Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 48

Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Elsku mamma, nú ert þú loksins komin á stað þar sem þú getur hvílt þig, þér líður vel og enginn að trufla þig í þínum eigin gjörð- um. Það er afskaplega skrýtið að sitja og reyna að skrifa um þig og minnast þín í fáum orð- um. Ég er ævinlega þakklátur fyrir að hafa haft þig sem mömmu, þú varst ávallt svo einstaklega ljúf og góð við allt og alla og tókst öllum með opn- um örmum hvort sem þú varst að hitta viðkomandi í fyrsta skipti eða ekki. Samband þitt við Ingibjörgu mína var ein- staklega fallegt og gott og bar vott um einstaka vináttu sem ekki er hægt að útskýra, en þú tókst henni sem þinni frá fyrsta degi og allt til loka. Þú varst skynsöm, ráðagóð og yfirveguð í því sem þú tókst þér fyrir hendur og lést kappið aldrei bera fegurðina ofurliði. Allar minningar mínar frá æsku bera vott um vellíðan, ást og umhyggju frá þér sem þú svo síðar meir deildir með svo ansi mörgum í gegnum vinnu þína sem jafnframt var þitt áhugamál. Þú varst svo ofboðs- lega stolt af þínu fólki og þegar barnabörnin fóru að hrannast inn þá ljómaðir þú sem aldrei fyrr. Elsku mamma, það gleður mig að þú sért komin út úr því víti sem þú varst föst í en sökn- uðurinn er meiri og mun verða um ókomna tíð. Þær minningar sem þú gafst okkur með nær- veru þinni og kærleika munu lifa með okkur öllum um aldur og ævi og það hjálpar okkur að vera betri manneskjur. Kristófer Ingi, Arnór Ingi og Svava sakna þín þegar óend- anlega mikið enda varst þú eina amma þeirra síðustu 13 árin og ég veit að þau eru þér svo ótrú- lega þakklát fyrir allt og munu þau ávallt bera þína minningu í hjarta sínu, minningu um fal- lega, ljúfa, skynsama og glað- lynda ömmu sem gerði allt fyr- ir þau. Elsku mamma, takk fyrir allt saman, ég kveð þig með broti úr ljóði eftir Bubba Morthens sem mér finnst eiga vel við á þessari stundu: Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Þinn Kristinn (Kiddi). Eftir langt og erfitt sjúk- dómsstríð er Nanna Guðrún Zoëga horfin yfir móðuna miklu. Hennar er sárt saknað af öllum sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni. Nanna var vinmörg og vinsæl og hafði til að bera alla þá helstu mannkosti sem teljast til gæsku manna. Nanna Guðrún Zoëga ✝ Nanna GuðrúnZoëga fæddist 24. september 1951. Hún lést 30. september 2019. Útför Nönnu Guðrúnar fór fram 4. október 2019. Við æskuvinkon- ur hennar (Mar- grét, Ragna og Vibba) af Skóla- vörðustígnum eig- um ótal góðar minningar af sam- verustundum með Nönnu. Ein af elstu minningunum er þegar okkur var öllum boðið í fjög- urra ára afmæli hennar. Þar sátum við saman við stofuborðið sem á var hvít- ur fallegur dúkur og drukkum heitt súkkulaði úr sparibollun- um og meðlætið var rjóma- terta, randalína og smákökur. Þetta var löngu fyrir pylsu- og pítsu-tímann. Leikirnir voru mest útileikir, mikið sippað og oft fórum við í snúsnú en það var vinsælast þegar við vorum fleiri saman, eltingaleikir, yfir, kíló, parís, slagbolti og fleiri leikir, hugmyndaflugið var endalaust og hreyfiþörfin mikil. Við lékum okkur mikið í port- inu hjá Margréti eða bara á gangstéttinni á Skólavörðu- stígnum, það myndi víst ekki viðgangast í dag. Og Skóla- vörðustígurinn