Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 38
Áratuga þrætur um lagningu vegar um Teigsskóg 1976 ■ Láglendisleiðin, B, fyrst kynnt til sögunnar í skýrslu Vegagerðarinnar. 1995 ■ Gert ráð fyrir B-leið í stað- festu svæðisskipulagi. 2005 ■ Gerð grein fyrir nokkrum kostum í umhverfi smat Vega- gerðarinnar. 2006 ■ Gert ráð fyrir B-leið í staðfestu aðalskipulagi Reyk- hólahrepps. ■ Skipulagsstofnun leggst gegn B-leið vegna umtalsverðra umhverfi sáhrifa. 2007 ■ Umhverfi sráðherra snýr við úrskurði Skipulagsstofnunar, heimlar B-leið. ■ Landeigendur og náttúru- verndarsamtök höfða mál til ógildingar úrskurðar. 2009 ■ Hæstiréttur rekur úrskurð ráðherra til baka vegna galla. 2011 ■ Ögmundur Jónasson samgönguráðherra telur B-leið óraunhæfa. Leggur til lagfær- ingar á vegi yfi r hálsana og að stefnt verði að jarðgöngum. ■ Vegagerðin undirbýr nýtt leiðaval með jarðgöng sem fyrsta kost. ■ Sveitarfélögin á Vestfjörðum ítreka kröfur um láglendisleið. ■ Þorri fundarmanna á fjölmennum fundir Ögmundar á Patreksfi rði lýsir skoðunum sín- um með því að ganga af fundi. 2013 ■ Sveitarfélögin vilja halda leið B opinni við nýtt umhverfi smat. Djú pif jör ðu r Þor ska - fjör ður Þo rs ka fjö rð ur B erufjörður Skálanes- fjall Teigssk ógur Hja llah áls Reykjanes Reykhólar Gufudalssveit Grónes- -hyrna Leið Þ-H um Teigsskóg Leið D2 Núverandi vegur Leið A3/R um Reykjanes eftir núverandi Reykhóla- sveitarvegi og þverun við utanverðan Þorskafjörð Heimild: Morgunblaðið 2017 ■ Endurskoðað umhverfi smat gerir ráð fyrir nýrri veglínu um Teigsskóg, Þ-H-leið. ■ Skipulagsstofnun leggst gegn leiðinni en hefur ekki lengur úrskurðarvald. 2018 ■ Hreppsnefnd Reyk- hólahrepps ákveður að setja Þ-H á aðalskipulag. ■ Hreppsnefnd hikar og ákveð- ur að þiggja boð um óháða valkostagreiningu. ■ Multiconsult leggur til nýja leið, Reykhólaleið, á brú utar- lega í Þorskafi rði. 2018 ■ Vegagerðin fer yfi r nýjar hug- myndir en telur Teigsskógarleið alltaf betri. ■ R-leið talin vænlegust í valkostagreiningu sem Viaplan gerði fyrir Reykhólahrepp. 2019 ■ Meirihluti hreppsnefndar- manna tekur af skarið og ákveður að Þ-H leið fari á aðalskipulag. ■ Sveitarstjórn ákveður aðal- skipulag með þ-H og sendir til staðfestingar. ■ Áformað að gefa út fram- kvæmdaleyfi . Grunnkort/Loftmyndir ehf. Vestfjarðavegur um Gufudalssveit BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er við því að búast að deilum um lagningu Vestfjarðavegar um Gufu- dalssveit og Þorskafjörð linni þótt nú hafi hreppsnefnd samþykkt að- alskipulag sem gerir ráð fyrir nýrri veglínu í gegnum Teigsskóg. Skipulagsstofnun hefur mánuð til að staðfesta skipulagið en hefur gefið góð orð um að reyna að hraða ferlinu. Fyrst þá getur Vegagerðin sótt um framkvæmdaleyfi og Reyk- hólahreppur gefið slíkt leyfi út. Það er kæranlegt til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Land- eigendur í og við Teigsskóg hafa alla tíð barist gegn því að fá veginn þarna í gegn og ekki léð máls á samningum um að láta land undir hann. Því má líklegt telja að framkvæmdaleyfið verði kært sem og eignarnám lands- ins ef til þess kemur og jafnvel að málið fari fyrir dómstóla eins og gerð- ist fyrir rúmum áratug þegar svipuð áform Vegagerðarinnar voru stöðvuð. Nauðsyn samgöngubóta Það er vilji þingmanna kjördæm- isins, flestra sveitarstjórnarmanna á Vestfjörðum, fjárveitingavaldsins, samgönguráðherra og Vegagerð- arinnar að nýr vegur um Gufudals- sveit og Þorskafjörð, svo kölluð Þ-H- leið um Teigsskóg, verði loks að veru- leika eftir þras í áratugi. Ein helsta ástæðan er sú að þetta er langódýrari kosturinn. Fjárveitingarnar bíða. Þingmenn hafa flutt frumvörp um beina heimild til Vegagerðarinnar um að leggja veg samkvæmt leið Þ-H. Ekki er vitað