Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.
Tónmál hjartans nefnast tónleikar
Barbörukórsins sem fram fara í
kvöld kl. 20 í Hafnarborg í Hafnar-
firði. Á þeim mun kórinn flytja ný
kórverk eftir Auði Guðjohnsen og
verða öll frumflutt að einu undan-
skildu sem var frumflutt í vor á tón-
leikum kórsins.
„Um er að ræða tímamóta-
viðburð þar sem sjaldgæft er að svo
mörg ný kórverk séu frumflutt á
einu bretti eftir núlifandi tónskáld.
Efnisskráin er afar fjölbreytt, allt
frá trúarlegum verkum til róman-
tíkur og dægurlaga. Um er að ræða
bæði frumsamin lög og texta eftir
Auði og útsetningar á þekktum lög-
um. Öll verkin eru samin og útsett
fyrir blandaðan kór til söngs án
undirleiks. Þá eru tvö verkanna
upprunnin úr nýútkominni söngbók
Auðar fyrir börn, Tónlistin er þín,
en nú sérstaklega útsett fyrir Bar-
börukórinn. Tónmálið er aðgengi-
legt og spennandi og ætti því að
höfða til breiðs hóps tónlistar-
unnenda,“ segir í tilkynningu.
Aðgangseyrir er 3.500 kr. og
verða miðar seldir við innganginn.
Um Auði segir í tilkynningu að
hún hafi lokið burtfararprófi frá
Söngskólanum í Reykjavík árið
2001, framhaldsnámi í söng frá
Royal Conservatoire of Scotland í
Glasgow árið 2003, LRSM-
söngkennaraprófi frá Söngskól-
anum í Reykjavík 2005 og M.Ed. í
listkennslu frá Listaháskóla Íslands
árið 2017. Hún er félagi í Barböru-
kórnum og einnig Schola cantorum
og stofnaði auk þess sönghópinn
Elfi fyrir nokkrum árum ásamt
starfssystrum sínum.
Auður hefur sungið einsöng á
fjölmörgum tónleikum bæði hér á
landi og erlendis og má nefna ein-
söng í níundu sinfóníu Beethovens
og Vesper eftir Rakhmaninoff.
Barbörukórinn Flytur ný verk eftir Auði Guðjohnsen sem er fimmta frá vinstri.
Barbörukórinn frumflytur verk Auðar
ingur kíminn. „Ég get upplýst að ég verð með
opnunartónleika á Listahátíð í Reykjavík
helgina 6. og 7. júní 2020 þegar hátíðin fagnar
50 ára afmæli sínu. Tónleikarnir verða jafn-
framt útgáfutónleikar næstu hljómplötu minn-
ar hjá Deutsche Grammophon.“
Debussy og Rameau á væntanlegri plötu
Talandi um þá plötu þá varstu síðast þegar
við ræddum saman ekki reiðubúinn að upplýsa
hvaða tónskáld yrðu í brennidepli þar, aðeins
að um væri að ræða samtal tveggja tónskálda
sem aldir skilja að. Má segja frá því núna?
„Já. Þetta eru Debussy og Rameau,“ segir
Víkingur og vísar þar til frönsku tónskáldanna
Claude Debussy og Jean-Philippe Rameau, en
tæp hundrað ár liðu frá dauða Rameau árið
1764 þar til Debussy fæddist árið 1862. „Þeir
eiga það sameiginlegt að hafa verið „enfant
terrible“ eða óeirðaseggir í tónlistinni. Þannig
brutu þeir meðvitað allar reglur og vildu róta
upp í viðteknum venjum. Þeir eiga það líka
sameiginlegt að mála myndir í tónum og gefa
verkum sínum oft mjög fallega titla,“ segir
Víkingur og nefnir í því samhengi Sporin í
snjónum eftir Debussy og Samtal fuglanna eft-
ir Rameau. „Rameau hefur lítið verið spilaður
á píanó þrátt fyrir að vera besta barokktón-
skáldið til að semja fyrir hljómborð að J.S.
