Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019 Aldís Arnardóttir aldisarn@gmail.com Nýverið opnaði Ingunn Fjóla Ing- þórsdóttir innsetninguna You are the Input í Galerie Herold í Bremen í Þýskalandi. Verkið byggist á kerfis- bundnu mynstri í rými sem gestir geta raskað með snertingu sinni og nærveru. Með hreyfingu áhorfandans birtast ný sjónarhorn, rammar snú- ast og kúlur á gólfinu færast úr stað. Næsta dag er öllu raðað aftur á sinn stað og þannig dvelur verkið í sí- felldu flæði milli reiðu og óreiðu. Galerie Herold er lítið en öflugt listamannarekið rými sem hefur verið starfandi síðan 1994 í mið- borg Bremen. Galleríið er til húsa í Künstler- haus Güterbahnhof, gamalli skrif- stofubyggingu við aflagða lestarstöð sem hafði áður það hlutverk að þjón- usta flutningalestar. Í galleríinu er lögð áhersla á einkasýningar fram- sækinna listamanna, bæði innlendra og erlendra. Þar eru skipulagðar sjö til átta sýningar á ári, en í tengslum við þær eru oft haldnir fyrirlestrar, gjörningar eða aðrir viðburðir. Í hús- inu eru einnig fjölmargar vinnustofur fyrir listamenn og hönnuði. „Ég tók þátt í lítilli samsýningu í miðborg Bremen í fyrra með mynd- listarmanni frá svæðinu, hinni þýsku Marinu Schulze ásamt Heini Mat- veinen frá Finnlandi. Í framhaldi af þeirri sýningu bauðst mér að sýna í Galerie Herold. Sýningin er því búin að vera í undirbúningi í tæpt ár,“ seg- ir Ingunn Fjóla spurð um tildrög þessarar sýningar. „Þetta er reyndar í annað sinn sem mér er boðið að vera með einkasýningu í Norður-Þýska- landi, en ég var með sýningu í Cux- havener Kunstverein árið 2008, auk þess sem ég hef tekið þátt í tveimur samsýningu í Bremen. Verkin mín hafa hlotið góðar viðtökur á þessu svæði og hef ég náð að kynnast mörg- um áhugaverðum listamönnum og sýningarstjórum á þessum tíma,“ segir Ingunn Fjóla. Hárauðar snókerkúlur „Ég er alltaf að vinna með þetta þríþætta samband áhorfandandans, verks og rýmis og hvernig er hægt að virkja það samband, en í þessari inn- setningu er ég auk þess sérstaklega að hugsa um sambandið milli stöðug- leika og óstöðugleika, reglu og óreglu eða kaos,“ segir Ingunn Fjóla. Inn- setningin samanstendur af fimm mis- breiðum máluðum römmum sem mynda hvarfpunkt í sýningarrýminu. Rammarnir eru lauslega festir við loft og gólf gallerísins og snúast um miðás ef hreyft er við þeim, á veggj- um eru einlitir málaðir fletir og glans- andi rauðir boltar renna eftir gólfinu sem á hefur verið teiknað rúðunet með blýanti. „Þetta eru snóker- kúlur,“ segir Ingunn Fjóla brosandi. Þær eiga sinn stað á gólfinu og mynda ákveðið hnit. Áhorfandinn getur síðan lagt sitt af mörkum og fært þær til meðan galleríið er opið. „Það getur bæði gerst viljandi og óvart, en þegar ein kúla rennur af stað rekst hún oft í aðra kúlu og svo koll af kolli. Þá myndast togstreita milli reglunnar sem ég legg upp með, þar sem allir þættir verksins eiga sinn ákveðna stað og óreglunnar sem kemur með áhorfandanum um leið og hann fer að leggja sitt af mörkum og virkja rýmið með athöfnum sínum.“ Í lok dags er öllum hlutum verks- ins raðað á sinn upprunalega stað, verkið er núllstillt og á sýningartím- anum tekur það stöðugum breyting- um sem byggjast á þessu flæði sem myndast með aðkomu áhorfandans í rýminu. Áhorfandinn getur þannig leikið sér að breytingu verksins og um leið sjónarhornsins. Virkjun áhorfandans – Þú hefur áður gert verk þar sem áhorfandinn má snerta verkið og færa hluta þess til í rýminu, eru áhorfendur alltaf tilbúnir til að gera það? „Já, ég hef bæði gert verk þar sem áhorfendur mega snerta verkin þann- ig að einhver atburðarás fer af stað og einnig verk sem hafa verið raf- knúin og tengd hreyfiskynjurum. Þá hafa áhorfendur sett verkin af stað eingöngu með hreyfingu og nærveru sinni án þess að um beina snertingu hafi verið að ræða.