var merkilegur fyrir margra hluta sakir, m.a. söfnuðum við tyggjóklessum af götunni og fórum með þær heim til einhverrar okkar, þvoðum þær vel og vandlega undir rennandi vatni og svo tuggðum við tyggjóið af bestu lyst og varð ekki meint af, höf- um jafnvel rætt um að með þessu tyggjói höfum við fengið einhverja bólusetningu. Á háa- loftinu hjá Nönnu var gamalt dúkkuhús sem pabbi hennar hafði smíðað handa Hönnu, stóru systur Nönnu, þar áttum við oft yndislegar stundir í dúkkuleik því húsinu fylgdu til- heyrandi dúkkur og húsgögn í öllum herbergjum. Nanna var sú ljúfasta í hópnum, ef átti að velja í lið þá leyfði hún alltaf öðrum að byrja að velja, ef átti að skipta á milli og einhver bit- inn var minnstur sagði hún gjarnan, ég skal fá hann. Nanna ræddi aldrei um annað fólk á neikvæðan hátt, hún leit- aði að því góða í öllum og hélt því á lofti. „Maður má ekki blóta,“ sagði Nanna og henni var það svo í blóð borið að ef mikið lá við og hún varð að segja eitthvað ljótt þá sagði hún „ojsen“ sem komst næst því að nefna nafn hins illa. „Hún Nanna er svo fallega inn- réttuð og svo er hún líka svo falleg,“ sögðu mæður okkar og það var svo sannarlega rétt lýs- ing á henni. Nanna Guðrún barst aldrei mikið á og tróð sér hvergi fram til mannvirðinga, hún gekk þó sinn veg þannig að eftir henni var tekið. Nanna hefur verið samofin lífi okkar allra, hún var límið í vinkonuhópnum. Þó svo við veldum okkur mismunandi starfsvettvang, flyttum út á land eða erlendis og færum tímabundið langt hver frá ann- arri, var vináttustrengurinn alltaf til staðar og slitnaði aldr- ei. Umhyggja og hjálpsemi við aðra var ríkur þáttur í lífi hennar, hluti af henni sjálfri drukkinn með móðurmjólkinni. Nú þegar hún er horfin frá okkur standa eftir dýrmætar minningar um góða vinkonu. Þær eigum við áfram og þökk- um við fyrir það. Guð blessi þig, elsku Nanna Guðrún, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Lassi, börn og fjöl- skyldur og aðrir aðstandendur, við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Ragna, Margrét og Sigríður Vilborg. ✝ Halldór Frið-rik Gunnarsson fæddist 23. júlí 1941 í Reykjavík. Hann lést í Reykja- vík 2. október 2019. Foreldrar Frið- riks voru Gunnar Friðriksson, f. 29.11. 1913, d. 14.1. 2005, og Sigrún Unnur Halldórs- dóttir, f. 20.9. 1916, d. 25.4. 1999. Systkini Friðriks eru: Sæmundur Reimar, f. 21.10. 1936, d. 7.5. 2019, Rúnar, f. 24.4. 1944, og Jóhanna Guð- rún, f. 26.8. 1949, d. 6.10. 2018. Friðik giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Sheenu Gunnars- son, fædd Manson, hinn 22. júní 1966. Þau eignuðust fjögur börn og þau eru: Unnur Berglind, f. 4.4. 1968, eiginmaður Björgvin Schram, synir hennar af fyrra hjónabandi við Hörð Björnsson 2005 þegar fyrirtækið var selt. Friðrik og Sheena byggðu hús fyrir fjölskyldu sína á Seltjarn- arnesi og Friðrik var alla tíð virkur í samfélags- og félags- málum bæjarins. Hann var for- maður skólanefndar Seltjarn- arness um árabil, sat í stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga og gegndi ýmsum trúnaðar- störfum. Friðrik var einnig í Freeport-klúbbnum og virkur í starfi Samhjálpar. Árið 1989 varð Friðrik þess heiðurs að- njótandi að vera útnefndur kjörræðismaður Póllands á Ís- landi. Friðrik var áhugamaður