Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 49

Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 ✝ Auður Guð-vinsdóttir fæddist í Reykja- vík 1. ágúst 1940. Hún lést á Sjúkra- húsinu í Keflavík 4. október 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þóra Guðný Jó- hannesdóttir (1906-1960) frá Finnmörk í V- Hún. og Guðvin Gunnlaugsson (1912-2001) frá Háleggs- stöðum í Skagafirði. Seinni eiginkona Guðvins var Irene Gook (1909-2011). Auður ólst upp í foreldra- húsum á Svalbarðseyri ásamt bræðrum sínum Baldri (1942) og Sæmundi (1945-2005). Á unglingsárum hennar fluttist fjölskyldan til Akureyrar. Hún tók gagnfræðapróf frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1957. Ári síðar varð hún ófrísk og í hönd fóru mörg ár þar sem hún sinnti börnum og búi. Fyrri eiginmaður Auðar var Hörður Jörundsson (1931). Börn þeirra eru: 1) Þóra, f. 20.4. 1959, gift Ólafi Jóhanns- syni. Börn þeirra a) Jóhann, sambýliskona Auður Alberts- dóttir og sonur þeirra Ólafur; b) Auður, sambýlismaður Sölvi Thoroddsen og nýfæddur son- ur þeirra er ónefndur. Gunnar Bjarki Gunnlaugsson og dóttir þeirra Agnes Inga; b) Arthúr Kristinn. Börn með Birni Sigurði Sigurvaldasyni c) Björn Gabríel; d) Brynhild- ur Írena Sunna. Fjölskyldan bjó í Vana- byggð 1, Akureyri. Þegar börnin uxu úr grasi fór Auður að vinna á Dvalarheimilinu Hlíð. Síðari eiginmaður Auðar var Birgir Sveinsson (1938- 2017). Þau bjuggu fyrst í Keflavík, þá lengi í Garði, svo í Innri-Njarðvík og síðustu ár- in á Njarðarvöllum 6 í Ytri-Njarðvík. Börn Birgis eru a) Kristín, börn hennar og Sigurjóns Guðfinnssonar eru Sævar Örn, Hafþór Ægir og Helga Dagný; b) Óskar, börn hans og Kol- finnu Njálsdóttur eru Aldís, Birgir Þór, Árni Björn og Ey- þór Trausti; c) Hilmar, dætur hans og Ingibjargar Ástu Unn- arsdóttur eru Nanna Bryndís og Íris Birgitta, sonur hans og Pálmfríðar Gylfadóttur er Hilmar Daði; d) Þórir Smári, synir hans og Báru Skúladótt- ur eru Skúli Már og Elmar Þór. Auði var umhugað um af- komendur sína og barnabörn Birgis voru líka hennar ömmubörn. Auður var lengi forstöðu- kona á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi. Hún var virkur fé- lagi í Kvenfélaginu Gefn í Garði fram undir það síðasta. Útförin fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 17. október 2019, kl. 13. 2) Gígja, f. 25.3. 1962, í sambúð með Liv A. Stavr- an. Dætur með fyrrv. eiginmanni, Guðmundi Árna Davíðssyni, a) Margrét Hrefna, sambýlismaður Kent Inge Bjerk- nes; b) Petra Guðný, sambýlis- maður Henrik Monrad. 3) Halla Huld, f. 25.10. 1963, gift Helga Jónssyni. Börn þeirra a) Hörður, sam- býliskona Hugrún Haralds- dóttir og sonur þeirra Sebastí- an, áður átti Hörður soninn Hannes; b) Hafþór, eiginkona Sædís Eva Gunnarsdóttir og synir þeirra Helgi Freyr og Óliver Máni, áður átti Sædís soninn Róbert Darra; c) Halla María. 4) Hugrún Dögg, f. 10.10. 1966, gift Sigurbirni Krist- jánssyni, sonur þeirra Jör- undur Guðni, unnusta María Hafþórsdóttir. Eldri sonur Sigurbjörns er Jónas Freyr, dóttir hans Hanna María. 5) Jörundur Guðni, f. 13.3. 1970, eiginmaður Hreinn Hall- dórsson. 6) Anna Heiða, f. 10.10. 