Morgunblaðið - 19.11.2019, Page 32

Morgunblaðið - 19.11.2019, Page 32
Álfatrú, bann- helgi og yfirnátt- úra í náttúru nefnist fyrir- lestur sem þjóð- fræðingurinn Bryndís Björg- vinsdóttir flytur á vegum Sagn- fræðingafélags Íslands í fund- arsal Þjóðminjasafns Íslands í dag kl. 12.05. Í erindinu tengir Bryndís íslenska hjátrú um álfa og bann- helgi við náttúruvernd en dæmi er um að hjátrú varðandi vissa bletti leiði beint eða óbeint til þess að við þessum stöðum er ekki hróflað. Segir Bryndís frá nokkrum stöðum sem hún hefur rannsakað þar sem bannhelgi ríkir, frá samhengi henn- ar og áhrifum. Aðgangur er ókeypis. Álfatrú og bannhelgi ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 323. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Birgir Már Birgisson tryggði FH annað stigið gegn Stjörnunni í loka- leik Olís-deildar karla í handknatt- leik í Kaplakrika í gærkvöldi, 26:26. Hann jafnaði metin með marki úr hægra horni fimm sekúndum fyrir leikslok. FH færðist upp í fimmta sæti, úr sjötta, með þessu stigi. Stjarnan situr hins vegar áfram í 10. sæti. »27 Birgir jafnaði metin og FH fór upp í 5. sæti ÍÞRÓTTIR MENNING „Það er klárt mál að við þurfum fleiri atvinnumenn og við ræddum það inni í klefa eftir Grikkjaleikinn. Ef við ætlum að bera okkur saman við lið eins og Grikkland, þar sem flestir leikmenn liðsins spila í Evrópudeild- inni, þurfum við fleiri atvinnu- menn sem æfa og spila í hærri styrk- leikaflokki. Úrvalslið Dom- inos-deildarinnar mun ekki sigra úrvalslið Evrópudeildarinnar,“ segir Benedikt Guð- mundsson, landsliðs- þjálfari kvenna í körfu- bolta, eftir byrjunina í undankeppni EM. »25 Klárt mál að við þurf- um fleiri atvinnumenn Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Guðmundur Tyrfingsson stofnaði samnefnt fyrirtæki á Selfossi fyrir 50 árum og byrjaði með Dodge Weapon og eina 32 manna heima- smíðaða rútu en áður hafði hann ek- ið með fólk um fjöll og firnindi á litlum Weapon í um sex ár. Árið 1971 gekk Guðmundur Laug- dal Jónsson í lið með Guðmundi og byrjuðu þeir á að smíða yfir rútur „af því að okkur vantaði vinnu yfir veturinn,“ útskýrir hann. Seinna kom eiginkonan Sigríður V. Bene- diktsdóttir og síðan börn þeirra, Helena Herborg, Berglind, Tyrf- ingur og Benedikt, inn í reksturinn. Hjónin hafa að mestu stigið til hliðar en börnin sjá um reksturinn. Yfir 50 rútur voru þegar best lét í grænmál- aða flotanum, en bílunum hefur reyndar fækkað örlítið undanfarin tvö ár. Náttúran heillaði Guðmund og hann segir að stofnun fyrirtækisins hafi komið af sjálfu sér. „Ég var blankur en hafði mikinn áhuga á fjallaferðum og vantaði einhvern til þess að fjármagna ferðirnar,“ rifjar hann upp. Til að byrja með hafi hann tekið eina og eina ferð gegn greiðslu og haustið 1969 hafi fyrirtækið verið skrásett. Í fyrstu var aðstaðan í bragga við Nónhóla en 1993 var byggð ný að- staða að Fossnesi 5 og þar eru aðal- stöðvarnar. Þar hefur verið byggt yfir rúturnar og öllu viðhaldi og við- gerðum sinnt. Fyrirtækið á stóra lóð í Norðlingaholti í Reykjavík og er þar með útibú fyrir rútur og bíl- stjóra. Engin uppgjöf „Margt eftirminnilegt hefur gerst og við höfum alla tíð umgengist gott fólk, en ég veit ekki hvort segja má frá sumum uppákomunum, það er ekki víst að farþegarnir í þeim ferð- um yrðu ánægðir með þá opin- berun,“ segir Guðmundur. Reksturinn hefur oft verið erfiður en Guðmundur leggur áherslu á að aldrei hafi hvarflað að sér að leggja árar í bát. „Grasið er aldrei grænna hinum megin við ána,“ segir hann. Til að byrja með snerist reksturinn um skólaakstur á veturna og akstur með ferðamenn á sumrin. Dregið hefur úr skólaakstrinum og hann hefur breyst talsvert undanfarin ár en hópferðirnar eru veigamestar í rekstrinum ásamt rekstri ferðaskrif- stofu. „Við höfum þurft að hafa fyrir þessu en það skemmtilegasta er að ekkert hefur verið leiðinlegt í þess- um rekstri,“ segir Guðmundur. Samkeppnin hefur oft verið mikil og sennilega aldrei meiri en um þessar mundir. „Við höldum áfram að sigla þennan sjó,“ segir Tyrf- ingur, „höldum áfram að streða,“ bætir Guðmundur við. Guðmundur hætti að keyra fyrir um áratug. „Lykillinn að velgengn- inni er að halda áfram ótrauður og telja sér ekki trú um að það sé betra að vera annars staðar,“ áréttar hann. Fjölskyldan Fyrirtækið hefur verið í höndum hjónanna og barna þeirra frá upphafi. Frá vinstri Helena Herborg, Berglind, Sigríður Benediktsdóttir. Guðmundur Tyrfingsson, Benedikt og Tyrfingur. Grasið aldrei grænna hinum megin við ána  Grænu rútur Guðmundar Tyrfingssonar í hálfa öld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.