Morgunblaðið - 23.09.2019, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019
Bangsi Þessi stúlka var meðal þeirra sem komu með tuskudýr sín til aðhlynningar á bangsaspítalanum í gær.
Hari
Gunnar Bragi
Sveinsson, þingmaður
og fyrrverandi ráð-
herra, heyrir það sem
hann vill heyra en lok-
ar skilningarvitum
gagnvart staðreyndum
og því sem sagt er.
Þess vegna skrifar
hann með þeim hætti
sem blasti við les-
endum Morgun-
blaðsins síðastliðinn
föstudag. Í pistli sínum vísaði hann
til stuttrar ræðu sem ég flutti í um-
ræðum um stefnuræðu forsætisráð-
herra. Gunnar Bragi fullyrðir að þar
hafi mér tekist hið ómögulega „að
minnast hvorki á landbúnað né
sjávarútveg“. Jafnframt spyr hann
um framtíðarsýn, skattlagningu,
sóknarfæri, hindranir, umhverf-
ismál og fleira. Hann klykkir út með
því að velta upp, af sinni alkunnu
hógværð, hvort ráðherrann „hafi
litla sem enga framtíðarsýn fyrir
landbúnað og sjávarútveg“. Það er
nefnilega það.
Rétt skal vera rétt og því er mikil-
vægt að halda til haga staðreyndum.
Í ræðunni fjallaði ég um þá umgjörð
sem stjórnvöld þurfa að búa til svo
landbúnaður og sjávarútvegur fái
dafnað. Raunar fóru alls 324 orð af
603 orða ræðu, um 54%, í að ræða
aðstæður þessara tveggja undir-
stöðuatvinnugreina okkar Íslend-
inga. Skilaboð mín
voru skýr en einföld:
Það er risastórt hags-
munamál að þessar at-
vinnugreinar búi við
einfalt og skilvirkt
regluverk og að stjórn-
völd mættu ekki leggja
stein í götu fólks og
fyrirtækja í landinu.
Vísaði ég til þess að
umfangsmikil vinna
um það væri í forgangi
hér í atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyt-
inu.
Skrif ráðherrans fyrrverandi
dæma sig sjálf og eru máttlaus til-
raun til að þyrla upp moldviðri, en í
þeim leik er hann í töluverðri æf-
ingu. En ekki má útiloka að Gunnar
Bragi átti sig ekki á mikilvægi þess
fyrir íslenskan landbúnað og sjávar-
útveg að regluverkið sé einfalt,
skýrt og skilvirkt. Það jákvæða við
þetta frumhlaup er þó það tilefni
sem hann gefur til að ræða það sem
okkur báðum er vonandi umhugað
um – framtíð íslensks landbúnaðar.
Skýr framtíðarsýn
Meginmarkmið ríkisstjórnar
Katrínar Jakobsdóttur í þessu sam-
hengi er að landbúnaður á Íslandi sé
sjálfbær og vernd búfjárstofna sé
tryggð. Þá á Ísland að vera leiðandi í
framleiðslu á heilnæmum landbún-
aðarafurðum.
Til að framfylgja þessari stefnu-
mörkun má meðal annars vísa til að-
gerðaáætlunar í 17 liðum um að efla
matvælaöryggi, tryggja vernd bú-
fjárstofna og bæta samkeppnisstöðu
innlendrar matvælaframleiðslu. Þar
er meðal annars kveðið á um:
Skipuð verði áhættumatsnefnd.
Átak til að draga úr útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería á Ís-
landi.
Settur verður á fót matvæla-
sjóður með áherslu á eflingu ný-
sköpunar í innlendri mat-
vælaframleiðslu.
Opinber stefna um innkaup opin-
berra aðila á matvælum.
Mótun matvælastefnu fyrir Ís-
land.
Átak um betri merkingar mat-
væla.
Vinna við að kanna þróun toll-
verndar og stöðu íslensks land-
búnaðar gagnvart breytingum í
alþjóðlegu viðskiptaumhverfi.
Endurskoðun á tollskrá fyrir
landbúnaðarvörur.