1972, börn með Svani Arthúrs- syni a) Auður, sambýlismaður Elsku hjartans mamma okk- ar. Við erum óendanlega þakk- lát fyrir þig og lífið með þér. Þú varst einstök kona, hjartahlý, trygg og góð. Líf þitt snerist um okkur systkinin, þú varst til okkar vegna. Að vori fæddir þú þrjú okkar og hin þrjú þegar komið var haust. Sjálf fæddist þú um hásumar og kunnir betur að meta sól og blíðu en myrkur og kulda. En óháð árstíðum og veðri var þvotturinn nýþveginn og straujaður, ilminn lagði úr eldhúsinu af nýbökuðu rúg- brauði, lambalæri í ofninum, rabarbarasultunni og volgu pönnukökunum svo fátt eitt sé nefnt. Þér féll aldrei verk úr hendi, þú varst harðdugleg, ósérhlífin og drífandi. Pabbi var sjaldan langt undan, búinn að mála, þvo gólfin, bóna og gera hreint. Þú treystir okkur og kenndir okkur að gæta hvert annars, vera góð og sönn, hugsa vel um afa og ömmu í Vanabyggð 9 og ömmu Engilráð eftir að Jörund- ur afi lést. Hjá þér var huggun að fá, hlustun og styrk. Þú kunnir líka svo vel að samgleðj- ast okkur öllum og hrósa fyrir velgengni í prófum, mikilvæga áfanga og sigra. Þú hafðir gott vald á íslenskri tungu, varst skýrmælt og komst vel að orði, hafðir frásagnargáfu og varst oft hnyttin í tilsvörum og afdráttarlaus. Þú gafst okkur einnig hlutdeild í sjálfri þér þegar þú saumaðir út. Þú hafðir næmt auga fyrir litum og þeir færðu þér gleði og birtu. Þú varst svo gefandi og falleg þegar þú sinntir börnum, eink- um þegar þú hittir barnabörn og barnabarnabörn þín og Birg- is. Þau voru öll þín og sólar- geislarnir í lífi þínu. Elsku mamma, hafðu innilega þökk fyrir að hvetja okkur til að leggja rækt við gáfur okkar og afla okkur menntunar en ekki síður fyrir að uppörva og stappa í okkur stálinu að gefast ekki upp þegar á móti blæs. Hvatn- ing þín er okkur styrkur til að halda vegferðinni áfram og hlúa að sjálfum okkur svo við getum gefið af okkur og annast okkar nánustu. Það vildir þú. Hlýja höndin þín leiddi okkur og leið- beindi og faðmur þinn stóð okk- ur alltaf opinn. Þú lifir áfram í hjörtum okkar. Vertu góðum Guði falin, friður hans þig geymi. Elskandi móðir, okkur reyndist þú frá upphafsstund. Staðföst sem bjarg var ást þín, traust og trú þín trygga lund. Gott er að eiga góða móður að í gleði’ og sorg, hvað jafnast á við það? (Höf. ókunnur) Þóra, Gígja, Halla, Hugrún, Guðni og Anna Heiða. Við gistum hjá tengdamóður minni í þrjá daga eftir heim- komu frá Svíþjóð, kvöddum svo, keyrðum norður, og ekki hvarfl- aði að okkur á miðvikudegi að hún væri öll tveimur dögum síð- ar. Auður Guðvinsdóttir var kraftmikil kona þótt lítið bæri á henni. Hún lifði sínu lífi, stelpa á Svalbarðseyri, kennaradóttir. Hún var ein af þessum heima- vinnandi eiginkonum, sex barna móðir, alltaf á vaktinni. Ég kynntist henni tvítugur strákur, skotinn í dóttur hennar og Harðar Jörundssonar, en nán- ast daginn sem ég kom í Vana- byggð 1 í fyrsta skipti skildu þau hjón og hún flutti suður á Reykjanes. Ekki leist þeim vel á nýja tengdasoninn. Allt um það kynntist ég þeim báðum vel, enda hélst vinátta alla tíð. Hvorugt þeirra er fólk margra orða, en Auður gat ver- ið ákveðin og föst fyrir þrátt fyrir hæglæti. Hún giftist Birgi Sveinssyni og bjuggu þau í Garðinum og Keflavík. Eftir erfið veikindi Birgis lét Auður mikið á sjá og er núna dáin. Við Halla vorum dugleg að heimsækja Auði á útnárann, eins og ég kallaði staðinn henn- ar, svona til að koma henni í gott skap. Auður var líka dug- leg að heimsækja okkur norður og börnin okkar þrjú tóku miklu ástfóstri við ömmu sína. Halla María náði að heimsækja hana þremur dögum fyrir andlátið og var það mikið lán og gaman að sjá þær saman. Alla tíð skynjaði ég hvað Auði var annt um fólkið sitt. Hún spurði frétta og vildi vita allt og hún skrifaði minningargreinar um þá sem henni þótti vænt um, t.a.m. yngsta bróður sinn, Sæ- mund, sem dó í maí 2005. Ég er viss um að óvæntur dauði hans hefur haft miklu meiri tilfinn- ingaleg áhrif á hana en við gerð- um okkur grein fyrir. Auður kynntist sorginni ung þegar Þóra Guðný móðir hennar féll frá í apríl 1960, rétt rúmlega fimmtug. Ég reyndi oft að impra á því við Auði, en gekk illa. Eftir