Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 54

Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 í Bari þar sem við erum með bæði litla skrifstofu og svefnherbergi. Þetta er allt voðalega sérstakt, að hoppa úr bubblunni sinni, rútínunni, heimilinu sínu og flytja inn í litla skonsu með alltof litlu baði, pínulitlu rúmi og gargandi ítölskum kerl- ingum allt í kring. Mjög sérstakt og einstakt tækifæri að fá að sjá eitt- hvað annað en maður er vanur.“ Heldur áfram í vinnunni þrátt fyrir flutning Hlustendur K100 þurfa ekki að óttast að breyting verði á morg- unútvarpi stöðvarinnar þar sem Jón mun senda þáttinn út á hverjum degi frá Bari. Það hlýtur þó að vera krefjandi að vinna með tveimur öðr- um að þætti og vera ekki á sama stað og þau. „Jú, vissulega er það áskorun að halda úti fjögurra tíma útvarpsþætti með tveimur öðrum einstaklingum í beinni útsendingu, í 4,715 kílómetra fjarlægð. Þó það nú væri. Ef ekki væri fyrir fagmennsku vinnufélaganna og reynslu væri þetta ekki hægt. Allt þarf að ganga smurt upp, líkt og maður væri á staðnum þannig að vinir okkar sem hlusta á hverjum degi heyri engan mun. Þeir vilja stöðugleika og sína skemmtun á hverjum degi, hvar sem við erum stödd í heiminum,“ segir Jón og bætir við að þau hjón muni hafa í nægu að snúast á meðan þau dvelja úti. „Sem betur fer höf- um við hjónin líka mörgum verk- efnum að sinna og við höldum þeim áfram hér úti. María vinnur fyrir Eddu útgáfu og hún sinni verk- efnum sínum nánast með sama hætti og væri hún heima og sama er með mig.“ Jón segir að tæknilega sé það ekki svo flókið að senda út heilan út- varpsþátt frá Ítalíu á 21. öldinni. „Ég er svo heppinn að eiga lítið út- varpsstúdíó sem samanstendur af nokkrum flóknum og dýrum tækj- um sem gerir mér kleift að vera í morgunþættinum Ísland vaknar á hverjum morgni milli 6 og 10, líkt og ég væri heima á Íslandi með krökk- unum í stúdíóinu í Hádegismóum. Að vera á Ítalíu breytir í sjálfu sér litlu. Við erum saman í hljóði og mynd á meðan þátturinn er í loftinu og síðan erum við í símanum allan daginn að undirbúa næsta dag. Það er allt hægt orðið með netinu og þetta er bara eitt af því,“ segir Jón sem er þakklátur fyrir tímamismun- inn. „Klukkan á Ítalíu er núna tveimur tímum á undan, þannig að ég byrja kl. 8 hér í stað kl. 6 á Ís- landi. Það munar ansi miklu!“ Mælir með að fólk láti drauminn rætast Spurður hvort Jón mæli með því að taka sig svona upp og flytjast af landi brott segist hann gera það. „Ekki spurning. Þetta er einfaldara en það hljómar. Það þarf eiginlega að láta bara slag standa og kýla á það. Maður á alltaf að láta drauma sína rætast með einhverjum hætti, en forsendurnar þurfa að vera rétt- ar og þá láta tækifærin á sér kræla. Það eykur víðsýnina að fá tækifæri til að búa erlendis, þó ekki sé nema í stuttan tíma, og átta sig á að það er líka fólk annars staðar í heiminum, með ólíka sýn á lífið, með aðrar þarfir og annað sjónarhorn. Ísland er frábært og maður yfirgefur það aldrei,“ segir Jón. En ætli hann komi einhvern tímann aftur heim? „Thja. það veit maður ekki, a.m.k. ekki núna. Veðráttan hentar mér betur, þó að það sé gaman að horfa stundum í storminn. Það fer svo auðvitað eftir því hvað verður. Verk- efnin sem maður er að vinna í verða að segja svolítið til um það hvert framhaldið verður. En ég er hér núna með konunni minni og okkur líður vel í 27 stiga hita og sól. Verð- lagið fær mann til að brosa í kamp- inn þegar maður fer út í búð hér því munurinn er slíkur að maður hrekk- ur í kút, því venjuleg helgarinnkaup eru ca 20 til 25% af því sem kostar að lifa á Íslandi. Maður getur alveg vanist því,“ segir Jón hamingju- samur með Maríu sinni á Ítalíu. „Það er einfaldlega búið að vera gamall draumur hjá okkur hjónum að færa okkur um set og dvelja yfir vetrarmánuðina á bjartari og heitari stað, þegar mesti kuldinn og dimm- an er á Íslandi,“ segir Jón þegar hann er spurður um ástæður þess að þau hjónin ákváðu að flytja út. „Nú voru aðstæður þannig að við gátum látið á þetta reyna og við slógum til. Það tók nokkra daga að venja sig við annað umhverfi og kannski það aðallega að maður er ekki kominn til að vera í fríi, heldur er maður á fullu í vinnu. Maður er bara á öðrum stað að sinna verkefn- unum og vinnunni. En sólin og hit- inn kemur undirmeðvitundinni til að halda að um frí sé að ræða.“ Í sólinni á Suður-Ítalíu Þau Jón og María fluttust til borgarinnar Bari sem er við Adría- hafið á Suður-Ítalíu. Þetta er nú ekki alveg sá staður sem Íslend- ingum dettur fyrst í hug þegar minnst er á landið. „Það var María konan mín sem fann þennan stað. Það hafði komið til greina að vera á Spáni, en við erum bæði mikið fyrir Ítalíu og því var það á endanum val- ið okkar. Bari er á Suður-Ítalíu, eig- inlega eins sunnanlega og hægt er að fara og mestar líkur á góðu og jöfnu veðri yfir vetrarmánuðina. Við fórum bara að gúggla þessa borg og svæðið hér í kring og úr varð að við pökkuðum niður og flugum hingað út.“ Það er mikið mál að skipuleggja svona flutning og maður þarf að vera viðbúinn því að aðlagast breyttu umhverfi. Google er besti vinurinn þegar kemur að því að skipuleggja svona flutninga, segir Jón. „Þetta er búið að taka marga mánuði og því meira sem maður gúgglar og skoðar því betur áttar maður sig á hlutunum. Hvaða hverfi eru góð og hver ekki. Hvernig íbúð maður vill og hvernig ekki og eftir miklar pælingar enduðum við á að leigja okkur aðstöðu í gamla bænum Jón Axel fluttist til Ítalíu í haust Jón Axel Ólafsson er flestum kunnur fyrir störf sín á sviði fjölmiðla. Hann hefur sl. ár stýrt morgunþætti K100, Ísland vaknar, ásamt þeim Ásgeiri Páli og Kristínu Sif. En nú hefur Jón heldur betur skipt um umhverfi því hann fluttist til Ítalíu í síðustu viku ásamt eiginkonu sinni Maríu B. Johnson. Hlustendur K100 þurfa samt ekki að óttast breytingar því hann ætlar að senda morgunþáttinn út frá Ítalíu á hverjum degi. Hamingjusöm í sólinni Jón Axel og María í Bari á Ítalíu. Bari Umhverfið á Ítalíu er annað en við eigum að venjast. Tæknin Stúdíóið hans Jóns á Ítalíu. Ekkert mál að senda út heilan út- varpsþátt þaðan. Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.