Unnið hefur verið staðfastlega að
framgangi þessarar aðgerðaáætl-
unar, sem er í raun tímamóta-
stefnumörkun Alþingis um land-
búnað, líklega sú áhrifamesta í mörg
ár, og er hún í forgangi í mínu ráðu-
neyti. Ég mun fræða ráðherrann
fyrrverandi og aðra alþingismenn
nánar um þetta hinn 1. nóvember
nk. þegar ég gef Alþingi skýrslu um
framgang áætlunarinnar. Af lestri
greinarinnar virðist ráðherrann
fyrrverandi þó ekki kannast við
þessa mikilvægu stefnumörkun sem
er til þess fallin að styrkja íslenskan
landbúnað. Til að rifja upp fyrir hon-
um þá voru þær samþykktar með 54
atkvæðum á Alþingi hinn 19. júní sl.
Stjórnsýsla
landbúnaðarmála efld
Á sama tíma og unnið er að því að
styrkja íslenska matvælaframleiðslu
er verið að styrkja stjórnsýslu land-
búnaðar- og matvælamála. Þannig
samþykkti Alþingi í júní sl. frumvarp
mitt um að verkefni Búnaðarstofu,
sem nú heyrir undir Matvælastofn-
um, færist til atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytisins frá 1. janúar
nk. Með því að koma þessum verk-
efnum á einn stað undir einni yfir-
stjórn í ráðuneytinu er horft til þess
að auka möguleika til forgangsröð-
unar, gefa möguleika til að þróa
stjórnsýsluna með skilvirkari hætti
og þannig þjóna íslenskri matvæla-
framleiðslu enn betur en nú er gert.
Endurskoðun búvörusamninga
Á þessu ári stendur yfir endur-
skoðun á þeim búvörusamningum
sem tóku gildi 1. janúar 2017 en þá
gegndi Gunnar Bragi embætti sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í
ár stendur yfir endurskoðun á öllum
fjórum samningunum. Einni endur-
skoðun er raunar þegar lokið í kjöl-
far þess að ég óskaði eftir því í fyrra
að endurskoðun sauðfjársamnings-
ins yrði flýtt. Í kjölfarið var skrifað
undir samkomulag um endurskoðun
þess samnings í janúar sl. Þar er að
finna breytingar sem ég tel að muni
stuðla að meira jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar á markaði með
sauðfjárafurðir en það hefur verið
einn helsti vandi greinarinnar und-
anfarin ár. Mikilvægast af öllu er að
nú sjást skýr merki um að hagur
sauðfjárbænda sé að vænkast á ný.
Nú standa yfir viðræður um end-
urskoðun samnings um starfsskil-
yrði nautgriparæktar. Þær viðræður
ganga vel og vonast ég eftir að þeim
ljúki hið fyrsta. Í kjölfarið verður
gengið frá samningi um garðyrkju
og rammasamningi. Þessari vinnu
fylgir mikil ábyrgð fyrir bæði stjórn-
völd og bændur enda felast í henni
dýrmæt tækifæri til að búa svo um
starfsskilyrði þessara greina að ís-
lenskur landbúnaður nýti þau mikil-
vægu sóknarfæri sem hann sannar-
lega hefur. Með samstilltu átaki mun
það takast.
Eftir Kristján Þór
Júlíusson »Unnið hefur verið
staðfastlega að
framgangi þessarar að-
gerðaáætlunar, sem er í
raun tímamótastefnu-
mörkun Alþingis um
landbúnað, líklega sú
áhrifamesta í mörg ár,
og er hún í forgangi í
mínu ráðuneyti.Kristján ÞórJúlíusson
Höfundur er sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
324 orð um landbúnað og sjávarútveg
Það er furðulegt til
þess að hugsa að ennþá
árið 2019 séu uppi efa-
semdir um þá náttúru-
vá sem stafar af lofts-
lagsbreytingum af
mannavöldum. Sem
betur fer er stærstur
hluti þingheims sann-
færður um þessa stað-
reynd og staðráðinn í
að gera það sem í hans
valdi stendur til þess að hemja þessa
vá.
