Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2019
LÍFSSTÍLL
MEÐLÆTI EÐA SMAKK
Fyrir 8-10
½ kíló eggaldin
½ kíló tómatar, veljið mjög
rauða
½ rauð paprika
kummín
salt
rifinn hvítlaukur
matarolía til steikingar
Byrjið á að fjarlægja mestallt
hýðið af eggaldininu. Skerið
það svo langsum í meðalstórar
sneiðar.
Saltið og steikið sneiðarnar í
heitri olíu.
Eftir nokkurra mínútna
steikingu notið þið gaffal til að
gata sneiðarnar. Munið að
snúa sneiðunum svo þær steik-
ist á báðum hliðum og verði
gullinbrúnar. Þegar þær eru
tilbúnar, takið þær þá úr olí-
unni og sigtið alla olíu frá.
Geymið olíuna því þið mun-
uð þurfa að nota aðeins af
henni síðar.
Grillið paprikuna í ofni á
háum hita þar til hýðið er
brennt. Takið út og setjið í ís-
kalt vatn í eina mínútu þannig
að hýðið losni frá. Afhýðið og
skerið í litla bita.
Undirbúið tómatana með
því að afhýða þá og fræhreinsa.
Skerið í litla bita.
Bætið við smá salti og eldið
á miðlungs til háum hita þar til
safinn úr þeim er gufaður upp
og eftir stendur þykkur tóm-
atgrunnur. Skerið eggaldin-
sneiðarnar í litla bita og bland-
ið við elduðu tómatana og
grillaða papriku.
Setjið allt hráefnið í pönnu
og bætið við ögn af olíunni
sem þið geymduð. Nú er gott
að bæta við kummíni, salti og
hvítlauk og smakka til.
Eldið á miðlungshita og
hrærið stanslaust þar til tilbú-
ið. Berið fram með brauði.
Geymist í fjóra daga í ísskáp.
Zaalouk (eggaldinmauk)
MEÐLÆTI EÐA SMAKK
Fyrir 4-6
4 tómatar
2 grillaðar grænar paprikur
2 hvítlauksrif
1 msk steinselja
1⁄8 tsk pipar
1⁄4 tsk salt
1⁄4 tsk kummín
2-3 tsk vínedik
papriku, hvítlauk og stein-
selju í skál og blandið.
Setjið í ísskáp ef þið ætl-
ið ekki að bera fram strax.
Þegar bera á fram, lát-
ið þá standa á borði til að
ná stofuhita. Bætið við
salti, pipar, kummíni, ol-
íu og vínediki. Blandið og
berið fram.
1 msk olía
Grillið paprikuna í ofni
við háan hita þar til hýð-
ið er byrjað að grillast.
Þá er paprikan snögg-
kæld í köldu vatni í eina
mínútur þannig að hýðið
losni. Afhýðið.
Setjið tómata, grillaða
Chakchouka
TFAYA
1 kg skorinn laukur
¼ bolli rúsínur, lagðar í
bleyti
2 msk smjör
2 msk hunang (eða sykur)
1 msk orange blossom-
vatn
1⁄4 bolli vatn
1 tsk salt
¼ tsk svartur pipar
1 tsk engiferkrydd
1 tsk túrmerikduft
½ tsk kanill
KJÖTIÐ
1 heill kjúklingur, eða í bit-
um
1 lítill laukur, smátt skorinn
búnt af steinselju
búnt af kóríander
2 msk ólífuolía
½ tsk salt
1⁄4 tsk pipar
1 tsk engiferduft
1⁄4 tsk túrmerik
slatti saffranþræðir
1 kanilstöng
1 bolli vatn
1 dós kjúklingabaunir (til-
búnar)
lúka ristaðar möndlur
KÚSKÚS
280 g kúskús
2 tsk matarolía
½ tsk salt
1 bolli vatn
Eldið kúskúsið eftir leið-
beiningum á pakka.
Byrjið á að útbúa tfaya.
Leggið rúsínur í heitt
vatn og geymið.
Skerið laukana í tvennt
og skerið þá í þunna
strimla. Hendið þeim út í
pott jafnóðum. Bætið úti í
pottinn smjöri, kryddi og
vatni og hrærið saman.
