Morgunblaðið - 19.11.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019
Hvað er gerast með besta
spyrnumann þjóðarinnar og þótt
víðar væri leitað? Gylfi Þór Sig-
urðsson virðist vera búinn að
missa allt sjálfstraust á víta-
punktinum.
Gylfa brást bogalistin í leikn-
um gegn Moldóvum í fyrrakvöld
og þar með hefur hann klúðrað
fjórum af síðustu sex víta-
spyrnum sem hann hefur tekið
fyrir landsliðið.
Nokkrir stuðningsmenn
Everton voru fljótir að bregðast
við á Twitter þegar þeir fréttu af
vítaspyrnuklúðri Gylfa í leiknum
á móti Moldóvum og þeir vilja
ekki sjá hann taka fleiri víta-
spyrnur fyrir lið sitt.
Gylfi hefur tekið 6 víta-
spyrnur fyrir Everton frá því
hann kom til liðsins og hefur að-
eins skorað úr helmingi þeirra. Á
síðustu leiktíð fóru 3 vítaspyrnur
í súginn hjá okkar manni.
Ef Erik Hamrén landsliðs-
þjálfari ákveður að velja aðra
vítaskyttu legg ég til að hún
verði Birkir Bjarnason, Kolbeinn
Sigþórsson eða Alfreð Finn-
bogason, sem hefur skorað úr
öllum 9 vítaspyrnunum sem
hann hefur tekið fyrir Augsburg.
Það eru fleiri flottir spyrnu-
menn en Gylfi sem hefur orðið á í
messunni af vítapunktinum en
Lionel nokkur Messi lét Alisson
verja frá sér í leik Argentínu og
Brasilíu í síðustu viku. Messi
náði frákastinu og skoraði sig-
urmarkið eins og Gylfi gerði á
móti Moldóvum.
Messi hefur á ferli sínum
með landsliðinu og Barcelona
tekið 112 vítaspyrnur. Hann hefur
skorað úr 86 af þeim en klikkað
úr 25. Messi heldur hins vegar
áfram að taka vítin fyrir lið sín.
Hann er kóngurinn!
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik þarf á fleiri atvinnumönnum
að halda ef liðið ætlar sér að vera sam-
keppnishæft við sterkustu landslið
Evrópu, að sögn Benedikts Guð-
mundssonar, þjálfara liðsins. Íslenska
liðið reið ekki feitum hesti frá fyrstu
tveimur leikjum sínum í undankeppni
EM 2021 á dögunum en liðið tapaði í
Laugardalshöll fyrir Búlgaríu á
fimmtudaginn síðasta, 84:69, og þá
steinlá liðið í Tasos Kampouris-
höllinni í Grikklandi á sunnudaginn,
89:54.
„Þetta voru fyrstu leikir liðsins und-
ir minni stjórn í Evrópukeppni og ég
kynntist liðinu betur í þessu verkefni
heldur en á Smáþjóðaleikunum í
Svartfjallalandi síðasta sumar. Ég átt-
aði mig líka betur á því hvar við erum
á eftir, sérstaklega gagnvart þessum
sterkari þjóðum eins og Grikklandi.
Fyrir mig persónulega var þetta mjög
lærdómsríkur gluggi því við fórum inn
í þessi tvö verkefni með ákveðnar
væntingar. Við ætluðum okkur klár-
lega meira, en þetta varð niðurstaðan
og þannig er það nú bara.“
Benedikt var meðvitaður um að
Grikkir væru með talsvert sterkara lið
en íslenska liðið enda leika margir
leikmenn Grikkja í Evrópudeildinni,
eða Euro League, sem er sterkasta fé-
lagsliðakeppni Evrópu.
„Við vissum að Grikkir væru með
mun betra lið. Þeir hafa á að skipa
leikmönnum sem spila sem dæmi í
Evrópudeildinni en auðvitað hefðum
við kannski viljað standa aðeins betur í
þeim. Ég er pínu svekktur með að
hafa ekki náð upp betri frammistöðu
gegn Búlgaríu hérna heima. Eftir að
hafa hins vegar horft á leik Búlgaríu
gegn Slóveníu, sem vann Grikki og á
að vera næstbesta lið Evrópu, áttaði
maður sig á því að Búlgaría er hörkul-
ið sem stóð vel í Slóvenum og gaf þeim
hörkuleik.“
Ekki vanar svona körfubolta
Sara Rún Hinriksdóttir var eini
leikmaður íslenska liðsins sem leikur
erlendis, en hún spilar með Leicester
á Englandi. Aðrir leikmenn leika hér-
lendis með liðum í efri hluta úrvals-
deildarinnar. Benedikt segir nauðsyn-
legt fyrir liðið að eignast fleiri
atvinnumenn ef Ísland ætlar sér að
taka skref fram á við.
„Það er klárt mál að við þurfum
fleiri atvinnumenn og við ræddum það
inni í klefa eftir Grikkjaleikinn. Ef við
ætlum að bera okkur saman við lið
eins og Grikkland, þar sem flestir leik-
menn liðsins spila í Evrópudeildinni,
þurfum við fleiri atvinnumenn sem
æfa og spila í hærri styrkleikaflokki.
Úrvalslið Dominos-deildarinnar mun
ekki sigra úrvalslið Evrópudeild-
arinnar, það gefur alveg augaleið.
