Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
17. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.27 125.87 125.57
Sterlingspund 158.69 159.47 159.08
Kanadadalur 94.64 95.2 94.92
Dönsk króna 18.461 18.569 18.515
Norsk króna 13.68 13.76 13.72
Sænsk króna 12.722 12.796 12.759
Svissn. franki 125.57 126.27 125.92
Japanskt jen 1.157 1.1638 1.1604
SDR 171.64 172.66 172.15
Evra 137.91 138.69 138.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.6168
Hrávöruverð
Gull 1494.75 ($/únsa)
Ál 1704.0 ($/tonn) LME
Hráolía 59.3 ($/fatið) Brent
● Afli íslenskra
fiskiskipa í sept-
ember var 109
þúsund tonn, sem
er 1% meiri afli en í
september í fyrra.
Þetta kemur fram
á vef Hagstof-
unnar. Botnfiskafli
nam rúmum 36
þúsund tonnum og
jókst um 2% en
þar af var þorsksaflinn 21,4 þúsund
tonn. Uppsjávarafli var rúmlega 69 þús-
und tonn og er á pari við septem-
bermánuð í fyrra. Samsetning uppsjáv-
araflans var þó önnur þar sem mikil
auking var á síldarafla en á móti kemur
mikill samdráttur í makrílafla. 18 þús-
und tonn veiddust af makríl í sept-
ember en 50 þúsund tonn af síld veidd-
ust í sama mánuði.
Flatfiskafli nam 1.800 tonnum og
dróst saman um 4% í samanburði við
septembermánuð í fyrra. Skel- og
krabbadýraafli nam tæplega 2 þúsund
tonnum og jókst um 35%. Heildarafli á
12 mánaða tímabili frá október 2018 til
september 2019 nam tæpum 1.092
þúsund tonnum sem er 13% minni afli
en á sama tímabili árið áður. Metinn á
föstu verðlagi var afli í september 9,7%
minni en í september árið 2018.
Heildarafli á 12 mánaða
tímabili 13% minni
Fiskur Afli í sept-
ember jókst um 1%.
STUTT
hefur fókusinn aðeins breyst en
okkur hefur tekist að halda mjög
háum standard sérstaklega í al-
mennum efnahagsgreiningum ann-
ars vegar og hins vegar í greining-
um á ákveðnum atvinnugreinum.“
Björn segir Íslandsbanka áfram
gera þjóðhags-, verðbólgu- og stýri-
vaxtaspár, „en við erum ekki hér í
greiningunni að greina verðbréfa-
markaði – sem við höfum ekki gert í
um tvö ár“.
Greining sem hvatagreiðsla
Samkvæmt upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu (FME) geta ein-
stakar verðbréfagreiningar fallið
undir skilgreiningu um hvata-
greiðslur í frumvarpi til nýrra laga
um markaði með fjármálagerninga,
sem innleiðir MiFID II tilskipun
ESB. Eftir gildistöku laganna verð-
ur skylt að greiðsla komi fyrir
greiningar ef þær fela í sér hvata-
greiðslu. Þarna er þó ekki um að
ræða útgáfu greininga í formi opin-
berrar fjárfestingarráðgjafar sem
fellur undir regluverk Evrópusam-
bandsins um markaðssvik, en bönk-
um verður áfram heimilt að birta
slíkar greiningar endurgjaldslaust. Í
frumvarpinu eru hvatagreiðslur
skilgreindar sem þóknun, umboðs-
laun eða ófjárhagslegur ávinningur.
„Hvatagreiðslur eru greiðslur
sem verðbréfafyrirtæki ýmist
greiða eða móttaka. Í þeim tilvikum
þegar hvatagreiðsla er í formi grein-
inga, þá getur verðbréfafyrirtæki
aðeins móttekið slíkar greiningar að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum,
s.s. greiða fyrir þær eftir ákveðnum
reglum. Þá ber einnig að gæta að
upplýsingagjöf um fyrirkomulag
greiðslnanna til viðskiptavina. Því er
það rétt að greiða þurfi fyrir fram-
angreindar greiningar með tilkomu
MiFID II,“ segir í svari FME.
Ekki gott fyrir markaðinn
„Ég held að greiningar séu jafn
mikilvægar fyrir markaðinn og fjár-
festingaákvarðanir og þær hafa allt-
af verið það. Þess vegna er þetta
ákveðið áhyggjuefni og fjárfestar
verða að finna einhverja leið ef
greiningum fækkar meira en verið
hefur og ég held að að mörgu leyti
sé þetta ekki góð þróun fyrir mark-
aðinn,“ segir Ólafur Ásgeirsson, eig-
andi IFS ráðgjafar ehf.
