Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu Ráðandi öfl í Íran halda því fram að erlend ríki ógni öryggi á Persaflóa- svæðinu. Hafa Íranar varað vestræn ríki við að senda herafla inn á svæðið, eins og Bandaríkjamenn segjast vera að gera. Hassan Rouhani forseti sagði í gær að erlendar hersveitir hefðu alltaf haft í för með sér „þjáningar og eymd“ og ætti ekki að nota þær í „vopnakapphlaupi“. Bandaríkjamenn hafa verið að fjölga í hersveitum sínum í Sádi-Ar- abíu í framhaldi af árás á olíumann- virki þar í landi. Aðallega verða það sveitir sem sinna munu loft- og eld- flaugavörnum. Einnig verður ráð- gerðum vopnasendingum hraðað. Bæði Sádar og Bandaríkjamenn hafa skellt skuldinni af árásinni á olíu- mannvirkin í Abqaiq og Khurais á Ír- an. Var drónum og flugskeytum skot- ið á þau hinn 14. september sl. Hútauppreisnarmenn í Jemen, sem njóta forsjár Írana, hafa tekið árásina á sig. Bæði Bandaríkjamenn og Sádar gefa lítið fyrir það og segja Írana hafa staðið á bak við aðgerðina. Því neita yfirvöld í Teheran harðlega. Keppa þau um völd og áhrif á Flóa- svæðinu við stjórnvöld í Riyadh í Sádi-Arabíu. Rouhani sagðist myndu leggja fram nýja friðaráætlun fyrir Flóa- svæðið fyrir Sameinuðu þjóðirnar á næstu dögum. Spenna hefur farið vaxandi í samskiptum Bandaríkjanna og Írans í framhaldi af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti vék til hlið- ar samkomulagi sem ætlað var að takmarka kjarnorkuvinnslu Írana í skiptum fyrir afnám refsiaðgerða gegn klerkastjórninni í Teheran. Bandaríkjamenn hafa sömuleiðis kennt Írönum um árásir á tvö risa- olíuskip í Flóanum í júní og júlí. Erlendar sveitir haldi sig fjarri AFP Íranar Stríðsins við Írak 1980-88 minnst með hersýningum í Teheran.  Íranar sýna klærnar með hersýn- ingum víða um land Vísbendingar eru fyrir hendi um auk- inn hraða hlýnunar lofthjúpsins, að því er fram kemur í nýjum vísinda- legum niðurstöðum sem birtar hafa verið í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem hefst í New York í dag, mánudag. Gögnunum hefur alþjóðaveður- farsstofnunin (WMO) safnað saman en hún segir árabilið 2014 til 2019 hlýjasta fimm ára skeið sögunnar. Á þessum árum hafi hraði hækkunar yfirborðs sjávar aukist verulega og met verið sett í losun gróðurhúsa- lofts. WMO segir að gera þurfi gangskör að því að draga úr losun kolefna en gas sem losað hafi verið út í andrúms- loftið hafi aukist um 20% 2015 til 2019 frá næsta fimm ára tímabili þar á undan. Stofnunin segir að hækkun yfir- borðs sjávar sé ef til vill kvíðvænleg- ust. Að meðaltali hafi það hækkað um 3,2 millimetra á ári frá 1993. Á tíma- bilinu maí 2014 til 2019 hafi hækk- unin mælst fimm millimetrar á ári og tímabilið 2007 til 2016 hafi meðaltals- hækkunin verið fjórir millimetrar. Í skýrslu WMO er áhersla lögð á þær ógnir sem heimshöfin standi frammi fyrir. Meira en 90% umfram- hitans af völdum hlýnunar jarðar endi í höfunum. Að sögn stofnunar- innar hefur sjávarhiti aldrei mælst eins hár og árið 2018. Fulltrúar 60 ríkja munu flytja ræð- ur á ráðstefnunni á mánudag og greina frá því til hvaða aðgerða þeirra ríki séu að grípa til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og hvernig reynt sé að bregðast við flóð- um, ofsaveðri og öðrum áhrifum hlýnunar