Setjið lok á pottinn og
eldið á frekar lágum hita í
45 mínútur. Hrærið í
þessu af og til.
Bætið rúsínunum út í
ásamt tveimur mat-
skeiðum af sykri og einni
af orange blossom-vatni.
Lækkið hitann og eldið
áfram í 20 mínútur.
Hrærið af og til.
Laukurinn verður
dökkbrúnn og karmelí-
seraður.
Hægt er að elda kjúk-
linginn á botninum á kús-
kús-potti en til að auð-
velda lesendum
matseldina er hægt að
elda kjúklinginn á hefð-
bundinn hátt í ofni.
Setjið kjúklinginn í eld-
fast mót og hellið tveim-
ur matskeiðum af ólífu-
olíu yfir hann. Bætið út í
fínt skorna lauknum
ásamt kryddjurtunum og
kryddinu.
Bætið kjúklingabaun-
um út í fatið.
Eldið kjúklinginn í
klukkutíma. Takið kar-
melíseraða laukinn og
hellið yfir kúskúsið. Setjið
blönduna yfir kjúklinginn,
stráið ristuðum möndl-
um yfir og berið fram.
Kjúklingakúskús með tfaya
BOTN
120 g ósaltað smjör við stofuhita,
skorið í kubba
75 g flórsykur, sigtaður, og smá
auka til skreytingar
3 eggjarauður
250 g hveiti
2 msk vatn
FYLLING
5 miðlungsstór egg
150 g sykur
85 ml sítrónusafi
2 msk fínt rifinn sítrónubörkur
150 ml rjómi
Byrjið á deiginu. Blandið sam-
an í stórri skál, með sleif eða
sleikju, smjöri og flórsykri.
Bætið svo tveimur af þremur
eggjarauðum út í.
Bætið hveitinu við og blandið
þessu saman með fingrunum
þar til kominn er mulningur.
Bætið vatni saman við og
hnoðið saman í kúlu.
Hnoðið deigið á hveitistráðu
borði. Hnoðið þar til blandað
saman, en ekki meira en í þrjá-
tíu sekúndur. Deigið á að vera
laust í sér.
Fletjið það aðeins út með lóf-
unum og setjið í plast. Geymið í
ísskáp í hálftíma.
Næst er að búa til sítrónufyll-
ingu.
Blandið í stórri hrærivél-
arskál saman eggjum, sykri,
sítrónusafa og sítrónuberki og
þeytið í stutta stund. Bætið
rjómanum út í, hrærið, og setj-
ið svo inn í ísskáp.
Dreifið aftur smá hveiti á
borð og takið deigið úr ísskáp.
Notið kökukefli og fletjið deigið
út og hafið það hringlaga svo
það passi í bökunarform.
Þykktin á að vera um 3 mm.
Rúllið deiginu upp á kökukeflið
og rúllið því af yfir 24 cm hring-
laga bökunarform með lausum
botni.
Komið því varlega fyrir í
forminu með því að þrýsta nið-
ur í kantana þannig að það passi.
Passið að það teygist ekki á
því. Skerið af það deig sem lafir
yfir. (Þið getið notað aukadeig-
ið til að fylla í samskeytin til að
fá deigið til að passa betur.)
Gatið deigið með gaffli og
setjið í ísskáp í hálftíma.
Á meðan er gott að hita ofn-
inn í 160°C.
Setjið álpappír ofan á botn
og fyllið með hráum baunum
til að þyngja.
Bakið í tíu mínútur og takið
út. Fjarlægið baunir og álpappír.
Setjið aftur í ofninn og bakið í
aðrar 20 mínútur.
Takið út og penslið botninn
með síðustu eggjarauðunni og
setjið inn í ofn í eina mínútu.
Það lokar botninum þannig að
hann verði ekki blautur þegar
fyllingin er sett yfir hann.
Lækkið hitann niður í 140°C.
Hellið fyllingunni í pott og
vermið varlega, en passið að
hita ekki um of því þá endið þið
með hrærð egg. Hellið fylling-
unni í bökuðu skelina og bakið í
25 mínútur.
Takið úr ofni og látið kólna í
a.m.k. klukkutíma. Dreifið smá
flórsykri yfir kantana. Takið úr
forminu og setjið á fallegan disk
og berið fram.
Sítrónukaka