Morgunblaðið - 23.09.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Mánudagur: BINGÓ EÐA FÉLAGSVIST FELLUR NIÐUR. Boc-
cia kl. 10.30. Gönguhópur kl. 10.30. Myndlist kl. 13. Vatnsleikfimi kl.
14.30.
Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-
10.30. Jóga með Carynu kl. 8.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með
Ragnheiði kl. 11.10. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30-12.20 og
kaffi kl. 14.30-15.30. Jóga með Ragnheiði kl. 12.05. Tálgun – opinn
hópur kl. 13-16. Frjáls spilamennska 13. Liðleiki í stólum 13.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Kaffi, spjall og
blöðin við hringboðið kl. 8,50. Ganga kl. 10. Byrjendanámskeið í
línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30-
15.30. Handavinnuhornið kl. 13-15. Foreldrastund kl. 13. Félagsvist kl.
13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Kóræfing kl. 19:30-21:45
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikf. Sjál kl.7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9.30. Kvenna-
leikf Ásg. kl.11. Zumba salur Strikið 8. kl. 16.15
Gerðuberg 3-5 Mánudagur Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong 10-11. Leikfimi Helgu Ben 11-11:30.
Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9. Handavinna, kl. 9. Boccia-æfing, kl. 9.30 Post-
ulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Gullsmári Mánudagar: Postulínshópur kl.9.. Jóga kl.9.30 og kl.17.
Handavinna kl.13. Bridge kl.13 Félagsvist kl.20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 4. Jóga kl. 10 – 11. Hádegismatur kl. 11.30.
Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16. Námskeið í
Olíumálun kl. 14-18, 5.500 kr.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9. í Borgum. Haustferð til
Sólheima, Laugarvatns og nágrenni lagt af stað kl. 9. frá Borgum
þátttökuskráning hámark 65 uppselt, Gönguhópar kl. 10. gengið frá
Borgum og frá Grafarvogskirkju. Dans fellur niður vegna haustferðar.
Prjónað til góðs og félagsvist kl. 13. í Borgum Tréútskurður á
Korpúlfsstöðum kl. 13. í dag.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45. Opin
lístastofa kl.9-16. Upplestur kl.11,Trésmiðja kl.13-16, ganga m.starfs-
manni kl.14, bíó í betri stofunni kl.15. Uppl í s.4112760.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð Félagsheimilisins við Suðurströnd
kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og
kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Haustfagnaður í salnum nk. fimmtudag kl. 18.00. Veitingar og skemm-
tun. Skráning í síma 8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Al-
lir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20 -ZUMBA Gold fram-
hald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl. 11.30
umsjón Tanya.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
✝ Erna SærúnVilmundar-
dóttir fæddist 10.
janúar 1936 á Ísa-
firði. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Eir 14.
september 2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Vil-
mundur Guð-
brandsson, f. 4.
júní 1913 á Greni-
vík, d. 25 apríl 1981, og Sig-
ríður Jóna Kristjánsdóttir, f. 1
desember 1917 á Suðureyri við
Súgandafjörð, d. 13. desember
1980. Erna Særún átti fjögur
alsystkini, þau Kristján, f. 8.
desember 1938, Vilmund, f. 12.
maí 1941, d. 22. mars 2008,
Guðbjörgu, f. 28. september
1947, og Örn Rósmann, f. 4.
maí 1951, d. 13. mars 1959.
Hálfsystkini Ernu Særúnar
samfeðra eru Hulda, f. 26.
nóvember 1936, Magnús, f. 22.
maí 1938, og Emil, f. 22. maí
1938.
Hinn 25. desember 1954
börn. 2) Þorsteinn Örn, f. 7.
apríl 1959, giftur Huldu Sig-
urðardóttur, f. 18. mars 1960,
og eiga þau þrjú börn: Ástu
Særúnu, f. 17. febrúar 1979,
Sigurð Heiðar, f. 2. mars 1988,
d. 14. nóvember 2008, Birki, f.
23. október 1989, og tvö
barnabörn. 3) Vildís, f. 4. mars
1963, gift Charles Magnússyni,
f. 1. maí 1960, og eiga þau
þrjá syni: Björgvin Orra, f. 30.
maí 1984, Aron Huga, f. 8.
apríl 1990, og Arnar Tjörva, f.
2. júní 1994, og eiga þau eitt
barnabarn.
Erna flutti fjögurra ára
gömul með fjölskyldunni til
Neskaupstaðar og bjó þar til
2011 er þau hjón fluttu til
Reykjavíkur. Árið 2015 flutti
Erna á sjúkradeild á Eir og
dvaldi þar til æviloka.
