Morgunblaðið - 23.09.2019, Qupperneq 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019
✝ Helgi Arnlaugs-son fæddist 17.
mars 1923 á Akur-
gerði í Vesturbæ
Reykjavíkur. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 15.
september 2019.
Foreldrar hans
voru Arnlaugur
Ólafsson f. á Gerð-
um í Árnessýslu 8.8.
1888, d. 2.9. 1971,
og Guðrún Guðmundsdóttir f. á
Múlastöðum í Flókadal í Borgar-
firði 6.9. 1884, d. 6.8. 1943.
Systkini Helga: Guðmundur, f.
1.9. 1913, d. 9.11. 1996, Skúli, f.
30.9. 1916, d. 8.6. 1917, Sigríður,
f. 18.1. 1918, d. 21.12. 2008,
Ólafur, f. 2.3. 1920, d. 28.11.
1984, María, f. 19.6. 1921, Elías,
f. 8.11. 1925, d. 4.11. 2000, og
Hvanndal Skaftadóttir, f. 26.10.
1972.
Á unglingsárunum vann
Helgi hjá föður sínum sem rak
hænsna- og kúabú í Haga við
Hofsvallagötu. Hann lærði
skipasmíði hjá Magnúsi Guð-
mundssyni og lauk þar námi
1945.
Helgi starfaði við Lands-
smiðjuna 1946-47, var skipa-
smiður hjá Daníelsslipp frá 1947
og síðan hjá Slippfélagi Reykja-
víkur um langt árabil. Hann var
starfsmaður Málm- og skipa-
smíðasambandsins og síðan
Samiðnar árin 1973-1994. Helgi
sat í stjórn Sveinafélags skipa-
smiða um langt árabil og var
formaður þess félags 1954-1984.
Helgi var heiðursfélagi Sam-
iðnar frá 1994, heiðursfélagi Fé-
lags járniðnarmanna og var
sæmdur gullmerki félagsins.
Útför Helga fer fram frá
Lindakirkju í dag, 23. sept-
ember 2019, klukkan 13.
Hanna, f. 29.7.
1928, d. 13.1. 1984.
Helgi kvæntist
Ólínu B. Guðlaugs-
dóttur, f. 26.6.
1925, d. 11.11.
1979, árið 1946,
dóttir hennar er
Hilda E. Hilmars-
dóttir, f. 13.2.
1944. Börn þeirra
Helga og Ólínu eru
Kristinn, f. 5.3.
1947, Arnlaugur, f. 2.9. 1955,
Guðrún f. 2.9. 1955, og Elsa
Kristín, f. 20.3. 1964.
Seinni kona Helga er Erna
Ragnheiður Hvanndal Hannes-
dóttir, f. 30.8. 1933. Börn henn-
ar eru Finnbjörg Skaftadóttir, f.
24.8. 1952, Jóhann Örn Skafta-
son, f. 7.8. 1954, Halldóra
Skaftadóttir, f. 8.8. 1956, og Íris
Elsku pabbi minn, nú er komið
að kveðjustund. Mikið er ég lán-
söm að mamma skuli hafa kynnst
þér þegar ég var kornabarn og
föðurlaus og þú gengið mér í föð-
urstað. Betri pabba hefði ég ekki
getað fengið. Þú varst ávallt tilbú-
inn, með allri þinni þolinmæði og
gæsku, til að hjálpa og leiðbeina
manni gegnum lífið. Ég man þeg-
ar ég var í barnaskóla og þurfti að
læra margföldunartöfluna utan
að, þú skrifaðir með þinni fallegu
og skýru rithönd alla töfluna á
blað og hlýddir mér svo yfir. Síð-
an þurfti ég bara að loka augun-
um og þá sá ég töfluna ljóslifandi
fyrir mér og þannig lærði ég hana
fljótt og vel. Ég man þegar þú
vaktir mig á morgnana í skólann,
bankaðir létt á dyrnar og sagðir
blíðlega „það er kominn tími til að
vakna, Hilda mín“ og svo settist
ég fram í eldhús og þá varstu bú-
inn að taka fram morgunmatinn,
súrmjólk, haframjöl og púðursyk-
ur. Ég man að þú varst alltaf að
smíða alls konar dót fyrir mig og
Kidda bróður. Ég man eftir stult-
unum, þegar stultuæðið gekk yf-
ir, þá smíðaðir þú forláta stultur
fyrir okkur að ógleymdum bog-
anum og örvunum, nema örvarn-
ar voru ekki með oddi, það mátti
ekki meiða neinn. Svo voru það
trésverð og teygjubyssur og allt
var þetta listasmíði hjá þér pabbi
minn. Ég man sérstaklega eftir
fallega sleðanum sem þú smíðaðir
og lakkaðir í bak og fyrir, þetta
var örugglega fallegasti sleðinn í
Vesturbænum og við buðum
mömmu í sleðaferð og renndum
okkur niður Stýrimannastíginn.
