Morgunblaðið - 17.10.2019, Síða 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður
Levski Sofia, var í gær útnefndur besti
leikmaður septembermánaðar í búlg-
örsku knattspyrnunni. Hólmar lék
mjög vel með liði Levski, nýbyrjaður að
spila á ný eftir tíu mánaða fjarveru
vegna slitins krossbands, og var efstur
í stigagjöf mánaðarins en það eru leik-
mannasamtökin í Búlgaríu sem standa
að viðurkenningunni.
Knattspyrnumennirnir Bjarki
Steinn Bjarkason úr ÍA og Helgi Guð-
jónsson úr Víkingi í Reykjavík, sem eru
19 og 20 ára gamlir, eru komnir til æf-
inga hjá Start í Noregi. Helgi hefur til
þessa leikið með Fram og skoraði 15
mörk fyrir liðið í 1. deildinni í sumar en
Bjarki skoraði 3 mörk í 20 leikjum með
ÍA í úrvalsdeildinni. Þjálfari Start er Jó-
hannes Harðarson frá Akranesi og
hann segir á heimasíðu félagsins að
þetta sé liður í að byggja upp sambönd
milli félagsins og íslenskra félaga.
„Það er áhugaverður markaður á Ís-
landi sem við ættum að fylgjast betur
með,“ segir Jóhannes.
Edda Garðars-
dóttir, fyrrverandi
landsliðskona í
knattspyrnu, hefur
verið ráðin aðstoð-
arþjálfari Þróttar í
Reykjavík sem
verður nýliði í úr-
valsdeildinni á
næsta ári. Nik Ant-
hony Chamberlain hefur verið að-
alþjálfari Þróttar frá júlí 2016. Edda
þjálfaði KR 2016 og 2017 en hefur verið
í fríi frá fótboltanum undanfarin tvö ár.
David de Gea, spænski landsliðs-
markvörðurinn í knattspyrnu, getur
ekki varið mark Manchester United
gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni
á laugardaginn. De Gea tognaði í nára í
leik Spánverja og Svía í fyrrakvöld.
Þegar lá fyrir að franski miðjumað-
urinn Paul Pogba yrði ekki með United
í leiknum vegna meiðsla.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Val-
dís Þóra Jónsdóttir eiga afar litla
möguleika á að komast í gegnum ann-
að stig úrtökumótanna fyrir LPGA-
mótaröðina í golfi. Þær léku þriðja
hringinn í Venice á Flórída í gær og
þegar þær luku honum var Ólafía í 133.
sæti á samtals sex höggum yfir pari en
Valdís er í 157. sæti á samtals níu
höggum yfir pari. Þrjátíu efstu komast
áfram eftir lokahringinn í dag og þær
sem eru í 30. sætinu eru á fjórum
höggum undir pari, tíu höggum á und-
an Ólafíu.
Valsmenn tilkynntu í gær að Ída
Marín Hermannsdóttir, leikmaður
Fylkis og U19 ára landsliðs Íslands í
knattspyrnu, væri komin í þeirra raðir
og hefði samið til tveggja ára. Ída er 17
ára gömul en hefur leikið í rúm þrjú ár
með meist- araflokki Fylkis. Hún
skoraði 7 mörk í 18
leikjum liðsins í úr-
valsdeildinni í ár og
á samtals að
baki 41 leik
með Ár-
bæjarliðinu
í tveimur
efstu deildunum.
Þá hefur Ída leik-
ið 22 leiki með
yngri lands-
liðum Íslands
og skorað í
þeim 8
mörk.
Eitt
ogannað
„Já, það gerði það. En að sama
skapi þá sýnum við honum fullan
skilning og berum fulla virðingu fyr-
ir hans ákvörðun. Hann hefur sínar
ástæður fyrir því og við vitum að
þetta hefur ekkert að gera með til-
finningar hans gagnvart Gróttu,
leikmönnunum eða okkur sem höf-
um starfað með honum. Það er bara
eins og það er. Við þökkum honum
fyrir frábært starf og ég býst við því
að hann muni standa sig vel alls
staðar þar sem hann kemur. Nú
horfum við fram á veginn og hvort
sem þetta kom okkur á óvart eða
ekki þá þýddi ekki að dvelja við það.
Strax sama dag og hann tilkynnti
okkur sína ákvörðun fórum við að
vinna í málinu en fram að því höfð-
um við ekkert litið í kringum okk-
ur.“
Skýr sýn varðar veginn
Langflestir leikmanna Gróttu eru
óskrifað blað þegar kemur að efstu
deild. Birgir ætlar ekki að sækja
leikmann héðan og þaðan eins og í
Football Manager-tölvuleiknum.
