Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2019
LESBÓK
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Leiðandi í litum
Almött veggmálning
Dýpri litir – dásamleg áferð
Svansvottuð
KVIKMYNDIR Í lok mánaðarins kemur út glæný heim-
ildarmynd eftir Zak Knutson, The Rainbow, sem fjallar
um hina sögufrægu staði Rainbow Bar & Grill og
Whisky A Go Go á Sunset Strip í Hollywood, en báðir
tengjast þeir rokksögunni órofa böndum. Mario heitinn
Maglieri opnaði báða staði á sínum tíma, The Rainbow
er veitingastaður og Whisky A Go Go tónleikastaður og
næturklúbbur, þar sem fjölmörg rokkbönd stigu sín
fyrstu skref. Má þar nefna The Doors, Led Zeppelin,
Van Halen og fleiri. Í myndinni er meðal annars rætt við
Gene Simmons úr Kiss, Slash úr Guns N’ Roses, Ozzy
Osbourne, Litu Ford og Lemmy heitinn Kilmister úr
Motörhead. Maglieri gekk undir nafninu „Kóngurinn á
Sunset Strip“ en fjölskylda hans rekur nú staðina.
Regnbogaviskí
Lemmy heitinn fyrir
utan The Rainbow.
SJÓNVARP Breska leikkonan og handritshöfundurinn
Sharon Horgan fagnar því í ítarlegu samtali við breska
blaðið The Independent að sögur kvenna séu loksins farn-
ar á flug í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Það sé á hinn
bóginn svekkjandi að til þess hafi þurft byltingu á borð
við Metoo sem hún kallar raunar „kynferðis-
brotaheimsendi“ í líflegu viðtalinu. Hún segir
ennfremur að menn hagi sér nú betur en áður
enda beinist kastljósið enn að kynferðis-
legum brotum í faginu. „Nú snýst þetta
hins vegar um þrautseigju; við meg-
um ekki slá slöku við. Þá fer allt í
sama horfið aftur,“ segir Sharon
Horgan.
Sharon Horg-
an er með
mörg járn í
eldinum.
AFP
Sarah Greene í hlutverki sínu.
Morð framin
í Dyflinni
SJÓNVARP Nýr glæpaþáttur,
Dublin Murders, hóf á dögunum
göngu sína í breska ríkissjónvarp-
inu, BBC. Sögusviðið er Dublin árið
2006 og eru tvö mál til rannsóknar;
annars vegar finnst efnileg ball-
erína látin og hins vegar er rykið
dustað af gömlu máli, þar sem þrjú
ungmenni hurfu í skóglendi og að-
eins eitt sneri til baka. Þættirnir
byggjast á bókum Tönu French en
Sarah Phelps skrifar handritið.
Með aðalhlutverk fara Killian Scott
og Sarah Greene. Þess verður
væntanlega ekki langt að bíða að
Dyflinnarmorðin skili sér á skjáinn
hér í fásinninu enda breskir og
írskir glæpaþættir í miklu uppá-
haldi hjá landanum.
BBC/Euston Films
Jóhannes er ósköp venjulegur tíuára drengur. Hann fylgir nas-istum að málum og veit ekkert
skemmtilegra en að kasta hnífum og
brenna bækur í æfingabúðum
Hitlersæskunnar úti í skógi í Þýska-
landi undir lok seinna stríðs. Svo
miklar mætur hefur Jóhannes á
Führernum að sá síðarnefndi skýtur
annað veifið upp kollinum sem
ímyndaður besti vinur. Að berjast
fyrir Hitler er í senn skylda og heið-
ur.
En hvað er a’tarna? Jóhannes,
sem ber hakakrossinn á brjóstinu,
fær sig ekki til þess að kála kanínu í
æfingabúðunum og hlýtur fyrir vikið
gælunafnið Jójó kanína frá hendi
miskunnarlausra leiðbeinendanna.
Bóndinn berst, dóttirin dáin
Þegar Jóhannes snýr heim úr búð-
unum virkar móðir hans, Rosie, af
einhverjum ástæðum ekki eins höll
undir nasista og áður. Með hjálp
einnar rauðvín á kvöldi tekst henni
að vera þokkalega hýr fyrir son sinn
enda þótt bóndi hennar sé að berjast
við ofurefli í einhverju framandi
landi og dóttir hennar sé látin.
Jóhannes áttar sig á sinnaskiptum
móður sinnar þegar hann kemst að
því að hún hefur falið gyðingastúlku
á táningsaldri, Elsu, milli þilja í her-
bergi systur hans heitinnar. Hann
fyllist að vonum hryllingi en bregður
í brún þegar hann sér að ófreskjan
er ekki með horn eins og Myrkra-
höfðinginn. En þegar þau taka tal
saman er Jóhannes knúinn til að
spyrja sig áleitinnar spurningar:
Hefur mér verið sagður sannleik-
urinn um gyðinga? Mun ástin jafnvel
sigra hatrið á endanum?
Aldrei hreyft meira við mér
Út frá þessum þræði blasir ekki
endilega við að nýjasta kvikmynd
nýsjálenska leikstjórans Taika Wai-
titi, Jojo Rabbit, sé gamanmynd en
það er hún nú samt; nánar tiltekið
svört satíra. Myndin byggist á
skáldsögu Christine Leunens, Cag-
ing Skies, og var frumsýnd í Banda-
ríkjunum fyrir helgina.
Jojo Rabbit hefur mestmegnis
fengið góða dóma, ekki síst aðalleik-
ararnir en hin ungu Roman Griffin
Davis og Thomasin McKenzie fara
með hlutverk Jóhannesar og Elsu.
Þá þykir Scarlett Johansson eiga
stórleik sem móðirin. „Einhvern
veginn heldur Johansson áfram að
vera stórkostleg í hlutverki eftir
hlutverk,“ segir Nicholas Barber í
umsögn á vefsíðu breska ríkis-
útvarpsins, BBC. „Eins frábær og
hún alltaf er, þá hefur hún aldrei
hreyft eins mikið við mér og hér.“
Af öðrum leikurum má nefna Sam
Nasisti sem
drepur ekki
kanínur
Adolf Hitler er meðal persóna í kvikmynd leik-
stjórans Taika Waititi, Jojo Rabbit, sem komin er í
kvikmyndahús vestra. Þar er óvenjulegur snún-
ingur tekinn á nasismanum og helförinni.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Scarlett Johansson er sögð eiga stórleik sem þjökuð móðir Jóhannesar litla.
Fox Searchlight Pictures
Sögur kvenna loksins farnar á flug