Morgunblaðið - 19.11.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.11.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019 60 ára Finnbogi er Reykvíkingur, ólst upp í Vogahverfinu en býr í Vesturbænum. Hann er menntaður myndlistar- maður frá Myndlistar- og handíðarskólanum og Jan Van Eyck aka- demíunni í Maastricht í Hollandi. Hann vinnur mikið með hljóðtengdar innsetn- ingar og verk. Maki: Kristína Ragnarsdóttir, f. 1962, kennari í Háteigsskóla. Börn: Bergur, f. 1982, Anna, f. 1986, Stefán, f. 1992, og Marta, f. 1994. Barna- börn eru orðin fjögur. Foreldrar: Pétur Eiríksson, f. 1917, d. 1998, fiskmatsmaður í Reykjavík og sundkappi, og Marta Finnbogadóttir, f. 1922, d. 1981, húsfreyja í Reykjavík. Finnbogi Pétursson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Einhver sem þú þekkir þarf á þér að halda núna. Það dregur ský fyrir sólu í stutta stund. Stundum þarf maður að synda á móti staumnum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að leggja áherslu á að tjá þig skýrt og skorinort svo enginn þurfi að efast um skoðun þína. Hægðu aðeins á þér, þó ekki væri nema til að vera kurteis. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mundu að sátt innan fjölskyld- unnar stuðlar að hamingju og heilbrigði. Einhver heillar þig upp úr skónum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Tafir á ferðaáætlunum fara í taug- arnar á þér. Vertu eins óhefðbundin/n og þig langar til. Ekki láta þér bregða þótt makinn sé eitthvað fjarlægur þessa dag- ana. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt hugmyndir þínar séu óhefð- bundnar eru þær einstaklega hagnýtar. Sláðu skjaldborg um ættingja sem glímir við veikindi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert allra vinur þessa stundina og ættir að láta þér vel líka í flestum til- vikum. Stór samningur er í kortunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er ekki rétti dagurinn til þess að deila við aðra. Láttu ekkert draga úr þér kjark, þú ert sterkari en þú heldur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú færð hugsanlega óvænt tækifæri til þess að ferðast meira eða mennta þig. Leitaðu ráða hjá þeim sem hafa farið sömu braut. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert vinsæll meðal vina þinna og þeir leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á að halda. Ekki stinga höfðinu í sandinn hvað viðkemur fjármálunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhverra hluta vegna fara samstarfsmenn þínir í taugarnar á þér þessa dagana. Bíttu í tunguna á þér. Það er í lagi að gera ekki neitt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Eitthvað verður til þess að gamlar minningar koma upp, bæði góðar og sárar. Reyndu að skipuleggja þig betur en þú hefur gert hingað til. 19. feb. - 20. mars Fiskar Reyndu að gera eitthvað skemmti- legt með börnunum í kvöld. Það eru ýmis ljón á veginum í lífi þínu um þessar mundir en með seiglunni tekst þér allt. Síðan bættist við laufabrauðið sem vakti mikinn fögnuð íbúa á suðvest- urhorninu, laufabrauðið var bæði framleitt útskorið, steikt og tilbúið beint á jólaborðið, en líka voru framleiddar útflattar deigkökur, sem voru tilbúnar í laufabrauðssam- komur fjölskyldna, sem komu sam- an, skáru og steiktu, þetta varð mjög vinsælt.“ Haraldur hefur alla tíð verið mjög virkur í félagsstarfi. Ellefu ára gam- all gekk hann til liðs við skátahreyf- inguna, upphaflega í Hafnarfirði, síðar í Kópavogi, eftir að foreldrar hans stofnuðu skátafélagið Kópa og þar kynntist hann konuefni sínu, Ásrúnu Davíðsdóttur, sem hann kvæntist 1969 og það sama ár stofn- aði Haraldur Hjálparsveit skáta í Kópavogi, var þar fyrsti formaður og gegndi svo ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Landssamband hjálp- arsveita skáta. Hann gekk til liðs við Landssamband bakarameistara og var forseti þess í 5 ár, gegndi þar gömlum og góðum íslenskum hefð- um; flatkökur sem voru upphaflega útflattar af miklum krafti með hönd- unum, við bættust svo kleinur sem urðu mjög vinsælar, ég man að fyrir tilboð hjá Bónus steiktum við yfir 100 þúsund kleinur á einum degi. H araldur Friðriksson bakarameistari, fæddist 19. nóvember 1944 í Uppsölum í Vestmannaeyjum og þar ólst hann upp fyrstu tvö árin en þá fluttist fjölskyldan á Eyrar- bakka. „En tenging mín við Vest- mannaeyjar er mjög sterk því ég dvaldi mikið hjá ömmu og afa í Vestmannaeyjum eftir að fjöl- skyldan flutti burt.