um bækur og bókmenntir, bæði las hann mikið og safnaði bókum en átti líka þátt í útgáfu margra bóka. Hann átti fast sæti í nokkrum kaffihúsahópum þar sem hann ræddi bækur, heim- speki og önnur þau mál sem vert er að ræða. Þá ferðaðist Friðrik töluvert bæði innan- lands og utan og var mikið í Noregi og Póllandi vinnu sinnar vegna. Úför Friðriks verður gerð frá Seltjarnarneskirkju í dag, 17. október 2019, klukkan 13. eru Halldór Frið- rik, Hákon Örn og Haukur Ingi. Auð- ur Ingunn, f. 8.11. 1969, eiginmaður Ásmar Örn Brynj- ólfsson, dætur þeirra eru Guðrún Lind og Ólöf María. Guðrún, sambýlis- maður Guðmundur Ellert Hauksson, dóttir hans er Lín- ey Inga. Gunnar, börn hans eru Elín, Gauti, Amelía Laufey og Ásrún Ynja. Friðrik ólst upp í Vesturbæn- um, gekk í Melaskóla, Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar og Menntaskólann í Reykjavík áð- ur en hann fór í framhaldsnám í viðskiptafræðum við London School of Foreign Trade. Hann vann í Vélasölunni allan sinn starfsaldur og var fram- kvæmdastjóri hennar til ársins Okkur langar með örfáum orðum að minnast Friðriks afa. Afa sem var einhvern veginn alltaf til staðar. Þegar við sett- umst saman niður til að rifja upp þá var það tvennt sem algjörlega stóð upp úr í minningunum en það voru hvellhettubyssurnar og Bubbi byggir-vestin. Afi gaf okkur nefnilega hvell- hettubyssur! Okkur skilst að þegar pakkarnir voru opnaðir hafi orðið algjör þögn og síðan hafi komið hátt stríðsöskur af gleði og vantrú. Síðan byrjuðu skotbardagarnir – þvílík gleði að eignast byssur með hljóði. Við vorum alsælir og byssurnar mik- ið notaðar. Og Bubbi byggir- vestin voru flott. Við hlóðum á þau alls kyns verkfærum og dóti, allir vasar stútfullir og verkfær- in hangandi utan á okkur. Við vorum miklir vinnumenn og mik- ið brasað þegar við vorum í þeim. Við bræður þökkum Friðriki afa fyrir allt, allar kaffihúsaferð- irnar og ferðirnar í Kolaportið. Halldór Friðrik, Hákon Örn og Haukur Ingi. Þegar við eldumst þá eðlilega lengist tíminn sem við höfum lif- að og tíminn sem við eigum eftir hér í heimi styttist. Við færumst sífellt framar í röðinni þótt eng- inn viti sinn tíma sem betur fer. Stundum finnst okkur við vera búin undir að ættingi eða vinur sé á förum en samt bregður okk- ur þegar kallið kemur. Hann Friðrik vinur minn er farinn heim til Drottins, það er alltaf tekið svona til orða í söfn- uðinum mínum, og mér finnst það fallegt. Ég kynntist honum Friðriki fyrir um aldarfjórðungi, þá var hann á krossgötum í lífi sínu. Við náðum vel saman og urðum fljót- lega trúnaðarvinir. Ég heimsótti hann oft, settist á bekkinn fyrir framan skrif- borðið hans, Sheena færði okkur kaffi og hann kveikti sér í sígar- ettu og við spjölluðum. Það var sérstakur andi í skrif- stofunni hans, allir veggir þaktir bókum. Svo ræddum við um að þessir hittingar okkar væru ekki nægj- anlega reglulegir svo við tókum upp þá venju að hittast í hádeg- inu á þriðjudögum. Þetta gerð- um við í mörg ár eða allt þar til Friðrik lagðist inn á sjúkrahús og síðar dvalarheimili. Á þessum fundum okkar var ýmislegt rætt, margt sem hvergi annars staðar var rætt og marg- ar góðar ákvarðanir teknar. Þá fyrir mörgum árum bauð hann mér og fjölskyldu minni vestur á Reykjanes við Ísafjarð- ardjúp