Morgunblaðið - 19.11.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.11.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019 ✝ Alfreð Eyjólfs-son fæddist 25.9. 1934 í Reykjavík. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 31.10. 2019. Foreldrar hans voru Eyjólfur Gíslason verka- maður frá Vötnum í Ölfusi, f. 12.8. 1900, d. 16.9. 1994, og Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja frá Eyrarbakka, f. 5.10. 1902, d. 24.12. 1984. Bræður hans eru: Gísli Eyjólfs- son, f. 1.3. 1932. Maki er Sig- Reykjavík, f. 15.9. 1903, f. 24.6. 1983 og Kristín Bjarnadóttir frá Efri-Miðvík í Aðalvík, f. 19.11. 1900, d. 30.4. 1991. Bróðir Guðjóníu er Sigurbjörn Þór Bjarnason, f. 25.1. 1945. Börn Alfreðs og Guðjóníu eru: Kristín Alfreðsdóttir, f. 6.3. 1959. Eyjólfur Bjarni Al- freðsson, f. 26.3. 1963. Alfreð Jóhannes Alfreðsson, f. 7.8. 1967. Þau eiga sex barnabörn og eitt langafabarn. Alfreð Eyjólfsson ólst upp á Njálsgötu 82. Gekk í Austur- bæjarskóla og tók landspróf frá gagnfræðadeildinni. 16 ára lauk hann burtfararprófi frá Samvinnuskólanum vorið 1951 og kennaraprófi 1954. Hann stundaði nám við Kennarahá- skólann í Kaupmannahöfn 1977-78. Á sumrum sem ungur maður var hann á togurum og átti sjómennskan hug hans all- an. Alfreð var kennari og skólastjóri við Barna- og ungl- ingaskóla Hvammstanga 1954- 56. Kennari við Barnaskóla Vestmannaeyja 1956-57. Kenn- ari við Austurbæjarskólann frá 1957, yfirkennari 1974-79, skólastjóri frá 1979-94. Kenndi íslensku við Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði 1995-2005. Til fjölda ára vann hann á sumrum sem lögreglumaður og frá 1967 kenndi hann íslensku við Lög- regluskóla ríkisins. Útför Alfreðs verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, 19. nóvember 2019, og hefst at- höfnin kl. 15. ríður Ragnheiður Guðnadóttir. Guð- mundur Ingi Eyj- ólfsson, f. 8.2. 1937. Maki er Kristín Sigrún Bjarnadóttir. Gylfi Eyjólfsson, f. 6.2. 1940. Maki er Guð- rún Þorgeirsdóttir. Ásgeir Eyjólfsson, f. 21.6. 1943. Maki er Sjöfn Eyfjörð. Alfreð kvæntist 12.7. 1958 eftirlifandi konu sinni, Guð- jóníu Bjarnadóttur, f. 15.12. 1939. Foreldrar hennar voru Bjarni Þórodsson póstmaður í Nú er hann pabbi minn fallinn frá. Hann var kletturinn í mínu lífi. Í stað þess að vera eins og rjómaterta á hliðinni er ég fullur þakklætis fyrir að hafa átt hann að allt mitt líf. Hann kemur til með að vera í hjarta mínu um ókomna tíð. Farðu í friði, elsku pabbi, og fylgi þér guð og góðar vættir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Eyjólfur Bjarni Alfreðsson. Elsku pabbi minn, Alfreð Eyj- ólfsson, er fallinn frá. Hann var kletturinn í lífi mínu og sakna ég hans mikið og hugsa til hans á hverjum degi. Þú varst alltaf sá sem ég gat leitað til, sama hvað bjátaði á í mínu lífi. Þú gast allt og vissir allt og hafðir svör við öllu sem ég leitaði til þín með. Hann var frábær kennari og skólastjóri og nemendur dáðu hann og báru mikla virðingu fyrir honum enda kom hann fram við alla nemendur sína með virðingu og kærleika. Hann elskaði mömmu mína í yfir 60 ár og hún er búin að missa sinn besta vin. Þau áttu sumarhús í Grímsnesi sem þau sóttu mikið í að vera í saman. Elsku pabbi, takk fyrir að hafa reynst okkur systkinunum vel í gegnum öll þessi ár og öllum afa- börnunum varstu stoð og stytta. Elsku fallegi pabbi minn, ég er full þakklætis fyrir að hafa átt þig að mína ævi og verður þú í hjarta mínu um ókomin ár. Ég veit í hjarta mínu að Eyjólfur afi og Sigríður amma tóku vel á móti þér og þér líður betur núna eftir erfið veikindi. Farðu í friði, elsku pabbi minn, og það verður mikið tómarúm í hjarta mínu. Guðdómlegur geisli blíður greiðir skuggamyrkan geim, á undra