Morgunblaðið - 19.11.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019
Ármúla 24 • S. 585 2800
Skrifstofa Dags borgarstjóra hef-ur þanist út eins og gorkúlur á
haugi. Engin von er til þess að þar
verði sparað eða dregið úr. Enda
verkefnin óþrjótandi. Vandamál
eru á hverju strái,
ekki einungis þeim
sem skreyttu Bragg-
ann sem kostaði
borgarbúa nokkur
hundruð milljónir.
Nú er það hring-torgið í Hög-
unum. Skrifstofa
borgarstjóra full-
yrðir að hringtorg
séu ekkert meiri
hringtorg en aðrar
götur þótt þau séu í
hring.
Dagur borgarstjóri fari þannigsamviskulega í hring í hverju
máli og beri ósanngjarnar árásir á
sig á torg og fráleitt væri að segja
hann hringtorg af þeim ástæðum.
Enda hafi allir hans starfsmennverið algjörlega ferkantaðir í
þessu máli og flestum öðrum svo
ásakanir í þeirra garð og Hljóm-
skálagarðsins fái alls ekki staðist.
Auðvitað má segja að baráttaborgaryfirvalda í fjölmiðlum
fyrir því að viðurkennt sé að hring-
torg séu ekki hringtorg nema „mað-
ur sjái það með berum augum,“ eins
og fjölmiðlafulltrúinn orðaði það
svo vel, sýni áræði og dirfsku.
En óneitanlega eru að vaknaspurningar um það hvort
Dagur og hans lið noti sömu fjöl-
miðlafulltrúa og spunameistara og
Andrés prins í Lundúnum.
Það skyldi þó ekki vera. En væriþá ekki rétt að skipta?
Dagur B.
Eggertsson
Ferköntuð
hringtorg
STAKSTEINAR
Andrés prins
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bæjarráð Fjarðabyggðar hafnar því
með öllu að sýslumaðurinn á Austur-
landi leggi niður stöðu löglærðs full-
trúa á sýsluskrifstofunni á Eskifirði
og mun ekki sætta sig við slík vinnu-
brögð. Þetta segir m.a. í bókun bæj-
arráðs Fjarðabyggðar í síðustu viku,
en löglærður fulltrúi lætur af störf-
um 1. desember.
Bæjarráð áréttar í bókun sinni að í
reglugerð um umdæmi sýslumanna,
sem sett var árið 2014 í kjölfar breyt-
inga á embættunum, sé kveðið á um
að á Eskifirði eigi að vera sýsluskrif-
stofa. Ljóst sé að á sýsluskrifstofu
hljóti að eiga að starfa löglærður
fulltrúi til að fylgja eftir þeim málum
sem þar eru til vinnslu, ásamt því að
veita almenningi lögfræðilega þjón-
ustu. „Ef það reynist satt að leggja
eigi niður starf löglærðs fulltrúa í
Fjarðabyggð er um að ræða óásætt-
anlega stjórnun embættisins.“
Ekki lagt niður endanlega
Í Austurfrétt er haft eftir Lárusi
Bjarnasyni sýslumanni að ekki sé
verið að leggja stöðuna endanlega
niður, en það verði ekki ráðið í hana
að sinni í það minnsta. „Við erum í
skuld við ríkið og sjáum einfaldlega
ekki fram á að eiga fyrir stöðunni,
ekki að sinni að minnsta kosti,“ segir
Lárus í samtali við Austurfrétt.
Mótmæla fækkun á sýsluskrifstofu
Ekki verður ráðið í stöðu löglærðs
sýslufulltrúa á Eskifirði að svo stöddu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Austurland Aðalskrifstofa sýslu-
manns er á Seyðisfirði, en skrif-
stofur á Eskifirði og Egilsstöðum.
Heimsþing kvenleiðtoga hefst í
Hörpu í dag. Þetta er í annað sinn
sem þingið er haldið hér á landi. Um
450 konur frá 100 löndum taka þátt í
þinginu, sem haldið er af Women
Leaders Global Forum í samstarfi
við ríkisstjórn Íslands og Alþingi.
Heimsþings kvenleiðtoga hefst
með ávörpum Katrínar Jak-
obsdóttur forsætisráðherra, Silvönu
Koch-Mehrin, forseta WPL, og
Steingríms J. Sigfússonar, forseta
Alþingis. Meðal þátttakenda eru
Anne-Birgitte Albrectsen, forstjóri
Plan International, Ann Cairns,
varaformaður hjá Mastercard, Oby
Ezekwesili, forsetaframbjóðandi í
Nígeríu, Anita Bahita, aðstoð-
arframkvæmdastjóri UN Women,
Jackie Hunt, stjórnarmaður Allianz
SE, Julia Gillard, fyrrverandi for-
sætisráðherra Ástralíu, Bana Al-
Abed, tíu ára stúlka og aðgerðasinni
frá Sýrlandi, og Gita Gopinath, yf-
irhagfræðingur hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum. Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti
Íslands, er verndari heimsþingsins.
Morgunblaðið/Hari
Undirbúningur Hópur fólks vann að undirbúningi heimsþingsins í gær.
Heimsþing kvenna
sett í dag í Hörpu
450 konur frá 100 löndum taka þátt