um verslunarmannahelgi. Þá var siglt á bátnum hans m.a. til Bolungarvíkur og út í Æðey. Vorum þar á sama tíma og Mick Jagger. Nokkrum árum síðar fórum við tveir til Ísafjarðar og gistum í bátnum hans, sigldum um Djúpið og fórum meðal annars til Aðalvíkur, sem voru hans átt- hagar Ég vil með þessum fátæklegu orðum mínum þakka fyrir allar dýrmætu samverustundirnar okkar, vináttu og tryggð sem aldrei bar skugga á Bið Drottin að blessa minn- ingu Friðriks og votta eftirlif- andi eiginkonu og afkomendum samúð mína. Þórir Haraldsson. Friðrik Gunnarsson Kær vinur okkar og nágranni, Haf- steinn Þorvaldsson hefur kvatt þetta jarðneska líf 93 ára að aldri. Vinátta okkar nær aftur til ársins 1984 þegar Hafsteinn, eða Haddi eins og hann var allt- af kallaður, flutti í næsta hús við okkur ásamt Hauki heitnum, tvíburabróður hans. Við hefðum ekki getað verið heppnari með nágranna. Þessir ljúfu bræður voru alltaf með bros á vör og til í að spjalla við okkur. Það er á svo margan hátt ómetanlegt að eiga góða nágranna. Dætrum okkar fannst notalegt að eiga þau að, bræðurna og Gróu sem býr á fyrstu hæðinni. Dæturnar máttu leika sér í garðinum þeirra að vild og okkur var allt- af velkomið að líta inn. Það sama gilti um köttinn okkar, El- liða Frey, sem varði garðinn á Freyjugötu 47 jafn vel og okkar eigin garð. Þegar þeir bræður og Gróa fengu sér köttinn Skúla, leit Elliði á matinn hans Skúla sem þeirra sameign og stundum át hann yfir sig og nennti ekki heim og þá þurftum við að banka upp á og sækja hann. Bræðurnir, Haddi og Hauk- ur, voru árrisulir og það var partur af morgunrútínu eldri dætra okkar að athuga hvort annar hvor bræðranna myndi vinka þeim út um gluggann þeg- ar þær fóru í skólann. Það þótti þeim systrum afar notalegt. Yngsta dóttirin misskildi að- Hafsteinn Þorvaldsson ✝ Hafsteinn Þor-valdsson fædd- ist í Reykjavík 12. febrúar 1926. Hann lést 3. október 2019. Útförin fer fram frá Grensáskirkju í dag, 17. október 2019, klukkan 13. eins þegar alltaf var talað um bræð- urna og hún hélt framan af að þeir væru bræður henn- ar. Hún talaði alltaf um bræðurna sína. Bræðurnir voru gríðarlega duglegir menn og flinkir í höndunum. Við leit- uðum iðulega eftir leiðbeiningum í sambandi við viðgerðir á húsinu okkar, því þeir voru hafsjór fróðleiks varð- andi húsbyggingar og viðhald, enda höfðu þeir sjálfir byggt tvö íbúðarhús og sumarbústað. Gróa, með sína grænu fingur, hefur svo séð til þess að garð- urinn þeirra hefur alltaf verið sérstaklega fallegur. Síðustu ár höfum við hjónin starfað við rannsóknir í lífvís- indum í Bandaríkjunum. Í ferð- um okkar heim hefur það komið skemmtilega á óvart hversu vel Haddi var að sér um verkefnin okkar og okkur þykir vænt um áhuga hans. Svo var alltaf spurt: eruð þið ekki að koma heim? Og við vorum alltaf á leiðinni og erum það enn. Tvíburabræðurnir voru mjög samstíga og það voru mikil við- brigði fyrir Hadda þegar Hauk- ur bróðir hans lést árið 2007 enda þeir bræður sérstaklega samrýndir. Það hefur verið gott til þess að vita að Gróa hefur hugsað ákaflega vel um hann. Við viss- um að Haddi hefði ekki getað verið i betri höndum. Við mun- um sakna Hafsteins Þorvalds- sonar og við þökkum honum samfylgdina um leið og við sendum innilegar samúðar- kveðjur til