„Ég er bara lögfræðingur í miðbæ
Reykjavíkur. Ég á ekkert erindi í að
fara í einhvern fótboltaleik. Við höf-
um hins vegar ákveðna stefnu og
ákveðna ímynd sem við höfum
byggt upp. Við erum með visst
erfðaefni í félaginu sem unnið hefur
verið að um margra ára skeið. Stór
hópur hefur komið að því að móta
þá stefnu á síðustu árum, bæði fólk-
ið í kringum félagið og þjálfararnir
sem hér hafa starfað. Það hjálpar
náttúrlega fólki eins og okkur í
stjórninni að átta okkur á því hvaða
leið við eigum að fara. Við erum
bara sjálfboðaliðar í frjálsum fé-
lagasamtökum en ekki fagfólk í
greininni. Það munar því miklu fyrir
okkur að stefnan sé skýr. Þá er auð-
veldara að rata. Hún segir okkur að
við eigum ekki að eyða umfram það
sem við getum aflað. Hún segir okk-
ur að leita í okkar eigin raðir og
reyna að byggja á ungum og upp-
öldum leikmönnum. Að laða til fé-
lagsins unga leikmenn sem ekki
hafa fengið verðskulduð tækifæri
annars staðar, sem bæta okkur sem
lið. Við reynum svo að vera sniðug í
því að hjálpa leikmönnum að
blómstra hjá okkur. Við höfum
reynt að búa til umgjörð sem felur
ekki í sér jafn miklar skuldbind-
ingar og hjá stóru félögunum. Mik-
ilvægur partur af því er að vera með
þjálfara sem geta gert leikmennina
betri og ég tel að þessi ráðning okk-
ar sýni metnað okkar í þeim efnum.
Nýja þjálfarateymið hefur skilning
á þessari stefnu og vill vinna eftir
henni. Þá getum við afhent verk-
efnið til þeirra. Við vitum hins vegar
að við þurfum að breikka hópinn.
Við vorum til dæmis með lánsmenn
sem farnir eru til síns heima en
bróðurpartur þeirra sem spiluðu
með okkur í fyrra er þó á samningi.
Við munum áreiðanlega styrkja rað-
irnar en eftir sömu hugmynda-
fræði.“
Aðstaðan til skoðunar
Þegar lið ná þeim árangri að leika
í efstu og næstefstu deild þá þarf að
uppfylla ýmsar kröfur í leyfiskerfi
KSÍ. Á Birgi má heyra að Grótta
þarf ekki að ráðast í umfangsmiklar
framkvæmdir vegna þessa en ein-
hverjar þó.
„Við stóðumst alla vega leyfis-
kerfið í Inkasso-deildinni án undan-
þágu. Við þurfum aðeins að stækka
við okkur á svæðinu og skoða áhorf-
endaaðstöðuna. Við erum bjartsýn á
að við getum byggt hana upp og höf-
um ekki stórar áhyggjur. Ég held að
það hafi sýnt sig á undanförnum ár-
um að félög af sambærilegri stærð-
argráðu hafa komist upp í efstu
deild og staðist kröfurnar sem eru
gerðar. Ég held að við séum ekkert
öðruvísi. Félagið er komið af stað í
þessa vinnu af fullum krafti,“ sagði
Birgir Tjörvi Pétursson ennfremur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seltjarnarnes Gróttumenn komu án efa mest á óvart allra á nýliðnu keppnistímabili í fótboltanum og þeir spila í úr-
valsdeildinni á komandi ári. Fram að því höfðu þeir aldrei komist ofar en í 10. sæti 1. deildar.
Hent í þeytivinduna
Viðburðaríkar vikur hjá Seltirningum Ekki verður eytt umfram það sem
aflað er Orðspor Ágústs kom honum efst á óskalistann hjá Gróttu
GRÓTTA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Starf formanns knattspyrnudeildar
Gróttu varð skyndilega býsna um-
svifamikið síðsumars þegar karlalið-
ið tók upp á því að vinna sér sæti í
efstu deild í fyrsta skipti í sögu fé-
lagsins og þvert á allar spár. Ári áð-
ur hafði liðið farið upp úr c-deildinni
með stigi meira
en næsta lið,
Vestri. Síðustu
vikurnar hafa
verið við-
burðaríkar hjá
Seltirningum og
ekki fækkaði
snúningunum hjá
formanninum,
Birgi Tjörva Pét-
urssyni, þegar
þjálfarinn, Óskar
Hrafn Þorvaldsson, kaus að róa á
önnur mið ef hægt er að nota orða-
lag úr sjávarútvegi fyrir þá miklu
útgerðarbæi Seltjarnarnes og Kópa-
vog.