“ Henni finnst áhugavert að gera áhorfendur að þátttakendum og hreyfiafli í verkunum, „og ég hef ekki upplifað annað en að fólk hafi tekið þessu vel,“ segir Ingunn Fjóla. Spurð um hvort samskiptamáti samtímans hafi þar einhver áhrif, svarar Ingunn Fjóla: „Við lifum á tímum þar sem gagnvirkni er í raun alls staðar, hvort sem það er hurðin á versluninni sem opnast sjálfkrafa fyrir þér eða vafr- inn í tölvunni sem lagar allt að þínu áhugasviði og skoðunum. Gagnvirkni og þátttaka í myndlist er kannski eðlilegt viðbragð við þeim tímum sem við lifum á.“ Uppbrot kerfa – Verkin þín ramba gjarnan á mörkum innsetninga og málverks þar sem einhverskonar togstreita eru undirliggjandi, hvað er það sem dríf- ur þig áfram í þinni listsköpun? „Já, það má segja að málverkið sé grunnurinn sem verkin mín eru sprottin úr. Ég hef mikið verið að velta fyrir mér möguleikum mál- verksins, þanþoli og takmörkunum, auk tengsla við aðra miðla. Ég elska að mála, en hinn tvívíði flötur mál- verksins hefur mér fundist takmark- andi og því hef ég leitast við að teygja verkin út í rýmið þar sem hægt er að upplifa þau frá mismunandi sjónar- hornum,“ segir Ingunn Fjóla. Hún er mjög upptekin af fagurfræði og skynjun áhorfandans í verkum sínum, „og með því að gera verk sem þarf að hreyfa sig um til að skoða finnst mér ég ná að virkja áhorfendur á líkamlegan hátt,“ segir hún. „Við sem manneskjur erum alltaf að kanna heiminn í gegnum líkama okkar og skynfæri og ég tel hina fag- urfræðilega upplifun vera mjög mikil- væga í því samhengi. En varðandi togstreituna, þá held ég að hún sé á persónulegum nótum, hún tengist minni eigin þörf fyrir að hafa allt í röð og reglu á sama tíma og ég er í raun frekar kaotísk manneskja, ég er mjög utan við mig og hugsanir mínar eru á stöðugu flökti. Mér finnst oft erfitt að ná utan um allt það sem er að gerast og í raun bara að skilja heiminn. Hlutir breytast svo hratt í dag, það er alltaf verið að koma fram með nýjar kenningar og nýjar staðreyndir sem úreldast jafnóðum. Við höfum ýmis kerfi, skilgreiningar og tæki til að hjálpa okkur að halda utan um hlut- ina og skilja heiminn, en á sama tíma veitum við þessum kerfum stöðugt viðnám. Við erum sífellt að gagnrýna, endurhugsa og breyta, það er eðli manneskjunnar og án þess væri eng- in framþróun. En að sama skapi get- ur verið erfitt að fóta sig í heimi sem er sífellt að breytast. Ég held að verkin mín endurspegli þessa tog- streitu á þann hátt að þau byggjast oft á ákveðnu kerfi sem ég bý til og svo í raun uppbroti eða viðnámi gegn þessu kerfi. Sumir hlutar verkanna eru mjög stærðfræðilega útpældir, nákvæmir og stífir á meðan aðrir hlutar eru háðir tilviljunum. Í þessu tiltekna verki eru sumir fletir eintóna, geómetrískir og reglu- bundnir á meðan aðrir eru málaðir á lífrænni og meira flæðandi hátt. Auk þess byggist allt verkið á ákveðnu grunnmynstri, en hreyfing boltanna og rammanna brýtur mynstrið á ófyrirséðan hátt,“ segir Ingunn Fjóla að lokum en sýning hennar You are the Input stendur til 13. október. Í sífelldu flæði milli reiðu og óreiðu Innsetning Verkið samanstendur af fimm römmum sem mynda hvarfpunkt í sýningarrýminu. Þeir eru lauslega festir við loft og gólf gallerísins og snúast um miðás ef hreyft er við þeim, á veggjum eru einlitir málaðir fletir og glansandi rauðir boltar renna eftir gólfinu sem á hefur verið teiknað rúðunet.  Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir sýnir innsetningu í Bremen  Rammi utan um kaótíkina  „Ég er alltaf að vinna með þetta þríþætta samband áhorfandans, verks og rýmis,“ segir Ingunn Fjóla Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.