Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Síða 15
„Þjálfun snýst um að fá fólk til að gera
eitthvað og hann hefur áttað sig á því
að því fleiri sem sameinast um eitt
markmið þeim mun meiri möguleiki er
á því að markmiðið náist,“ segir
Raphael Honigstein um Jürgen Klopp.
lkj flæskdj flæk
Klopps, Wolfgang Frank, hafði notast við
hana nokkrum árum áður og kynnt Klopp
fyrir þessari uppstillingu þar sem enginn
varnarmaður var fyrir aftan varnarlínuna
eins og tíðkaðist þá. „Það er fyndið að
hugsa til þess núna að á þessum tíma hugs-
uðu allir: „En hver á að vera fyrir aftan
varnarlínuna?“,“ segir Honigstein.
Þetta gerði Klopp kleift að notast við há-
pressu þar sem leikmenn liðsins pressa
andstæðinginn hátt uppi á vellinum þegar
þeir eru með boltann í þeirri von að ná hon-
um sem næst marki andstæðinganna.
„Þetta var mjög áhættusamt, sérstaklega í
næstefstu deild hjá Mainz sem hafði haft
marga lélega þjálfara.“
Fær stuðningsmennina
með sér í lið
Annað sem Klopp hefur tekist vel er að fá
alla með sér í lið; sýna fólki að allir skipta
máli fyrir árangur
liðsins, ekki bara
leikmenn heldur
einnig aðrir starfs-
menn liðsins og
ekki síst stuðnings-
menn þess.
„Þjálfun snýst
um að fá fólk til að
gera eitthvað og
hann hefur áttað
sig á því að því
fleiri sem sameinast um eitt markmið þeim
mun meiri möguleiki er á því að markmiðið
náist. Ég held að þegar hann hugsi um liðið
hugsi hann ekki aðeins um leikmennina
heldur einnig um stuðningsmennina, fólkið
sem vinnur í kringum liðið og fólkið sem
vinnur í borginni sem liðið er í. Ég held að
það sé hugarfar sem hann fær frá tíma sín-
um hjá Mainz. Liðið var svo illa statt fjár-
hagslega að hann þurfti að finna einhvern
annan vinkil til að ná árangri. Að deila ár-
angrinum með stuðningsmönnum og fá þá
virkilega með sér í lið skiptir miklu máli.
Og þetta leiddi til þess að önnur lið vildu fá
hann í til sín, fyrst Dortmund og svo Liver-
pool.“
Engin hætta á öðru en
farsælum endi
– Heldurðu að Liverpool muni loksins vinna
stóra titilinn, Englandsmeistaratitilinn,
næsta vor?
„Það kom mér á óvart hve vel þeir
spiluðu á síðasta tímabili. Ef þú hefðir spurt
mig fyrir tímabilið hvort þeir hefðu stöð-
ugleikann til að ná 97 stigum og tapa aðeins
einum leik hefði ég sagt að þeir væru ekki
klárir í það strax. Þeir gætu komið mér á
óvart aftur því þeir virðast hafa fundið
sama stöðugleikann í ár sem er mjög erfitt
ásamt því að Manchester City er ekki jafn
stöðugt í ár eins og á síðasta tímabili.
Ég held að þetta muni snúast meira um
hvað City gerir frekar en hvað Liverpool
gerir. Ef City fer niður á eðlilega getu og
Liverpool heldur sér
í þessu formi eiga
þeir mjög góða
möguleika.“
– Klopp hefur ýj-
að að því að hætta
þegar samningi hans
lýkur hjá Liverpool
vorið 2022. Held-
urðu að það gerist?
„Tilfinning mín er
sú að hann hafi ekki
enn ákveðið sig. Það er hægt að líta á það
svo að það sé slæmt að hann hafi ekki end-
urnýjað samning sinn. En fyrir Klopp snýst
þetta ekki um peninga. Hann mun ekki
skrifa undir nýjan samning til að fá betri
laun.
Ef hann fer 2022 verða það góðar fréttir
og ef hann verður lengur verða það líka
góðar fréttir því ég held að hann muni aldr-
ei fara nema hann hafi unnið allt hjá Liver-
pool. Og eins og þú veist þá er það að vinna
Englandsmeistaratitilinn. Ég held að það sé
engin hætta á að sagan fái ekki farsælan
endi.“
’Hann hefur þetta jákvæðaviðhorf og maður getur ekkiannað en hrifist af honum. Égheld að það sé mikilvægur þáttur
í þjálfunaraðferð hans. Fólk
stendur sig betur ef því líður eins
og það sé metið að verðleikum og
hér sé maður sem vilji hjálpa því.
Klopp í látbragðsleik á hliðarlínunni er hann þjálfaði Dormund í Þýskalandi.
AFP
Jürgen Klopp er ávallt líflegur á hliðarlínunni er hann stýrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
AFP
20.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15