Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Síða 32
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
prófessor
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Steve Martin
leikari
Kristinn Hrafnsson
blaðamaður
SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
MENTORE model 3052
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 389.000,-
L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 365.000,-
WINSTON model 3066
L 240 cm Áklæði ct. 70 Verð 419.000,-
L 240 cm Leður ct. 15 Verð 589.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Enn eitt haustið fara nemendur Söngskólans í Reykja-
vík á stúfana og syngja í kirkjum á höfuðborgarsvæð-
inu í dag, sunnudag, klukkan 11. Það er Harpa Harð-
ardóttir söngkennari við Söngskólann sem skipuleggur
og hefur umsjón og að þessu sinni raðast þetta svona:
Árbæjarkirkja: Elín Bryndís Snorradóttir, Garðasókn:
Ellert Blær Guðjónsson, Grafarvogskirkja: Halldóra
Ósk Helgadóttir, Grensáskirkja: Íris Sveinsdóttir, Guð-
ríðarkirkja: Ragnhildur Jóhanna Júlíusdóttir, Háteigs-
kirkja: Rosemary Atieno Odhiambo, Laugarneskirkja:
Halldóra Björg Guðmundsdóttir og Seltjarnar-
neskirkja: Sigurbjörg Telma Sveinsdóttir. Einn söngv-
ari kemur fram kl. 17, Björn Ari Örvarsson í Ástjarn-
arkirkju.
Krikjusöngvararnir
2019 fyrir utan
Söngskólahúsið.
Ljósmynd/Jón Kristinn Cortez
Sungið í kirkjum
Það er árleg hefð að nemendur Söngskólans í Reykjavík syngi í flestum kirkjum á
höfuðborgarsvæðinu. Að þessu sinni er kirkjusöngsdagurinn í dag, sunnudag.
Morgunblaðið var í miklum
kosningaham laugardaginn 22.
október 1949 enda stóðu al-
þingiskosningar þá fyrir dyrum.
Óhætt er að segja að pólitískir
andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins hafi fengið að kenna á því,
ekki síst kommúnistar.
„Alger fyrirlitning kommún-
ista á dómgreind kjósenda er
auðsæ af öllu þeirra athæfi,“
sagði í frétt blaðsins. „Sjálfir
þekkja þeir best sinn eigin mál-
efna veikleika. Í innanlandsmál-
efnunum hafa þeir ekkert af
mörkum að leggja annað en
innantómt skvaldur, auk við-
leitninnar til að efla öngþveiti
og upplausn. Því að sú er trú
þeirra, að slíkur jarðvegur sje
bestur fyrir vöxt kommúnism-
ans. Síst eru kommúnistar bet-
ur komnir í utanríkismálunum.
Sannað er, að þeir eru leik-
brúður í höndum valdhafanna í
Moskva. Í einu og öllu setja
þeir hagsmuni hins alþjóðlega
kommúnisma og Sovjet-
Rússlands ofar íslenskum hags-
munum.“
Sósíalistaflokkurinn hlaut
19,5% atkvæða í kosningunum
og 9 menn kjörna; Sjálfstæð-
isflokkurinn 39,5% og 19 menn.
GAMLA FRÉTTIN
Öngþveiti
og upplausn
„Draumur kommúnista, sem ekki rætist,“ stóð í myndatexta undir þessari
teikningu í Morgunblaðinu laugardaginn 22. október 1949.