Morgunblaðið - 19.11.2019, Blaðsíða 24
VIÐTAL
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þegar ég mætti inn í landsliðshópinn
var ég alveg vel stressaður og vissi
ekki hvernig ég ætti að vera og
hvernig allt væri. En eftir einn dag
fannst mér ég bara kominn inn í hóp-
inn og hlakkaði til að spila fótbolta,“
segir Mikael Anderson, glaðbeittur
og hress eftir sína fyrstu mótsleiki
fyrir A-landslið Íslands í fótbolta.
Mikael hefur fetað hratt upp met-
orðastigann síðustu mánuði og ef-
laust eru margir sem lítið þekkja til
þessa 21 árs gamla, leikna og hæfi-
leikaríka kantmanns, sem ólst upp í
Keflavík og Sandgerði. Honum var
hent í djúpu laugina þegar hann fékk
að spila lokamínúturnar í leiknum
mikilvæga við Tyrkland í Istanbúl
síðasta fimmtudag, og lagði svo upp
mark í sigri í fyrsta byrjunarliðsleik
sínum, gegn Moldóvu í fyrrakvöld.
„Ég er mjög ánægður og stoltur að
hafa náð að spila fyrir landsliðið.
Þetta er búið að ganga vel og það er
létt að komast inn í hópinn. Það eru
svo margir flottir gæjar sem að taka
vel á móti manni og gera það létt fyrir
mann að koma inn. Ég er mjög glaður
með þessa ferð og vonandi heldur
þetta áfram,“ segir Mikael sem á að
baki 13 leiki fyrir U21-landslið Ís-
lands. „Við erum nokkrir [í A-
landsliðshópnum] sem þekkjumst úr
yngri landsliðunum en þessir reynd-
ari leikmenn eru góðir og vita alveg
hvernig þeir eiga að taka á móti ung-
um leikmönnum sem eru kannski að-
eins stressaðir í byrjun,“ segir Mika-
el. Leikurinn við Tyrki gleymist
eflaust seint:
„Þetta voru ógeðslega mikil læti og
risastór stund fyrir mig. Ég hef aldrei
prófað að spila á velli þar sem eru
svona rosaleg læti og stemningin var
bara geggjuð. En ég er líka svona
leikmaður sem elskar svona stemn-
ingu. Ég elska læti og að það sé
margt fólk. Það hvetur mig enn frek-
ar áfram,“ segir Mikael.
Hlýddi skilaboðum Hamréns
Hann stóð sig nægilega vel til að fá
sæti í byrjunarliði gegn Moldóvu:
„Ég bjóst ekki við þessu tækifæri
þegar ég kom inn í hópinn en þegar
ég fékk að vita að ég yrði í byrj-
unarliðinu þá vissi ég að ég yrði að
nýta þetta tækifæri eins vel og ég
mögulega gæti. Það eru ekki margir
sem fá að spila í byrjunarliði í und-
ankeppni EM,“ segir Mikael, sem
fékk skýr skilaboð frá Erik Hamrén
fyrir leikinn og var snemma búinn að
leggja upp mark:
„Hlutirnir hafa gerst mjög hratt en
ég er bara nokkuð sáttur með mína
frammistöðu. Hamrén sagði mér að
vera bara ég – ekki vera að breyta því
hvernig ég spila. Ég er leikmaður
sem finnst gott að fá boltann í fæt-
urna og gerir eitthvað með boltann í
nánast hvert skipti. Ég átti ekki að
vera hræddur við að gera bara mína
hluti. Ég hlustaði á þjálfarann og er
sáttur með hvernig fór,“ segir Mika-
el, sem ætti einnig að vera fullur
sjálfstrausts sem leikmaður Midtjyll-
and sem er langefst í dönsku úrvals-
deildinni. Þar hefur hann skorað tvö
mörk í síðustu fjórum leikjum:
„Já, við erum í góðum málum, sjö
stigum yfir FCK. Við höfum spilað
vel og ég hef bæði skorað nokkur
mörk og átt stoðsendingar. Þetta hef-
ur verið fínt tímabil en ég verð að
halda áfram, því þetta getur breyst
svo fljótt,“ segir Mikael yfirvegaður.
Mikael bjó fyrstu þrjú ár ævinnar í
Keflavík en flutti svo í Sandgerði þar
sem hann byrjaði að æfa fótbolta
fjögurra ára gamall með liði Reynis.
Níu ára gamall flutti hann svo með
fjölskyldu sinni til Danmerkur þar
sem hann æfði fyrst með liði Harlev
en fór fljótlega til AGF Aarhus og
þaðan til Midtjylland þar sem hann
hóf meistaraflokksferilinn. Frá Midt-
jylland hefur Mikael verið lánaður til
Vendsyssel í dönsku 1. deildinni 2017-
2018, og svo til Excelsior í Hollandi á
síðustu leiktíð.
Mjög ánægður með að
hafa valið Ísland
Faðir Mikaels, Neville Anderson,
er frá Jamaíku en hann kom til Ís-
lands til starfa fyrir bandaríska her-
inn. Þar kynntust þau María Guð-
mundsdóttir, móðir Mikaels, árið
1996. Mikael gat því tæknilega séð
valið á milli þriggja A-landsliða þegar
ljóst var að hann hefði svo mikla hæfi-
leika; Íslands, Danmerkur og Ja-
maíku, en þriðja kostinum velti hann
aldrei alvarlega fyrir sér. Hann lék
hins vegar fyrir yngri landslið bæði
Danmerkur og Íslands, áður en hann
ákvað að klæðast bláu treyjunni:
„Ég hugsaði mest út í fjölskylduna
mína og stoltið sem fylgir því að spila
fyrir landsliðið. Eftir leikinn sem ég
spilaði við Tyrkland, og skilaboðin
sem ég fékk frá fjölskyldunni, þá fann
ég hvað þetta var allt þess virði. Þetta
gerði mig svo stoltan og ég er mjög
ánægður með að hafa valið Ísland. Ég
hef vissulega búið lengur í Danmörku
en á Íslandi, og hugsaði út í þetta
þegar ég var 17-18 ára, en þegar ég
spilaði fyrir Danmörku þá fann ég
ekki fyrir þessu sama stolti og stuðn-
ingi,“ segir Mikael.
Næstu mótsleikir Íslands eru í lok
mars þegar liðið leikur í umspili um
sæti á EM og eftir frammistöðu sína
er ljóst að Mikael gerir tilkall til þess
að verða einnig í landsliðshópnum þá:
„Við vitum bara að við þurfum að
vinna tvo leiki og það er ekkert annað
í boði í okkar huga. Ég vona bara að
ég verði í hópnum, það er það eina
sem ég hugsa um núna.“
Margir flottir gæjar sem
að losa mann við stressið
Mikael valdi Ísland fram yfir Danmörku Naut látanna í Tyrklandi í botn
Morgunblaðið/Eggert
Ísland Mikael Anderson hefur leikið fyrir U21-landslið Íslands og á nú þrjá
leiki fyrir A-landsliðið, en sá fyrsti var vináttulandsleikur við Indónesíu.
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019
Uppselt er á leik heimsmeistara
Dana og Íslendinga í 1. umferð
riðlakeppni Evrópumóts karla-
landsliða í handknattleik en Evr-
ópumótið fer fram í janúar þar sem
spilað verður í þremur löndum, Sví-
þjóð, Noregi og Austurríki.
E-riðill Íslands verður spilaður í
Malmö Arena sem tekur 15 þúsund
manns og að því er fram kemur í
sænska blaðinu Expressen er upp-
selt á leik Dana og Íslendinga sem
eigast við 11. janúar.
Rússland og Ungverjaland leika
einnig í E-riðilinum. sport@mbl.is
Uppselt á leik Ís-
lendinga og Dana
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrirliði Guðjón Valur Sigurðsson
verður í eldlínunni á EM í janúar.
Andri Þór Björnsson, Bjarki
Pétursson og Guðmundur Ágúst
Kristjánsson eru allir úr leik á loka-
stigi úrtökumóts fyrir Evr-
ópumótaröðina í golfi eftir fjórða
hringinn á Spáni í gær.
Leika þurfti á samanlagt fjórum
höggum undir pari eða betur til að
komast í gegnum niðurskurðinn.
Guðmundur var næstur því, sam-
tals á pari, eftir að hafa verið á
höggi undir pari fyrir gærdaginn.
Bjarki lék samtals á þremur högg-
um yfir pari og Andri samtals á sjö
höggum yfir pari.
Náðu ekki inn á
Evrópumótaröð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á pari Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson lék best Íslendinganna.
Undankeppni EM karla 2020
D-RIÐILL:
Írland – Danmörk .....................................1:1
Gíbraltar – Sviss........................................1:6
Lokastaðan:
Sviss 8 5 2 1 19:6 17
Danmörk 8 4 4 0 23:6 16
Írland 8 3 4 1 7:5 13
Georgía 8 2 2 4 7:11 8
Gíbraltar 8 0 0 8 3:31 0
Sviss og Danmörk eru komin áfram á
EM. Írland fer í A- eða B-umspil og
Georgía í D-umspil.
F-RIÐILL:
Svíþjóð – Færeyjar ...................................3:0
Spánn – Rúmenía ......................................5:0
Malta – Noregur........................................1:2
Lokastaðan:
Spánn 10 8 2 0 31:5 26
Svíþjóð 10 6 3 1 23:9 21
Noregur 10 4 5 1 19:11 17
Rúmenía 10 4 2 4 17:15 14
Malta 10 1 0 9 3:27 3
Færeyjar 10 1 0 9 4:30 3
Spánn og Svíþjóð eru komin áfram á EM.
Noregur fer í C-umspilið. Rúmenía fer í A-
eða C-umspilið.
J-RIÐILL:
Liechtenstein – Bosnía ............................0:3
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Ítalía – Armenía ........................................9:1
Grikkland – Finnland................................2:1
Lokastaðan:
Ítalía 10 10 0 0 37:4 30
Finnland 10 6 0 4 16:10 18
Grikkland 10 4 2 4 12:14 14
Bosnía 10 4 1 5 20:17 13
Armenía 10 3 1 6 14:25 10
Liechtenstein 10 0 2 8 2:31 2
Ítalía og Finnland eru komin áfram á
EM. Bosnía fer í B-umspilið.
Vináttulandsleikur
Argentína – Úrúgvæ.................................2:2
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Höttur – Skallagrímur ......................... 92:89
Breiðablik – Snæfell........................... 116:85
Sindri – Selfoss ..................................... 79:88
Staðan:
Hamar 7 7 0 682:588 14
Höttur 8 7 1 699:632 14
Breiðablik 7 6 1 698:568 12
Vestri 7 4 3 628:551 8
Álftanes 7 3 4 552:593 6
Selfoss 7 2 5 533:577 4
Sindri 6 1 5 496:545 2
Snæfell 8 1 7 597:737 2
Skallagrimur 7 1 6 558:652 2
NBA-deildin
LA Lakers – Atlanta .........................122:101
Orlando – Washington ..................... 125:101
New Orleans – Golden State ........... 108:100
Memphis – Denver ........................... 114:131
Cleveland – Philadelphia ................... 95:114
Sacramento – Boston ......................... 100:99
KÖRFUBOLTI
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Pier leðursófi
Fáanlegur 3 lengdum
Verð frá 259.000 kr.