Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
www.gilbert.is
Vínland Gmt
VIÐ KYNNUM NÝTT ÚR FRÁ
JS WATCH CO. REYKJAVIK
„NÆST ÞEGAR EINHVER TALAR NIÐUR
TIL ÞÍN SKALTU TELJA UPP AÐ TÍU ÁÐUR
EN ÞÚ BREGST VIÐ. EÐA UPP AÐ FIMM EF
ÞAÐ ER OF ERFITT.”
„BÍDDU HÉRNA Á MEÐAN ÉG BIND
HUNDINN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bjóða nýjan
liðsmann velkominn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BORÐIÐ HOLLAN
MAT, GOTT FÓLK!
OG FORÐIST
SNAKK
SNAKKIÐ
ER MITT
ÞETTA HLÝTUR AÐ
VERA POTTA- OG
PÖNNUSALINN ENN
AFTUR!
ÉG SKAL
FARA
TIL
DYRA!
ÉG ER ÓNÆMUR
FYRIR SÖLURÖKUM!
stöðum í Biskupstungum. For-
eldrar hennar voru hjónin Jónas
Ólafsson bóndi á Kjóastöðum, f.
5.12. 1912, d. 20.12. 1997, og Sigríð-
ur Gústafsdóttir húsfreyja á Kjóa-
stöðum, f. 29.2. 1920, d. 27.11. 2011.
Þórey á 15 systkini. Þórir og Þórey
giftust árið 1966 og settust að í
Haukadal og stunduðu þar garð-
yrkju, ráku flutningafyrirtæki,
gistiheimili og sinntu skólaakstri í
áratugi.
Börn Þóris og Þóreyjar eru 1)
Sigrún María, f. 11.6. 1966, búsett
á Spáni; 2) Jónas Sigþór, f. 16.3.
1970, búsettur í Haukadal, börn
hans eru Marey, f. 8.10. 1993, gift
Birgi Blöndahl Arngrímssyni, f.
28.9. 1992 og eiga þau eina dóttur,
Brynju, f. 30.4. 2019, og Sölvi
Freyr, f. 8.11. 2001; 3) Ágústa, f.
15.8. 1973, búsett í Haukadal, gift
Einari Tryggvasyni, f. 12.3. 1965,
synir þeirra eru Ólafur Aron, f.
22.3. 1993, og Karl Jóhann, f. 16.6.
2001, fyrir átti Ágústa Atla Þór
Svavarsson, f. 21.7. 1989, unnusta
hans er Guðrún Gísladóttir, f. 23.1.
1991.
Systkini Þóris voru Bjarni, f. 8.5.
1933, d. 13.4. 1936; Bjarni, f. 26.4.
1935, d. 2.5. 2018, harmonikkuleik-
ari og tónskáld; Katrín, f. 20.2.
1937, d. 7.12. 1938, Greipur, f. 17.5.
1938, d. 19.9. 1990, landgræðslu-
vörður og garðyrkjubóndi, og Már,
f. 28.4. 1945, d. 3.5. 2017, hótel-
stjóri á Hótel Geysi og íþrótta-
kennari.
Foreldrar Þóris voru hjónin Sig-
urður Greipsson, f. 22.8. 1897,
d.19.7. 1985, skólastjóri Íþrótta-
skólans í Haukadal, bóndi og
glímukappi og Sigrún Bjarnadóttir,
f. 7.11. 1903, d. 10.8. 1979, hús-
freyja í Haukadal.
