Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019
Knattspyrnudeild ÍBV hefur gengið
frá samningi við tyrknesku landsliðs-
konuna Fatma Kara. Kemur hún til fé-
lagsins frá HK/Víkingi þar sem hún hef-
ur verið í lykilhlutverki síðustu tvö
sumur. Kristjana Sigurz er einnig geng-
in í raðir ÍBV á lánssamningi frá Breiða-
bliki.
Sædís Rún Heiðarsdóttir, sem á
leiki með U16 og U17 ára landslið Ís-
lands í fótbolta, er gengin í raðir Stjörn-
unar frá Víkingi Ólafsvík. Sædís lék ekki
deildaleik með Víkingi í meistaraflokki,
en á að baki fjóra leiki í deildabikarnum.
Spænski framherjinn Gonzalo Za-
morano mun ekki leika með ÍA á næsta
tímabili eftir að hann og félagið komust
að samkomulagi um starfslok. Zamor-
ano lék með Hugin og Víkingi Ólafsvík
áður en hann gekk í raðir ÍA fyrir síð-
asta tímabil. Zamorano skoraði ekki
eitt mark í 20 leikjum í úrvalsdeildinni í
sumar.
James Rodriguez, knattspyrnumað-
ur hjá Real Madríd,
verður ekki meira
með á árinu eftir
að hann meidd-
ist á hné á æf-
ingu með lands-
liði Kólumbíu um
helgina. Liðbönd
í vinstra hné
sködduðustu
eftir því
fram kem-
ur í til-
kynningu
á heima-
síðu Real
Madríd.
Eitt
ogannað
Gylfi Þór Sigurðsson er aðeins fjór-
um mörkum frá markameti ís-
lenska karlalandsliðsins í fótbolta
eftir að hann skoraði sigurmarkið
gegn Moldóvu í lokaumferð und-
ankeppni EM í fyrrakvöld.
Gylfi hefur þar með skorað 22
mörk en þeir Kolbeinn Sigþórsson
og Eiður Smári Guðjohnsen deila
metinu með 26 mörk.
Gylfi hefur verið vítaskytta Ís-
lands og skorað átta mörk af víta-
punktinum. Hins vegar hefur hon-
um gengið illa að nýta víti síðustu
misseri. Hann klikkaði fyrst á víti
fyrir Ísland í sigri á Finnum 2016,
næst gegn Nígeríu á HM 2018, og
gegn Andorra og Moldóvu í haust.
Gylfi hefur ofan á þetta einnig
klikkað á þremur vítaspyrnum fyr-
ir Everton síðustu 14 mánuði en
skorað úr þremur, samkvæmt
Transfermarkt. Ef allt er tekið
saman hefur hann skorað úr fjórum
af síðustu tíu vítum, fyrir landslið
og félagslið, á síðustu tveimur ár-
um, eftir að hafa klikkað á tveimur
af 23 fram að því. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
22 mörk Gylfi Þór Sigurðsson er þriðji markahæstur í sögu landsliðsins.
Gylfi með markamet
ef vítin færu inn
Í KAPLAKRIKA
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Ekki tókst Stjörnumönnum að reka
af sér slyðruorðið í gærkvöldi og
vinna leik þegar þeir sóttu FH-inga
heim í Kaplakrika í lokaleik 10. um-
ferðar Olís-deildar karla í hand-
knattleik. Þeim tókst þó að halda í
annað stigið sem er þó sannarlega
betra en ekkert eins og staða liðsins
er í 10. sæti deildarinnar. Birgir Már
Birgisson sá til þess að jafna metin
fyrir FH-inga þegar fimm sekúndur
voru eftir af leiktímanum, 26:26, og
þar við sat.
Þótt stigið hafi ekki fleytt
Stjörnumönnum ofar á stigatöflunni
þá nægði það liði FH til þess að
mjakast upp fyrir ÍBV og komast
upp í fimmta sætið með 12 stig, sex
stigum á eftir erkifjendunum í
Haukum sem tróna á toppnum sem
fyrr.
