Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019 Bangsi Þessi stúlka var meðal þeirra sem komu með tuskudýr sín til aðhlynningar á bangsaspítalanum í gær. Hari Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður og fyrrverandi ráð- herra, heyrir það sem hann vill heyra en lok- ar skilningarvitum gagnvart staðreyndum og því sem sagt er. Þess vegna skrifar hann með þeim hætti sem blasti við les- endum Morgun- blaðsins síðastliðinn föstudag. Í pistli sínum vísaði hann til stuttrar ræðu sem ég flutti í um- ræðum um stefnuræðu forsætisráð- herra. Gunnar Bragi fullyrðir að þar hafi mér tekist hið ómögulega „að minnast hvorki á landbúnað né sjávarútveg“. Jafnframt spyr hann um framtíðarsýn, skattlagningu, sóknarfæri, hindranir, umhverf- ismál og fleira. Hann klykkir út með því að velta upp, af sinni alkunnu hógværð, hvort ráðherrann „hafi litla sem enga framtíðarsýn fyrir landbúnað og sjávarútveg“. Það er nefnilega það. Rétt skal vera rétt og því er mikil- vægt að halda til haga staðreyndum. Í ræðunni fjallaði ég um þá umgjörð sem stjórnvöld þurfa að búa til svo landbúnaður og sjávarútvegur fái dafnað. Raunar fóru alls 324 orð af 603 orða ræðu, um 54%, í að ræða aðstæður þessara tveggja undir- stöðuatvinnugreina okkar Íslend- inga. Skilaboð mín voru skýr en einföld: Það er risastórt hags- munamál að þessar at- vinnugreinar búi við einfalt og skilvirkt regluverk og að stjórn- völd mættu ekki leggja stein í götu fólks og fyrirtækja í landinu. Vísaði ég til þess að umfangsmikil vinna um það væri í forgangi hér í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt- inu. Skrif ráðherrans fyrrverandi dæma sig sjálf og eru máttlaus til- raun til að þyrla upp moldviðri, en í þeim leik er hann í töluverðri æf- ingu. En ekki má útiloka að Gunnar Bragi átti sig ekki á mikilvægi þess fyrir íslenskan landbúnað og sjávar- útveg að regluverkið sé einfalt, skýrt og skilvirkt. Það jákvæða við þetta frumhlaup er þó það tilefni sem hann gefur til að ræða það sem okkur báðum er vonandi umhugað um – framtíð íslensks landbúnaðar. Skýr framtíðarsýn Meginmarkmið ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í þessu sam- hengi er að landbúnaður á Íslandi sé sjálfbær og vernd búfjárstofna sé tryggð. Þá á Ísland að vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbún- aðarafurðum. Til að framfylgja þessari stefnu- mörkun má meðal annars vísa til að- gerðaáætlunar í 17 liðum um að efla matvælaöryggi, tryggja vernd bú- fjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Þar er meðal annars kveðið á um:  Skipuð verði áhættumatsnefnd.  Átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Ís- landi.  Settur verður á fót matvæla- sjóður með áherslu á eflingu ný- sköpunar í innlendri mat- vælaframleiðslu.  Opinber stefna um innkaup opin- berra aðila á matvælum.  Mótun matvælastefnu fyrir Ís- land.  Átak um betri merkingar mat- væla.  Vinna við að kanna þróun toll- verndar og stöðu íslensks land- búnaðar gagnvart breytingum í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi.  Endurskoðun á tollskrá fyrir landbúnaðarvörur. Unnið hefur verið staðfastlega að framgangi þessarar aðgerðaáætl- unar, sem er í raun tímamóta- stefnumörkun Alþingis um land- búnað, líklega sú áhrifamesta í mörg ár, og er hún í forgangi í mínu ráðu- neyti. Ég mun fræða ráðherrann fyrrverandi og aðra alþingismenn nánar um þetta hinn 1. nóvember nk. þegar ég gef Alþingi skýrslu um framgang áætlunarinnar. Af lestri greinarinnar virðist ráðherrann fyrrverandi þó ekki kannast við þessa mikilvægu stefnumörkun sem er til þess fallin að styrkja íslenskan landbúnað. Til að rifja upp fyrir hon- um þá voru þær samþykktar með 54 atkvæðum á Alþingi hinn 19. júní sl. Stjórnsýsla landbúnaðarmála efld Á sama tíma og unnið er að því að styrkja íslenska matvælaframleiðslu er verið að styrkja stjórnsýslu land- búnaðar- og matvælamála. Þannig samþykkti Alþingi í júní sl. frumvarp mitt um að verkefni Búnaðarstofu, sem nú heyrir undir Matvælastofn- um, færist til atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytisins frá 1. janúar nk. Með því að koma þessum verk- efnum á einn stað undir einni yfir- stjórn í ráðuneytinu er horft til þess að auka möguleika til forgangsröð- unar, gefa möguleika til að þróa stjórnsýsluna með skilvirkari hætti og þannig þjóna íslenskri matvæla- framleiðslu enn betur en nú er gert. Endurskoðun búvörusamninga Á þessu ári stendur yfir endur- skoðun á þeim búvörusamningum sem tóku gildi 1. janúar 2017 en þá gegndi Gunnar Bragi embætti sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í ár stendur yfir endurskoðun á öllum fjórum samningunum. Einni endur- skoðun er raunar þegar lokið í kjöl- far þess að ég óskaði eftir