Erna Særún vann við ýmis
störf auk þess, sem sjómanns-
kona, að sjá um heimili og
barnauppeldið að stórum hluta
í fjarveru eiginmanns. Hún
vann á barnaheimili, við
síldarsöltun, á hóteli en lengst
af starfsævinnar vann hún á
rannsóknarstofu hjá Síldar-
vinnslunni í Neskaupstað.
Útför Ernu Særúnar fer
fram frá Grafarvogskirkju í
dag, 23. september 2019,
klukkan 15.
giftist Erna Særún
Björgvini Jóns-
syni, f. 6. desem-
ber 1928, d. 6. des-
ember 2016.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Einarsson, f. 14.
maí 1894 í Kol-
staðagerði, Valla-
hreppi, S-
Múlasýslu, d. 18.
júlí 1973, og Þór-
stína Pálsdóttir, f. 5. janúar
1896 á Þiljuvöllum í Berufirði,
d. 12. febrúar 1982.
Börn þeirra eru: 1) Smári, f.
13. júlí 1954, í sambúð með
Kristínu Arnardóttur, f. 10.
maí 1956. Smári á þrjú börn
úr fyrri sambúð með Sigríði
Kjartansdóttur: Ernu Björgu,
f. 3. september 1980, Bjarka, f.
21. mars 1983, og Alidu Ósk, f.
6. apríl 1988. Kristín á þrjú
börn úr fyrri sambúð: Örn Elí-
as, f. 4. september 1976, Erlu
Sonju, f. 10. desember 1979,
og Helgu, f. 17. ágúst 1993,
saman eiga þau níu barna-
Fyrsta orðið sem kemur í huga
minn þegar ég hugsa um elsku
mömmu er orðið „einstök“.
Einstakur er orð sem notað er þegar
lýsa á því sem engu öðru er líkt,
faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem
veitir ástúð með brosi eða vinsemd.
Einstakur lýsir fólki sem stjórnast af
rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu
annarra.
Einstakur á við þá sem eru dáðir og
dýrmætir og hverra skarð verður aldrei
fyllt.
Einstakur er orð sem best lýsir þér.
(Terri Fernandez)
Ég mun ylja mér við allar góðu
minningarnar um ókomin ár.
Ég varðveiti minninguna um elsku þína
eins og lítinn stein í lófa mínum.
Í laumi sting ég hendinni í vasann
og finn ávala mýkt steinsins.
Fingurnir snerta steininn,
hann liggur í lófa mér.
Minningin um elsku þína
gerir mig sterkari og harðari af mér,
ég ætla ekki að detta,
ekki að veikjast.
Í steininum er þyngdarpunktur minn,
hann heldur mér í jafnvægi.
Hlýjan og gleðin í augum þínum
eru fágaður steinn í lófa mínum.
Ég mun aldrei láta neinn
taka steininn minn frá mér.
(Caroline Krook)
Blessuð sé minning þín, elsku
mamma mín.
Hjartans kveðja, þín dóttir,
Vildís.
Ef ég ætti að velja eitt orð til
að lýsa mömmu þá kemur orðið
manngæska upp í hugann. Henni
var annt um að allir hefðu það
sem best.
Mig langar að minnast hennar
með nokkrum lýsandi sögubrot-
um.
Eitt sinn kom sölumaður á
Mýrargötuna og fór ein sonar-
dóttirin til dyra. Kynnti hann sig
og sagðist vera að selja bækur, þá
heyrist í þeirri stuttu: þú ert í al-
veg réttu húsi, því amma kaupir
allt.
Mamma var alla tíð mikil mat-
manneskja. Við systkinin öll vor-
um fremur grannholda og voru
því gerðar ýmsar tilraunir til að
bæta úr því. Frægur er rjómafi-
tukúrinn, sem fólst í því að
drekka aukalega eitt glas af
rjóma á dag. Við þyngdumst ekki
um eitt gramm. Þá tók við malt-
kúrinn, sem var á sömu nótum.
Árangurinn hinn sami. Þá fylgdi
ávallt lýsi og Sanasól.
Tónlist var í miklum metum
hjá mömmu, bæði hlustaði hún
mikið á tónlist og var í mörg ár í
kirkjukórnum í Neskaupstað.