Stjörnumenn léku afar vel í fyrri
hálfleik í Kaplakrika í gærkvöldi.
Sóknarleikur liðsins var afar góður
sem skilaði sér í mörkum í flestum
sóknnum. Framliggjandi vörn liðs-
ins sló vopnin úr höndum FH-inga
auk þess sem Brynjar Darri Bald-
ursson, fyrrverandi leikmaður FH,
náði sér ágætlega á strik í marki
Garðbæinga. Staðan var vænleg að
loknum fyrri hálfleik, 17:13, fyrir
Stjörnuna.
Endaskipti urðu á leiknum í síðari
hálfleik. Þá tók FH-liðið við sér. FH-
ingar tóku til við að leika framliggj-
andi 3/2/1 vörn að hætti Stjörnu-
manna. Breyting hreif. Jafnt og þétt
unnu FH-ingar upp forskot Stjörn-
unnar. Staðan var orðin jöfn, 21:21,
um miðjan hálfleikinn í fyrsta sinn
síðan á upphafsmínútunum.
Við tók spennandi lokakafli þar
sem jafnt var á öllum tölum.
Stjörnumönnum tókst að halda sjó í
þessari stöðu sem hlýtur að teljast
framfaraskref eftir að þeir hafa farið
illa að ráði sínu oft og tíðum á loka-
kafla undanfarinna leikja. Nið-
urstaðan, jafntefli, verður að teljast
nokkuð sanngjörn.
Stjarnan varð fyrir skakkaföllum í
leiknum. Brynjar Darri markvörður
meiddist á hné um miðjan leikinn og
kom ekkert meira við sögu. Var jafn-
vel talið í gærkvöld að meiðslin væru
alvarleg. Reynist sú vera raunina er
eru það slæm tíðindi því skortur er á
markvörðum hjá liðinu, eins og fleir-
um. Ólafur Bjarki Ragnarsson
meiddist einnig á hné þegar sjö mín-
útur voru til leiksloka. Óvíst var í
gærkvöldi hvort meiðslin væri alvar-
leg. Bjartsýnustu menn vonuðu að
svo væri ekki.
Deildu stigunum í kafla-
skiptum leik í Kaplakrika
Jöfnunarmark Birgis færði FH upp í 5. sæti Meiðslalisti Stjörnunnar lengist
Morgunblaðið/Eggert
Öflugur Einar Rafn Eiðsson skoraði 8 mörk fyrir FH gegn Tandra Má Konráðssyni og samherjum í Stjörnunni.
Kaplakriki, Olísdeild karla, mánudag
18. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 5:5, 8:11,
10:14, 13:17, 16:19, 18:20, 21:21,
23:23, 25:24, 25:26, 26:26.
Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson 8, Ás-
björn Friðriksson 8/3, Leonharð Þor-
geir Harðarson 4, Ágúst Birgisson 2,
Bjarni Ófeigur Valdimarsson 1, Birgir
Már Birgisson 1, Einar Örn Sindrason
1, Arnar Freyr Ársælsson 1.
Varin skot: Birkir Fannar Bragason
7/1, Phil Döhler 2.
FH – Stjarnan 26:26
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Andri Þór Helga-
son 7/1, Ólafur Bjarki Ragnarsson 6,
Ari Magnús Þorgeirsson 4, Tandri
Már Konráðsson 3, Leó Snær Pét-
ursson 2/1, Sverrir Eyjólfsson 2,
Hannes Grimm 2.
Varin skot: Brynjar Darri Baldursson
8, Ólafur Rafn Gíslason 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Sigurður Hjörtur Þrast-
arson og Svavar Ólafur Pétursson.
Áhorfendur: 617.
Heill frumskógur af gæludýrum...
Í fiskana mig langar svo
að setja í búrið stóra
mamma segir þú færð tvo
en pabbi segir fjóra.
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18
L i f and i v e r s l un
kíktu í heimsókn
Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr