Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 59
ingar inn á teiginn og skot utan af
velli. Á hinn bóginn má velta því fyrir
sér hvort Breiðablik geti reynt að
halda boltanum oftar en hægara er
um að tala en í að komast í þeim efn-
um gegn PSG.
Hrósa má markverðinum Ástu
Guðlaugsdóttur fyrir sína frammi-
stöðu en hún komst mjög vel frá erf-
iðu verkefni. Ef til vill má segja að
Ásta sérhæfi sig í því að spila í Meist-
aradeildinni en hún kom inn í liðið
þegar Breiðablik sló út Spörtu Prag
á dögunum en Sonný Lára Þráins-
dóttir varði mark liðsins á Íslands-
mótinu.
Í liði Breiðabliks eru margir ungir
og efnilegir leikmenn. Eitt af því já-
kvæða við að mæta andstæðingi af
þessari stærðargráðu er að þá sjá
þær íslensku hvar þær standa gegn
þeim bestu í Evrópu. Fyrir þær sem
vilja reyna að komast alla leið í bolt-
anum, að spila með stórliði í Evrópu
eða komast í byrjunarlið íslenska
landsliðsins, þá sjá þær í leik sem
þessum að þær þurfa að leggja enn
harðar að sér. Til dæmis varðandi
líkamlega þáttinn. Leikmenn PSG
voru sem dæmi sneggri og líkamlega
sterkari en gengur og gerist í deild-
inni hér heima.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Dalhús: Fjölnir – KR............................ 19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Þór Ak.................... 19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Stjarnan . 19.15
Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 19.15
1. deild karla:
Smárinn: Breiðablik – Hamar............. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA/Þór – Valur .............. 18.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
FH U – Stjarnan U............................... 20.15
Í KVÖLD!
Gefum okkur að Frakkland og
Tyrkland hafni í tveimur efstu
sætunum í riðli okkar Íslendinga
í undankeppni EM karla í knatt-
spyrnu eins og flest bendir nú til
að verði raunin.
Ætli sú staða gæti komið upp
að Tyrkjum yrði meinuð þátttaka
í lokakeppninni og Ísland tæki
sæti Tyrklands í staðinn?
Þessar vangaveltur eru vissu-
lega langsóttar. En Tyrkir eru í
hernaði og við takmarkaðar vin-
sældir í alþjóðakerfinu.
Slíkt eitt og sér hreyfir þó ekki
endilega við íþróttahreyfingunni
enda er gjarnan reynt að halda
íþróttafólkinu utan við stjórn-
málin eins og hægt er. Vafalaust
má finna mörg dæmi um að lið
hafi keppt í lokakeppni þegar
viðkomandi ríki hefur staðið í
hernaði.
Það sem breytir hins vegar
stöðunni er uppátæki landsliðs-
mannanna sjálfra. Tyrknesku
leikmennirnir hafa í síðustu
tveimur leikjum heilsað að her-
mannasið. Hafa flestir túlkað
það sem einhvers konar kveðju
til hermanna Tyrklands og jafn-
vel sem stuðningsyfirlýsingu við
hernaðinn í Sýrlandi. Þegar svo
er komið gæti alþjóðaknatt-
spyrnuforystan ef til vill skipt sér
af málinu.
Þegar Danir urðu Evrópumeist-
arar árið 1992 höfðu þeir ekki
unnið sig inn í lokakeppnina. Það
gerði firnasterkt lið Júgóslavíu
en liðið fékk ekki að vera með
vegna stríðsrekstursins í fyrrver-
andi ríkjum Júgóslavíu. Ísland
fékk af sömu ástæðu sæti í
handknattleikskeppninni á Ól-
ympíuleikunum og lék um verð-
laun. Á Ólympíuleikunum 1984
komst Ísland einnig inn bakdyra-
megin og hafnaði í 6. sæti. Þá
vegna kalda stríðsins milli aust-
urs og vesturs.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Knattspyrnukon-
an Lára Kristín
Pedersen er
gengin til liðs við
KR-inga sem til-
kynntu í gær-
kvöld að þeir
hefðu samið við
hana til tveggja
ára.
Lára, sem er
25 ára miðjumað-
ur, lék með Þór/KA á nýliðnu tíma-
bili en spilaði þar á undan með
Stjörnunni í fimm ár þar sem hún
varð tvisvar Íslandsmeistari og
tvisvar bikarmeistari. Áður lék hún
með Aftureldingu. Lára hefur skor-
að 14 mörk í 153 leikjum í efstu
deild og á tvo A-landsleiki að baki
en hún lék 32 leiki með yngri lands-
liðum Íslands. vs@mbl.is
Lára Kristín
til KR-inga
Lára Kristín
Pedersen
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Valur vann 76:74-sigur á KR í 3.
umferð Dominos-deildar kvenna í
körfubolta á útivelli í gærkvöld í
æsispennandi leik. KR komst yfir
34 sekúndum fyrir leikslok, 73:72,
en eftir afar spennandi lokamín-
útur varð sigurinn Valskvenna.
Þrefaldir meistarar Vals eru
með fullt hús stiga eftir þrjá leiki
en KR, sem hafnaði í öðru sæti Ís-
landsmótsins á síðustu leiktíð, er
með tvo sigra og eitt tap. Keflavík,
Haukar og Skallagrímur eru jöfn
KR-ingum með fjögur stig hvert.
Kiana Johnson skoraði 22 stig
fyrir Val og Helena Sverrisdóttir
gerði 21 stig. Danielle Rodriguez
og Hildur Björg Kjartansdóttir
skoruðu 17 stig hvor fyrir KR.
Keflavík átti ekki í vandræð-
um með að sigra Breiðablik á
heimavelli, 89:56. Staðan í hálfleik
var 41:30 og vann Keflavík síðari
hálfleikinn með miklum yfirburð-
um. Daniela Wallen skoraði 26 stig
og tók 14 fráköst hjá Keflavík og
Violet Morrow skoraði 26 stig og
tók 12 fráköst fyrir Breiðablik.
Stórsigur Hauka
Haukar unnu gríðarlega sann-
færandi sigur á Grindavík á úti-
velli, 100:56. Staðan í hálfleik var
43:27 og Haukar héldu áfram að
bæta í allt til leiksloka. Þóra
Kristín Jónsdóttir skoraði 17 stig
og tók 10 fráköst í jöfnu liði
Hauka og Sigrún Björg Ólafs-
dóttir skoraði 14 stig. Kamilah
Jackson skoraði 16 stig fyrir
Grindavík.
Skallagrímur gerði góða ferð
til Stykkishólms og vann Snæfell á
útivelli, 68:54. Skallagrímur lagði
grunninn að sigrinum með góðum
fyrri hálfleik en staðan eftir hann
var 41:27. Keira Robinson skoraði
26 stig og tók 9 fráköst fyrir
Skallagrím. Chandler Smith skor-
aði 15 og tók 15 fráköst fyrir Snæ-
fell.
Háspennusigur Vals gegn KR
Valur með fullt hús stiga eftir þrjár
umferðir Fjögur lið á eftir með 4 stig
Morgunblaðið/Hari
Landsliðskonur Helena Sverrisdóttir úr Val með boltann í leiknum í Vest-
urbænum en Hildur Björg Kjartansdóttir úr KR sækir að henni.
DHL-höllin, Dominos-deild kvenna,
miðvikudag 16. október 2019.
Gangur leiksins: 5:7, 8:14, 13:17,
20:23, 24:28, 34:30, 35:34,
40:38, 43:40, 51:40, 56:47,
56:58, 58:64, 60:72, 69:72, 74:76.
KR: Danielle Victoria Rodriguez
17/7 fráköst/8 stoðsendingar,
Hildur Björg Kjartansdóttir 17/13
fráköst/3 varin skot, Sanja Orazo-
vic 16/12 fráköst, Margrét Kara
Sturludóttir 7/7 fráköst, Unnur
Tara Jónsdóttir 7, Perla Jóhanns-
dóttir 7, Sóllilja Bjarnadóttir 3.
KR – VALUR 74:76
Fráköst: 32 í vörn, 12 í sókn.
Valur: Kiana Johnson 22/7 frá-
köst, Helena Sverrisdóttir 21/8
fráköst/6 stoðsendingar, Sylvía
Rún Hálfdanardóttir 12, Dagbjört
Dögg Karlsdóttir 10, Hallveig
Jónsdóttir 5, Guðbjörg Sverr-
isdóttir 4, Regina Palusna 2/6
fráköst.
Fráköst: 23 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Ísak Ernir Kristinsson,
Friðrik Árnason.
Áhorfendur: 300.
Stórstjarna Hin 41 árs gamla Formiga sem lék
með Brasilíu á sínu sjöunda heimsmeistaramóti
í sumar skoraði eitt marka PSG og hér reynir
Hildur Antonsdóttir að verjast henni.