Hlustunin var þó oft á þeim nót-
um að hlusta á sömu plötuna aftur
og aftur og t.d. má tala um sumar-
ið sem Demis Roussos lá undir
nálinni. Þegar Mahalia Jackson
hljómaði um húsið var hinsvegar
kominn desember. Þessi siður yf-
irfærðist síðan í bílinn og reyndi
þá mest á barnabörnin. Þegar
fjölskyldan var á ferðalagi á
Norðurlöndunum og 15 ára ung-
lingurinn fékk að sitja einn að aft-
ursætinu hjá afa og ömmu, kom
að því við eitt stoppið að hann
vildi komast í bílinn með foreldr-
unum og tveim yngri bræðrum er
sátu fyrir á fleti. Þegar hann var
spurður að því hvort ekki væri allt
í lagi, var svarið: jú, jú, ég er bara
orðinn leiður á Hallbirni.
Við systkinin fengum fremur
frjálslegt uppeldi og ekki mikið
um boð og bönn og skammir. Þó
giltu að sjálfsögðu þessar al-
mennu uppeldisreglur m.a. um
útivistartíma.
Þegar ég var 14 ára vorum við
félagar í fótbolta langt inn í sum-
arbjarta nóttina.
Þegar heim kom syrti þó í ál-
inn. Húsið harðlæst. Ég vildi að
sjálfsögðu ekki raska nætur-
svefni mömmu, þannig að ég
smokraði mér inn um glugga og
lagðist til hvílu. Þar fann mamma
mig um morguninn og ég held að
hún hafi orðið mjög glöð, því eng-
ar fékk ég skammirnar og húsið
ekki læst í framhaldinu.
Mamma bókaði mig einu sinni í
aukatíma í stærðfræði. Ég mætti
að sjálfsögðu. Öllum spurningum
varðandi ástæðu komu minnar
svaraði ég: Ég veit það ekki,
mamma sendi mig. Eftir að hafa
reiknað nokkur dæmi var mér
tjáð að ég hefði ekkert hér að
gera. Þá var svarið: Ég veit það
en mamma sendi mig.
Þetta var eini aukatíminn sem
ég fór í á öllum skólaferlinum.
Hún var með létta lund og góð-
an húmor og þá ekki síst fyrir
sjálfri sér.
Þessir eiginleikar fylgdu henni
alla tíð og reyndust henni og öðr-
um vel ekki síst síðustu árin þeg-
ar hún dvaldi á alzheimer-deild á
hjúkrunarheimilinu Eir og minn-
ið að mestu horfið. Hún naut eftir
sem áður stundarinnar.
Þá var hún dugleg að ræða við
og knúsa aðra skjólstæðinga á
deildinni og reyna að láta öllum
líða sem best. Ein konan á deild-
inni sagði við mig: hún var svo
góð kona og þegar hún sá að mér
leið ekki nógu vel kom hún og tal-
aði við mig og lét mig hlæja.
Elsku mamma, þín verður sárt
saknað.
Meira: mbl.is/minningar
Þinn sonur,
Smári.
Í dag kveðjum við ástkæra
ömmu og tengdamömmu.
Það sem einkenndi ömmu var
hve einstaklega góða sál hún
hafði, hláturinn sem bergmálaði
um alla sali og gleðin sem hún
færði öðrum.
Ömmu fannst fátt notalegra en
að vera umvafin fjölskyldunni og
með nærveru hennar var ætíð
stutt í hláturinn.
Við kveðjum þig nú með sökn-
uð í hjarta en á sama tíma með
þakklæti í huga fyrir allar þær
góðu stundir og minningar sem
þú færðir okkur og öllum þeim
sem voru svo heppnir að eiga
samleið með þér á lífsgöngunni.
Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel.
Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk
en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti ekki um litinn né ljómann
en liljan í holtinu er mín!
(Þorsteinn Gíslason)
Arnar Tjörvi Charlesson,
Aron Hugi Charlesson,
Björgvin Orri Charlesson og
Charles Óttar Magnússon.
Við kveðjum elsku ömmu Ernu
með söknuð í hjarta. Það eru ófá-
ar minningarnar úr barnæsku frá
Mýrargötunni en það var ávallt
ljúft að heimsækja ömmu og afa í
Neskaupstað – ýmist með rest-
inni af fjölskyldunni en ekki var
síður gaman að fá að fara ein
austur og vera jafnvel svo vikum
skipti í ömmu- og afadekri.
Amma var alger ljúflingur og
dýrmætt fyrir dísirnar mínar að
fá að kynnast henni. Þau voru ófá
hlátursköstin sem henni tókst að
framkalla, sérstaklega nú í seinni
tíð því þrátt fyrir að alzheimer-
sjúkdómurinn hefði náð tökum á
henni var ávallt sprell og gleði
þegar við hittumst.