“ Faðir Haraldar, Friðrik bak- arameistari, réð sig til bakarísins sem kaupfélagið rak á Eyrarbakka en tveimur árum seinna var það lagt niður, fjölskyldan flutti á Selfoss og Friðrik var ráðinn í bakaríið sem Kaupfélag Árnesinga rak. Þar bjó fjölskyldan í fimm ár en pabbi hans hafði önnur áform, vildi flytja á höf- uðborgarsvæðið og hefja rekstur eigin bakarís. Hann hóf byggingu íbúðarhúss við Þinghólsbraut í Kópavogi og á meðan bjuggu bræð- urnir Halli og Finnur ásamt mömmu Steinu hjá ömmu og afa í Vestmannaeyjum. Árið 1953 flutti fjölskyldan í Kópavoginn, í húsið hálfklárað, húsið sem Halli bjó í með fjölskyldunni, þar til hann gifti sig og þá hafði bæst við í fjölskylduna lítil systir, Dröfn. Þar byrjaði hann að hjálpa til í bakaríinu sem pabbi hans setti upp, fyrst í kjallaranum, en síðan í viðbyggingu við húsið. Haraldur stundaði barna- skólanám á Selfossi og í Vest- mannaeyjum og nú hélt það áfram í Kópavogi, í barnaskóla Kópavogs. Þaðan lá leiðin í Gagnfræðaskóla Austurbæjar, því á þeim tíma var ekki farið að reka framhaldsskóla í Kópavogi og síðan í Iðnskólann í Reykjavík, eftir að Haraldur hóf nám í bakaraiðn með samningi við Sæmund Sigurðsson bakara- meistara í Austurveri. Að námi loknu hóf Haraldur störf í bakaríi föður síns, Ömmubakstri og 1975 fluttu þeir feðgar bakaríið í nýtt húsnæði að Kársnesbraut 96. Haraldur tók síðar við rekstri þess og starfaði þar allt þar til hann lét af störfum og seldi bakaríið, eftir 40 ára starf. „Frá upphafi var brauð- meti Ömmubaksturs samkvæmt ýmsum trúnaðarstörfum og sat í stjórn Landssambands iðnaðar- manna og í skólastjórn Mennta- skólans í Kópavogi sem fulltrúi bak- ara. Haraldur gekk til liðs við Rotary-hreyfinguna, var upphaflega í Rotaryklúbbi Kópavogs, þar sem hann var forseti en flutti sig síðan yfir í Rotaryklúbbinn Borgir. Helstu áhugamál Haraldar hafa mikið snúist um útivist. Skátastarfið og hjálparsveitarstarfið kallaði á mikla útiveru og þjálfun. Árið 1977 byggði fjölskyldan sumarbústað í Vaðnesi í Grímsnesi, sem fékk nafn- ið Uppsalir eftir æskustöðvunum í Vestmannaeyjum og þar hefur fjöl- skyldan átt sinn sælureit og dvalið löngum, stundað útivist og skóg- rækt og notið samveru við fjöl- skyldumeðlimi á öllum aldri. Annað sem hefur verið mjög stór hluti af lífinu er skútusiglingar. „Við hjónin keyptum hlut í skútu upp úr 1980, sem við sigldum um Mið- jarðarhafið og Adríahafið í 25 ár. Haraldur Friðriksson bakarameistari – 75 ára Söngskólavinahópurinn Ingi, Haraldur, Snorri, Þórleifur, Soffía, Valgerður, Ásrún og Elísabet að halda upp á samanlagt 200 ára brúðkaupsafmæli á Jómfrúnni en þau gengu öll í hjónaband árið 1969. Steikti 100.000 kleinur á einum degi Á skútunni Haraldur og Ásrún stödd á Mallorca um aldamótin. 40 ára Guðjón er frá Selfossi en býr í Hlíð- unum í Reykjavík. Hann lærði hagfræði við Háskóla Íslands, lauk meistaraprófi í þjóðhagfræði frá Kaupmannahafnar- háskóla og starfar sem sérfræðingur hjá Seðlabanka Íslands. Maki: Kristrún Friðriksdóttir, f. 1985, teymisstjóri félagslegrar heimaþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Börn: Emilía Ólöf, f. 2007, Þórarinn Smári, f. 2014 og Sigríður Oddný, f. 2018. Foreldrar: Emil Rúnar Guðjónsson, f. 1947, póstbílstjóri og Oddný Magnús- dóttir, f. 1947, kennari. Þau eru bús. á Selfossi. Guðjón Emilsson Til hamingju með daginn Reykjavík Sigríður Oddný Guðjóns- dóttir fæddist 15. september 2018. Hún vó 2.634 g og var 45 cm löng. Foreldrar hennar eru Kristrún Frið- riksdóttir og Guðjón Emilsson. Nýr borgari Metabolic Reykjavík | Stórhöfða 17 | metabolicreykjavik.is Metabolic Reykjavík Ný þjálfunarstöð við Gullinbrú Faglegt Fjölbreytt Skemmtilegt Æfðu á þínum hraða, á þínu erfiðleikastigi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.