vængjum andinn líður inn í bjartan friðarheim. (Hugrún) Guð geymi þig. Þín dóttir Kristín. Kær bróðir er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm, sem hann tókst á við með æðruleysi. Margs er að minnast frá bernskuárunum. All- ir fengum við bræðurnir fimm gott uppeldi og vorum hvattir til góðra verka og þótt húsið væri frekar lítið var alltaf nóg pláss. Það var líka alltaf nóg pláss fyrir gesti sem gistu oft hjá okkur. Alltaf var tími til að spila eða tefla enda var ekkert sjónvarp í þá daga. Svo tóku við önnur verkefni svo sem skólalærdómur. Alfreð fór að loknu landsprófi í Sam- vinnuskólann, sem hann taldi vera gott veganesti út í lífið. Að því loknu innritaðist hann í Kenn- araskólann og útskrifaðist sem kennari, sem varð hans ævistarf og var hann skólastjóri Austur- bæjarskólans frá 1979. Á sumr- um á námsárunum fór hann á togara og kom svo tvíefldur í land þegar skólinn byrjaði. Alli var mjög handlaginn og það kom sér vel þegar hann byrj- aði að byggja hús fyrir fjölskyld- una í Kjalarlandinu. Hann var sannarlega í essinu sínu þegar hann hóf að byggja sumarhús fjölskyldunnar í Grímsnesinu og það var lögð alúð við að planta margvíslegum trjám sem nú prýða land þeirra. Hjónin nutu þess að dvelja á þessum friðsæla stað, sýsla við gróðurinn eða taka sér bók í hönd. Það var sannar- lega ánægjulegt að heimsækja þau í þessa fallegu vin. Alli og Jonna voru dugleg að ferðast og nutu þess að fara til heitari landa þegar kaldir vindar blésu hér heima. Það var notalegt að spjalla við Alla í stofunni þeirra og þegar talið barst að ætt- fræði var hann á heimavelli. Alli hafði einstaklega glæsilega rit- hönd og skrautritun hans var mjög falleg. Á kveðjustund við lítum liðinn tíma, við lítum gjarnan yfir farinn stig. Þú hefur kvatt – og liðin lífsins glíma í ljúfri þökk við einnig kveðjum þig. Við Sjöfn minnumst Alfreðs með virðingu og þökk fyrir sam- fylgdina og sendum Jonnu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Ásgeir. Alfreð Eyjólfsson var í hópi 28 kennara, sem útskrifuðust úr Kennaraskóla Íslands 1954. Vor- ið 2004 komu þau úr hópnum, sem eftir voru og áttu heimangengt, saman í Reykholti og rifjuðu þar upp liðna tíma skólavistar og ævi- starfs. Þau sem heima sátu, fjarri góðu gamni, létu frá sér heyra, þar á meðal skáldið Sigurður Óskar Pálsson. Kveðja hans fer hér á eftir; með henni kveðjum við Alfreð félaga okkar og vottum ástvinum hans einlæga samúð: Minning og þökk Einn vordag fyrir hálfri öld við héldum öll af stað. Hvað mun bjóða lífsins skóli? spurðum. En tíminn löngum svaratregur sannaði öllum það: Á sjálfum okkur reyna slíkt við urðum. Á hálfrar aldar vegferð okkar hefur einn í senn horfið yfir djúpra strauma móðu. Við þögul stóðum eftir og þannig dveljum enn með þökk í hug til félaganna góðu. Fyrir hönd Bekkjarfélagsins Neista, Hinrik Bjarnason. Alfreð Eyjólfsson gekk í Lionsklúbbinn Þór árið 1991. Hann var formaður klúbbsins ár- in 1995 til 96 og starfaði ötullega að mörgum verkefnum og líkn- armálum innan klúbbsins. Eitt stendur þó upp úr þegar Alfreðs er minnst. Það var árið 1994 þeg- ar Lionshreyfingin hratt af stað alþjóðlegu sjónverndarátaki með áherslu að lækna árblindu (River Blindness) hjá börnum í Afríku. Stjórn Lionshreyfingarinnar á Íslandi ákvað að söfnunin yrði ekki á vegum Fjölumdæmisins heldur ættu klúbbarnir hver fyrir sig að ákveða hvernig þeir stæðu að söfnun á sínu svæði. Við í Lionsklúbbnum Þór létum fram- leiða nælu með tákni blindra og Lions og selja til stuðnings verk- efninu. Alfreð Eyjólfsson vann það afrek að virkja fermingarár- ganginn í skólum höfuðborgar- svæðisins til að selja þessi merki og það varð til þess að okkar klúbbur varð langsöluhæstur