Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 46

Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 ✝ Arabella Ey-mundsdóttir var fædd á Seyð- isfirði 29.12. 1939. Hún lést á líknar- deild Landspít- alans í Kópavogi 27.9. 2019. For- eldrar hennar voru Sigurborg Gunnarsdóttir, f. 9. apríl 1906, d. 22. nóvember 1983, og Eymundur Ingvars- son, f. 31. maí 1883, d. 9. júní 1959. Börn Sigurborgar og Eymundar eru Garðar, Hart- mann, Stella Kristín, og Anna Erla. Baldvin Arnar, f. 1979, í sam- búð með Örnu Maríu Geirs- dóttur en saman eiga þau son- inn Huga Geir. Fyrir átti Baldvin Rebekku Ýri og Ísa- bellu Lind. Börn Örnu Maríu frá fyrra hjónabandi eru Vikt- oría Huld og Jörundur Ingi. 2) Valdís Rán, f. 1982, maki hennar er Guðjón Guðjónsson. Sonur þeirra er Samúel Ingi. 3) Arabella Ýr, f. 1987, maki Pedro Martins. Sonur þeirra er Tristan António en fyrir átti Arabella soninn Theodór Bjarna. Þau hjónin Arabella og Baldvin bjuggu fyrst í Nes- kaupstað en fluttu þaðan til Seyðisfjarðar þar sem þau bjuggu allt fram til 1986 er þau fluttust búferlum til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Útför Arabellu fór fram í kyrrþey 10. október 2019. Þann 27 febrúar 1960 giftist Ara- bella Baldvini Þor- steinssyni frá Nes- kaupstað. Foreldrar hans voru Þorsteinn Jakob Einarsson frá Miðbæ í Norð- fjarðahreppi og Jarðþrúður Ein- arsdóttir frá Barðsnesi við Norðfjörð. Einkadóttir Ara- bellu og Baldvins er Linda Sigríður, fædd 25.11. 1960. Fyrrverandi eiginmaður henn- ar er Samúel Ingi Þórisson, f. 1958. Börn þeirra eru: 1) Elsku mamma mín, þú kvadd- ir mig gefandi mér fullvissuna um líf að loknu þessu og nýttir þína síðustu krafta í að segja mér að pabbi og amma væru komin til að sækja þig. Það gaf mér ótrúlega huggun þar sem ég horfði í augun þín uns þú friðsamlega gafst upp anda þinn og fórst á vit nýrra ævintýra. Ég fann miða sem ég hafði skrifað þér fyrir löngu sem segja mér hversu mikil mömmu- stelpa ég var og langar að hafa þau orð hér, en þau eru þessi: „Mamma mín, ég vildi bara láta þig vita hversu mikið mér þykir vænt um þig og það hvernig persóna þú ert. Alltaf tilbúin til að hjálpa hvort sem þú getur eða ekki, yndislegi mat- urinn þinn ... Ummmm. Hlýjan á heimilinu og andrúmsloft sem býður mann alltaf velkominn, allt þetta er þér að þakka, elsku mamma mín. Hvernig þú ert við börnin mín er aðdáunarvert og mér þykir vænt um það. Haltu áfram að vera þú og láttu þér þykja vænt um sjálfa þig líka eins og þér þykir vænt um okk- ur, það væri besta gjöfin þín til mín.“ Síðasta setningin segir kannski mikið til um hversu lítið mamma var að gera fyrir sjálfa sig en hún hugsaði hinsvegar vel um okkur sem vorum í hennar kærleikshring. Við þurftum að senda henni sms ef við fórum út fyrir bæjarmörkin því að hún var ekki í rónni fyrr en hún vissi að allt væri í lagi. Gjafir þurfti að gefa öllum og eiga í skáp- unum það sem barnabörnunum og barnabarnabörnunum þótti best. Það voru ófáir aðilar sem fengu búsetu hjá mömmu og pabba sem ekkert aumt gátu vit- að og séð án þess að gera eitt- hvað í þeim málum og vinir mín- ir voru ávallt velkomnir í gistingu. Minningarnar sem skjótast upp í