því í fyrra að endurskoðun sauðfjársamnings- ins yrði flýtt. Í kjölfarið var skrifað undir samkomulag um endurskoðun þess samnings í janúar sl. Þar er að finna breytingar sem ég tel að muni stuðla að meira jafnvægi milli fram- boðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir en það hefur verið einn helsti vandi greinarinnar und- anfarin ár. Mikilvægast af öllu er að nú sjást skýr merki um að hagur sauðfjárbænda sé að vænkast á ný. Nú standa yfir viðræður um end- urskoðun samnings um starfsskil- yrði nautgriparæktar. Þær viðræður ganga vel og vonast ég eftir að þeim ljúki hið fyrsta. Í kjölfarið verður gengið frá samningi um garðyrkju og rammasamningi. Þessari vinnu fylgir mikil ábyrgð fyrir bæði stjórn- völd og bændur enda felast í henni dýrmæt tækifæri til að búa svo um starfsskilyrði þessara greina að ís- lenskur landbúnaður nýti þau mikil- vægu sóknarfæri sem hann sannar- lega hefur. Með samstilltu átaki mun það takast. Eftir Kristján Þór Júlíusson »Unnið hefur verið staðfastlega að framgangi þessarar að- gerðaáætlunar, sem er í raun tímamótastefnu- mörkun Alþingis um landbúnað, líklega sú áhrifamesta í mörg ár, og er hún í forgangi í mínu ráðuneyti.Kristján ÞórJúlíusson Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 324 orð um landbúnað og sjávarútveg Það er furðulegt til þess að hugsa að ennþá árið 2019 séu uppi efa- semdir um þá náttúru- vá sem stafar af lofts- lagsbreytingum af mannavöldum. Sem betur fer er stærstur hluti þingheims sann- færður um þessa stað- reynd og staðráðinn í að gera það sem í hans valdi stendur til þess að hemja þessa vá. Ríkisstjórnin hefur sett loftslags- mál og umhverfismál á oddinn. Enda ekkert vit í öðru en að Íslendingar sýni frumkvæði, áræði og þor í þess- um málaflokki. Auðvelt er að færa rök fyrir því að lítil þjóð, á eyju úti í miðju Atlantshafi, eigi allt sitt undir því að böndum verði komið á út- blástur og hlýnun jarðar haldið í lág- marki. Á síðustu árum hafa neikvæð áhrif loftslagsbreytinga komið fram með ýmsum hætti hér á landi. Með súrnun hafsins, hækkandi yfirborði sjávar og hækkandi hitastigi sjávar verða vistkerfi og lífsviðurværi allra þeirra sem hafa afkomu sína af sjáv- arútvegi fyrir alvarlegum og óaftur- kræfum áhrifum. Áhrif loftslags- breytinga sjást líka í bráðnun jökla, jökla sem eru í raun forðabúr okkar umhverfisvænu vatnsaflsorku. Öfga- fullar veðurbreytingar sjást bæði hér og annars staðar í heiminum. Siglingaleiðir um norðurskautið eru að opnast með þeim tækifærum og ógnunum sem því fylgja. Brýnt er að bregðast við þessari umhverfisógn með áhrifaríkum hætti. Bæði þurfum við að draga úr útblæstri og binda kolefni. Við þurf- um líka að búa okkur undir þær breytingar sem eru óhjákvæmi- legar. Ríkisstjórnin hefur sett metn- aðarfull markmið og fylgir þeim eft- ir með raunhæfum verkefnum. Markmiðin byggjast á Parísarsátt- málanum en ná lengra. Það er nauð- synlegt að ná þessum markmiðum og samstillt átak þjóða heims er nauðsynlegt, mengun á sér engin landamæri. Til að ná markmiðunum þarf samstillt átak ríkis, sveitar- félaga, fyrirtækja, samtaka og ein- staklinga. Enginn get- ur gert allt en öll getum við gert eitt- hvað. Rýnum til gagns í stað þess að ala á ótta og efasemdum Það er ekkert óeðli- legt við það að við rök- ræðum vægi mismun- andi aðgerða en rök- ræða um hvort aðgerða sé þörf tilheyrir fortíð- inni. Við eigum að rýna til gagns lausnir og forgangsröðun verkefna. Við eigum ekki að ala á ótta og sá efasemdum um mikilvægi verkefn- isins. Gagnrýnin á ekki að verða þess valdandi að við gerum ekki neitt vegna þess að það er ekki hægt að sanna með óyggjandi hætti ná- kvæmlega hvað viðkomandi aðgerð leggur af mörkum. Við þurfum ein- faldlega að beita mörgum mismun- andi aðgerðum. Þrátt fyrir ógnina sem loftslags- váin veldur er ástæða til að vera bjartsýn á framtíðina. Það er engin þörf á heimsendaspá, þær hafa verið nokkrar í gegnum mannkynssöguna en hér erum við enn. Nýtum vísindi og þekkingu dagsins í dag, sem aldr- ei hefur verið meiri, til góðra verka. Hugvit mannsins á sér engin tak- mörk. Virkjum þetta hugvit um- hverfinu og samfélaginu til góða. Stjórnvöldum ber að styðja við rann- sóknir, nýsköpun og tækniyfirfærslu á sviði umhverfismála. Nýtum þann vettvang til að finna nýjar lausnir til að takast á við breytta tíma, með sjálfbærni að leiðarljósi. Nýtum þetta mikla sóknarfæri. Stóra málið Eftir Bryndísi Haraldsdóttur Bryndís Haraldsdóttir » Það er engin þörf á heimsendaspá, þær hafa verið nokkrar í gegnum mannkynssög- una en hér erum við enn. Nýtum vísindi og þekkingu dagsins í dag. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks. bryndish@althingi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.