„Okkur var hent í þeytivinduna.
Við erum komin upp í efstu deild og
vorum þjálfaralaus í framhaldinu.
Mér finnst mesta furða að okkur
hafi tekist að lenda standandi,“
sagði Birgir og brosti þegar Morg-
unblaðið tók hann tali. Á þriðjudag-
inn var gengið frá þriggja ára samn-
ingi við Ágúst Gylfason og
Guðmund Steinarsson um að stýra
liðinu og er Birgir afar ánægður
með þá niðurstöðu. Spurður um
hvort Ágúst hafi verið efstur á óska-
listanum svarar Birgir því játandi.
„Já hann var sá fyrsti sem við
hringdum í eftir að við lentum í
þeirri stöðu að vera þjálfaralaus.
Liðu svo nokkrir dagar þar til við
náðum að hittast. Með lið í efstu
deild, og án þjálfara, þá þurftum við
aðeins að hugsa um tækifærið sem í
því fælist. Við þurftum að greina
stöðuna og finna út hvað væri mikil-
vægast fyrir hópinn á þessum tíma-
punkti. Þar stóð svolítið upp úr að
reynsla og sjálfstraust væru mik-
ilvægir þættir vegna þess að liðið er
ungt. Þetta þjálfarateymi geislar af
hvoru tveggja. Við vorum ekki síst
spennt fyrir Ágústi vegna þess
hversu gott orð fer af honum. Hann
hefur verið mjög farsæll og okkur
fannst strax að það gæti ekki verið
annað en góð ákvörðun að leita til
hans.“
Sýna ákvörðuninni skilning
Kom það forráðamönnum Gróttu
á óvart að Óskar Hrafn skyldi vilja
færa sig um set á þessum tíma-
punkti?
Birgir Tjörvi
Pétursson
uði, eins og raunin er með Aron Ein-
ar sem sleit liðband í ökkla í byrjun
mánaðarins og gekkst undir aðgerð í
kjölfarið. Heimir sagði við mbl.is í
gær að hann yrði væntanlega frá
keppni til áramóta.
Aron hafði farið vel af stað, spilað
alla fimm leikina og skorað tvö
mörk, en Al-Arabi er í öðru sæti með
13 stig úr fimm leikjum og á leik til
góða á toppliðið Al-Duhail sem er
með 14 stig.
Sjötta landið á ferlinum
Katar er sjötta land Birkis á ferl-
inum en hann hefur leikið með Vik-
ing og Bodö/Glimt í Noregi, Stand-
Birkir Bjarnason mun leysa lands-
liðsfyrirliðann Aron Einar Gunn-
arsson af hólmi næstu tvo til þrjá
mánuðina hjá Al-Arabi í Katar og
verður þar með annar íslenski knatt-
spyrnumaðurinn til að spila í kat-
örsku 1. deildinni – Stjörnudeildinni
eins og hún er kölluð þar í landi.
Birkir gerði í gær þriggja mánaða
samning við Al-Arabi, sem Heimir
Hallgrímsson þjálfar, en þar sem
Birkir var samninglaus getur hann
strax byrjað að leika með liðinu.
Samkvæmt reglum í Katar mátti
Al-Arabi fá nýjan erlendan leik-
mann, ef hann væri samningslaus, ef
annar væri úr leik í minnst tvo mán-
ard Liege í Belgíu, Pescara og
Sampdoria á Ítalíu, Basel í Sviss og
Aston Villa á Englandi. Með þessum
liðum hefur Birkir spilað 309 deilda-
leiki og skorað 55 mörk. Hann lék
sinn 82. landsleik gegn Andorra á
mánudagskvöldið en hann er nú sjö-
undi leikjahæsti landsliðsmaður Ís-
lands frá upphafi og sá níundi
markahæsti með 12 mörk.
Líklegt er að Heimir Hallgríms-
son tefli Birki fram strax á sunnu-
daginn þegar Al-Arabi fær Al-
Gharafa í heimsókn í deildinni. Liðið
á eftir að spila fimm deildaleiki og
fjóra leiki í deildabikarnum fram að
jólum. vs@mbl.is
Ljósmynd/Al-Arabi
67 Birkir Bjarnason fékk treyjuna
við undirskrift hjá Al-Arabi í gær.
Í stað Arons til áramóta
Birkir í toppbaráttu með Heimi og Al-Arabi í Katar