Ég man þegar ég var að koma
heim af skautum á Tjörninni með
jökulkaldar hendur og fætur, þá
tókst þú fætur mína og hendur
og nuddaðir í mig hita.
Ég man þegar ég fór í sveitina
í þrjá til fjóra mánuði á sumrin,
fyrst 11 ára gömul, hvað þú varst
duglegur að skrifa mér sendi-
bréf og segja mér fréttir að
heiman. Ég man þegar ég fékk
fyrsta tvíhjólið mitt. Á sumar-
daginn fyrsta bankaðir þú í öxl-
ina á mér og bauðst mér að kíkja
út í skúr og þá varstu búinn að
leggja mikla vinnu í að gera upp
gamalt hjól sem þér hafði
áskotnast. Hjólið var orðið skín-
andi fínt og þetta gerðir þú allt
þegar enginn sá til. Ég man þeg-
ar við fluttum á Langholtsveginn
og ég byrjaði í framhaldsskóla,
þá þurfti heimasætan að fá skrif-
borð og þú gerðir þér lítið fyrir
og smíðaðir forláta tekkskrif-
borð eftir mynd úr Bo Bedre-
blaðinu danska. Þú smíðaðir líka
handa mér fallegan kassa til að
geyma gullin mín, málaðir hann
bleikan að innan og hvítan að ut-
an. Ég á ennþá þennan kassa
sem inniheldur alls konar gamalt
dót. Ég man, pabbi minn, hvað
ég var stolt af þér þegar þú
gekkst í fararbroddi með fána
félags skipasmiða í 1. maí-göng-
unni. Þú varst langflottastur.
Elsku pabbi, ég þakka þér fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig í líf-
inu. Ég var einstaklega lánsöm
að fá þig fyrir pabba. Þú varst
góðmenni og heill í gegn.
Þín dóttir,
Hilda.
Elsku hjartans pabbi minn.
Hér sit ég með stútfullt hjarta
af þakklæti og stolti, kærleika og
virðingu.
Óendanlega þakklát yfir því að
hafa verið svo lánsöm að eiga þig
sem föður. Hjarta sem mun svo
sannarlega fyllast af söknuði þeg-
ar fram líða stundir.
Þrátt fyrir að vera nú sjálf
komin á miðjan aldur hef ég ætíð
verið litla stelpan þín, skjátan þín,
stelpuskottið þitt, dekurrófan og
já umfram allt pabbastelpa allt
frá því ég man eftir mér.
Við vorum einstaklega gott
teymi, þú og ég.
Samrýnd frá fyrstu tíð enda
naut ég þess að vera örverpi og
hafa þig svolítið út af fyrir mig.
Þú vígðir mig inn í marga dýr-
mæta heima og kynntir mig fyrir
íslenskri náttúru, tónlist, mynd-
list, bókmenntum og ljóðum.
Þá voru ófáar ferðirnar sem við
tvö skottuðumst saman í margs-
konar dagsferðir.
Alls kyns skoðunarferðir um
fjöll og fjörur, heimsóknir til ætt-
ingja sem og á listasöfn og menn-
ingarhús, bæjarferðir, veiðiferðir
og svo mætti lengi telja. Að
ógleymdum öllum sögustundun-
um sem við áttum en þú varst
einn sá allra besti sögumaður sem
ég hef kynnst og var unun að
hlusta á þig lesa eða hreinlega
leika þegar þú tókst þér bók í
hönd og last upphátt fyrir mig
sem aðra.
Og já margar voru útilegurnar
og sumarbústaðaferðirnar með
ykkur mömmu og alltaf fundum
við tvö okkur einhver ævintýri í
sveitum landsins og nutum sam-
vista sem bestu vinir.
Minningarnar eru margar og
þær munu ylja um ókomna tíð og
þær mun ég ávallt eiga þó ég láti
nægja að skrifa hér aðeins örfáar
línur.