Þetta er öðruvísi körfubolti sem er
spilaður í hærri gæðaflokki og þú
þarft að yfirdekka mun meira sem
dæmi. Það er mun meiri pressa á bolt-
ann og varnarleikurinn er mun stífari
og harðari. Stelpurnar eru ekki vanar
svona bolta hérna heima og þær lenda
þess vegna í ákveðnum vandræðum
gegn svona vörn. Það er þess vegna al-
veg klárt að við þurfum fleiri atvinnu-
menn, helst í deildum þar sem Helena
Sverrisdóttir hefur verið að spila í í
gegnum tíðina.“
Íslenska liðið vann ekki leik í síð-
ustu undankeppni fyrir EM 2019, en
liðið vann síðast Evrópuleik 23. nóv-
ember 2016 þegar Portúgal mætti í
Laugardalshöll í undankeppni EM
2017. Ísland vann 65:54-sigur en síðan
eru liðin tæp þrjú ár og er liðið farið að
hungra í langþráðan sigur.
Viljinn hjá liðinu til staðar
„Ég fann það strax um leið og ég
tók við liðinu að þetta eru stelpur sem
vilja ná árangri. Það er mikið hungur í
sigur hjá liðinu enda nokkur ár síðan
liðið vann síðast leik í Evrópukeppni.
Það er mikill vilji til þess að standa sig
en þær þurfa að taka næsta skref, fara
í atvinnumennsku, og vinna sig svo
upp hægt og rólega. Ég vona innilega
að við munum eignast fleiri stelpur í
framtíðinni sem eru tilbúnir að fara
alla leið í þessu, ekki með einhverja
vinnu til hliðar, heldur eingöngu 100%
í körfuboltanum. Þannig tekur maður
næstu skref í þessu.“
Helena Sverrisdóttir, besti leik-
maður liðsins, var með slaka skotnýt-
ingu í báðum leikjunum gegn Búlgaríu
og Grikklandi en Benedikt ítrekar að
það sé ekki hlutverk Helenu að bera
liðið á herðum sér.
„Það á ekki einhver einn leikmaður
að þurfa að bera þetta uppi enda er
körfubolti liðsíþrótt. Í gamla daga var
ætlast til þess að Eiður Smári Guð-
johnsen bæri uppi íslenska karlalands-
liðið í knattspyrnu en það gekk aldrei.
Um leið og við fórum að vera með fullt
lið af atvinnumönnum sem voru allir
góðir leikmenn og liðsheildin var mjög
sterk fóru hlutirnir einhvern veginn að
gerast. Þetta er það sem við þurfum
að ná upp í kvennalandsliðinu líka. Ég
er ekki að horfa í það að Helena eigi að
draga vagninn og set einfaldlega ekki
þá kröfu á hana að hún eigi að vinna
alla leiki fyrir okkur,“ sagði Benedikt í
samtali við Morgunblaðið.
Dominos-úr-
valsliðið vinnur
ekki þær bestu
Þjálfari kvennalandsliðsins í körfu
horfir til karlalandsliðsins í fótbolta
Morgunblaðið/Hari
Landsliðsþjálfari Benedikt Guðmundsson vill fleiri atvinnumenn í sitt lið.
Árni Steinn Steinþórsson, einn af
lykilmönnum Íslandsmeistara Sel-
foss í handbolta, verður líklega frá
keppni næstu sjö til níu mánuðina
en hann varð fyrir meiðslum á
hægra hné í viðureign Selfyssinga
og Framara í fyrradag.
„Það bendir allt til þess að kross-
bandið hafi slitnað en það fæst úr
því skorið á morgun (í dag) þegar
ég fer í myndatöku. Ég lenti illa eft-
ir uppstökk. Ég heyrði smell og
grunaði þá strax að krossbandið
hefði slitnað,“ sagði Árni Steinn við
mbl.is í gær. gummih@mbl.is
Mikið áfall fyrir
Selfyssinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meiddur Árni Steinn Steinþórsson
er líklega frá út keppnistímabilið.
U20 ára landslið karla í knatt-
spyrnu mætir Englandi í vin-
áttulandsleik í dag klukkan 19.
Leikurinn fer fram á Adams
Park í High Wycombe.
U21 árs landsliðið tapaði fyrir
Ítalíu í undankeppni EM 2021 á
Paolo Mazza-vellinum í Ferrara á
laugardaginn síðasta en liðið er í
þriðja sæti 1. riðils með 9 stig eftir
fyrstu fimm leiki sína.
Meginþorri leikmannanna úr
þeim leiknum gegn Ítölum er í
hópnum í kvöld en sex þeirra leika
með erlendum félagsliðum.
U20 heimsækir
enska landsliðið
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
U20 Kolbeinn Birgir Finnsson er í
hópnum sem mætir Englandi.
veita náttúrulega vörn
gegn bakteríum í munninum
Tvíþætt sink
og arginín
Dregur úr
tannskán
Styrkir
glerunginn
Dregur úr
tannskemmdum
Frískari
andardráttur
Dregur úr
blettamyndun
Dregur úr
viðkvæmni
Dregur úr
tannsteini
Fyrirbyggir
tannholdsbólgu
NÝTT
Veruleg fækkun baktería á
tönnum, tungu, kinnum og
gómi eftir samfellda notkun
í fjórar vikur.
BYLTING FYRIR
ALLANMUNNINN
Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold
Frábær
vörn í
12
tíma