hvað gerist ef ríkið tapar málinu á nýjan leik en það verð- ur allavega að teljast sérstætt ef Al- þingi treystir sér til að fara inn í málið á því stigi. Meirihluti hreppsnefndar Reyk- hólahrepps var með ítarlegan rök- stuðning fyrir því að velja Þ-H- leiðina. Þar er lögð áhersla á nauðsyn samgöngubóta og umferðaröryggi en jafnframt að reynt hafi verið að draga svo sem kostur er úr neikvæðum áhrifum framkvæmdar á umhverfið. Búast má við áfram- haldandi kærumálum 38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er freist-andi aðskrifa um brexit á þessu augnabliki en ekki síður að láta það vera. Óneitanlega er umræðuefnið stórmerkilegt og hefur marg- ar hliðar og er þrungið spennu eins og frægustu framhaldsmyndir og sjón- varpsseríur. En óneitanlega hefur brexit aðra hlið og hef- ur slegið þreytu í ýmsa og jafnvel ofnæmi sem í verstu tilvikum flokkast undir hættulegt bráðaofnæmi, sem heltekið hefur fjölskyldur og vini svo margir sitja sárir eft- ir. Og svo er hitt sem snertir skríbenta og spámenn um stjórnmálaþróun. Margur hefur farið illa frá því að spá um framtíð málsins. Og það hendir jafnt þá sem hafa vað- ið fyrir neðan sig, eru bæði með belti og axlabönd og slá svo marga fyrirvara að þeir gætu eins látið vera að spá og hina sem látið hafa vaða og það oftar en ótal sinnum. Þegar Boris Johnson tók við embætti forsætisráðherra staðhæfði hann að það væru að mati hans sjálfs meiri lík- ur á að málinu lyki með samningi eftir þrjá mánuði en án hans. En hann bætti því við að ef lakari kosturinn yrði ofan á, þá yrði að sjálf- sögðu farið beina leið úr ESB án samnings eins og þjóðin sjálf hefði þegar tekið ákvörðun um. Fjölmargir tóku þessum orðum nýja for- sætisráðherrans fálega og sögðu gjarnan að þau væru dæmigerð fyrir trúðslætin sem væri megineinkenni hans sem stjórnmálamanns. Það hefði ekkert breyst við komu hans í Downingstræti. Tölurnar í þingsalnum hefðu ekki breyst nema þá í þá átt að þingflokkur hans hefði skroppið saman. Búrókrat- arnir í Brussel hefðu marg- ítrekað að enginn samningur væri hugsanlegur annar en sá sem Theresa May hefði þegar fengið felldan í þinginu þrisvar sinnum. Þess utan hefði stjórnarandstaðan, í samkrulli við svikahrappa úr Íhaldsflokknum, náð að slá kalda þá litlu samningsstöðu sem forsætisráðherrann hefði haft með „Benn- lögunum“ sem skylduðu for- sætisráðherrann til að senda beiðni um enn einn frest svo lengi sem horfði í að farið yrði úr ESB „án samnings“ og þar með var búið að gera það fullkomna aukaatriði að upphafi og endi alls varðandi útgöngu. Boris sagðist brattur frekar kjósa að geispa golunni úti í skurði en verða við þeirri óláns- kröfu. Nú er réttur hálfur mán- uður þar til 31. október 2019 rennur upp. Þriðja dagsetn- ing útgöngu úr ESB og sú seinasta að mati Boris John- son, enda sé allt þá þrennt sé. Og nú sýnist að þrátt fyrir allt sé kominn á samningur um útgöngu og að ólíklegt sé að þingið muni treysta sér til að hafna honum eins og öllum samningum hingað til enda talið víst að mikill meirihluti þjóðarinnar tæki því ekki þegjandi. Boris forsætisráðherra hélt í gær á fund með „22 nefndinni“ svokölluðu, sem er heitið á eins konar þing- flokki Íhaldsflokksins án ráð- herranna. Það er hinn fjöl- menni hópur aftaribekkinga (the backbenchers) sem hef- ur með tíð og tíma breyst í þýðingarmikið valdatæki í flokknum. Til funda þess hóps má einatt rekja ákvarð- anir um það hvort leiðtogi flokksins lifi af lengur eða skemur sem slíkur þegar mótvindurinn næðir um hann. Nokkrir úr hópi þeirra þingmanna Íhaldsflokksins sem kosnir voru til þings árið 1922 hófu að hittast, gjarnan yfir snæðingi og með árunum hefur hópurinn stækkað í það sem áður var lýst og að auki fengið formbundið hlutverk, þegar