Það er svo dýrmætt að hafa átt
svona vandaðan heiðursmann
sem föður og ómetanlegt vega-
nesti fyrir lífsferðalagið. Hann
kenndi mér allt hið góða,
umburðarlyndi, virðingu og kær-
leika, umhyggju, ástúð og fyrir-
gefningu og umfram allt jákvæðni
og þakklæti. Allt eru þetta gjafir
sem hafa gert mig að því sem ég
er í dag. Hann var já hreinrækt-
aður gullmoli í gegn, að innan sem
utan og fyrir mér réttsýnn fag-
maður sem kunni allt, vissi allt og
gat allt.
Fyrirmyndin mín í einu sem
öllu.
Það er ofurstolt og þakklát
dóttir sem segir takk elsku besti
pabbi minn fyrir allt sem þú
færðir mér og takk fyrir að vera
þessi frábæra fyrirmynd og faðir
sem þú hefur ávallt verið.
Eitt af því sem við höfðum svo
gaman af bæði tvö var að setja
saman einfaldar rímur og eru
margar gestabækurnar í gamla
daga skreyttar sameiginlega af
okkur í þeim dúr, t.a.m. í Ölfus-
borgum og öðrum bústöðum.
Mín hinsta kveðja er einmitt
ein slík, elsku pabbi minn:
Litla stelpan þín verð ég ætíð
þó komið sé að kveðjustund,
minning þín lifir um ókomna framtíð
þar til við eigum saman endurfund.
Kærleikskveðja, ég elska þig.
Þín
Elsa.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okkar
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð-
leg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á
braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem
förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Þín dóttir,
Guðrún.
Það var haustið 1981 sem ég
fór að venja komur mínar á Haga-
melinn gerandi hosur mínar
grænar fyrir eiginmanni mínum
til 38 ára. Það var líka þá sem ég
varð þeirrar hamingju aðnjótandi
að hitta tengdapabba minn hann
Helga í fyrsta sinn. Ég fékk tvo
fyrir einn og gat því ekki verið
heppnari. Maður getur valið sér
ýmislegt í lífinu eins og t.d. eig-
inmann en svo er þér úthlutað
tengdaforeldrum og ég vann í
þessari úthlutun því ég fékk einn
þann besta sem völ var á.
Tengdapabbi minn var gull af
manni, heiðarlegur í alla staði og
hógværðin uppmáluð. Hann var
leiftrandi gáfaður og maður kom
sjaldan að tómum kofunum hjá
honum. Hann var búinn að lesa
nánast allar bækur sem máli
skiptu og var óþreytandi að
spjalla um heimsins mál. Þolin-
mæðina gagnvart öðrum átti
hann í bunkum og var alltaf tilbú-
inn að rétta öllum hjálparhönd
enda sósíalisti í húð og hár. Ef
eitthvað bjátaði á hjá mér gegn-
um tíðina var hann ávallt með góð
ráð á sinn einfalda en skilvirka
hátt. Alltaf leið mér betur þegar
ég var búin að spjalla við hann um
slíkt. Hann var líka langyngsti
tengdapabbi í heimi og skipti
engu máli hversu árin hrönnuðust
upp, hann var alltaf jafn ungur.
Það eru nú ekki margir tengda-
pabbar sem komnir eru yfir 96
ára aldur sem spila golf, keyra
eins og herforingjar og skella sér
á erlenda grundu þar sem dans-
inn er stiginn þar til ljósin
slokkna.
Og listfengur var hann með af-
brigðum og elskaði klassíska tón-
list. Hann fylgdi okkur hjónum
alla tíð á söngferli okkar og mætti
á alla okkar tónleika ef hann gat.
Hann sótti sinfóníutónleika, óper-
ur, leikhús og alla þá list sem
mögulega gaf honum innblástur.
Hann var í mínum huga mikil-
menni og bak við mikilmenni er
alltaf mikil kona og svo var nú
aldeilis hjá honum tengdapabba.
Þegar ég var að sniglast í kring-
um Hagamelinn fyrir langa löngu
þá voru þeir feðgar piparsveinar
og bjuggu saman. Á nákvæmlega
sama tíma og ég og minn maður
vorum að skjóta okkur saman var
hann að skjóta sér í fallegri ungri
snót úr Hafnarfirðinum. Og þvílík
hamingja sem því fylgdi, ekki
bara fyrir tengdapabba heldur
fyrir okkur öll. Erna kom inn í líf
mitt á sama tíma og þessir tveir
og enn á ný vann ég í happdrætt-
inu. Þau eru búin að eiga alveg
ótrúlega fallegt líf saman þar sem
Erna er búin að vera driffjöðrin
og samnefnarinn í allri fjölskyld-
unni. Hún er búin að þeytast með
tengdapabba um þvera og endi-
langa jörðina, sækja alls kyns
námskeið og uppákomur og vera
hrókur alls fagnaðar. Það er búið
að vera dásamlegt að fylgjast með
þessum unglömbum sem allir
geta tekið sér til fyrirmyndar.