kollinn á mér eru margar, sögustund yfir 78 snúninga plöt- unum hennar mömmu þykir mér vænt um að eiga. Tennesie waltz, Lipstick on your collar, Frankie og fleiri góð lög var að finna á hennar gömlu plötum og Tom Jones, Elvis Presley, Barbra Streisand, Simon og Garfunkel ásamt óperum og sin- fóníum hljómuðu um heimilið á 33 og 45 snúninga hraða. Mamma gerði besta mat í heimi og eldaði oft eftir upp- skriftum úr dönsku blöðunum og fríkadellurnar hennar reyndi ég að elda um daginn — en það vantaði mömmubragðið. Skyr var alltaf hrært út með eggi og púðursykri þar sem hún lærði það sem vinnukona ung að árum á Ægisíðunni og þannig finnst mér skyrið alltaf best. Mamma var vel gefin kona sem hafði unun af krossgátum og vísbendingagátum ásamt su- duko og candy crush sem var hennar helsta ánægjuefni undir lokin ef undan er skilinn bóka- áhugi hennar. Hartmann heitinn bróðir hennar samdi krossgátur og sendi henni reglulega bunka af þeim og voru það henni kær- komnar sendingar. Í veikindunum sást best hvaða eðliskosti mamma hafði til að bera og þrautseigjan og æðruleysi það sem hún sýndi í aðstæðunum var aðdáunarvert Ég bið góðan Guð að blessa mömmu og bið hann um að finna lítið kot í rjóðri þar sem frið- urinn ríkir – þar sem ég veit að foreldrum mínum myndi líða best. Ég þakka þeim fyrir lífið, reynsluna og minningarnar sem þau skilja eftir og hlakka til að hitta þau að nýju. Ætíð elskuð, aldrei gleymd. Linda Baldvinsdóttir. Elsku amma, hvernig skrifa ég grein til að kveðja þig? Þú ert amma, besta vinkona mín og leyndarmálakistan mín. Þú ert mér sem móðir, systir, dómari, friðarstillir og allt þar á milli. Hvernig kveð ég þig, ör- yggið mitt? Elsku kaldhæðna og blíða amma mín, það eru fáir sem ég elska eins og þig. Ég bara trúi varla að þú sért farin, samt veit ég að þér líður svo mikið betur þar sem þú ert núna. Ég sakna strax löngu samtal- anna okkar sem gátu staðið klukkustundum saman þar sem við ræddum allt milli himins og jarðar. Ég mun sakna þess að fá samviskubit yfir því að gleyma að koma með Samma til þín eftir baðið hans svo þú gætir kysst á honum blautan kollinn. Mest af öllu mun ég þó sakna þess að hafa þig ekki hérna heima þar sem við bjuggum saman og heyra þig „trufla“ mig. Takk fyrir alla dagana sem ég fékk með þér, elsku hugrakka amma mín. Ég elska þig alltaf. Þín dótturdóttir, Valdís. Elsku amma, ég elskaði þegar þú áttir alltaf eitthvað til sem ég elskaði eins og kókómjólk, engjaþykkni og nammi ofan í skúffu. Ég elskaði líka þegar við spiluðum ólsen-ólsen og veiði- mann og candy crush og alls- konar. Ég á eftir að sakna að gista og spila og alls þess skemmtilega sem við gerðum saman. Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig og takk fyrir að vera þú. Ég mun alltaf sakna þín. Þinn Theodór Bjarni Ásgeirsson. Elsku besta amma mín. Það sem þú hefur alltaf verið stór partur af lífi mínu, hvort sem það var þegar ég var þriggja, sjö eða sextán ára. Mér hefur alltaf og mun allaf þykja vænt um þig og elska. Ég man svo vel eftir því þeg- ar ég var hjá þér liggur við um hverja einustu helgi að spila. Við spiluðum alltaf hæ gosa og lönguvitleysu sama hversu leið- inlegt þér fannst það og þú eld- aðir annaðhvort kjöt eða fiski- bollur því mér fannst þær svo góðar. Svo voru það alltaf leik- irnir sem við bjuggum til á kvöldin þegar ég var að gista hjá þér, auðvitað sofnaði ég allt- af þegar ég átti að vera að hugsa um dýr eða lit eða bara liggur við hvað sem er. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og gert allt til þess að mér liði vel. Takk fyrir allt, elsku amma. Þín verður sárt saknað. Ég elska þig óendanlega mikið! Ástarkveðjur, Þín Ísabella. Elsku amma mín, með ólýs- anlegri sorg í hjarta þá þarf ég að kveðja þig að sinni. Ég veit ekki hvernig ég á að geta skrif- að stutta grein um minningar mínar um þig því þú hefur verið svo stór partur af lífi mínu alla tíð. Allt frá því að ég fæddist höfum við nöfnurnar átt alveg einstakt samband sem í gegnum árin hefur einkennst af mikilli vináttu og trausti. Ef ég ætti að velja eitthvað sem ég er þakklátust fyrir, elsku amma, er það hversu yndisleg þú varst við mig og börnin mín en Theodór var svo lánsamur að fá að kynnast þér eins vel og hann gerði. Honum fannst alltaf svo gaman að koma til þín í kósí- kvöld og tók það jafnvel fram yf- ir leik með vinum. Ég man þeg- ar ég sagði þér frá því að ég væri ófrík að Tristani, þá sagðist þú sko þurfa að lifa fram í mars til að ná að hitta hann. Þú gerðir nú gott betur en það og lifðir nógu lengi til að hitta hann og hina tvo sem komu svo árið á eftir. Það gaf þér svo mikið að fá að hitta og kynnast þessum kríl- um og þú talaðir um hversu mikið þú vonaðist til að fá að fylgjast með þeim vaxa og dafna eftir að þú værir búin að kveðja. Ég vona það svo mikið líka, og er nokkuð viss um að svo sé, þeir fá allavega að kynnast þér, ég lofa þér því. Elsku amma mín, þú varst svo miklu meira en bara amma, þú varst trúnaðarvinkona mín og klettur í einu og öllu. Þú tókst alltaf svari mínu og náðir að alltaf að hughreysta mig. Daginn sem þú kvaddir, þá var ég alltaf á leiðinni að hringja í þig, því það er einmitt það sem ég var vön að gera, ef mér leið illa eða eitthvað var að, þá gat ég alltaf treyst á að þú værir til staðar. Elsku amma mín, takk fyrir að vera mér alltaf svo góð og veita mér alltaf öruggt skjól. Takk fyrir að hugga mig í þínum veikindum þegar ég átti að vera að hugga þig, takk fyrir að koma og kveðja mig í draumi og takk fyrir að elska börnin mín jafn mikið og þú elskaðir mig. Þar til við hittumst á ný. Þín nafna, Arabella. Meira: mbl.is/andlat Minning um fallegan engil. Skrítin er sú tilfinning að rita niður minningar um manneskju sem setti mína hagsmuni framar sínum eigin af ótrúlegri alúð, stundum þrjósku en samt af hreinni ömmuást. Það að kalla þig ömmu var og er einn verðskuldaðasti titill sem þú berð í mínum huga, þvílík fórnfýsi og kærleikur sem mér og mínum niðjum var sýndur, það er varla hægt að koma því fyrir í einni grein; ræddi við Moggann og þeir voru ekki á því að leyfa mér að einoka blaðið. Þannig að amma mín, ég ætla því að reyna að koma því fyrir í sem fæstum en öflugum orðum sem ég ber í brjósti og langaði að segja við þig en gerði ekki því miður eða ekki eins og mig langaði þegar þú varst á meðal okkar. Takk fyrir mig, takk fyrir