Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 4

Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur hafnað kröfu um að ógilda synjun Umhverfisstofnunar á leyfi til að flytja inn þrjár milljónir risaostra. Það var fyrirtækið Litla- Hraun sem hugðist flytja inn frá Frakklandi eina milljón þrílitna ostra á ári í þrjú ár til áframræktunar í til- raunaskyni á samnefndri jörð við Kaldárós við Faxaflóa. Í úrskurðinum er m.a. fjallað um rök aðila og í niðurstöðum segir að að teknu tilliti til ákvæða laga, mark- miða þeirra og tilgangs um að vernda líffræðilega fjölbreytni, meginreglna laganna, sem kveða m.a. á um vís- indalegan grundvöll ákvarðanatöku og að þegar ekki liggi fyrir með nægi- legri vissu hvaða áhrif ákvörðun hafi á náttúruna, skuli leitast við að koma í veg fyrir mögulegt og verulegt tjón á náttúruverðmætum. Eins og atvikum sé háttað hafi Umhverfisstofnun ver- ið í rétti að synja umsókn kæranda um leyfi til innflutnings. Umfangsmikill innflutningur „Að baki synjuninni lágu málefna- leg rök, enda taldi stofnunin að ákveðna þekkingu skorti til að hægt væri að fullyrða að lífríkinu stafaði ekki hætta af svo umfangsmiklum innflutningi. Með hliðsjón af því um- fangi verður ekki heldur séð að stofn- unin hefði, með vísan til fyrri leyf- isveitingar og meðalhófs, átt að fallast á að veita leyfið með skilyrðum til að draga úr hættu á því að innflutn- ingurinn hefði áhrif á lífríkið,“ segir í úrskurði úrskurðarnefndar umhverf- is- og auðlindamála. Umhverfisstofnun tók ákvörðun um synjun 19. febrúar í fyrra og Litla-Hraun kærði þá ákvörðun tæp- um mánuði síðar. Úrskurðar ÚUA var kveðinn upp síðasta fimmtudag og kemur þar fram að hann hafi dreg- ist verulega sökum mikils fjölda og umfangs mála sem skotið hafi verið til úrskurðarnefndarinnar. aij@mbl.is Litla-Hraun fær ekki að flytja inn risaostrur  Ráðgerðu innflutning á samtals þremur milljónum ostra Synjað Kyrrahafsostrur á sölubás í Hollandi, en ekki fékkst leyfi til rækt- unar á risaostrum í miklu magni við Faxaflóa. Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 119.900 kr. á mann í tvíbýli. Skoðunarferðir innifaldar. sp ör eh f. Aðventan er tími ljóss og friðar. Ilmurinn af jólaglöggi og brenndum möndlum liggur í loftinu.Við höldum til Wiesbaden, þar sem upplýstar stjörnur svífa yfir litríkum jólahúsum á jólamarkaðnum.Við förum í dagsferð til Rüdesheim þar sem hinn skemmtilegi jólamarkaður þjóðanna er og getum fylgst með hvernig handverk frá hinum ýmsu þjóðum er unnið. Jólaferð tilWiesbaden 28. nóvember - 1. desember Fararstjóri: Jón Guðmundsson AUKA BROTTFÖR Veggir sem hvalaskoðunarfyrirtæki reisti utan um hús sitt, utan lóðar- marka á hafnarsvæðinu á Húsavík, hafa verið rifnir. Veggirnir voru reistir án leyfis bæjaryfirvalda og raunar þrátt fyrir að synjað hefði verið ítrekað um leyfi og verkið ver- ið stöðvað, að sögn Gauks Hjartar- sonar, skipulags- og byggingarfull- trúa Norðurþings. Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants reisti fjóra veggi. Sveitarfé- lagið fór formlega fram á það við fyrirtækið 16. ágúst sl. að þeir yrðu fjarlægðir. Að öðrum kosti yrðu þeir rifnir á kostnað þess. Ekki var orðið við því. Verktakar á vegum sveitarfélagsins rifu tvo veggina í vikunni. Annars vegar vesturvegg- inn sem síðast var reistur og gekk hálfan metra út í götuna Hafnar- stétt og hins vegar suðurvegginn sem gekk inn á lóð nágrannans í óþökk hans. Eftir standa austur- og norður- veggur. Þeir voru reistir fyrir rúmu ári. Úrskurðarnefnd féllst á að Norðurþing gæti stöðvað fram- kvæmdina og látið fjarlægja þá. Norðurveggurinn var færður. Eig- anda fyrirtækisins var boðið sam- komulag um að austurveggur fengi að standa gegn því að bærinn fengi að fjarlægja hann síðar ef á þyrfti að halda. Því boði hefur ekki verið tekið. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þrætuveggur Verktakar rífa hluta af óleyfismannvirkinu við lóð Gentle Giants á hafnarsvæði Húsavíkur. Hlaðnir veggir rifn- ir á kostnað eiganda  Deilt við hvalaskoðunarfyrirtæki Guðni Einarsson Þorsteinn Ásgrímsson Sveinn Andri Sveinsson, hrl. og skiptastjóri þrotabús EK1923, ætlar að endurgreiða þrotabúinu skipta- kostnað í samræmi við ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur þar um. „Ég er ósam- mála þessari ákvörðun en það er ekkert við henni að segja. Þetta verður að sjálfsögðu greitt til baka strax,“ sagði Sveinn Andri. