Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019 Snæbjarnarson, formaður RSÍ. Hann bendir á að innan vébanda sambandsins séu um 5.500 manns á um 2.000 vinnustöðum. Margir vinni í stóriðju og í orkuverum, aðrir í lagnavinnu við nýbyggingar, enn aðrir sinni forritun og hönnun og svo framvegis. Í þessari fjölbreytni þurfi að finna mismunandi leiðir. Skv. kjarasamningunum frá í vor er miðað við að vinnuvikan verði stytt úr 40 í 36 klst. á viku, eða um fjórar klst. Inni í þeirri breytingu er að kaffitímum sem eru samanlagt 2.55 klst. á viku verður sleppt þannig að raunstyttingin er 1.05 klst. Út frá þessum forsendum verður samið við stjórnendur fyrirtækja um styttingu og til þess er tími til ársins 2022. Hafi útfærslur ekki verið fundnar fyrir þann tíma hefur launafólk heimild til að ákveða einhliða að það stytti vinnutíma sinn. Fjölskyldumál vega þungt „Engin breyting verður sjálfkrafa á skipulögðum kaffitímum nema þá að starfsmenn ákveði slíka breytingu og stytti vinnudaginn. Verði það niðurstaða starfsmanna að fella út kaffitíma mun það ekki breyta því að fólk getur áfram fengið sér tíu dropa eða tekið tal saman í pásum,“ segir Kristján Þórður. „Vissulega munar um fjóra tíma á viku í viðveru á vinnustað, sem ég veit að á sumum vinnustöðum verða teknir út þannig að vinnu verði hætt um hádegi á föstudögum eða bara unninn annar hver föstudagur. Aðrir vinnustaðir nýta sér þetta til að fólk komist fyrr heim úr vinnu til að sækja börn á leikskóla eða slíkt. Fjölskylduskuld- bindingin vegur sterkt í svona mál- um.“ sbs@mbl.is Misjafnar aðstæður milli vinnustaða kalla á ólíkar útfærslur við styttingu vinnutímans, sem voru meðal lykil- atriða í kjarasamningum sem gerðir voru á almennum vinnumarkaði í vor. Á vettvangi Rafiðnaðarsam- bands Íslands eiga fulltrúar sam- bandsins og trúnaðarmenn í fyrir- tækjum nú í viðræðum um hvað best henti á hverjum stað. Í kjarasamn- ingunum var fjallað um með hvaða hætti væri mögulegt að stytta vinnu- vikuna og þar með stytta viðveru á vinnustað. Samningarnir gera ráð fyrir fjölbreytileika á vinnumarkaði og því er ekki ein ákveðin leið farin. „Útfærslan á þessari breytingu verður ekki gerð einhliða, þetta þarf að gera í samtali og samn- ingum á hverjum vinnustað þar sem trúnaðarmenn og fulltrúar fyrir- tækjanna finna heppilega leið fyrir vinnustaðinn sem endar á gerð sam- komulags,“ segir Kristján Þórður Margar útfærslur á styttingu vinnutímans Kristján Þórður Snæbjarnarson  Viðræður við stjórnendur fyrirtækja  Sumir hætta um hádegi á föstudögum  Fjölbreytileiki ræður Katrín Jakobs- dóttir forsætis- ráðherra sækir leiðtogafund um loftslagsmál á 74. allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- ana sem fer fram í New York þessa dagana, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Stjórnarráðs Íslands. Er loftslags- fundurinn haldinn að frumkvæði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Antonios Guterres, og á að hvetja ríki og leiðtoga þeirra til að grípa til róttækra aðgerða til að forðast verstu afleiðingar loftslags- várinnar og draga úr losun gróður- húsalofttegunda. Náttúruverndarsamtök Íslands sendu bréf til forsætisráðherra í til- efni fundarins þar sem skorað er á hana að lýsa yfir stuðningi við mark- mið forseta framkvæmdastjórnar ESB um að stefna að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda um 55% í öllum geirum. Forsætisráðherra mun einnig sækja leiðtogafund um heimsmark- mið Sameinuðu þjóðanna. Þar verð- ur sérstök yfirlýsting samþykkt þar sem áréttaðar eru þær skuldbind- ingar sem ríki hafa samþykkt með heimsmarkmiðunum, sem eru m.a. að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir, fátækt og hungri verði útrýmt, komið verði á jafnrétti kynjanna, gæði menntunar verði aukin og ríki virði skuldbindingar í loftslagsmálum. Á fundinum mun forsætisráð- herra stjórna einum af sex pall- borðsumræðum leiðtoga, ásamt for- seta Kostaríku. Forsætisráðherra mun að auki eiga tvíhliða fundi með þjóðarleið- togum og taka þátt í ýmsum hliðar- viðburðum um jafnréttis- og lofts- lagmál í tengslum við allsherjar- þingið á næstu dögum. rosa@mbl.is Hvetja ríki og leiðtoga til aðgerða Katrín Jakobsdóttir  Forsætisráðherra á loftslagsfundi SÞ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nokkrum mönnum í húsi í Hafnarfirði á laugardags- kvöld og lagði hald á bæði áfengi og peninga, sem taldir eru vera til- komnir af ólöglegri sölu áfengis. Þegar lögreglan kom stóð yfir sam- kvæmi á vegum vélhjólaklúbbs, en sá hefur tengingu við erlend samtök af sama meiði, sem hafa verið skil- greind sem brotahópur. Enginn var handtekinn í þessum aðgerðum, sem voru liður í aðgerðum og eftir- liti lögreglu með skipulagðri brota- starfsemi. Haldlagt í vél- hjólaklúbbi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.