kjósa skal nýjan leið- toga flokksins. Forsætisráðherrann dvaldi aðeins í tæpar 10 mínútur á hinum fjölmenna fundi og ræddi þar málið sem er efst á baugi í rúmar 5 mínútur. Það gefur augaleið að hann fór ekki yfir málið efnislega, en setti það í samhengi, bæði hæð, bratta og sögu. Hann líkti brexit-þrautagöngunni við að klífa tind Everest- fjallsins og nú væru Bretar staddir í seinustu sporum Edmunds Hillarys á leið á fjallið mikla. Þær fréttir bárust af fund- inum að fagnaðarlæti að hefðbundnum hætti hefðu brotist út og leiðtoganum verið fagnað með barsmíðum á borð með háværasta hætti. Það hefur gert forsætis- ráðherranum gott og glatt hann en muna verður að hann hefur enn ekki sýnt á öll sín spil. Svo enn verður að árétta að spyrja verður að leiks- lokum. Enn ein framlenging yrði sem eitur í beinum bresks þjóðarlíkama} Enn ein ögurstund S málánafyrirtækin hafa verið gagn- rýnd frá upphafi, bæði vegna kostn- aðar við lántöku og vegna markaðs- setningar lánanna sem er mjög ágeng og beinist markvisst að ákveðnum hópi samfélagsins. Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að sinna ekki neyt- endavernd og að krefjast þess ekki að fyrir- tækin séu leyfisskyld og þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði um rekstur og upplýsingagjöf. Mikil umræða hefur verið bæði hérlendis og í nágrannalöndum okkar um skaðsemi þessara lána. Neytendasamtökin, Neytendastofa og Umboðsmaður skuldara hafa lýst yfir miklum áhyggjum af uppgangi smálánafyrirtækja hér á landi enda er um að ræða lán á okurvöxtum sem markaðssett eru sérstaklega fyrir ungt fólk sem höllum fæti stendur og þá sem hafa lítið á milli handanna. Lántakendur lenda oftar en ekki í greiðslu- vanda og vítahring sem viðskipti við smálánafyrirtæki leiða þá í. Samkvæmt upplýsingum frá Umboðsmanni skuldara er ljóst að smálán eru að verða algengari og sí- fellt stærri hluti af vanda fólks sem leitar til embættisins. Lög um smálán Smálánin falla undir lög um neytendalán og hefur Neyt- endastofa ítrekað þurft að grípa inn í vegna starfshátta smálánafyrirtækjanna á grundvelli þeirra laga og beitt fyrir sig stjórnvaldssektum. Þær ráðstafanir hafa ekki borið árangur. Svo virðist sem smálánafyrirtæki leitist við að fara fram hjá ákvæðum laga um neytendalán. Engin sérlög gilda um reksturinn sjálfan, ekki þarf að sækja um starfsleyfi eða uppfylla tilteknar skipulagskröfur. Þessu þarf að breyta en stjórnvöld virðast ekki átta sig á vandanum og leggja fram frumvarp um hvernig greiða á lánin en segja ekkert um rekstrarumhverfi þeirra, eftirlit eða for- sendur fyrir leyfi til rekstrar. Það er löngu tímabært að koma böndum á starfsemi smálánafyrirtækja með því að setja sérlög um starfsemina þar sem settur er skýr rammi og tryggt að aðeins þeir aðilar geti fengið starfsleyfi sem uppfylla tiltekin skil- yrði, s.s. veita upplýsingar um eigendur smálánafyrirtækja, stjórnir, viðskipta- og rekstraráætlanir og allar aðrar viðeigandi upplýsingar sem fjármálaeftirlit ákveður. Einnig um lánveitingar, greiðslugetu lántak- enda, móttöku og afgreiðslu umsókna. Ótækt er að smálán séu veitt að næturlagi og um helgar með nánast engum biðtíma eða könnun á stöðu lántakenda. Á öllu þessu er tekið með frumvarpi sem er eitt af for- gangsmálum Samfylkingarinnar á yfirstandandi þingi og ég er fyrsti flutningsmaður að. Málið er nú í umsagnarferli en umsagnarfrestur rennur út föstudaginn 18. október. Umsagnir eiga að berast til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Slóðin á frumvarpið er: www.althingi.is/altext/ pdf/150/s/0014.pdf Oddný G. Harðardóttir Pistill Smálánin og ábyrgð stjórnvalda Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. oddnyh@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.