Þórir Sigurðsson
Hildur Arnfi nnsdóttir
ljósmóðir á Litla-Fljóti í Biskupstungum, síðar vinnukona í Rvík
Eiríkur Eiríksson
bóndi og hreppstjóri
í Miklaholti í
Biskupstungum
María Eiríksdóttir
ljósmóðir og húsfreyja á Bóli og í Hveragerði
Sigrún Bjarnadóttir
húsfreyja og skólastjórafrú í Haukadal
Bjarni Guðmundsson
bóndi í Tjarnarkoti, síðar Bóli og
síðast í Hveragerði
María Jónsdóttir
húsfreyja á Bóli
Guðmundur Bjarnason
bóndi á Bóli í Biskupstungum
Már Sigurðsson
hótelstjóri á
Hótel Geysi og
íþróttakennari
Mábil Másdóttir
hótelstjóri á Hótel
Geysi
Sigurður Másson
framkvæmdastjóri
Hótels Geysis
Bjarni Sigurðsson
harmonikkuleikari og tónskáld
Eiríkur Bjarnason hótelstjóri í Hveragerði,
tónskáld og harmonikkuleikari
Greipur
Sigurðsson
land græðslu-
vörður og
garðyrkju-
bóndi
Hrönn Greipsdóttir
framkvæmdastjóri
fjárfestingafélagsins
Eldeyjar
Sigurður Greipsson
dr. í líffræði í Atlanta
Jóhann Jónsdóttir
húsfreyja á Stóra-Fljóti
Guðmundur Jónsson
bóndi á Stóra-Fljóti í
Biskupstungum
Katrín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Haukadal
Greipur Sigurðsson
bóndi í Haukadal í Biskupstungum
Þórunn Guðmundsdóttir
húsfreyja á Spóastöðum,
í Haukadal og á Laug í
Biskupstungum
Sigurður Pálsson
bóndi og hreppstjóri á Spóastöðum, og síðar í Haukadal og síðast á Laug
Úr frændgarði Þóris Sigurðssonar
Sigurður Greipsson
skólastjóri Íþróttaskólans í
Haukadal, bóndi og glímukappi
Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum þar sem hann rorraði
fram og til baka innan um túrist-
ana á Skólavörðustígnum og
spurði tíðinda. Hann leit upp sein-
lega með höfuðið í sinni vana-
stellingu afturábak og eilítið til
vinstri og tautaði:
Af kerlingu fátt ég frétti
svo ég fór upp á Holtið, ljótt smetti
hafði hundspottið þar, –
með hringað skott var
á hlaupum á eftir ketti.
Og snerist á hæli.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Allt sem er gott og göfugt
gæti þó snúið öfugt.
Ég lít myrkrið bjart
en ljósið er svart
og léttasta skeiðið er höfugt.
Auðvitað kallar þessi limra fram
í hugann stöku sem Böðvar Guð-
mundsson orti þegar við vorum
samverkamenn í Hvalnum á 7.
áratugnum og ég hef áður rifjað
upp hér í Vísnahorni:
Myrkrið svart ég þrái þig
þegar hjartað grætur
ekki er margt sem angrar mig
eins og bjartar nætur.
Hér er Böðvar vitaskuld að
leika sér að stöku Þorsteins
Erlingssonar, sem flestir Íslend-
ingar kunnu til skamms tíma og er
úr því undurfallega ljóði „Lág-
nætti“:
Ekki er margt sem foldar frið
fegur skarta lætur
eða hjartað unir við
eins og bjartar nætur.
Á Boðnarmiði horfir Sigurbjörg
Elimarsdóttir til himins:
Austurfjöllin yfir fer
undan skuggar flýja
fullur máni fetar hér
furðu lendur skýja.
Ármann Þorgrímsson gefur ráð
og segir „gott til fylgisaukningar“:
Met ef setja í málæði
mest það eykur hróður
aðhyllist menn einræði
er sá kostur góður.
Einar Steinn Valgarðsson yrkir
„veðurvísu“, sem er tileinkuð Vé-
steini bróður (Vésteinn Valgarðs-
son) og með skírskotun í Laxness:
Veður þetta er viðurstyggð
vindhviðurnar næða
Hamar, maí og sól og sigð
síðar þróttinn glæða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hundur eltir kött
á Skólavörðuholti