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Sveinn hefði ekki upplýst kröfuhafa á formlegan hátt um ætlaðan skipta- kostnað og tímagjald sitt sem skiptastjóra. Hafði hluti kröfuhafa farið fram á að skiptaþóknun sem hann hafði þegið, upp á um 100 milljónir, yrði endurgreidd til bús- ins. Féllst dómurinn á það með kröfuhöfunum. Snýst um formsatriði „Þetta snýst fyrst og fremst um formsatriði sem er það að hafa ekki bókað á skiptafundi þá ákvörðun skiptastjóra að greiða sér þóknun eftir því sem skiptunum vindur fram. Það er það eina sem málið snýst um,“ sagði Sveinn Andri. Hann sagði að þrotabú greiddu allt- af skiptakostnað, eins og dómarinn hefði nefnt í ákvörðun sinni, en nú þyrfti að fara að þessum ábending- um dómarans áður en það yrði gert. Sveinn Andri benti á að 75% kröfu- hafa hefðu lýst því yfir að þeir styddu verklag skiptastjórans og þau dómsmál sem farið hefði verið í, auk þess sem 14% hefðu ekki gert neinar athugasemdir. Það eru því 11% kröfuhafa sem eru ekki ánægð með störf skiptastjórans. Sveinn Andri sagði að upphæð skiptakostnaðarins væri „talsvert lægri“ en 100 milljónir en tilgreindi hana ekki nánar. Hann sagði að tímaskýrsla vegna allrar vinnu við skiptin lægi að baki skiptakostnað- inum. Þar með talin riftunarmál sem hingað til hefðu unnist, kærur til héraðssaksóknara og önnur kæru- mál. Vinna við skiptin hefði verið mjög tímafrek, ekki síst vegna mála- ferla við gagnaðila sem heimtaði af- slátt. „Skiptin hófust 7. september 2016 og ég held að þeim geti ekki lokið fyrr en á næsta ári. Það er ekki að vænta dóms frá Landsrétti í stærsta málinu fyrr en í desember,“ sagði Sveinn Andri. Hann sagði að í því máli væru yfir 400 milljónir upp- reiknaðar undir. „Ef sá dómur verður staðfestur munu kröfuhafar fá allar sínar kröf- ur greiddar. Gagnaðili þrotabúsins í því máli er fyrirtæki í eigu Skúla [Gunnars Sigfússonar] í Subway. Lögmaður Skúla í þeim málum er líka lögmaður þeirra kröfuhafa sem eru að kvarta og vilja fá mig úr skiptunum. Árangur Skúla í mála- ferlunum hingað til hefur verið frek- ar klénn.“ Sveinn Andri sagði að ef málið tapaðist fyrir Landsrétti fengju kröfuhafar lítið sem ekkert út úr þrotabúinu. Kvarta yfir fjölda vinnustunda Í kvörtun til Héraðsdóms Reykja- víkur fyrir hönd Stjörnunnar ehf. og síðar fleiri, var þess krafist að skiptaþóknun yrði lækkuð verulega. Sóknaraðilar sögðu með ólíkindum hvað væri búið að leggja í mikinn kostnað, án samráðs við kröfuhafa. Um væri að ræða 2.490 klukku- stundir á 24 mánuðum. Varnaraðili [skiptastjóri] sagði að tímagjald skiptastjóra væri í sam- ræmi við gjaldskrá lögmannsstofu hans, 40.000 krónur. Tekið skal fram að við það bætist virðisaukaskattur. Endurgreiðir skiptakostnaðinn  Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri EK1923, segir málið snúast um formsatriði  Vinnist stærsta málið fyrir Landsrétti fá kröfuhafar allar sínar kröfur greiddar Sveinn Andri Sveinsson Árni Gils Hjaltason hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavík- ur á þriðjudag. Dómur í málinu hefur ekki verið birtur en greint var frá nið- urstöðunni á vef Fréttablaðsins. Árni Gils hafði áður hlotið jafn þungan dóm í héraði fyrir sama mál en Hæstiréttur felldi dóminn úr gildi og sagði að málið hefði ekki verið nægilega vel rannsakað til þess að hægt væri að kveða upp dóm í málinu. Nú hefur hann verið sakfelldur að nýju, fyrir að hafa stungið annan mann í höfuðið með hnífi við Leifa- sjoppu í Breiðholti í mars árið 2017. Aðalmeðferð í málinu fór fram að nýju í september, en fyrr á árinu hafði verið tekist á um matsgerðir Sebast- ians Kunz meinafræðings, en farið var fram á það af hálfu Árna Gils að annar matsmaður yrði fenginn til þess að meta málið þar sem Kunz hefði gert sig vanhæfan til þess. Þeirri kröfu var hafnað. Dæmdur í fjögurra ára fangelsi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.