Nú er hann tengdapabbi horf-
inn á vit feðra sinna og vafalítið
búinn að hitta Ólínu sína, systkini
og vini. Það er nokkuð víst að þar
er umræðan fjörleg og skemmti-
leg og ekki síst fræðandi eins og
tengdapabba var von og vísa.
Elsku Helgi minn, takk fyrir
allt, minning þín lifir að eilífu.
Þín elskandi tengdadóttir
Anna Birgitta Bóasdóttir.
Nú hefur Helgi kvatt okkur,
þessi fyrirmynd okkar allra sem
kynntust honum. Hann kenndi
okkur svo margt. Hann var
heiðarlegur, réttsýnn, fróður og
ljúfur. Helgi var heilsuhraustur
maður sem fór flesta daga í sund
og gerði Müllers-æfingar á bakk-
anum. Hann hafði þann góða
eiginleika að ná fram því besta í
öllum sem kynntust honum. Börn
elskuðu að vera í návist hans og
alltaf gat hann frætt þau. Helgi
hafði yndi af ljóðalestri og kunni
mikið af vísum sem hann fór með
við góð tækifæri. Einnig skrifaði
hann mikið frá unglingsárum og
þau eru ófá sendibréfin sem hann
sendi til ástvina sinna. Samband
hans og mömmu var einstakt,
virðing og ást sem við tökum okk-
ur öll til fyrirmyndar. Þau ferð-
uðust víða og nutu sín vel.
Nú kveðjum við yndislegan
mann með þökk fyrir allt.
Halldóra (Haddý) og Bjarni.
Það hefur verið sagt að engin
kynslóð í mannkynssögunni hafi
upplifað aðrar eins þjóðfélags-
breytingar og sú sem er að enda
æviskeið sitt um þessar mundir
og var fædd á millistríðsárunum.
Þeir sem betur til þekkja segja að
þetta séu kynslóðirnar sem lögðu
grunninn að þeirri velsæld sem
við nú tökum sem sjálfsögðum
hlut í samtímanum. Afi Helgi var
skipasmiður að mennt og tók
virkan þátt í að móta og tryggja
mörg af þeim réttindum sem
launafólk hefur í dag í gegnum
störf sín hjá Málm- og skipa-
smíðasambandinu. Honum rann
blóðið til skyldunnar og jöfnuður
var honum hugleikinn. Hann
hafði kost á því að ferðast á sínum
tíma til Austur-Evrópu – bak við
járntjaldið svokallaða – og ég
minnist samræðna okkar eftir
þær ferðir þar sem vonbrigði
hans leyndu sér ekki út af þeim
ójöfnuði sem þar ríkti.
Afi rifjaði einu sinni upp sög-
una hvernig hann smíðaði eldhús-
innréttinguna fyrir Langholts-
veginn í slippnum hjá Daníel eftir
vinnu og flutti hana í áföngum í
strætó og setti upp. Þessar lýs-
ingar voru áhrifaríkar og lýsa vel
hans kynslóð. Þegar hann eign-
aðist sinn fyrsta bíl úr „kassan-
um“ kom ekki til greina að taka
plastið af sætunum heldur var
það tekið af þegar hann var
seldur. Í þessu var fólgið stolt og
virðing fyrir því sem var búið að
vinna fyrir hörðum höndum.
Þegar ég kvaddi afa var mér
ljóst að hann var sáttur við lífið og
meira en það – hann var ham-
ingjusamur. Hann gat litið yfir
farinn veg og sagt að þetta ferða-
lag hefði verið gefandi og hann
hefði uppskorið örugglega meira
en hann hefði nokkurn tíma þorað
að vona sem ungur maður, að
elska og vera elskaður.
Helgi Björn Kristinsson.
Hann Helgi var pabbi minn.
Ég kallaði hann alltaf Helga því
þannig var það bara en hann varð
pabbi minn nær samstundis eftir
að við kynntumst, ég níu ára og
Helgi 58 ára. Hann varð vinur
minn og ég dáðist að honum.
Hann verndaði mig, studdi og gaf
mér endalaus heilræði. Heilræðin
voru þó sjaldnast í ræðu, frekar í
gjörðum og hann er mín helsta
fyrirmynd. Hvað hann var alltaf
ljúfur og réttlátur, vandaður,
hjálpsamur og fróðleiksfús.
