Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 64

Morgunblaðið - 17.10.2019, Side 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Góð og öflug vörn fyrir meltingarveginn Bio-Kult Candéa inniheldur góðgerla, hvítlauk og greipkjarnaþykkni. Öflug blanda sem eflir mótstöðuafl líkamans ● Styrkir meltinguna ● Vinnur á Candida sveppnum ● Kemur jafnvægi á meltingaflóruna ● Bestu gæði góðgerla Öll sykurlöngun hefur minnkað Í mörg ár fann ég fyrir óþægindum í maga. Ég upplifði það yfirleitt þegar líða tók á daginn, varð útblásin og leið ekki vel. Ég taldi það líklegt að um óþol væri að ræða. Fyrir rúmum þremur árum var mér bent á Bio Kult Candéa hylkin og hef tekið staðfastlega tvö hylki á dag með stærstu máltíðum dagsins. Öll sykurlöngun hefur minnkað, en áður fyrr drakk ég mikið sykraða gosdrykki. Ég hef náð að halda mér í kjörþyngd og þakka ég það daglegri inntöku Bio-Kult, sem fær að ferðast meðmér hvert sem ég fer. Kolbrún Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Leikhópurinn Óskabörn ógæfunnar frumsýnir verkið Rocky! í Tjarnar- bíói kvöld og er uppsetningin að sögn leikstjórans, Vignis Rafns Val- þórssonar, liður í því að breyta heiminum. Vignir vill lítið gefa upp um sögu- þráð verksins en um er að ræða nýtt danskt verk eftir Tue Biering sem hlaut Reumert-sviðslistaverðlaunin. Að því er fram kemur á dönskum miðlum þá er Rocky, aðalpersóna leikritsins, hvítur hægrisinnaður karlmaður sem er andsnúinn póli- tískri réttsýni. Hann er þreyttur á því að litið sé fram hjá honum og hann sé aðhlátursefni á meðan minnihlutahópum er hampað. Rocky vill tækifæri til að fá sjálfsvirðingu sína aftur og sómasamlegan stað í samfélaginu. Verkið er einleikur og fer Sveinn Ólafur Gunnarsson með hlutverk Rockys. Þegar verkið var sett á svið í Danmörku var annar einstaklingur á sviðinu með leikaranum. Sá sagði þó ekkert enda dauður úr öllum æð- um. Þessi einstaklingur, ef ein- stakling má kalla, var svínshræ. Vignir segir að svín verði einnig á sviðinu í Tjarnarbíói. Rétt saga með rangri persónu „Þetta fjallar náttúrlega um Rocky Balboa. Hvernig hann fer frá því að vera algjör lúser yfir í að vera heimsmeistarinn. Þetta er sagan sem við elskum öll, saga um mann- inn sem byrjar á botninum og með þrautseigju og vinnu nær að komast á toppinn. Svo þurfum við að spyrja hvort við elskum þessa sögu jafn mikið ef þessi maður er í hinu lið- inu,“ segir Vignir. Hann telur verkið eiga brýnt er- indi við Íslendinga. „Þetta verk er mjög aðkallandi. það er löngu kominn tími á það að við ræðum þessi mál og ræðum þau eins og þau eru, umbúðalaust. Mikil- vægast af öllu er að við hlustum á báðar hliðar.“ Spurður hvers vegna aðkallandi sé að setja verkið á svið segir Vignir: „Vegna þess að við verðum að bregðast við því sem er að gerast í kringum okkur í heiminum.“ Viðfangsefni sýningarinnar er metnaðarfullt. „Þetta snýst um ým- islegt, þetta snýst eiginlega um framtíð alheimsins. Alla vegar sið- menningarinnar eins og við þekkjum hana í dag,“ segir Vignir. Óskabörn ógæfunnar eru ekki þekkt fyrir að taka að sér léttmeti. Leikhópurinn setti upp leiksýn- inguna Hans Blær í fyrra en sýn- ingin vakti misjöfn viðbrögð. Ein- hverjum þótti sýningin særandi en sama hvað um hana var sagt þá var hún pólitísk. Áður hafa Óskabörn ógæfunnar sett upp sýninguna Bláskjá sem tók á feðraveldinu og Illsku, rammpólitíska sýningu sem var tilnefnd til fjölda verðlauna. Rocky! er einnig rammpólitísk sýning en hún vakti sterk viðbrögð í Danmörku. Spurður hvers vegna leikhópurinn ákveði að taka sér fyrir hendur umdeildar pólitískar sýning- ar sem þessar tvær segir Vignir: „Það gerist ekki neitt ef þú gerir ekki neitt. Ég lifi í þeirri veiku von að leikhús geti haft einhver áhrif. Eins og staðan er í dag er þetta al- gjörlega áhrifalaus miðill með öllu. Það er enginn sem labbar heim úr leikhúsi í dag breyttur maður. Þetta er eingöngu afþreyingarmiðill; sama hversu mikið við reynum að segja að þessi skáldsaga eigi svo mikið við í dag eða þessi leikgerð upp úr amer- ískri bíómynd snerti okkur öll þá er það bara kjaftæði.“ Einhverjir danskir gagnrýnendur virðast vera sammála Vigni um það að Rocky! skilji eitthvað eftir sig. „Þetta er leiklist sem mun fylgja mér út fyrir salinn,“ sagði gagnrýn- andi danska leiklistartímaritsins Den 4. Væg. „Þetta er hugsandi leik- hús, frumlegt, frelsandi og póli- tískt,“ sagði gagnrýnandi Politiken. Vignir segir að hann vilji breyta heiminum. „Ef maður er ekki ánægður með hann eins og hann er verður maður að gera sitt besta eða alla vega leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Ég held að besta leiðin til þess sé að eiga í samtali, það er það sem heilar mig mikið við þetta verk; hvernig það getur auðveldlega opnað augu okkar fyrir því að líta á andstæðinga okkar sem eitthvað annað en and- stæðinga, sem fólk sem er á annarri skoðun en við um margt og komast þá frekar að því hvers vegna við er- um ósammála.“ Vignir segir verkið ríma vel við það sem Óskabörn ógæfunnar hafa tekið sér fyrir hendur hingað til. „Þetta er allt rökrétt framhald af því sem Óskabörn ógæfunnar hafa verið að gera og er bara eitt púsluspilið í stóru heildarmyndinni hjá okkur.“ Morgunblaðið/Eggert Á hvolfi Vignir Rafn Valþórsson, leikstjóri Rocky!, hangandi fyrir ofan sviðið í Tjarnarbíói. Fyrir aftan má sjá leikarann Svein Ólaf Gunnarsson. „Snýst um framtíð alheimsins“  Rocky! tekur á erfiðum viðfangsefnum og hvetur til samtals  Leikstjórinn lifir í veikri von um áhrifamátt leikhússins og vonast til þess að sýning um hvítan miðaldra karlmann breyti heiminum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.