Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 ríkjunum en einnig sætt grimmi- legu harðræði. Þeir hófu formlega baráttu fyrir sjálfsforræði 1946 er Mustafa Barzani stofnaði Lýðræð- isflokk Kúrdistans. Það gekk lítt og kallaði hann flokksmenn til vopna ári 1961. Seint á áttunda áratugnum hófu írösk stjórnvöld að senda arabíska landnema inn á svæði þar sem Kúrdar voru í meirihluta, ekki síst nágrenni olíuborgarinnar. Samtímis voru Kúrdar fluttir nauðungar- flutningum til annarra svæða. Hert var á þessum aðgerðum á níunda áratugnum meðan á stríði Írana og Íraka stóð, en þar studdu Kúrdar málstað Írana. Saddam Hussein Íraksforseti reiddist Kúrdum og hóf hefndaraðgerðir gegn þeim árið 1988. Helsta ódæðið í þeim hernaði var er um 5.000 óbreyttir íbúar borgarinnar Halabja féllu í eitur- efnaárás hersveita Saddams. Stofnuðu Kúrdistan Eftir ósigur Íraka í Flóabardag- anum 1991 tóku fjandmennirnir, sonur Barzanis, Massoud, og Jalal Talabani, leiðtogi Þjóðernisflokks Kúrdistans, saman höndum og gerðu uppreisn gegn yfirvöldum í Bagdad. Hana barði her landsins harkalega niður og leiddi það til þess að flugbann var sett á norður- hluta landsins svo Kúrdar gætu notið sjálfstjórnar þar. Samþykktu KDP og PUK að deila völdum en upp úr sauð á milli flokkanna og fjögurra ára stríð braust út á milli þeirra 1994. Þeir störfuðu síðan hlið við hlið með fjölþjóðahernum í innrásinni 2003 sem leiddi til falls Saddams og deildu að nýju völdum í héraðsstjórn Kúrdistans (KRG) sem sett var á laggirnar tveimur árum seinna til að fara með stjórn mála í héruðunum Dohuk, Irbil og Sulaimaniya. Massoud Barzani var útnefndur forseti héraðsstjórnarinnar og Jalal Talabani varð fyrsti forseti Íraks sem ekki er arabi. Í september 2007 var haldið þjóðaratkvæði um sjálfstæði bæði á Kúrdistansvæðinu og hinu umdeilda svæði sem náðist úr höndum hersveita Peshmerga 2014 en þar er m.a. að finna Kir- kuk. Ríkisstjórn Íraks lagðist gegn kosningunum og lýsti þær ógildar. Rúmlega 90% hinna 3,3 milljóna kjósenda greiddu sjálfstæði og að- skilnaði frá Írak atkvæði. Héraðs- stjórnin sagðist þar með komin með umboð til að hefja samninga- viðræður við stjórnina í Bagdad en þáverandi forsætisráðherra Íraks, Haider al-Abadi, krafðist ógildingar kosninganna. Mánuði seinna endurheimtu her- sveitir hliðhollar yfirvöldum í Bag- dad svæðin þar sem Kúrdar fóru með yfirráð. Vonir þeirra um sjálfsforræði guldu við það afhroð auk þess sem það var þeim veru- legt áfall að missa Kirkuk og þar með miklar olíutekjur úr höndum sér. Eftir að áhættuspil Barzanis hafði öfug áhrif við þau sem ætlast var til lét hann af völdum forseta svæðisins. Vegna deilna milli flokk- anna var forsetastóllinn auður fram í júní 2019 er frændi hans Nech- irvan tók við af honum. Brothætt sjálfstjórn Sveitir sem Kúrdar fara fyrir ráða um þriðjungi lands í Sýrlandi og má segja að sjálfstjórn þeirra sé í besta falli brothætt á olíuríku svæði í norðausturhluta landsins. Það var gegn þessum stöðvum sem tyrkneski herinn hóf hernað í síð- ustu viku. Kúrdar hafa lengi liðið fyrir að vera settir til hliðar í Sýrlandi og sætt þar kúgunum af hálfu Baath- flokksins