í þessu átaki. Alfreð var í kjölfarið sæmdur heiðursmerki Lions kenndu við Melvin Jones, en þetta átak okkar Þórsmanna hef- ur aldrei verið virt sem skyldi. Seinustu ár hafa þau Alfreð og Jonna mikið dvalið í sólarlöndum og þátttaka Alfreðs verið minni í störfum klúbbsins. En alltaf var gaman að fá þau hjón á jólafund- ina okkar. Við sendum Jonnu og fjöl- skyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Lionsklúbbsins Þórs, Gunnar Már Hauksson. Alfreð Eyjólfsson ✝ BjörgólfurStefánsson Björgólfsson fæddist í Reykja- vík 7. desember 1951. Hann lést í Reykjavík 9. októ- ber 2019. Foreldrar hans voru Björgólfur Stefánsson, f. 3. júní 1921, d. 8. október 2004, og Unnur Jóhannsdóttir, f. 12. apríl 1923, d. 21. mars 2009. Björgólfur faðir hans rak Skó- verslun B. Stefánssonar, Laugavegi 22, en það var fjöl- skylduhús. Björgólfur eldri Systkini Björgólfs eru: Oddný, f. 9. desember 1943, fyrrverandi flugfreyja; Jó- hanna, f. 26. október 1953, d. 21. nóvember 1995, skrif- stofustjóri hjá Ratsjárstofnun; Jóhann, f. 26. febrúar 1962. Björgólfur ólst upp í Reykjavík til 11 ára aldurs, en eftir það í Keflavík. Hann varð stúdent frá MR og nam ensku og latínu í HÍ. Björg- ólfur vann um tíma sem af- greiðslumaður hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli og varð svo matsveinn á báti. Hann átti við veikindi að stríða og var á seinni árum í dagdvöl í Björginni í Njarðvík og Kefla- vík. Hann hélt heimili með Jó- hanni bróður sínum á æsku- heimili þeirra, Háholti 13 í Keflavík. Útförin fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 19. nóvem- ber 2019, klukkan 13. varð seinna bruna- vörður á Kefla- víkurflugvelli. Hann var sjötti í röð níu barna hjónanna Lúðvíks Rúdólfs Kemp, bónda og vega- vinnuverkstjóra á Illugastöðum í Skagafirði, og konu hans Elísa- betar Stefáns- dóttur Kemp. Hann ólst upp hjá hjónunum Oddnýju Stefánsdóttur, systur Lúðvíks, og manni hennar, Björgólfi Stefánssyni, skókaupmanni í Reykjavík. Björgólfur bróðir minn fædd- ist 7. desember 1951, tveimur dögum fyrir átta ára afmælis- daginn minn, þannig að hann var kærkomin afmælisgjöf. Þangað til hafði ég verið einbirni og mik- ið öfundað vinkonur mínar sem áttu lítil systkini. Björgólfur var mjög veikur í frumbernsku og var mikið um svefnlausar nætur og læknisheimsóknir. Um tíma var hann á Landakotsspítala og varð mamma að leggjast inn líka til að gefa honum brjóst. Tveim- ur árum seinna fæddist Jóhanna systir okkar, sem var kölluð himnaljós, því hún var alltaf svo góð og blíð og það þurfti lítið að hafa fyrir henni. Björgólfur var afskaplega bráðger og skýr. Mér finnst hann aldrei hafa skriðið eða gengið með; hann bara hljóp af stað og það kjaftaði á honum hver tuska. Hann var mjög góð- ur í skóla, fljótur að læra og skilja. Hann fór í MR og HÍ í ensku og latínu. Björgólfur var í miklu uppáhaldi hjá ömmu okk- ar, Oddnýju Stefánsdóttur, enda var hann skírður eftir manni hennar, Björgólfi Stefánssyni skókaupmanni. Við systkin átt- um líka ömmu og afa á Grund- arstíg 5a, Jóhönnu og Jóhann. Við sóttum mikið þangað, því margir leikfélagar voru þar í ná- grenninu og amma alltaf tilbúin með eitthvað gott í svanginn. Björgólfur vann um tíma hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli og minnast samstarfsfélagarnir þaðan hans með gleði. Hann vann einnig sem kokkur á bát. Á unga aldri fóru andleg veik- indi að segja til sín og upphófust þá erfiðir tímar. Skilningur og hjálp við andlegum veikindum var lengi vel af skornum skammti, en fyrir um 10 eða 15 árum fékk ég góða aðstoð hjá Hjördísi, félagsmálastjóranum í Keflavík, og fór Björgólfur í dagdvöl í Björgina þar sem hon- um leið svo vel hjá Guðrúnu Greips og Lóu og