Morgunblaðið - 25.11.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 25.11.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Miklar breytingar eiga sér nú stað í útgáfu dagblaða í heim- inum, segir Ingi Rafn Ólafsson sem á dögunum tók við starfi framkvæmdastjóra yfir prent- hluta starfsemi WAN-IFRA, sem eru alþjóðasamtök dagblaða og fjölmiðlafyrirtækja. Starfs- stöðvar samtakana eru í eru í fimm löndum, Þýskalandi, Frakklandi, Singapore, Indlandi og Mexikó. Aðild eiga um 3.000 fréttaveitur og tæknifyrirtæki sem snerta þessa starfsemi á einn eða annan hátt. Þar að auki eru 60 landssamtök útgefenda með 18.000 útgáfutitla í 120 löndum. Markmið samtakanna er halda frelsi fjölmiðla á lofti ásamt því að aðstoða aðildarfyr- irtæki sín við að koma fréttum og öðru efni á framfæri eftir þar til bærum leiðum hvort, það er með prentaðri útgáfu eða staf- rænni tækni. Falsfréttum fjölgar Á vegum WAN-IFRA var ný- lega gerð úttekt á stöðu dag- blaða og stafrænna miðla og hún greind. Þar kemur fram að fleiri borga fyrir fréttir en nokkru sinni fyrr. Þetta er að mestu leyti keyrt áfram af stafrænum fréttum. „Áskriftablöð eru víða enn mjög sterk en annars staðar hefur upplag minnkað,“ segir Ingi Rafn „Bandaríkin hafa gengið í gegnum mikið samdrátt- arskeið og er kallað eftir því víða þar um slóðir að borgarblöðin hefji aftur útgáfu vegna aukn- ingar á falsfréttum. Útgefendur fjárfesta í gagnaöflun og hvernig hægt væri að nota önnur við- skiptamódel með þeirri fjárfest- ingu sem er til staðar. Einnig hafa þeir breytt prentrekstri til að nýta betur þann búnað sem þeir eru með. Talsvert er um uppkaup og samþjöppun á þess- um markaði. Þar eru Bandaríkin, Evrópa og Ástralía í sérflokki. Þessi iðnaður hefur í gegnum tíðina tekist á við miklar breyt- ingar en náð að aðlagast þróun- inni.“ Í fjölmiðlastarfi er Netið að taka æði margt yfir. Flestir blaðaútgefendur hafa breytt fyr- irkomulagi í rekstri sínum; eru með vefútgáfu meðfram pappír- num. Sumir hafa líka tekið skref- ið í átt að sjónvarpi og útvarpi. Með þessu móti geta þeir nýtt efni sem er framleitt á fleiri staði. „Meiri áhersla er lögð á neytendur og koma efni til þeirra á sem fjölbreyttastan hátt. Prent er ennþá mjög mikilvægur vettvangur fyrir útgefendur. Tekjur af prenti hjá fjölmiðlum eru 85% af veltu á heimsvísu og dagblaðið er enn vinsælt sem miðill og þarf að sjálfssögðu ekki rafhleðslu. Það sem hefur gerst er að útgáfa á vandaðri tímarit- um hefur aukist samhliða dag- blöðunum – það eru komin hlið- arblöð með mjög mörgum stórum dagblöðum sem fá mikinn lestur og dreifingu. Dreifing og lestur á dagblöðum hefur heldur farið niður á við í Skandinavíu. Þýskaland sem er fylkjaskipt er ennþá með styrka stöðu að þessu leyti. Okkar markmið hjá WAN IFRA er að aðstoða okkar fólk til að verða arðbært með þeim miðl- um sem þeir velja að nota.“ Trump fjölgar áskrifendum Í blaðaútgáfu er ekkert al- gilt. Staða dagblaða er mjög sterk til dæmis í Asíu – þá ekki síst á Indlandi. Einnig á ákveðnum svæðum í Evrópu þar sem svæðisblöð hafa mikla út- breiðslu og eru lesin alveg ofan í kjölinn. „Bandaríkin hafa gengið í gegnum samdráttarskeið þó að kosning Trump í embætti hafi fjölgað áskriftum að helstu dag- blöðum Bandríkjanna. Það er at- hyglisvert að sjá að almenningur ætlast til þess að dagblöðin sinni rannsóknarskyldu sinni eins þau hafa gert í gegnum árin. Sem sýnir í raun það traust sem al- menningur hefur á þessum miðl- um og þeirra hlutverki,“ segir Ingi Rafn, sem í starfi sínu mun leiða samstarf prentmiðladeilda WAN-IFRA við útgefendur víða um heim ásamt því að halda uppi samskiptum við birgja fyrir prent- og útgáfuiðnað. „Við höldum stóra viðburði þar sem markmiðið er að tengja þessa hópa ásamt því að sjá um endurmenntun í faginu heilt yfir. Að auki gefum við út vandað rannsóknarefni þar sem málefni tengd þessum iðnaði eru skoðuð í þaula með helstu sérfræðingum á þessu sviði. Þetta er spennandi vettvangur, frábært starfsum- hverfi og ég mun starfa með afar reynslumiklu fólki víða að úr heiminum.