að hafa tekið fullan þátt í því að gera mig að þeim manni sem ég er í dag. Án þín og afa hefði líf mitt verið gætt minni ást og kærleik. Eitt sem ég mun ávallt muna og vera þakklátur fyrir er hversu gott var að koma til ömmu og afa sem strákur sem vildi hvergi annars staðar vera. Þegar kallið þitt kom og værðin færðist yfir þá loksins fékkstu að hitta afa aftur. Ég veit að þegar kallið mitt kemur þá verðið þið þar til að taka á móti mér en þó vonandi ekki alveg strax, hef næg verk- efni ennþá sem þarf að klára áð- ur. Ég veit að þú hafðir áhyggjur af okkur og að þig langaði að vera lengur með okkur í ljósi þess að við systkinin vorum öll með glæný langömmubörn en þú kannski gerðir þér ekki grein fyrir því að þú ert hér með þeim, bara aðeins á ská, því þú lifir í okkur ömmubörnunum þínum. Amma, ég elska þig og veit að þú ert á góðum stað með góðu fólki og ég bið að heilsa þeim öll- um. Við sjáumst svo síðar. Þinn ömmustrákur, Baldvin (Baddi). Arabella Eymundsdóttir Aðfaranótt 8. október hóf ég ferð mína til Akureyrar frá heimili okkar Hafliða í London. Það var upp á von og óvon og óvíst hvort ég kæmist á leið- arenda áður en faðir minn, Árni, kveddi þennan heim. Það var kraftaverki líkast að það tókst. Kærar minningar hafa streymt fram – þessi skrif eru dálítil viðleitni til að þakka fyrir þær. Pabbi elskaði sjóinn og virtist líða best á litlu trillunni sinni, Óskari, úti á hafi. Ég fór með honum í eitt sumar á línuveiðar – frá þeim stundum eru ógleymanlegar myndir í hugan- um. Hann hafði ætíð mikið dálæti á tónlist og ánægju af söng, en margir í hans ætt voru söng- elskir og höfðu góðar söngradd- ir. Hann söng í Karlakórnum Geysi á Akureyri og Þrym á Húsavík. Pabbi fór í Iðnskólann á Ak- ureyri. Þar hafði hann ekki mikinn tíma til náms og svo til engan til undirbúnings fyrir lokapróf – hann varð að vinna fyrir sér og mömmu minni, Ragnheiði, sem átti von á fyrsta barni þeirra, Margréti. Þrátt fyrir tímaskort fyrir námið varð hann næsthæstur í sínum ár- gangi og hlaut fyrstu einkunn, 8,7, á meistaraprófi í bifvéla- virkjun. Pabbi vann um skeið á B.S.A á Akureyri en 1958 fluttumst við til Húsavíkur – þá voru dæt- urnar orðnar þrjár, Margrét, Unnur Björg og ég. Sigþrúður fæddist 1965, reyndar líka á Akureyri. Á Húsavík vann hann á Vélaverkstæðinu Fossi.Hann þótti mjög fær í sínu starfi, vandvirknin og færnin við að leysa úr vandamálum var ein- stök. Pabbi var ætíð frekar þögull maður og einstaklega hógvær, hafði ekki hinn minnsta áhuga á Árni Hemmert Sörensson ✝ Árni HemmertSörensson bif- vélavirkjameistari fæddist á Húsavík 24. júlí 1929. Hann lést hinn 8. október 2019 á Akureyri. Útför hans fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag, 17. október 2019, klukkan 13.30. að tala um sjálfan sig. Þögnin var oft mikil, en mörgum ber saman um að aldrei var hún óþægileg, heldur frekar indæl að deila henni með honum og hrein- lega oft sálarbæt- andi. Seint á lífs- leiðinni byrjaði hann að smíða hluti úr við, renndi og skar út ótelj- andi fagra muni; fjölskylda okk- ar er lánsöm að eiga marga þessa dýrgripi. Hafliði eiginmaður minn bar til pabba mikla væntumþykju og virti hann