Gróu og annarra að- standenda. Björg og Orri, Freyjugötu 49. Elsku amma. Tilhugsunin um að þetta sé hinsta kveðja frá mér til þín er erfið. Við fengum 23 ár saman en ég hefði óskað að þau hefðu verið fleiri. Ég mun sakna þess að sjá fallega brosið þitt sem var alltaf svo skært þegar við hittumst og ég mun sakna sam- talanna sem við áttum, bara við tvær. Það var alltaf svo gott að tala við þig, elsku amma. Þegar ég hugsa til baka og minnist góðu tímanna þá er það fyrsta sem kemur upp í huga minn brosið þitt fallega. Það mun alltaf vera mér minnisstætt hvað þú hefur verið dugleg að hvetja okkur systurnar áfram, í hverju sem er og sýndir okkur alltaf hvað þú varst áhugasöm um okk- ur og okkar velgengni. Við skipt- um þig máli, við gerðum þig stolta og tilfinningin var og er gagnkvæm. Ég horfði upp til þín og þinna afreka og geri enn. Mér hefur alltaf þótt rosalega vænt um þig og minningarnar okkar saman. Mér þótti ekkert skemmtilegra en að koma til þín og afa á Arnarhraunið fyrir jólin, þar sem þú kenndir mér að skreyta jólatréð eins og þú vildir. Ég veit það þó að þú leyfðir mér að breyta út af vananum þegar þú gafst mér lausan tauminn og við bjuggum til nýjar hefðir saman. Manstu eftir öllum stundunum sem við áttum saman í eldhúsinu á Arnarhrauninu? Ég man það svo vel, þú kenndir mér að gera ömmu sultu, þú kenndir mér að baka ömmu bollur með strút, þú kenndir mér að gera rófustöpp- una þína og þú kenndir mér að gera eplamaukið svo fátt eitt sé talið. Þegar ég hugsa til baka, þá Barbro Þórðarson ✝ Barbro Þórð-arson fæddist 14. júlí 1928. Hún lést 1. október 2019. Útför Barbro fór fram 10. október 2019. eru þetta minningar sem mér þykir mjög vænt um. Þú hefur kennt mér svo margt, sumt áttaði ég mig ekki á hvað var mér mikilvægur lærdómur fyrr en núna, þegar ég hugsa til baka til minninganna okkar. Þú söngst fyrir mig áður en þú kvaddir okkur. Ég hef ekki ennþá áttað mig á því að þú sért ekki lengur hér, að ég geti ekki komið til þín í heimsókn og setið með þér klukkutímunum saman og spjallað. Ég heyri ennþá þína fal- legu rödd, sem var svo einstök. Ég man það þegar ég var ung og spurði þig spjörunum úr. Þú náð- ir fljótt tökum á íslenskunni en eins og ungum börnum er einna helst lagið þá fannst mér ömmu íslenskan skrítin, í fyrstu. Ég átti það til að benda þér á rangar beygingarmyndir orða og þú tókst því svo vel. Ég man það hvað afi hló að þessum samskipt- um okkar. Núna sakna ég ömmu íslensku, hún var einstök. Fólk spyr mig hvernig ég hafi það, það er fátt um svör. Það er tómarúm innan í mér sem mun ekki hverfa á næstunni. Ég brosi þegar ég hugsa til baka til allra þessa minninga með þér, elsku amma. Söknuðurinn er mikill. Brosið breitt og augun skær, bið guð þig að geyma, bestu þakkir, þú varst mér svo kær. Þér mun ég aldrei gleyma. (Guðný Sigríður Sigurðardóttir) Kveðjustundin er komin en ég veit það þó vel að afi tekur á móti þér með opnum örmum og ég veit að við munum hittast aftur á förn- um slóðum þegar kemur að því. Þá veit ég að þú munt vaka yfir okkur þangað til og fylgjast með okkur dafna, alveg eins og afi hef- ur gert og ég mun halda áfram að gera þig stolta. Því lofa ég. Ég elska þig, amma mín. Helena Rós Tryggvadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.