Dagnýju og brilleraði í skák og Trivial Pursuit. Björgólfur hélt mikið upp á barnabörnin mín, Ólöfu Oddnýju og Eirík, og ljómaði allur þegar hann sá þau og gleymdi aldrei að gefa þeim jólagjafir. Á æskuárunum, þegar við bjuggum í Reykjavík, var Björg- ólfur mjög duglegur að fara einn til Keflavíkur með rútunni til að hjálpa pabba með húsbygg- inguna á Háholti 13. Pabbi var mikill áhugamaður um þjóðlegan fróðleik og göngu- ferðir, löngu áður en þær kom- ust í tísku, og á ég góðar minn- ingar um gönguferðir um Reykjanesskagann, Esjuna og Þingvelli með pabba og systk- inum mínum. Við gengum að flugvélarflakinu á Fagradals- fjalli, frá Grindavík út að Reykjanesvita, upp á Keili og um Ketilstíg. Nú eru þau bæði búin að kveðja, systkinin mín litlu, sem ég varð svo fegin að eignast. Blessuð sé minning ykkar. Takk fyrir að hafa verið til. Stóra systir, Oddný Björgólfsdóttir. Það húmar að vetri, laufblöðin fallin, myrkrið er skollið á og fyrsti snjórinn umlykur allt og gefur manni smá birtu og yl. Ég var staddur í Noregi þegar ég fékk þær slæmu fréttir að Björg- ólfur frændi minn væri látinn. Þegar ég hugsa til Björgólfs sé ég alltaf fyrir mér ungan mann sem hafði vonir og þrár eins og við hin, en einhvern veginn fáum við ekki öll endilega sömu tæki- færi til að lifa og dafna. Björg- ólfur átti við geðræn veikindi að stríða bróðurpartinn af sínu lífi, ef hann hefði verið ungur maður á okkar tíma hefði hann fengið mun betri aðhlynningu og lyf. Það var hans hlutskipti að lifa á þeim tímum þegar geðsjúkdóm- ar voru feimnismál og úrræði fá. Mín fyrsta minning um Björg- ólf er þegar hann kom af sjónum og færði mér lítinn leikfangabíl. Ég var vanur því þegar móðir mín kom heim úr langri vinnu- ferð að hún kæmi með eitthvað fyrir mig þannig að Björgólfur vildi ekki vera eftirbátur og keypti alltaf eitthvað fyrir mig í kaupfélaginu, þrátt fyrir að hann væri aðeins að koma úr veiðitúr. Ég bar alltaf mikla virðingu fyrir Björgólfi, hann var mikill námsmaður og var alvitur. Aldr- ei tókst mér að vinna hann í skák. Eftir að Björgólfur komst á ný lyf fyrir nokkur árum birti heldur betur yfir honum. Eitt kvöldið hringdi hann í mig, en það hafði hann aldrei gert, og bað mig að aðstoða sig við að kaupa bifreið. Hann bað mig síð- an að kenna sér að keyra, því hann hafði ekki keyrt í tugi ára. Það tók mig eina kvöldstund að kenna honum að keyra, já hann Björgólfur okkar var mjög klár. Honum þótti voðalega vænt um börnin okkar Villu og passaði alltaf upp á að þau fengju gjafir á afmælum og jólum. Það er ein- læg ósk mín að hulunni og for- dómunum verði svipt af þeim sem glíma við geðræna kvilla, það eiga allir að eiga rétt á því að fara út í lífið með sömu tækifæri og þrár og við hin. Ég kveð þig með virðingu og ást, kæri Björgólfur. Nú ertu kominn á betri stað og í faðm ömmu og afa. Með ást, Þórólfur, Vilborg, Ólöf Oddný og Eiríkur. Björgólfur Stefáns- son Björgólfsson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR, Njarðarvöllum 2, Njarðvík, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, fimmtudaginn 14. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 26. nóvember klukkan 13. Sæunn Á. Sigurbjörnsdóttir Guðmundur Jónsson Guðrún Hrönn Einarsdóttir Jóhann Steinsson Þórunn Drífa Deaton Aldís Dröfn Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR HELGASON arkitekt og skipulagsfræðingur, 2 Meadow Place, Edinborg, lést laugardaginn 16. nóvember. Jarðarförin fer fram í Edinborg. Þórkatla Óskarsdóttir Ingibjörg Ingólfsdóttir Martin Smith Þórunn Ingólfsdóttir Christopher Mason Stefan Helgason Smith Finlay Helgason Smith Robert Óskar Mason Matthew Ólafur Mason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.