Hvíl í friði elsku amma.
Erna Björg, Fannar Freyr,
Þórdís Erla og Bergdís Freyja.
Erna Særún
Vilmundardóttir
✝ Guðrún Gunn-arsdóttir fædd-
ist 7. janúar 1942.
Hún lést á Hlévangi
í Reykjanesbæ 29.
ágúst 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Gunnar
Gestsson, f. 30. maí
1917, d. 5. apríl
2006, bóndi á Kot-
strönd, Ölfusi, og
María Þorsteins-
dóttir, f. 10. ágúst 1919, d. 16.
júní 1998, húsfreyja á Kot-
strönd, Ölfusi. Systkin Guð-
rúnar eru: Jóhann Þorsteinn, f.
8. nóvember 1940; Sigríður, f.
15. janúar 1949; og Hafdís Erna,
f. 17. júní 1953.
Guðrún giftist Jóhannesi Har-
aldssyni, f. 14. júní 1942, hinn
30. nóvember 1963. Þau slitu
Reimar Júlíusson, f. 23. nóvem-
ber 1967. Börn þeirra eru: a)
Aron Freyr, f. 25. febrúar 1991.
b) Sunneva, f. 16. desember
1994, unnusti Gunnar Egill
Benonýsson, f. 13. júní 1993. c)
Agata, f. 26. júní 1998. 3) Krist-
ín, f. 21. apríl 1966, giftist
Kristni Sigurmundssyni, f. 20.
nóvember 1959, þau slitu sam-
vistum. Börn þeirra eru: a)
Gunnþór, f. 30. janúar 1983,
maki Anna María Hoffmann
Guðgeirsdóttir. Börn þeirra eru
Guðlaug Sigurrós, f. 6. ágúst
2007, Sigurmundur Ari, f. 5. júli
2011, og Helga Kristín, f. 9.
ágúst 2017. b) Jóhannes Mundi,
f. 5. febrúar 1986. 4) Ólöf Þóra,
f. 25. nóvember 1970. Barns-
faðir Ólafar er Erlendur Guð-
mar Gíslason, f. 25. janúar 1973,
dóttir þeirra er Jódís Erna, 19.
nóvember 1997, barnsfaðir
hennar er Alexander Örn
Arnarson, f. 10. júní 1997, og
eiga þau dótturina Emilíu Rós,
f. 3. júní 2018.
Útförin fór fram í kyrrþey 5.
september 2019.
samvistum. Seinni
maður Guðrúnar
var Geirfinnur
Stefánsson, f. 9.
mars 1935, d. 18.
nóvember 2016.
Þau giftust 26.
desember 1985, þau
slitu samvistum.
Börn Guðrúnar
og Jóhannesar eru:
1) Gunnar, f. 25.
janúar 1963, maki
Andrea Klara Hauksdóttir, f. 20.
júlí 1967. Börn þeirra eru: a)
Guðrún, f. 19. apríl 1988, maki
Colin English Thompson, f. 15.
ágúst 1989. Börn: Theodór Nói,
f. 23. maí 2014, og Klara Marie,
f. 23. júní 2017. b) Rúnar Örn, f.
4. febrúar 1993. c) Viktor Atli, f.
9. desember 1994. 2) María, f.
19. desember 1964, maki Jóhann
Elsku amma Gunna. Það var
þannig í gegnum æsku okkar að
við vissum að hjá þér hinum meg-
in við götuna var alltaf hægt að
kíkja í heimsókn. Þar vissum við
alltaf að við fengjum hlýju og ást
og jafnvel sleikjó eða tvo ef þann-
ig bar við.
Ef formúlan var ekki í gangi þá
var líka víst að hægt var að fá að
horfa á skrípó hjá þér sem gladdi
ung hjörtu oftar en telja má. Þær
eru ófáar minningarnar þar sem
þú sast í sófanum að leggja kapal.
Þú kenndir okkur að leggja kapal
þótt við höfum aldrei náð sömu
lagni við það og þú.
Þótt við höfum flust á brott þá
er stórt tómarúm til staðar að
vita ekki af þér lengur á Hólavöll-
unum.
Þótt ferð þinni um þennan
jarðneska heim sé nú lokið þá
muntu alltaf lifa í minningum
okkar, elsku amma.
Aron Freyr, Sunneva
og Agata.
Guðrún
Gunnarsdóttir