann við Hamrahlíð, varð stúdent 1989 og fór síðan í Háskóla Íslands og út- skrifaðist viðskiptafræðingur 1994. Strax eftir útskrift úr háskóla fór Hrefna að vinna hjá fjármálafyrir- tæki og hefur allar götur síðan unn- ið í þeim geira. 1994-1998 vann hún hjá Fjárvangi sem þá hét Skandia; 1998-2007 vann hún hjá Kauphöll Íslands, síðast sem yfirmaður skráningarsviðs, en á þeim tíma voru 70 fyrirtæki skráð í Kauphöll- inni; 2007-2010 vann Hrefna hjá Arev og var sjóðsstjóri tveggja einkafjármagnssjóða, Arev N1 og Bjargar. Frá 2010 hefur Hrefna starfað hjá Landsbankanum, fyrst framkvæmdastjóri Eignastýringar, en 2012 var skipulagi bankans breytt og er hún núna fram- kvæmdastjóri Markaða, sem snúa að alhliða fjárfestingabanka- þjónustu, og sér um allt lífeyris- sjóðaframboð bankans. Hrefna hefur verið í stjórn hjálp- arsamtaka í Suður-Afríku í mörg ár og síðan kom hún að stofnun fé- lagasamtaka sem heita IcelandSIF www.icelandsif.is en hún var einn af stofnendum þeirra samtaka og stjórnarformaður fyrstu árin. „Áhugamál mín eru skíði en við höfum mikið verið á skíðum með krökkunum okkar bæði svig- og Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum – 50 ára Fjölskyldan Hrefna og Böðvar ásamt börnunum og tengdadóttur við útskrift Kristínar frá MR í vor. Prestsdóttir í fjármálageiranum Vestfirsk sæla Hrefna brá sér á brimbretti við Selárdal í sumar. Hjónin Hrefna, Böðvar og hinn sex ára gamli Lubbi. 30 ára Keli er tón- listarmaður og trommari með meiru. Hann hefur búið í Reykjavík allt sitt líf en ferðast heimshorna á milli með hljómsveit sinni Agent Fresco. Hann hefur einnig sinnt tónlistarkennslu í rúman áratug og er þekktur fyrir frá- bært skopskyn. Maki: Esther Þorvaldsdóttir, f. 1989, kynningarstjóri. Systir: Birta Guðjónsdóttir, f. 1977, lista- maður og sýningarstjóri. Foreldrar: Ragnheiður Elfa Arnardóttir, f. 1956, félagsráðgjafi, og Guðjón Ketils- son, f. 1956, listamaður. Þau eru búsett í Reykjavík. Hrafnkell Örn Guðjónsson (Keli) Til hamingju með daginn Akureyri Maísól Mjöll Júlíusdóttir fæddist 25. janúar 2019 kl. 19.54. Hún vó 3.460 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Thelma Björk Sævarsdóttir og Júlíus Fannar Arnarsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.