Bach einum undanskildum. Höfundaverk
Rameau er algjör gullnáma sem ég hlakka til
að deila með áheyrendum,“ segir Víkingur og
rifjar upp að Rameau hafi verið uppáhalds-
tónskáld Debussy, sem seint á ferli sínum
samdi verk til heiðurs Rameau, sem verður
lokalagið á væntanlegri hljómplötu Víkings.
„Mig langaði á plötunni til að varpa nýju
ljósi á Debussy og sýna hann sem barokkmann
í stað impressjónista. Hann var ótrúlega ná-
kvæmur handverksmaður og átti djúpar rætur
í franska barokkinu. Þegar ég fer á milli verka
þeirra á hljómplötunni og tónleikum munu
hlustendur varla vita hvor á hvaða verk. Þó að
þeir komi frá sitt hvorum tímanum eru þeir
eins og tónlistarlegir bræður sem eiga í sterku
samtali,“ segir Víkingur og tekur fram að auk
verka Debussy og Rameau muni hann leika
Myndir á sýningu eftir Músorgskíj í umritun
Vladimirs Horowitz. „Debussy elskaði tónlist
Músorgskíj og var samtímamaður hans um
tíma, en Músorgskíj dó alltof ungur.“
Í ljósi velgengni Bach-plötu þinnar liggur
beint við að spyrja hvort þú sért mikið beðinn
að spila Bach á tónleikum þínum?
„Í tónlistarbransanum er verið að bóka
mann tvö til þrjú ár fram í tímann og flestallir
horfa til þess sem er vinsælt í dag. Eftir tvö til
þrjú ár verð ég hins vegar kannski kominn á
fullt við að spila eitthvað allt annað, þannig að
þetta er allnokkur jafnvægislist. Að því sögðu
hætti ég aldrei að spila Bach. Ég mun spila
hann allt mitt líf,“ segir Víkingur sem við
verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi spilaði
Prelúdíu í h-moll eftir Bach, sem finna má á
verðlaunaplötu hans, og Samtal fuglanna eftir
Rameau sem verður á næstu plötu hans.
Tekur upp fjórðu plötuna vorið 2021
Ertu farinn að leggja drög að næstu hljóm-
plötum hjá Deutsche Grammophon og hefur
þú alveg frjálsar hendur í efnisvali?
„Ég er kominn á þann stað að hafa algjör-
lega frjálsar hendur, en það var ekki þannig
fyrst. Fyrirtæki reyna eðli málsins samkvæmt
ávallt að endurtaka fyrri velgengni, en ég hef
engan áhuga á að endurtaka mig. Eftir Philip
Glass-plötuna þurfti ég því að berjast fyrir því
að fá að gera Bach-plötuna eins og ég vildi hafa
hana, en það hafðist. Við erum sem stendur að
teikna upp plan fyrir næstu fjórar plötur, enda
mikilvægt að hafa almennilegt langtímaplan –
sem þarf auðvitað að vera opið fyrir breyt-
ingum. Mér finnst skemmtilegt að hafa lang-
tímaplan því ég lít á plöturnar mínar sem ser-
íu. Þannig mótast næsta plata af fyrri
plötunum tveimur sem ég hef gert. Auðvitað
er plöturnar ólíkar, en það er samt einhver
þráður og framhald sem ég vona að fólk muni
skilja og skynja.“
Fyrri plötur þínar hjá Deutsche Grammo-
phon voru allar teknar upp í Hörpu. Verður
framhald þar á?