sem þar hefur ráðið í ára- tugi. Ákall þeirra um menningarleg og pólitísk réttindi hefur engan hljómgrunn fengið. Flestir eru Kúrdar súnnítar en hópar þeirra hafa aðra trú eða jafnvel enga. Þegar borgarastyrjöldin braust út í Sýrlandi 2011 tóku flestir Kúrdar enga afstöðu með deilu- aðilum. Til að byrja með rétti Bashar al-Assad Kúrdum sátta- hönd og veitti um 300.000 þeirra ríkisborgararétt, sem verið hafði meginkrafa Kúrda í hálfa öld. Þeir höfðu verið sviptir þjóðarrétti sín- um í framhaldi af umdeildu mann- tali árið 1962. Árið 2012 dró sýr- lenski stjórnarherinn sig til baka frá svæðum í norður- og austur- hluta landsins þar sem Kúrdar voru í meirihluta. Með þessu opn- aðist leið fyrir Kúrda til að styrkja stöðu sína þar. Hafa þeir komið á fót sjálfstjórn á mörgum svæðum og freistað þess að halda bæði upp- reisnaröflum og stjórnarhermönn- um burtu frá þeim. Sambandssvæði Árið 2013 lýsti Lýðræðis- sambandið (PYD), pólitískur arm- ur hinna öflugu alþýðuvarnasveita (YPG), yfir stofnun eins konar sjálfstjórnarhéraðs í norðurhluta Sýrlands. Þremur árum seinna, 2016, stofnuðu kúrdísk yfirvöld þar sambandssvæði sem náði til þriggja kantóna: Afrin í Aleppo- héraði, Jazira og Efrat, sem náði einnig yfir hluta héraðanna Aleppo og Raqa. Virtist með þessu vera lýst yfir fullri sjálfstjórn. Með því fengu Kúrdar helstu hersveitir sýr- lenskra stjórnarandstæðinga og Tyrki upp á móti sér, en þeir síð- astnefndu líta á YPG sem hryðju- verkasveitir. Í árslok 2016 sömdu Kúrdar svonefndan „samfélags- sáttmála“; nokkurs konar stjórn- arskrá fyrir yfirráðasvæði sitt. Ári seinna kusu þeir sér svo bæjar- og sveitarstjórnir. Bardagasveitir Kúrda hafa farið fyrir mörgum aðgerðum gegn vígamönnum Ríkis íslams í Sýr- landi. Nutu þeir við þær stuðnings orrustu- og sprengjuflugvéla fjölþjóðasveita undir forystu Bandaríkjamanna. Eftir fjögurra mánaða hörð átök stökktu Kúrdar IS-liðum á brott frá Kobane við tyrknesku landamærin í ársbyrjun 2015. Regnhlífarsamtök kúrdískra sveita og arabasveita á svæðinu, Lýðræðissveitir Sýrlands (SDF), voru stofnaðar í október 2015. Hafa þær verið í fararbroddi í bar- áttunni gegn því að íslamskir öfga- menn stofni kalífadæmi. Í október 2017 tókst þeim að hrekja IS- sveitirnar frá Raqa, helsta vígi sínu í Sýrlandi. Í mars sl. stökktu sveitir SDF svo IS-sveitunum út úr síðasta vígi sínu, þorpinu Baghouz. Innri flokkadrættir Ógerningur er að segja til um framtíð Kúrda. Þeir hafa reynt, en tekist misjafnlega vel, að notfæra sér ringulreiðina eftir stríðið í Sýrlandi. Vonir þeirra um sérstakt ríki eða sjálfstjórnarsvæði eru ekkert meiri. Kúrdar hafa aldrei búið undir einni miðstýrðri ríkisstjórn vegna sundurlyndis og flokka- og ættbálkadrátta. Náin tengsl eru milli sumra hópa en aðrir eiga í illdeilum vegna óvinsæls bandalags við rík- isstjórnir landanna þar sem Kúrdasvæðin er að finna. Af þeim sökum braust út stríð milli tveggja helstu fylkinga Kúrda í Írak, Lýðræðisflokks Kúrdistans (KDP) og Þjóðern- isbandalags Kúrdistans (PUK). Átökin sem stóðu yfir á árunum 1994 til 1998 kostuðu á fjórða þús- und manns lífið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.