Helgi var nægjusamur og nýt-
inn, og beið stundum ansi lengi
með að opna nýja hluti því sá eldri
var enn nothæfur. Hans uppá-
haldsiðja á seinni árum var að
lesa og hlusta á frásagnir fólks í
útvarpinu og stundum deildi hann
því með okkur. Hann átti það til
að klippa út fréttir sem hann vissi
að okkur þættu skemmtilegar og
sendi okkur fjölskyldunni þegar
við bjuggum erlendis. Hann las
líka oft fyrir mig og fjölskylduna,
ýmist fréttir, sögur eða ljóð og
þegar hann las þá nutum við þess
svo mikið því lesturinn var sér-
lega lifandi og skemmtilegur. Það
var einna skemmtilegast þegar
hann flutti fyrir okkur vísur. Vís-
ur sem flestar voru skrítnar og
skondnar og ég mun sakna mikið
að heyra. Börnin mín minnast
hans sem ljúfs og viturs afa sem
sendi þeim oft sendibréf, töffara
sem átti það til að ferðast um á
mótorhjóli, afa sem fannst ís, sæl-
gæti og gos gott eins og þeim og
náði til þeirra með góðum sögum
og rúsínuklöttum sem biðu þeirra
stundum eftir skóla. Við munum
sakna hans Helga okkar, pabba,
tengdapabba og afa svo mikið en
erum í senn svo þakklát fyrir að
hafa fengið að eiga hann. Ég var
svo sannarlega gæfusöm að Helgi
valdi að vera pabbi minn. Takk
fyrir allt sem þú gafst okkur.
Íris Hvanndal, Halldór,
Þuríður Erna, Hrafnkell
og Ragnheiður (Ragga).
Sem ungur drengur kynntist
ég Helga föðurbróður mínum
nokkuð vel. Það háttaði þannig til
að bræðurnir Guðmundur og
Helgi bjuggu með fjölskyldum
sínum í fjölskylduhúsinu á Öldu-
götu 25 í Reykjavík. Eystri hluta
hússins höfðu þau byggt saman
afi minn og nafni og mágkona
hans, Helga Guðmundsdóttir.
Helga bjó á jarðhæðinni, við á
fyrstu hæð, Helgi á þeirri annarri
og afi efst uppi.
Það var talsverður samgangur
milli þessara tveggja fjölskyldna
enda börnin á svipuðu reki. Ólaf-
ur bróðir elstur svo kom Hilda, þá
ég og svo Kristinn og Guðrún svo
til jafnaldra. Það var ekki fyrr en
undir lok þessarar „sambúðar“ að
tvíburarnir Arnlaugur og Guðrún
fæddust. Við fluttum sama sum-
arið 1957 hvor í sína áttina, Helgi
með sína stóru fjölskyldu á Lang-
holtsveginn en við í Drápuhlíð.
Þótt nálægðin væri ekki sú
sama þá rofnuðu tengslin ekki.
Sumarið eftir að ég hætti í sveit
hafði Helgi milligöngu um að ég
fengi sumarvinnu á hans vinnu-
stað. Helgi var skipasmiður og
starfaði þá í Daníelsslipp, eða litla
slippnum eins og hann var stund-
um nefndur. Það var ánægjulegt
að sjá hann á vinnustað, góður
smiður sem aðrir báru virðingu
fyrir. Þá var hann liðtækur í
skákinni en í slippnum var teflt í
öllum matar- og kaffitímum enda
var Björn Þorsteinsson, marg-
faldur skákmeistari Reykjavíkur
og Taflfélags Reykjavíkur, einn
starfsmanna.
Helgi Arnlaugsson
Faðir minn, sonur, stjúpsonur og bróðir
okkar,
ARNAR HJARTARSON,
lést fimmtudaginn 22. ágúst sl.
Útför hans hefur farið fram.
Tómas Árni Arnarson Johnsen
Hjörtur Örn Hjartarson Hrefna Hrólfsdóttir
Kolbrún Sveinsdóttir Hjördís Isabella Kvaran
Hjörtur Hjartarson Hrafn Hjartarson
Ástkær eiginkona mín og vinur, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR,
Gugga,
Hólabraut 1, Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss
14. september. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn
28. september klukkan 13.
Sigurgeir Þór Jónasson
Jónas Þór Sigurgeirsson Bryndís Sigurðardóttir
Anna Linda Sigurgeirsdóttir Jón Þór Jónsson
Ásthildur G. Sigurgeirsdóttir Laufar Sigurður Ómarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.