„Ég fer sennilega í upptökur á fjórðu plöt-
unni á vormánuðum 2021, en planið er að hún
komi út sama haust. Ég elska að vera í Hörpu
og finnst spennandi tilhugsun að halda mínum
hljómi, því engar af stóru útgáfunum í klass-
íska bransanum eru að taka upp einleikspíanó-
plötur í Norðurljósum,“ segir Víkingur og
bendir á að flyglar tónlistarhúsa hafi aðeins
um tíu ára endingu í fremstu röð. Sem kunn-
ugt er valdi Víkingur flygilinn fyrir Hörpu á
sínum tíma þegar tónlistarhúsið var vígt fyrir
átta árum. „Ég er sannfærður um að Svanhild-
ur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, muni
endurnýja flygilinn þegar þarf enda er stand-
ardinn í Hörpu mjög hár. Gangi það eftir mun
ég glaður halda áfram að taka upp í Hörpu.“
„Þetta er óvænt og skemmtilegt“
Víkingur Heiðar Ólafsson valinn listamaður ársins hjá breska tónlistartímaritinu Gramophone
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Víkingur Heiðar
Ólafsson spilaði við verð-
launaafhendinguna í gær.
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er óvænt og skemmtilegt eftir því. Mér
þykir mjög vænt um að hljóta þessi verðlaun,“
segir Víkingur Heiðar Ólafsson sem í London í
gærkvöldi tók við verðlaunum sem listamaður
ársins hjá breska tónlistartímaritinu Gramo-
phone. Meðal fyrri verðlaunahafa í þessum
flokki má nefna fiðluleikarann Hilary Hahn og
hljómsveitarstjórann Gustavo Dudamel. Í
fréttatilkynningu kemur fram að Víkingur
hljóti verðlaunin, sem nefnd eru Óskars-
verðlaun sígilda tónlistarheimsins, sérstaklega
fyrir hljómplötu sína með verkum eftir Johann
Sebastian Bach sem út kom hjá Deutsche
Grammophon seint á síðasta ári.
Í mars hlaut Víkingur Íslensku tónlistar-
verðlaunin fyrir sömu hljómplötu og sem tón-
listarflytjandi ársins í flokki sígildrar og sam-
tímatónlistar. Mánuði síðar hlaut hann tvenn
verðlaun tónlistartímaritsins BBC Music Ma-
gazine fyrir hljómplötuna og fyrr nýverið hlaut
hann þýsku tónlistarverðlaunin Opus Klassik
fyrir bestu einleiksupptökuna.
„Fyrir flytjendur eru verðlaun Gramophone
mikilvægustu verðlaunin í tónlistarheiminum
og ljóst að horft er til þeirra,“ segir Víkingur
og tekur fram að ótrúlegt sé að hljóta verðlaun
Gramophone sama ár og hann hljóti verðlaun
BBC Music Magazine. „London er enn, ásamt
Berlín, tónlistarhöfuðborg Evrópu ef ekki
heimsins. Öflugustu tónlistarfjölmiðlarnir eru
hér og Gramophone er virtasta fagtónlistar-
tímarit heims í klassískri tónlist,“ segir Vík-
ingur og bendir á að hann hafi árum saman
lesið Gramophone sér til ánægju og fróðleiks.
„Halla [Oddný Magnúsdóttir] konan mín gaf
mér áskrift að Gramophone fyrir löngu,“ segir
Víkingur sem flaug ásamt eiginkonu sinni og
ungum syni til London til að taka við verðlaun-
um í gær. „Þetta var fyrsta flugferð sonarins.
Þegar ég verð búinn að sinna fjölmiðlum
næstu tvo daga ætlum við fjölskyldan að eiga
smá frítíma fyrir okkur og heimsækja Oxford
þar sem Halla lærði á sínum tíma. Á mánudag
held ég svo til Vínarborgar að spila og í fram-
haldinu liggur leiðin til Brussel og Berlínar.“
Í ljósi allra þeirra verðlauna sem þú hefur
hlotið síðustu mánuði verður væntanlega erfitt
að toppa þetta ár?
„Ég held að ég muni ekki geta toppað þetta
ár hvað varðar verðlaun. Ég verð bara að
toppa þetta í gegnum tónlistina,“ segir Vík-