Ríkisstjórnin hefur sett loftslags-
mál og umhverfismál á oddinn. Enda
ekkert vit í öðru en að Íslendingar
sýni frumkvæði, áræði og þor í þess-
um málaflokki. Auðvelt er að færa
rök fyrir því að lítil þjóð, á eyju úti í
miðju Atlantshafi, eigi allt sitt undir
því að böndum verði komið á út-
blástur og hlýnun jarðar haldið í lág-
marki. Á síðustu árum hafa neikvæð
áhrif loftslagsbreytinga komið fram
með ýmsum hætti hér á landi. Með
súrnun hafsins, hækkandi yfirborði
sjávar og hækkandi hitastigi sjávar
verða vistkerfi og lífsviðurværi allra
þeirra sem hafa afkomu sína af sjáv-
arútvegi fyrir alvarlegum og óaftur-
kræfum áhrifum. Áhrif loftslags-
breytinga sjást líka í bráðnun jökla,
jökla sem eru í raun forðabúr okkar
umhverfisvænu vatnsaflsorku. Öfga-
fullar veðurbreytingar sjást bæði
hér og annars staðar í heiminum.
Siglingaleiðir um norðurskautið eru
að opnast með þeim tækifærum og
ógnunum sem því fylgja.
Brýnt er að bregðast við þessari
umhverfisógn með áhrifaríkum
hætti. Bæði þurfum við að draga úr
útblæstri og binda kolefni. Við þurf-
um líka að búa okkur undir þær
breytingar sem eru óhjákvæmi-
legar. Ríkisstjórnin hefur sett metn-
aðarfull markmið og fylgir þeim eft-
ir með raunhæfum verkefnum.
Markmiðin byggjast á Parísarsátt-
málanum en ná lengra. Það er nauð-
synlegt að ná þessum markmiðum
og samstillt átak þjóða heims er
nauðsynlegt, mengun á sér engin
landamæri. Til að ná markmiðunum
þarf samstillt átak ríkis, sveitar-
félaga, fyrirtækja, samtaka og ein-
staklinga. Enginn get-
ur gert allt en öll
getum við gert eitt-
hvað.
Rýnum til gagns
í stað þess að ala á
ótta og efasemdum
Það er ekkert óeðli-
legt við það að við rök-
ræðum vægi mismun-
andi aðgerða en rök-
ræða um hvort aðgerða
sé þörf tilheyrir fortíð-
inni. Við eigum að rýna til gagns
lausnir og forgangsröðun verkefna.
Við eigum ekki að ala á ótta og sá
efasemdum um mikilvægi verkefn-
isins. Gagnrýnin á ekki að verða
þess valdandi að við gerum ekki
neitt vegna þess að það er ekki hægt
að sanna með óyggjandi hætti ná-
kvæmlega hvað viðkomandi aðgerð
leggur af mörkum. Við þurfum ein-
faldlega að beita mörgum mismun-
andi aðgerðum.
Þrátt fyrir ógnina sem loftslags-
váin veldur er ástæða til að vera
bjartsýn á framtíðina. Það er engin
þörf á heimsendaspá, þær hafa verið
nokkrar í gegnum mannkynssöguna
en hér erum við enn. Nýtum vísindi
og þekkingu dagsins í dag, sem aldr-
ei hefur verið meiri, til góðra verka.
Hugvit mannsins á sér engin tak-
mörk. Virkjum þetta hugvit um-
hverfinu og samfélaginu til góða.
Stjórnvöldum ber að styðja við rann-
sóknir, nýsköpun og tækniyfirfærslu
á sviði umhverfismála. Nýtum þann
vettvang til að finna nýjar lausnir til
að takast á við breytta tíma, með
sjálfbærni að leiðarljósi. Nýtum
þetta mikla sóknarfæri.
Stóra málið
Eftir Bryndísi
Haraldsdóttur
Bryndís Haraldsdóttir
» Það er engin þörf á
heimsendaspá, þær
hafa verið nokkrar í
gegnum mannkynssög-
una en hér erum við
enn. Nýtum vísindi og
þekkingu dagsins í dag.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokks.
bryndish@althingi.is