mikils. Synir okk- ar, Almar Örn, Andri Sören og Stefán Sölvi, elskuðu og dáðu afa sinn og nutu þess mikið að verja með honum góðum stund- um. Barnabarnabörnin, Lilja Rachel, Emilia Florence og Kai Robert, hændust strax að hon- um, litlu stelpunum þótti óend- anlega vænt um hann. Kai, sem sjaldan situr kyrr, sat hjá lang- afa sæll og rólegur. Litli Kai Robert er yngstur 40 afkom- enda pabba og mömmu. Tengdadætur okkar, Julia og Tomoe, voru honum kærar, enda sýndu þær honum mikla væntumþykju. Það var mikil blessun og heiður að fá að sitja hjá föður mínum þessar fáu stundir sem eftir voru kvöldið þann 8. októ- ber. Ég sat hjá honum ásamt Lillu (Sigrúnu Snædal) sem hef- ur verið ómetanleg stoð og styrkur fyrir pabba í langan tíma. Blíðlega og fallega svifu síð- ustu andvörpin á brott, líkt og haustlaufin í allri sinni litadýrð, sem féllu þetta fagra haust- kvöld. Blessuð sé minning föður míns. Hans verður ætíð minnst með ást og virðingu. Ragnheiður Árnadóttir. Afi var hinn dæmigerði sterki, þögli maður. Það hentaði mér ljómandi vel og ég var hinn ánægðasti með að sitja þegjandi hjá honum, stundum lengi, og um það á ég sumar minna ham- ingjuríkustu minninga. Þegar ekkert þarf að segja vegna þess að maður finnur ást, áhuga og viðurkenningu manns sem hef- ur þurft að vinna hörðum hönd- Fallinn er frá Valgarður Sigurðs- son, frábær félagi okkar í Fimleika- félagi Hafnarfjarð- ar. Hann var einlægur FH-ingur og lét til sín taka á ýmsum sviðum bæði innan og utan félagsins. Hann sat fyrst í stjórn hand- knattleiksdeildarinnar og var síð- ar formaður deildarinnar árin 1984-88 og sat sem slíkur í að- alstjórn félagsins. Árið 1993 var hann síðan kos- inn í aðalstjórnina og sat þar nokkur ár. Þá var hann fulltrúi félagsins í stjórn ÍBH um tíma. En hann kom víðar við í starfi fyrir íþróttahreyfinguna því hann sat í dómstólum bæði HSÍ og ÍSÍ Valgarður Sigurðsson ✝ Valgarður Sig-urðsson fædd- ist 14. maí 1943. Hann lést 30. sept- ember 2019. Útför Valgarðs fór fram 11. október 2019. og var þar mjög virtur sem og alls staðar þar sem hann kom að verki. Hann var sæmdur gull- merki FH á 60 ára afmæli félagsins. Valgarður bauð af sér mjög góðan þokka hvar sem hann fór, rólegur og yfirvegaður hvort sem hann var við stjórnarborðið eða á spennandi leikjum félagsins. Hann var alltaf mjög hjálpsamur og ráðagóður þegar til hans var leitað og reyndist félaginu okkar ákaflega traustur bakhjarl. Við félagarnir viljum fyrir hönd okkar og fé- lagsins okkar þakka Valgarði samfylgdina með þessum fátæk- legu orðum. Fjölskyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng lifir lengi. Ingvar Viktorsson, Bergþór Jónsson. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SONJA BACKMAN, Fjölnisvegi 15, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans 5. október, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 18. október klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélagið Ás. Birgir Ísleifur Gunnarsson Björg Jóna Birgisdóttir Már Vilhjálmsson Gunnar Jóhann Birgisson Sveinbjörg Jónsdóttir Ingunn Mjöll Birgisdóttir Viktor Gunnar Edvardsson Lilja Dögg Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.