Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2019
LÍFSSTÍLL
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Pier leðursófi
Fáanlegur 3 lengdum
Verð frá 259.000 kr.
Frá einu af grænbláu húsunum við höfn-ina leggur ilm af framandi kryddi. Inn-andyra er hlýlegt um að litast og hús-
gögn og litríkar veggskreytingar beint frá því
heita landi Marokkó. Úr hátölurum ómar sér-
stök marokkósk tónlist sem dregur gestina
enn frekar inn í þennan fjarlægja heim. Þarna
inni er gott að gleyma lægðinni sem gengur
yfir og láta sig dreyma um Casablanca og
Marrakesh yfir ilmandi kúskúsi og kjúklingi,
krydduðu kaffi eða dásamlegri köku.
Glaðlegur maður með skrítinn rauðan hatt
með skúfi tekur á móti blaðamanni. Þar er
mættur eigandinn Mohamed, ávallt kallaður
Simo. Hann hefur búið hér á landi í yfir tutt-
ugu ár en ástin dró hann til Íslands á sínum
tíma.
Marokkóskur frændi eldar
„Ég var að vinna sem þjónn á veitingastað í Par-
ís og hún kom þar inn,“ segir hann en kona hans
er Harpa B. Nadhir Bragadóttir.
„Það var ást við fyrstu sýn,“ segir Simo og
nefnir að þau hjón hafi nýlega fagnað tuttugu
ára brúðkaupsafmæli og eigi saman þrjú börn.
Eitt barna hans, Kristófer Karim, vinnur á vökt-
um á Kasbah á móti pabba sínum og heillar víst
gestina upp úr skónum.
Simo segir fyrstu árin hér hafa verið erfið en
eftir sjö ár fór hann að kunna við sig hér. „Núna
finnst mér Ísland paradís.“
Hann er lærður þjónn og hefur unnið fyrir
Icelandair-hótelin í gegnum árin. Simo lét svo
loks gamlan draum rætast; að opna sinn eigin
veitingastað, og auðvitað kom ekki annað til
greina en að bjóða upp á mat frá heimaland-
inu.
„Ég opnaði fyrir um þremur mánuðum. Það
gengur ágætlega en margir vita enn ekki af
okkur. En þeir sem koma eru ánægðir með
matinn og staðinn,“ segir Simo og segir staðinn
opinn alla daga frá 11 til 11.
Á boðstólum er hefðbundinn marokkóskur
matur en Simo réð til sín kokk frá Marokkó.
„Kokkurinn er frændi minn. Þetta er hefð-
bundinn matur frá Marokkó en ekki „fusion“.
Þetta er matur eins og við borðum heima. Við
notum mikið af alls kyns kryddi eins og saffr-
an, engifer og pipar og svo kryddjurtir eins og
kóríander. Maturinn er ekki sterkur heldur
bragðmikill,“ segir Simo og mælir með að fólk
komi í hádegismat eða kvöldmat.
„Svo er líka hægt að koma á miðjum degi og
fá sér kaffi og kökur.“
Eldað í leirpottum
Margir réttir á Kasbah eru eldaðir og fram-
reiddir í þar til gerðum leirpottum sem kallast
tagine. „Tagine-potturinn er settur beint á
hellu eða yfir eld. Allt hráefnið er sett inn og
lokað og það má ekki opna mikið. Þetta er eld-
að hægt með gufu,“ segir hann.
„Vinsælasti rétturinn er lamba-tagine með
sveskjum og kjúklinga-tagine með sítrónu.
Svo er kúskús með karmeliseruðum lauk,
rúsínum og kjúklingi mjög vinsæll réttur; Ís-
lendingar elska smá sætt,“ segir Simo og seg-
ir kúskús mikið notað í marokkóskri matar-
gerð.
„Allt tagine er svo borðað með sérstöku
marokkósku brauði. Það er svo gott að dýfa
því í sósuna. Sósan skiptir öllu máli,“ segir
Simo sem gefur lesendum nokkrar uppskriftir.
Þær flóknu hafa verið einfaldaðar aðeins.
„Það er ekki erfitt að elda marokkóskan mat
en maður verður að vera með rétta kryddið.
Ég mæli með að fólk kaupi krydd þegar það
fer til Marokkó og svo er gott að kaupa sér
tagine-pott.“
Morgunblaðið/Ásdís
Sósan skiptir öllu máli
Simo stendur vaktina á nýjum veit-
ingastað sínum Kasbah sem er við
Geirsgötu. Þar er borinn fram
hefðbundinn marokkóskur matur.
Kasbah, marokkóskur
veitingastaður, er eitt best
geymda leyndarmál Reykja-
víkur. Þar ilmar allt af engifer
og saffran og marokkósk
tónlist fyllir loftið.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Marokkóskar rækjur
Forréttur fyrir 4-6
Aðalréttur fyrir 2
500 g risarækjur, skel-
flettar
5 miðlungsstórir tóm-
atar
1⁄4 bolli fínt skorin stein-
selja
1⁄4 bolli fínt skorið kórí-
ander
2 msk. ólífuolía
1 msk. tómatpurré
(tomato paste)
½ msk. hvítlaukur, rifinn
steinselju, kóríander,
hvítlauk, ólífuolíu og
öll kryddin í u.þ.b. 15
mínútur.
Hrærið af og til.
Leggið rækjur í eld-
fast mót, hellið smá
ólífuolíu yfir og þekið
þær svo með sósunni.
Hitið ofninn í 200°C
og bakið rækjurnar í
ofni í 15-20 mínútur.
Berið fram með
góðu ristuðu brauði.
1 tsk. kummín
1⁄4 tsk. paprika
1 tsk. salt
1⁄4 tsk. pipar
Skerið tómata til
helminga og fjarlægið
fræin.
Skóflið innvolsið úr
tómötunum en hend-
ið hýðinu.
Yfir miðlungshita,
eldið saman tóm-
atana, tómatpurré,