Morgunblaðið - 17.10.2019, Qupperneq 22
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný drög að rammaskipulagi fyrir
hafnarsvæðið í Hafnarfirði voru
kynnt á opnum íbúafundi í fyrra-
kvöld. Það var fjórða kynningin á
skipulaginu og hafa aðilar mánuð
til að gera athugasemdir.
Að sögn Kristínar Maríu Thor-
oddsen, formanns hafnarstjórnar
og bæjarfulltrúa í Hafnarfirði,
verður skipulagið svo endanlega
samþykkt. Í kjölfarið verði hægt að
sækja um breytingu á deiliskipu-
lagi og hefja framkvæmdir. Með
skipulaginu takist að þétta byggð,
glæða svæðið nýju lífi og stækka
miðbæjarsvæðið.
Efnt var til hugmyndasamkeppni
um endurnýjun hafnarsvæðisins
fyrir ári. Rammaskipulagið var
unnið á grundvelli vinningstillagna
hollensku arkitektastofunnar
Jvantspijker og sænsku arkitekta-
stofanna Kjellgren Kaminsky
Architecture og Mareld Land-
skapsarkitekter. Það hefur verið í
vinnslu og eru lokadrög sýnd hér.
Nánar tiltekið er um að ræða
Flensborgar- og Óseyrarsvæðið.
Upphaflega stóð til að gera nýtt
deiliskipulag fyrir Flensborgar-
höfn. Skipulagssvæðið var síðan út-
víkkað inn á land Óseyrar, vestan
við Flensborgarhöfn, og að Suð-
urbakka. Skemmtiferðaskipið á
myndinni hér fyrir ofan er við
Suðurbakka. Við hlið þess má sjá
nýjar höfuðstöðvar Hafró.
Skipulagssvæðið er þríþætt. Í
fyrsta lagi hafnarsvæði með bland-
aða starfsemi. Heimilt verður að
byggja allt að 49 þúsund fermetra
af blönduðu húsnæði. Í öðru lagi
slippsvæðið en þar eiga Hafnartorg
og gamla Íshúsið að mynda hjarta
samfélagsins. Íbúðir verða á efri
hæðum og heimilt að byggja allt að
32 þúsund fermetra af íbúðum og
atvinnuhúsnæði. Miðað er við 100-
150 íbúðir. Í þriðja lagi íbúðar-
svæði með 5-600 íbúðum á 3-5 hæð-
um. Heimilt verður að byggja allt
að 62 þús. fermetra. Alls eru þetta
84.500 fermetrar á þremur reitum
og eru þá meðtaldar núverandi
byggingar.
Kristín segir slippsvæðið munu
ná lengra til vesturs. Smábáta-
höfnin verði stækkuð með nýjum
hafnargarði. Með því flytjist Sigl-
ingaklúbburinn Þytur þangað. Við
Drafnarslippinn verði landfylling.
Þar hefur verið teiknuð bygging
sem ætlunin er að verði kennileiti.
Til skoðunar er að hafa þar heita
potta og baðaðstöðu.
Ákváðu að útvíkka svæðið
„Við erum að teygja okkur nær
miðbænum. Fyrst var þetta svæði
ekki undir í skipulaginu en síðan
var ákveðið að útvíkka svæðið til að
skapa betri tengingu við gamla
miðbæinn,“ segir Kristín María.
Á blandaða reitnum kemur til
greina að hafa hótel. Starfsemin
þarf ekki að vera hafnsækin.
Orri Steinarsson, arkitekt hjá
Jvantspijker, segir uppbygginguna
tengja gamla bæinn við höfnina.
„Metnaður okkar og sýn er að
tengja miðbæinn og höfnina betur
saman. Strandgatan hefur skilið
sundur samfélagið á hæðinni og
hafnarlífið. Með því að gera fallega
tengingu fyrir fótgangandi og hjól-
andi, og aðkomu fyrir bíla í vistgöt-
um, erum við að tvinna þetta betur
saman með nýjum og gömlum hús-
um. Íshúsið fær vægi sem hjarta
samfélagsins en við það verður
gert Hafnartorg sem verður
þungamiðja slippsvæðisins,“ segir
Orri og tekur fram að ekki verði
miklar landfyllingar.
Mikilvægt sé að nota Íshúsið
sem kvarða fyrir lágreista byggð.
Byggðin verði mest þrjár hæðir,
íbúðir á efri hæðum en þjónusta á
jarðhæð. Hvert þessara þriggja
svæða muni hafa sín einkenni. Á
öllum reitum verði sjónlínur
tryggðar til að tengja Strand-
götuna við hafnarsvæðið. Leitast sé
við að nýta svæðið mjög vel.
Uppbygging Gert er ráð fyrir 500-600 íbúðum á íbúðareitnum efst til vinstri á myndinni. Nýtt hafnarsvæði Horft norður eftir fyrirhuguðu Hafnartorgi. Kennileitið er vinstra megin.
Kynna drög að nýju hafnarsvæði
Hafnarfjarðarbær kynnir áformaða endurnýjun og uppbyggingu á Flensborgar- og Óseyrarsvæði
Teikningar/Jvantspijker/Kjellgren Kaminsky Architecture/Mareld Landskapsarkitekter
Horft yfir svæðið Smábátahöfnin verður stækkuð, slippsvæði byggt upp og byggðar íbúðir og atvinnuhúsnæði.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Einstök
minning
Barna- og
fjölskyldu
myndatökur
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
ÍTÖLSK
HÖNNUN