Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Síða 6
Elsku hjartað mitt.
Það er svolítið magnað
hve margar merkar
konur bera nafnið
Nanna svo ég ætla að byrja á að
óska þér til hamingju með það. Þú
ert fædd á þeim merkilega degi 9.
maí árið 1978 og ef þú reiknar töl-
urnar þínar saman er útkoma þeirra
talan þrjátíu og fimm, en summan af
þeim gefur okkur töluna þína, sem
er átta. Átta er tákn lífs og dauða
eða eilífðarinnar
og hún gefur þeim
sem hana ber heil-
mikinn kraft. Töl-
unni er einnig
tengdur ótrúlegur
húmor og hægt að
segja að orð-
heppni sé sér-
einkenni þeirra
sem eru svo
heppnir að vera áttur.
Þú, kæra mín, ert búin að lifa ansi
hröðu lífi, miklar sviptingar og
breytingar hafa átt sér stað á veg-
ferð þinni án þess að þú hafir haft
nokkurn grun um það stuttu áður
hvað væri í kortunum þínum. Eina
leiðin fyrir þig til þess að halda tíðn-
inni þinni í jafnvægi er að hanga
heima. Þá á ég svo sannarlega ekki
við að þú gerist heimavinnandi hús-
móðir því það myndi ekki henta þér.
Þú þarft nefnilega svolítið að vera
allt í öllu og nærist almennt á orða-
kristöllum fólks. Þú verður svona
eins og rafmagnsbíll í hleðslu þegar
þú ert í góðri hópvinnu með skap-
andi fólki en þess á milli ertu svolít-
ill hellisbúi sem vill helst slökkva á
dyrabjöllunni og setja símann inn í
frysti. Tilfinningar æða yfirleitt
áfram hjá þér á ógnarhraða og þess
vegna sérðu allt litrófið í veröldinni.
Þú átt það líka til að berja þig niður
með óraunhæfri gagnrýni, læsa
orkunni og hugsa að allt sé ómögu-
legt og þú gerir ekki nokkurn skap-
aðan hlut rétt. Þetta er sterkur hluti
af áttunni og þar af leiðandi þarftu
að halda góðu flæði og passa vel upp
á þig. Þú ert nefnilega ekki bara tal-
an átta heldur er tala ársins einnig
átta. Þá gætirðu mögulega lent í að
hlaupa aðeins of hratt og þá er bara
að muna að fara
inn í hellinn, hvíla
sig örstutta stund
og halda svo aftur
af stað. Þú hefur
átt mjög erfitt en
þroskandi líf að
mörgu leyti og mér
finnst eins og ég
geti sagt að þú sért
mjög þakklát fyrir
vegferð þína. Þú ert búin að plægja
akurinn í 45 ár og núna er verð-
skulduð uppskera allt í kring.
Það er sérstakur kraftur yfir
árinu 2020 sem gefur þér nýtt upp-
haf að skemmtilegum áskorunum.
Þú átt eftir að tengjast víðs vegar
um heiminn og munt elska það.
Hugrekki er eitt af því sem ein-
kennir þig og þú ert mjög tilfinn-
ingarík og djúp sál. Langflestir
stjórnmálamenn eru sem dæmi með
töluna átta vegna þess að það þarf
hugrakkt keppnisfólk í pólitík sem
lætur ekki skít og drullu frá meðal-
manninum buga sig. Notaðu því
þetta stórkostlega hugrekki þitt til
að hafa áhrif á heiminn.
Ást – Sigga Kling
Stjörnumerki Nönnu Kristínar
er naut.
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
LEIKKONA
FÆDD 9.5. 1974
Verðskulduð
uppskera
’ Þú átt eftir aðtengjast víðs vegarum heiminn og muntelska það. Hugrekki er
eitt af því sem einkennir
þig og þú ert mjög til-
finningarík og djúp sál.
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2019
Ástkær eiginkona mín átti afmæli.Eins og hún gerir árlega. Og égslæ alltaf í gegn með afmælisgjöf-
inni. Að þessu sinni gaf ég henni þráðlaus
heyrnartól. Svona tappa sem hún setur í
eyrun. Hún lítur að vísu út eins og sendi-
bílstjóri með þau en hún er alsæl.
Svo, þegar ég var að ganga frá pakkn-
ingunum, fór ég að skoða umbúðirnar.
Þetta er sem sagt tæki sem gengst upp í
því að vera lítið. En umbúðirnar voru risa-
stórar. Sem er náttúrlega merkilegt þegar
allir eiga að vera að hugsa um umhverfið.
En það sem vakti sérstaka athygli mína
var sextíu síðna bæklingur á tuttugu
tungumálum sem fylgdi með. Ekki með
leiðbeiningum um hvernig ætti að tengja
og nota, heldur svona eins og einhver hafi
verið verulega pirraður í verksmiðjunni og
sannfærður um að allir sem kaupa svona
séu bjánar. Og bara eins og til að athuga
hvað við erum miklir bjánar þá er þetta
með örsmáu letri.
Og ég gekk í gildruna og las þetta allt.
Þar kemur til dæmis fram að það er
mikilvægt að börn gleypi ekki heyrnartólin
og ekki gæludýr heldur. Það er ekki mælt
með því að vera með græjurnar alltaf í
botni. Ég virðist ekki geta farið með
heyrnartólin í sund. Ég má ekki taka
hleðslustöðina í sundur og heldur ekki
halda henni lengi yfir eldi. Það er reyndar
sérstaklega tekið fram að ég ætti ekki
mikið að vera með hana í kringum eld. Það
reynir kannski ekki mikið á notkun
heyrnartóla við eldstæði á Íslandi. Það má
aldrei kveikja varðeld hér án þess að ein-
hver sérfræðingur taki upp gítar.
Ég á að tala við lækni um hvort það sé í
lagi að nota þessi tæki af því í þeim er lít-
ill og aumingjalegur segull sem gæti
mögulega haft áhrif ef ég ákveð að sofa
alltaf með þau ofan á gangráðnum í mér.
Svo koma langir útdrættir úr allskonar
lögum og reglum um svona tæki og þá
fjarlægu möguleika að það gæti haft áhrif
á útvarps- eða sjónvarpssendingar og svo
leiðbeiningar um hvernig eigi að bregðast
við því.
Það má svo ekki gleyma löngum texta
um ýmsar reglugerðir bandaríska fjar-
skiptaeftirlitsins og þess kanadíska og svo
fer heil síða í tilvísanir í ýmsar reglugerðir
Evrópusambandsins.
Þegar maður er búinn að þræla sér í
gegnum allan þennan texta segir: Mikil-
vægt er að lesa allar þessar upplýsingar
áður en tækið er notað. Sem gerir það enn
merkilegra að nota svona agnarsmátt
letur.
En auðvitað les þetta enginn. Nema ég,
greinilega. Og að sjálfsögðu er bjánalegt
að setja saman
þessar upplýs-
ingar. Hvað þá
á 20 tungu-
málum. Mætti
ekki frekar
benda fólki á
leiðbeiningar á
netinu? Ég get
lofað ykkur því
að þeir sem
geta tengt þráðlaus heyrnartól við farsíma
hafa einhvern tímann komist í kast við
netið.
En í raun er þetta sóun. Sóun á pappír
og tíma og lítilsvirðing við fólk sem kaupir
svona vöru. Einhverjir embættismenn hafa
sennilega samið reglugerð um svona hluti.
Og kannski á þetta líka einhverjar rætur
að rekja til hræðslunnar við bandaríska
skaðabótahefð, sem útskýrir hugsanlega af
hverju allir plastpokar eru merktir á þann
hátt að við eigum að passa okkur á því að
kafna ekki í þeim. Og að litli kúturinn sem
við kaupum fyrir börnin okkar sé ekki „life
saving device“.
Ég get róað þetta fólk sem stóð fyrir
framleiðslu þessa bæklings með því að
þegar ég er búinn að kaupa heyrnartól
fyrir mörg þúsund krónur hef ég hvorki í
hyggju að gleypa þau né kveikja í þeim.
’En í raun er þetta sóun.Sóun á pappír og tímaog lítilsvirðing við fólk semkaupir svona vöru. Ein-
hverjir embættismenn hafa
sennilega samið reglugerð
um svona hluti.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Leiðbeiningar fyrir bjána
SKILLBIKE er nýtt byltingarkenntæfingarhjól frá Technogym, búið gírskiptingum eins og í venjulegu
götuhjóli sem byggt er á nýrri tækni Multidrive™. SKILLBIKE er hannað til líkja semmest eftir raun-
verulegumhjólreiðum en hjólið hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun og nýsköpun.
Skoðaðu hjólið í sýningarsal okkar, hjá Holmris Síðumúla 35
NÝTT BYLTINGARKENNT
ÆFINGAHJÓL
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is