jarðar. Trump í næsta sal Um sextíu þjóðarleiðtogar munu ávarpa ráðstefnuna. Búist er við að þeir tilkynni nýjar aðgerðir gegn hlýnun lofthjúpsins. Meðal þeirra eru leiðtogar Kína, Indlands, Frakk- lands, Þýskalands og Bretlands en þar er ekkert pláss fyrir Japan og Ástralíu vegna aukinnar framleiðslu þeirra á raforku með kolum. Önnur ríki sem ekki taka þátt eru Brasilía, Sádi-Arabía og Bandaríkin. Donald Trump Bandaríkjaforseti sækir ekki loftslagsráðstefnuna en mun sitja fund um trúfrelsi í næsta sal í höfuðstöðvum SÞ á sama tíma. agas@mbl.is Hlýnunin að herða á sér  Nýjar vísindalegar niðurstöður birtar í aðdraganda loftslagsráðstefnu Samein- uðu þjóðanna  Hraði hækkunar yfirborðs sjávar jókst verulega frá árinu 2014 AFP Lagnaðarís Ljósmynd úr geimnum af ís í Bellingshausenhafi á Suðurskauts- landinu. Aukinn hraði hlýnunar sjávar veldur vísindamönnum áhyggjum. Breiðgatan Champs-Elysées í Par- ís, Ódáinsvellir, var óvenjuleg yfir að líta í gær. Í stað bílamergðar réðu gangandi vegfarendur ríkjum. Ástæðan var að bílaumferð var bönnuð í París í gær, innan hring- vegarins um borgina. Frá klukkan 11 til 18 máttu einungis sjúkra- og slökkviliðsbílar fara þar um auk strætisvagna. Mátti þó ekki aka strætó hraðar en 30 km/klst. Raf- bílar voru einnig bannaðir og þeir sem gerðust brotlegir við sam- þykktir áttu yfir höfði sér 135 evru sekt. Gríðarleg mengun hefur verið viðvarandi í París en þar hafði ekki rignt í rúman mánuð. Vildi svo kaldhæðnislega til að þar var spáð rigningu eftir hádegi í gær. agas@mbl.is Reiðhjólafólk, rúlluskautamenn og gangandi vegfarendur réðu ferðinni á Champs-Elysées Bílarnir viku í París AFP Íranskar konur hafa verið útlæg- ar frá knatt- spyrnuleikjum eftir íslömsku byltinguna þar í landi 1979, en á því er að verða breyting. Að sögn forseta alþjóðafótboltasambandsins (FIFA) verður írönskum konum heimilt að sækja knattspyrnuleiki frá og með upphafi undankeppni HM í fótbolta í lok mánaðarins. Árla í september beið áhugakona um fótbolta, Sahar Khodayari, eftir að vera handtekin við tilraun til að lauma sér inn á leikvang dulbúin sem karl. Manna á meðal gekk hún undir heitinu „bláa stúlkan“ eftir fánalitum uppáhaldsliðs hennar, Esteqlal. Hún óttaðist að sér yrði varpað í fangelsi og kveikti í sér við dómshús. Lést hún viku seinna af sárum sínum. Dauði hennar vakti mikla reiði og sorg innan Írans sem utan. agas@mbl.is ÍRAN Mega horfa á fótbolta Sahar Khodayari Tugþúsundir manna gengu um götur Par- ísar um helgina og mótmæltu ýmsum átaka- efnum, svo sem loftslagsbreyt- ingum, áform- uðum breyt- ingum á lífeyris- kerfinu og bar- áttumálum svonefndra gulvestunga. Mótmælin bar upp á dag þjóðar- arfs Frakka og sögðu aðstandendur þeirra um 50.000 manns hafa tekið þátt í þeim. Ekki bar þeim saman við borgaryfirvöld sem sögðu 16.000 manns hafa mótmælt hlýnun loft- hjúpsins og 6.000 sýnt andúð sína á ráðgerðum breytingum á lífeyris- kerfinu. Mótmælin fóru fram á nokkrum stöðum í París, svo sem við Sigur- bogann, Lúxemborgargarðinn, fjár- málaráðuneytið í Bercy og á breið- götunni Champs-Elysées þótt þar gilti bann við samsöfnun fólks. agas@mbl.is FRAKKLAND Kona andspænis sérsveitarmönnum. Mótmæltu í París

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.