stóð Guðvin kennari einn á hrjúfum akri lífsins með þrjá unglinga, Auði 19 ára, Baldur 17 og Sæmund rétt fermdan. Lífið varð ekki samt eftir það, en fljótlega giftist Guðvin Irene Gook, þeirri stór- kostlegu konu, sem gekk börn- um Þóru og Guðvins í móður- stað og reyndist þeim vel og gerðist amma allra þeirra barnabarna. Ég naut þess heið- urs að kynnast Irene Gook og tel mig betri mann eftir það. Ég á eftir að sakna Auðar, mjúka brossins, mjúka faðm- sins, mjúku varanna, yfirleitt hlýju elskunnar sem hún bar með sér alla daga. Nú er engin Auður sem við heimsækjum til Keflavíkur. Systkinin hafa misst móður og barnabörnin ömmu. Ég kveð tengdamóður mína og þakka henni fyrir farinn veg og allt það sem hún gerði fyrir okkur. Helgi Jónsson. Í dag kveð ég kærleiksríka tengdamömmu mína, Auði Guð- vinsdóttur. Kynni okkar hófust þegar ég og sonur hennar, Jör- undur Guðni Harðarson, byrj- uðum samband okkar. Allt frá fyrsta degi tók hún mér opnum örmum. Ég á margar góðar minning- ar um þessa einstöku konu, sem kalla fram hlýjar hugsanir. Auð- ur var róleg að eðlisfari og hafði góða nærveru. Ég naut þess ávallt að stjana við hana því hún átti afar auðvelt með að láta þakklæti sitt í ljós. Um síðustu jól og áramót dvaldi Auður hjá okkur á Ak- ureyri. Á morgnana áttum við okkar gæðastundir. Þá útbjó ég hafragraut sem við borðuðum saman. Síðan fengum við okkur kaffi, sátum sitt í hvorum stóln- um, hún réð krossgátu og ég las dagblöðin. Við gátum bæði setið saman og spjallað eða setið saman í þögn. Þetta var síðasta heimsóknin hennar til Akureyr- ar. Í þrjátíu ár sýndi Auður mér ætíð hlýju og ástúð. Ég vil þakka henni kærlega fyrir sam- fylgdina og stuðninginn sem hún sýndi sambandi okkar Guðna frá upphafi. Ég veit að hún taldi að einkasonurinn hefði valið rétta makann. Það er mér sannur heiður að standa undir því áliti tengdamömmu minnar um ókomin ár. Hvíl í friði, elsku góðhjartaða Auður mín. Þú varst og ert elsk- uð af börnum þínum, ömmu- börnum og langömmubörnum. Ég sendi þeim öllum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Hreinn Halldórsson. Elsku amma mín. Ég minnist þín með hlýjum hug. Mig hefði ekki órað fyrir að þetta yrði síð- asta skiptið sem ég sæi þig, þegar ég kom í heimsókn síðast. Það er mér ómetanlegt að hafa getað átt svo dýrmæta stund með þér áður en þú fórst og það verður mér ávallt minnisstætt. Þrátt fyrir að við byggjum ekki á sama stað vorum við samt svo nánar. Þú varst svo klár á tæknina miðað við aldur og ég gleymi því ekki að ég kall- aði þig ömmu iPad í nokkur ár eftir að þú fékkst hann. Ég gat alltaf gantast eitthvað í þér þeg- ar við komum saman og mér leið vel með þér. Við áttum ótalmargar yndis- legar stundir saman fyrir sunn- an hjá þér, fyrst í Garðinum, svo í Stekkjargötunni og á Njarðarvöllum. Það var líka alltaf svo dásamlegt þegar þú komst norður til okkar. Þú kunnir vel við þig á báðum stöð- um. Takk fyrir allar góðu stund- irnar, sem munu lifa áfram sem minningar í mínu hjarta. Þú varst mér innilega kær, elsku amma mín, svo hlý, góð og hugulsöm. Takk fyrir að taka mér eins og ég er og vera stolt af mér alltaf. Ég mun sakna þess að geta hringt í þig og spjallað, spurt frétta og heyrt skemmtilegu sögurnar þínar, sem voru ótalmargar. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa átt þig, svona ynd- islega og góða konu, sem ömmu! Amma, hún er mamma hennar mömmu, og mamma er það besta sem ég á. Gaman væri að gleðja hana ömmu, og gleðibros á vörum hennar sjá. (Höf. ók.) Ég elska þig ætíð. Takk fyrir allt. Þín Halla María Helgadóttir. Sunnudaginn 15. september síðastliðinn heimsóttum við hjónin Auði systur mína á heim- ili hennar í Reykjanesbæ. Við vissum að hún hafði átt við van- heilsu að stríða um skeið en það kom okkur þó á óvart hversu mjög var af henni dregið. Hún var þó ágætlega málhress og við áttum þarna góða stund með henni sem við erum mjög þakk- lát fyrir. Þótt hún væri orðin lasburða komu endalokin fyrr en við áttum von á, en allt hefur sinn tíma og svo er einnig um vist okkar á þessari jörð. Fyrstu minningar mínar um Auði eru frá því að við áttum heima á Svalbarðseyri þar sem faðir okkar starfaði sem kenn- ari. Skólinn starfaði í tveimur deildum, yngri og eldri deild, en þar sem kennarinn var bara einn var fyrirkomulagið með þeim hætti að hvor deild fékk kennslu annan hvorn dag en átti frí hinn daginn. Þetta þótti okk- ur krökkunum aldeilis afbragð, að þurfa bara að mæta í skólann annan hvern dag, en hinn dag- inn gátum við nýtt að vild til leikja eða annars þess sem hug- urinn stóð til. Þetta voru dýr- legir tímar. Auður var elst okk- ar systkina og taldi sig því bera nokkra ábyrgð á okkur bræðr- um sem henni þótti á stundum þurfa nokkurt aðhald. Reyndi hún því að hafa á okkur nokkra stjórn þegar henni þótti þess þörf. Þetta gekk nokkuð vel með Sæmund yngri bróður okk- ar en síður með mig, sem lét víst fremur illa að stjórn sem leiddi stundum til árekstra milli okkar Auðar. Allt var þetta þó gert af góðum hug af hennar hálfu og með velferð okkar að leiðarljósi. Þarna var tónninn sleginn í áhuga hennar og um- hyggju fyrir velferð okkar bræðra, áhuga sem átti eftir að endast henni út lífið. Þetta kom skýrt í ljós við ótímabært fráfall móður okkar. Þá var hún mjög vakandi yfir velferð okkar og ég get þakkað það áminningar- ræðu hennar yfir mér að ég náði að halda nokkuð beinni braut þegar stefnan virtist orðin nokkuð reikul. Fyrir það verð ég henni ævinlega þakklátur þótt mér hafi nú líklega láðst að koma því þakklæti á framfæri á þeim tíma. Auk áhuga hennar á velferð fjölskyldu sinnar og annarra ættmenna hafði Auður mikinn og einlægan áhuga á fólki al- mennt, var mannblendin og átti marga vini og kunningja um land allt. Vinum sínum sýndi hún mikla ræktarsemi og var dugleg að heimsækja þá og hafa við þá samband. Við kveðjum góða systur og mágkonu og þökkum samfylgd- ina. Að leiðarlokum viljum við fjölskyldan senda börnum henn- ar og öðrum ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Auðar. Baldur og Valgerður. Auður Guðvinsdóttir Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa KirkjugarðannaSálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, stjúpföður, tengdaföður og afa, HELGA ARNLAUGSSONAR skipasmiðs, Ársölum 1, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki HERU –sérhæfðrar líknarþjónustu og líknardeildar Landspítalans fyrir alúð og góða umönnun í veikindum hans. Erna R.H. Hannesdóttir Hilda E. Hilmarsdóttir Ólafur Þórðarson Kristinn Helgason Maneerat Anutai Arnlaugur Helgason Anna Birgitta Bóasdóttir Guðrún Helgadóttir Ómar Garðarsson Elsa Kristín Helgadóttir Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Finnbjörg Skaftadóttir Jóhann Örn Skaftason Anna Helgadóttir Halldóra Skaftadóttir Bjarni Ingvarsson Íris Hv. Skaftadóttir Halldór Geirsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall KATRÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Seli í Skaftafelli. Sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun til stafsfólks Grundar. Kjartan Ragnarsson Sigríður Margrét Guðmundsd. Guðmundur Örn Ragnarsson Jónína Lára Einarsdóttir Hörður Ragnarsson Jónína Sigurlaug Marteinsd. Inga Sigríður Ragnarsdóttir Stefan Klar barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.