Morgunblaðið - 17.10.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 17.10.2019, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 FRÉTTASKÝRING Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, styður við 1,8 milljónir flóttabarna í Tyrklandi. Flest þeirra eru frá Sýrlandi. Aðstoðin fer oft fram í samstarfi við önnur hjálp- arsamtök, þar á meðal ASAM- hjálparsamtökin. Samtökin eru stærstu sjálfstætt starfandi mann- úðarsamtökin í Tyrklandi. Í borginni Gaziantep er rekin barna- og fjölskyldumiðstöðin Al Farah (mín hamingja á arabísku). Miðstöðin er rekin af ASAM í sam- starfi við UNICEF í Tyrklandi. Sezen Yakin sem starfar hjá UNI- CEF í Gaziantep, segir afar mikil- vægt að ná til þeirra sem eru í við- kvæmastri stöðu og eru oft ekki í þeirri aðstöðu að geta leitað sér hjálpar. Hún segir að UNICEF sé í samstarfi um rekstur fimm slíkra miðstöðva í Tyrklandi; í Adana, Ank- ara, Izmir og Istanbúl auk Gazian- tep. Yfir 135 þúsund börn og ung- menni hafa fengið aðstoð í gegnum þessar sex miðstöðvar. Skrifstofa UNICEF í Gazaintep hefur yfirumsjón með öllu starfi UNICEF í suðausturhluta landsins, í fimmtán héruðum. Jafnframt sinn- ir skrifstofa UNICEF í Gaziantep starfi samtakanna hinum megin landamæranna, það er í Sýrlandi. Sezen segir að ábendingar berist víða að um börn og ungmenni sem þurfi að fá aukinn stuðning án þess að þau hafi óskað eftir honum. „Við reynum að grípa inn hvenær sem við getum. Til að mynda er mik- ilvægt að vera í góðu samstarfi við samtök kvenna þegar kemur að fræðslu varðandi kynbundið ofbeldi, heilbrigðismál, barnahjónabönd og fleiri málefni sem snerta oft konur og stúlkur beint. Þrátt fyrir að við séum með fjölmarga sérfræðinga starfandi hjá okkur er gott að virkja þá sem hafa persónulega reynslu.“ UNICEF starfar með fleiri mann- úðarsamtökum en ASAM og eins með sveitarstjórnum á svæðinu. Se- zen segir að eitt mikilvægasta svið UNICEF sé menntasviðið því að- gangur að menntun er grundvall- arréttindi allra barna. Í Tyrklandi hefur verið lögð áhersla á samlögun barna sem eru á flótta og að þau gangi í almenna skóla. Árið 2016 var þeim áfanga náð að fleiri sýrlensk börn voru í skóla í Tyrklandi en ekki. „Eftir að sér- skólum fyrir sýrlensk börn hefur verið lokað höfum við fært stuðning okkar inn í almenna skólastarfið. Til að mynda fyrir börn sem þurfa á miklum stuðningi að halda,“ segir Sezen. Suheda Kipri hefur starfað hjá ASAM í eitt og hálft ár og hefur stýrt Al Farah-miðstöðinni í fjóra mánuði en áður var hún hjá SADA- miðstöðinni sem fjallað hefur verið um í greinum í Morgunblaðinu að undanförnu. Al Farah-miðstöðin var sett á laggirnar fyrir fjórum árum og eru starfsmennirnir 60 talsins. Þegar börn og fjölskyldur koma í fyrsta skipti í Al Farah-miðstöðina fara þau í viðtöl þar sem þarfir þeirra eru metnar. Í samræmi við þær fá þau þá aðstoð sem þau þurfa á að halda. „Eins erum við með starfsmenn sem fara heim til þeirra sem eiga erfitt með að komast til okkar af ýmsum ástæðum.Við vinnum náið með yfirvöldum og öðr- um mannúðarsamtökum enda mik- ilvægt að vinna saman því markmið okkar er sameiginlegt – að gera líf fólks betra,“ segir Suheda. Hún segir að flest þeirra barna sem komi í Al Farah-miðstöðina séu sýrlensk en einnig er tekið á móti börnum frá öðrum löndum. Einhver tyrknesk börn sæki þangað en þau eru fá. „Okkar skjólstæðingar eru börn í afar viðkvæmri stöðu og því kemur aðeins brotabrot þeirra barna sem þurfa aðstoð hingað og flest börn fara í aðrar miðstöðvar á vegum ASAM hér í Gaziantep.