Spurður hvort þetta muni leiða til
þess að aukning verði í keyptum
greiningum svarar Ólafur: „Það er
klárlega ein leið að gera það. En
hvað verður nákvæmlega er erfitt
að segja núna. Ég held að grein-
ingar séu jafn mikilvægar og áður
og þær munu vera til staðar í ein-
hverri mynd. Það er bara spurning
með hvaða hætti þetta verður boð-
ið.“
Björn Berg tekur í sama streng:
„Að mínu mati er alltaf slæmt þegar
einhver dettur út sem er að skapa
svona vinnu. Við þurfum að hafa
fagfólk í því að vega og meta mark-
aði. Það er söknuður að aðilum sem
gera það. […] Þá fækkar þeim sem
eru að taka þátt í almennri umræðu
um markaði sem er auðvitað ekkert
framfaraskref fyrir markaðinn.“
EES-gerðir hamla starfi
greiningardeilda bankanna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samdráttur Verulega hefur dregið úr umsvifum greiningardeilda bank-
anna vegna hertra reglna um greiningarstarfsemi þeirra.
Verðbréfagreiningar geta fallið undir skilgreiningu laga um hvatagreiðslur
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Talsverð breyting hefur orðið á
greiningardeildum bankanna
undanfarin misseri. Við endurskipu-
lagningu reksturs Arion banka var
greiningardeild bankans lögð niður í
síðasta mánuði og eru um tvö ár frá
því að Íslandsbanki gerði talsverðar
breytingar á greiningarstarfsemi
bankans. Breytingarnar má í mikl-
um mæli rekja til MiFID II tilskip-
unar Evrópusambandsins sem
stendur til að innleiða hér á landi, en
hún setur strangari skilyrði fyrir
verðbréfagreiningar. Verður fjár-
málafyrirtækjum m.a. með tilskip-
uninni gert að krefjast greiðslu fyrir
ákveðnar tegundir greininga.
„Þessi breyting snýr fyrst og
fremst að væntanlegri innleiðingu
MiFID II hér á landi. Við innleið-
inguna verður fjármálafyrirtækjum
óheimilt að dreifa greiningum án
þess að taka fyrir það sérstakt gjald
af fjárfestum. Þessi væntanlega
breyting leiðir til þessarar áherslu-
breytingar. Starfsfólk greiningar-
deildar hefur tekið við nýjum störf-
um á ýmsum sviðum bankans þar
sem sérþekking þess og reynsla
mun nýtast vel,“ segir Haraldur
Guðni Eiðsson, forstöðumaður sam-
skiptasviðs Arion.
Björn Berg Gunnarsson, deildar-
stjóri greiningar og fræðslu Íslands-
banka, segir reglugerðirnar ekki
hafa mikil áhrif á starfsemi grein-
inga bankans, enda starfrækir
bankinn ekki verðbréfagreiningar.
„Það var farið í skipulagsbreytingar
fyrir nokkru þar sem greiningar-
deildin var minnkuð til muna og þá
Ægir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Hopps, sem leigir stöðvalaus
rafmagnshlaupahjól í Reykjavík,
segir viðtökurnar fyrstu þrjár vik-
urnar hafa verið langt framar von-
um. „Við höfum í raun verið að lenda
í því jákvæða vandamáli að hjólin
eru öll batteríslaus á kvöldin,“ segir
Ægir en fyrirtækið er með 60
hlaupahjól til taks fyrir borgarbúa.
„Við sáum að fyrstu vikuna var
búið að fara rúmlega 10 hringi um
Ísland á 60 hjólum. Við höfum þurft
að sækja nánast öll hjólin á hverjum
degi vegna þessarar miklu eft-
irspurnar, svo hægt sé að nýta þau
næsta dag,“ segir Ægir.
Fyrirtækinu er umhugað um um-
hverfisvænar samgöngur en Hopp
er með teymi sem fer um á raf-
magnssendibíl sem sér um að koma
hjólunum í hleðslu á kvöldin, sem
síðan dreifir þeim á ný um borgina.
„Við erum með ákveðna staði sem
við köllum hreiður sem við setjum
þau á. Við setjum hjólin á mismun-
andi staði eftir því hvort það er virk-
ur dagur eða helgi. Þarfirnar eru því
aðeins mismunandi en við getum, út
frá notkun í appinu, séð hvar þörfin
er mest og stillt upp hreiðrum á við-
eigandi stöðum og þannig leyft not-
endum okkar að stjórna hvar hjólin
eru,“ segir Ægir. Veturinn leggst
vel í Ægi. „Við stefnum á að hafa op-
ið í vetur en við gætum öryggissjón-
armiða og ef það er ekki öruggt að
vera á hjólinu munum við loka app-
inu tímabundið og taka hjólin mögu-
lega af götunni.“ peturh@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hlaupahjól Ægir Þorsteinsson er
framkvæmdastjóri Hopps.
Tíu hringir um
Ísland á einni viku
Viðtökur við
hlaupahjólaleigu
framar vonum
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI