Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Qupperneq 17
Síðar hafa menn minnst þess að heima við og á
vinnustöðum hafi verið uppi miklar getgátur um
hvaða ósköp hefðu orðið.
Hvað sem því líður er augljóst að nú myndu fréttir
af þess háttar atburðum fara um með óstöðvandi
hraða og allt væri það óviðráðanlegt.
Slökunarstundir, ímyndunin
og veruleikinn
Og svo aftur sé vikið að slökunarbrögðum tilver-
unnar sem margir eiga sameiginlega, þá er ein sú að
fylgjast með spennumyndum ótal sjónvarpsrása síð-
ustu stundir áður en koddinn kallar. Og þykir þá
heppilegra að spennan sé ekki óhófleg hjá þeim sem
þola ekki umframörvun síðla kvölds.
Og þeir sömu verða að temja sér gagnrýnisleysi og
grufla ekki of mikið í því hvort söguþráðurinn gangi
upp eða ekki.
Þeir sem hafa oft flúið á vit þessa efnis sjá ótal
sinnum vonda karlinn og þann skárri þjóta eftir göt-
um og gangstígum á ofurhraða, skjótandi í allar áttir.
Þegar bílarnir flengjast óvænt eftir gangstéttum
kastar mannfólkið sér, þótt það eigi einskis ills von,
eins og fimleikameistarar í allar áttir og ávaxta-
sölubásar og bretti bakara eru keyrð í spað, hundruð
bifreiða eyðilögð, allar nema þessar tvær sem taka
þátt í eltingaleiknum. Almennt manntjón er lítið eða
óþekkt og ekki hefur heyrst af kvörtunum trygg-
ingafélaga. Og plottin eru jafn götótt og eltingaleik-
irnir.
Í yfirheyrslum um löngu liðinn tíma hafa flestallir
allt á hreinu.
Hver man hvað?
Bréfritari veit ekki hvernig það er með ykkur hin, en
væri hann spurður af yfirvöldum að því hvaða leið
hann hefði ekið úr Hádegismóum og heim til sín fyrir
átta vikum, mánuðum eða árum myndi hann giska á
leiðina sem hann fer jafnan og þykjast góður. En það
væri auðvitað gáleysislegt hættuspil, því maðurinn
væri kominn í vond mál ef á daginn kæmi og eftirlits-
myndavélar staðfestu að hann hefði á nefndum degi
skotist í Herragarðinn á leiðinni heim, jafnvel farið í
apótek, fatahreinsun eða blómabúð og jafnframt væri
upplýst síðar að til hans hefði sést fyrr um þennan
nefnda dag í jarðaför og helst talið að hann hefði borið
líkið úr kirkju. Leynilögregluforinginn myndi horfa
með blandi af ásökun og fyrirlitningu á bréfritara um
leið og hann spyrði fast hverju hann væri að reyna að
leyna með svona samansúrrandi lygaþvælu.
Enda vitum við sjónvarpsgláparar að jafnvel rúll-
andi fullir menn og dópistar muna svona smáatriði
meira og minna rétt í mörg ár, eins og væru þeir allir
Jón Espólín afturgenginn.
Flott fordæmi
En svo koma undantekningarnar þegar maður getur
upplýst um smáatriði áratugi aftur í tímann algjörlega
óvænt. Þetta kom fyrir bréfritara í fyrradag. Þá var
hann að laga til í bókaskáp rétt einu sinni og rakst þá á
bók sem hann var búinn að gleyma að hann ætti,
fyrstu ljóðabók Sigurðar Pálssonar, Ljóð vega salt.
Já, hugsaði bréfritari með sér, þegar hann horfði á
bókarkápuna: „Hvenær skyldi ég hafa eignast þessa
góðu bók?“ Þegar hann opnaði bókina stóð:
„V/ klukkuna eintak selt davíð á lækjartorgi odds-
syni hinn 10.7.75. með kveðju,
Sigurður Pálsson.“
Bréfritara var hugsað til þess hvað það hefði verið
frábært ef hann hefði verið dreginn um hánótt inn í
kjallara lögreglustöðvarinnar og eftir dramatíska
þögn hefði sá fílefldasti af þeim þremur spurt með
þunga: Átt þú bók eftir Sigurð Pálsson, Ljóð vega
salt? Og ef svo er, hvenær komst þú yfir hana og
hvernig?
Bréfritari: Ég keypti hana á Lækjartorgi fyrir 44
árum, það var hinn 10. júlí 1975 og ég stóð við klukk-
una þar, sem er að vísu horfin núna!“
Upplitið á þeim maður!
En veruleikinn er hins vegar sá að það gerist bara í
einu tilviki af milljón sem maður hefur betur í svona
tilviki þannig að ákæruvaldið sé heimaskítsmát og
geti sig hvergi hrært.
En fullyrða má að breska lögreglan mun næstu ár-
in eiga eftir að finna fyrir því að margir Bretar munu
muna nákvæmlega hvar þeir voru á miðnætti 31.
október 2019 og hafa þar með fjarvistarsönnun, þótt
margir þeirra muni ekki nákvæmlega muna hvar þeir
voru tveimur, þremur tímum síðar og ekki hvers
vegna þeir sjálfir og aðrir sem nefndir eru til sög-
unnar hafi fengið öll þessi glóðaraugu sem séu til at-
hugunar hjá yfirvöldum.
En svo er auðvitað hitt til að ekkert sérstakt muni
gerast og að enginn Breti muni muna sérstaklega eft-
ir því hvar hann var á miðnætti 31. október 2019
fremur en um önnur miðnætti endranær.
Spennan eykst.
Morgunblaðið/Eggert
20.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17