“ 150-200 manns á hverjum degi Á hverjum degi koma um 50 fjöl- skyldur að meðaltali í Al Farah- miðstöðina. Þannig að yfirleitt eru þetta um 120-150 einstaklingar sem leita þangað á hverjum degi. „Við vitum af börnum sem aldrei fara í skóla og búa við ömurlegar að- stæður hér í Gaziantep. Það getur verið mjög erfitt að nálgast þau en starfsfólk okkar er mjög duglegt að finna þá sem þurfa á aðstoð að halda og fara heim til þeirra. Sérstök áhersla er lögð á fötluð börn og val- deflingu þeirra. Að gera þau færari um að taka þátt í daglegu lífi en ann- ars væri,“ segir Suheda. Nánast allir skjólstæðingar mið- stöðvarinnar eru í afar viðkvæmri stöðu og búið sé til teymi um hvert mál. Vinna barna er orðin eitt helsta viðfangsefni félagsráðgjafa auk barnahjónabanda og þolenda ofbeld- is, neyslu vímuefna og barna sem eru utanvelta í skólakerfinu. Talsverður fjöldi ofbeldismála kemur til kasta félagsráðgjafanna hjá Al Farah. Ofbeldi getur átt sér mörg andlit segja þær og nefna lík- amlegt, andlegt og kynferðislegt of- beldi. Starfsfólk Al Farah segir mjög erfitt að eiga við barna- hjónabönd og fræðsla sé gríðarlega mikilvæg, að fræða fólk um skelfi- legar afleiðingar sem þeim geta fylgt og áhrif á bernskuna. Þrátt fyr- ir að það sé refsivert lætur fólk það ekki stöðva sig. Foreldrarnir vita oft ekki betur þar sem þeir hafa sjálfir verið gefnir í hjónaband á barns- aldri, jafnvel niður í 10 til 11 ára ald- ur. Málin sem koma til kasta starfs- manna Al Farah eru ólík og oft margslungin. Til að mynda er meðal skjólstæðinga þeirra stúlka sem var gift 16 ára gömul í Sýrlandi. Ástæð- an fyrir því að foreldrar hennar ákváðu að gefa hana í hjónaband var að verja hana fyrir hermönnum stjórnarhersins því stúlkur sem eru ógiftar eru í miklu meiri hættu á að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi eða að vera þvingaðar í nauðung- arsambönd við hermenn. Glíma við áfallastreituröskun Beghan Bilgiy, sálfræðingur í Al Farah-miðstöðinni, sinnir hópastarfi þar sem sálgæslu er sinnt meðal annars í gegnum leik. Börnin sem hún sinnir eru frá fjögurra ára til 18 ára og þeim skipt í hópa eftir aldri. Helstu vandamálin sem börnin glíma við eru áfallastreituröskun og sum takast á við margþætt áföll. „Enda erum við að tala um börn sem eru að koma frá stríðshrjáðu landi. Mörg hafa misst nákomna í stríðinu og flest þekkja einhvern sem ekki lifði af. Börnin gráta mikið og eru hrædd við óvæntan snöggan hávaða. Afleiðingarnar oft skelfilegar  Barnahjónabönd og vinnuþrælkun barna eru meðal þeirra verkefna sem starfsfólk fjölskyldu- miðstöðvarinnar Al Farah þarf að takast á við í starfi sínu með börnum í afar viðkvæmri stöðu Morgunblaðið/Gúna Mín hamingja Sezen Yakin hjá UNICEF í Gaziantep og Suheda Kipri sen stýrir Al Farah-miðstöðinni . Bræðurnir Muhammed Ali 10 ára og Cuma Ali 13 ára komu til Tyrk- lands fyrir fimm árum ásamt for- eldrum sínum og þremur systkin- um. Systir þeirra er 15 ára og síðan eiga þeir yngri bræður, 6 og 8 ára. Fjölskyldan hefur notið þjónustu Al Farah frá árinu 2016. Þeir segja stundum erfitt að komast í miðstöð- ina þar sem þeir búa langt frá. Þeir vilja ekki biðja foreldra sína um pening í strætó enda þurfa þau að velta hverjum eyri fyrir sér. Þeir eiga báðir marga vini og finnst gaman í skólanum. „Okkur finnst heimanámið oft dálítið mikið en við verðum að leggja hart að okkur því við viljum standa okkur vel og fá háar einkunnir. Til þess að geta haldið áfram námi og farið í menntaskóla alveg eins og stóra systir okkar,“ segja þeir. Cuma finnst skemmtilegast í fótbolta í skólanum en Muhammed í tónlist- artímum. Hann spilar á hljóðfæri og syngur í kór í Al Farah- miðstöðinni. Auk þess hafa þeir báðir farið á myndlistarnámskeið. Cuma spilar á gítar og hefur farið á námskeið í flugdrekagerð. Hann dreymir um að verða atvinnumaður í knattspyrnu og Muhammed lang- ar að verða kennari þegar þeir eru orðnir stórir. Morgunblaðið/Gúna Bræður Cuma og Muhammed Ali hafa sótt námskeið í Al Farah frá 2016. Vilja standa sig vel og leggja hart að sér Á leið til lífs Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.