Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Qupperneq 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2019
Skotið var úr launsátri á mexí-kóska hermenn meðan þeirvoru á eftirlitsferð í Culiacán,
höfuðborg Sinaloaríkis í Mexíkó, á
fimmtudaginn. Brugðust þeir við
með því að ráðast til inngöngu í hús-
ið, þaðan sem kúlnahríðin kom, og
handtaka fernt sem þar var statt,
þeirra á meðal Ovidio Guzmán, einn
fjölmargra sona fíkniefnabarónsins
Joaquín „El Chapo“ Guzmán sem
framseldur var til Bandaríkjanna
fyrir tveimur árum.
Þungvopnaðir menn úr samtökum
þeirra Guzmán-feðga, mun fjöl-
mennari en hermennirnir, um-
kringdu húsið þegar í stað, auk þess
að fara með dólgslátum um borgina.
Það staðfestir Alfonso Durazo, ör-
yggismálaráðherra Mexíkó.
Upphófst svo skotbardagi sem
stóð í nokkrar klukkustundir, log-
andi bifreiðar voru á víð og dreif og
felmtri slegnir íbúar hverfisins áttu
fótum sínum fjör að launa.
Vernduðu líf og limi
„Til að gæta almannahagsmuna og
vernda líf og limi íbúa Culiacán
ákvað öryggisráðið að hætta við að-
gerðina,“ sagði Durazo í mynd-
bandsskilaboðum eftir að rimmunni
var lokið. Mexíkóskir fjölmiðlar
drógu strax þá ályktun að sú
ákvörðun hefði meðal annars þýtt að
Ovidio Guzmán hefði verið látinn
laus úr haldi.
Hvorki Durazo né Andrés Manuel
López Obrador forseti tjáðu sig
frekar um málið á fimmtudag og
voru upplýsingar fyrir vikið nokkuð
á reiki.
Varnarmálaráðherra landsins,
Luis Sandoval, staðfesti síðan á
blaðamannafundi síðdegis í gær að
Ovidio Guzmán hefði verið handtek-
inn og síðar sleppt í aðgerð sem
hefði verið „misráðin“.
Á myndum sem sýndar voru í
mexíkóska sjónvarpinu á fimmtudag
sáust þungvopnaðir menn þjarma að
her- og lögreglumönnum og skelf-
ingu lostnir borgarar skilja bíla sína
eftir á víðavangi til þess að komast
undan kúlnahríðinni. Óstaðfestar
fregnir herma að lögreglumenn hafi
særst í átökunum og því hefur einn-
ig verið haldið fram að fangar hafi
sloppið úr Aguaruto-fagelsinu í
Culiacán meðan á ringulreiðinni
stóð.
Samkvæmt frétt AFP-fréttastof-
unnar var götum og hraðbrautum
lokað fram á kvöld og 750 þúsund
íbúar borgarinnar þar með í reynd
innlyksa. Stjórnvöld í borginni sögð-
ust vinna hörðum höndum að því að
lægja öldur og báðu íbúana að halda
sig innandyra á meðan og fylgjast
vel með opinberum fyrirmælum.
„El Chapo“ var sem kunnugt er
dæmdur í lífstíðarfangelsi í júlí síð-
astliðnum fyrir að smygla hundr-
uðum tonna af hörðum fíkniefnum
yfir landamærin til Bandaríkjanna
en samtök hans gera sig eigi að síð-
ur ennþá breið í Mexíkó.
Styggð kom að samtökunum eftir
framsal „El Chapo“og bárust synir
hans, Ovidio þeirra á meðal, og
Ismael „El Mayo“ Zambada, sem
sofnaði samtökin ásamt „El Chapo“
á banaspjót. Fjöldi manna lá í valn-
um. Vopnahlé var síðan komið á og
hefur ástandið innan hópsins verið
stöðugt að kalla síðan. „El Chapo“
er gjarnan álitinn valdamesti fíkni-
efnabarón heims eftir að Pablo Es-
cobar bar beinin árið 1993 eftir skot-
bardaga við lögreglu í Kólumbíu.
Ovidio og bræður hans hafa reynt
að fara í skó föður síns en sérfræð-
ingar hafa lýst þeim sem hálf-
gerðum partípinnum sem hafi litla
sem enga burði til að annast fjár-
hagshlið fíkniefnaviðskiptanna.
28 féllu í vikunni
Fregnir þess efnis að Ovidio hafi
verið tekinn höndum en sloppið á ný
eru vatn á myllu pólitískra andstæð-
inga Obradors forseta en öryggis-
áætlun hans við þær eldfimu að-
stæður sem uppi eru í landinu hafa
verið harðlega gagnrýndar. Obra-
dor, sem er vinstrimaður, tók við
embættinu í desember á síðasta ári
en hefur gengið illa að stemma stigu
við ofbeldi og glæpum í Mexíkó.
Fyrr í vikunni féllu 28 manns í
tveimur aðskildum skotbardögum í
ríkjunum Michoacán og Guerrero.
Meira en kvartmilljón manna hef-
ur fallið frá því að stjórnvöld tóku
umdeilda ákvörðun um að láta her-
inn berjast við fíkniefnasamtök í
landinu árið 2006. Margir sérfræð-
ingar kenna fíkniefnastríðinu um
aukið ofbeldi í landinu enda berjist
fíkniefnasamtök ekki aðeins við her-
inn heldur einnig innbyrðis.
Sonur „El Chapo“ slapp úr haldi
Bifreiðar í ljósum logum á götum borgarinnar Culiacán í Mexíkó á fimmtudaginn var. Þungvopnaðar glæpasveitir buðu hernum þá birginn og fengu sitt fram.
AFP
Ovidio Guzmán, einn
af sonum hins alræmda
fíkniefnabaróns „El
Chapo“, var handtek-
inn í borginni Culiacán
í Mexíkó á fimmtudag
en sleppt aftur eftir að
þungvopnaðir menn úr
sveitum hans réðust
gegn hernum. Málið er
mikið áfall fyrir Obra-
dor forseta og öryggis-
stefnu hans.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Joaquín „El Chapo“ Guzmán er sem kunnugt er utan þjónustusvæðis en synir
hans og bíræfnir bandamenn þeirra leika lausum hala í Mexíkó.
AFP
81 árs gamall Breti, Ian Hemmens, hefur verið dæmdur í
níu mánaða fangelsi fyrir að hafa aðstoðað meintan fíkni-
efnasala að flýja land. Hemmens, sem er fyrrverandi at-
vinnubílstjóri frá Chichester í Vestur-Sussex, mun hafa
ekið manninum í öruggt skjól á bifreið sinni, af gerðinni
Citroën C3. Hann gaf þá skýringu fyrir dómi að hann
hefði tekið verkefnið að sér vegna þess að hann hefði
verið einmana og þetta hefði gefið honum tækifæri til að
spjalla við og hafa samskipti við fólk.
„Þú gerir þér grein fyrir því að þú varst notaður sem
bílstjóri vegna þess að aldur þinn og atgervi eru ólíkleg
til að vekja grunsemdir,“ sagði dómarinn við Hemmens.
Hvorki datt né draup af gamla manninum þegar hann
hlýddi á dómsuppkvaðninguna.
Talið er að téður fíkniefnasali heiti Mahamud Sami en
hann er jafnframt grunaður um að stinga mann skömmu
áður en hann stökk upp í bílinn hjá Hemmens. Sami leik-
ur enn lausum hala og leitar Interpol hans nú logandi
ljósi.
Framdi glæp
vegna leiðinda
Citroën C3 þykir með liprari bifreiðum. Þetta eintak
tengist málinu þó ekki með beinum hætti.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðrún Borghildur
Valdís Harrysdóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Fjaðrafok frá Valkyrja