“ Framkvæmdastjóri hjá WAN-IFRA, alþjóðasamtökum útgáfufyrirtækja Ljósm/Aðsend Útgáfa Áskriftablöð eru víða enn mjög sterk, segir Ingi Rafn Ólafsson, sem mun leiða samstarf prentmiðladeilda WAN-IFRA við útgefendur. Dagblöð njóta trausts  Ingi Rafn Ólafsson fæddist 1971. Er með BS-próf í fram- leiðslustjórnun fyrir prentverk frá háskóla í New York-ríki og MBA-próf frá Edinborgarhá- skóla. Var framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar, mark- aðsfulltrúi hjá Hvíta húsinu, kynningastjóri hjá HÍ og síð- ustu ár sviðsstjóri prent- og miðlunarsviðs hjá Iðunni fræðslusetri. Hver er hann? Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Huga þarf betur að tengslaneti ungmenna af erlendum uppruna hérlendis en vísbendingar um það að ungmennum af pólskum og as- ískum uppruna líði verr en ung- mennum af íslenskum uppruna koma fram í doktorsritgerð Ey- rúnar Maríu Rúnarsdóttur, að- junkts í uppeldis- og menntunar- fræði. Eyrún varði ritgerð sína síðast- liðinn föstudag. „Mér finnst þetta vera ákall fyr- ir ýmsar stofnanir og samfélagið í heild sinni að taka höndum saman og gæta að öllum börnum í þessu samfélagi, alveg sama hvaðan þau eru eða hvaða hópi þau til- heyra,“ segir Eyrún. Hún tekur þó fram að það sé mikilvægt að al- hæfa ekki um ungmenni af er- lendum uppruna. „Það sem ég vil fyrst og fremst leggja áherslu á er að þetta er afar fjölbreyttur hópur.“ Verri líðan skýrist að miklu leyti af félagslegum og efnahagslegum bakgrunni ungmennanna en ung- mennin sem um ræðir voru á aldr- inum 11 til 16 ára þegar rannsókn Eyrúnar var framkvæmd. „Þegar maður skoðar ungmenni af erlendum uppruna án þess að flokka þau eftir upprunalandi kom ekki fram munur á líðan eftir upp- runa. Það þýðir að það er líka tals- vert um ungmenni af erlendum uppruna hérlendis sem líður ekk- ert verr en börnum af íslenskum uppruna.“ Þegar litið er til ungmenna af pólskum uppruna annars vegar og af íslenskum uppruna hins vegar sem eru með svipaðan félagslegan og efnahagslegan bakgrunn kemur í ljós að pólsk börn standa jafn- fætis íslenskum börnum hvað varðar líðan. „Hins vegar virðist annars kon- ar mynstur gilda um ungmenni af asískum uppruna,“ segir Eyrún. Eins og áður segir þá leiddi rannsókn Eyrúnar í ljós að tengsl- anet barna af erlendum uppruna hérlendis væri almennt ekki jafn gott og tengslanet barna af ís- lenskum uppruna. Skynja minni stuðning Ungmennin í rannsókninni skynjuðu ekki jafn mikinn stuðn- ing frá foreldrum og bekkjarfélög- um og ungmenni af íslenskum uppruna. „Í raun og veru eru það nið- urstöður sem allir geta tekið til sín vegna þess að það þýðir að við er- um ekki að hlúa nægilega vel að eða skapa nægileg tækifæri fyrir þessi ungmenni til að sækja sér stuðning í samfélaginu. Það eru auðvitað tengsl í heimalandinu sem rofna og það þarf eitthvað að koma í staðinn. Það virðist ekki gerast nægilega vel.“ Eyrún leit sérstaklega til vina- tengsla ungmenna af erlendum uppruna. Þá kom í ljós að ekki næst sama tilfinningadýpt í vin- áttu sem er þvert á þjóðerni. Þá skiptir ekki máli hversu lengi börnin hafa dvalið á Íslandi eða hversu marga vini þau eiga. Önnur niðurstaða sem Eyrún greinir frá í ritgerðinni er sú að ávinningur þess að búa í skóla- hverfi þar sem efnahagsstaða fjöl- skyldna er betri skilar sér síður til ungmenna af erlendum en innlend- um uppruna. „Ef eitthvað er þá líður þeim verr þar,“ segir Eyrún. Ákall um að samfélagið gæti barna  Börn af pólskum og asískum uppruna upplifa frekar vanlíðan en börn af íslenskum uppruna  Fé- lags- og efnahagslegur munur lykilatriði í mun á líðan  Minni tilfinningadýpt í vináttu þvert á þjóðerni Eyrún María Rúnarsdóttir Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Gert er ráð fyrir að útgjöld fæðing- arorlofssjóðs verði 1.400 milljónir króna umfram forsendur fjárlaga ársins 2019. Því hefur fjármála- og efnahags- ráðuneytið lagt til að gerð verði breyting á lögum um trygginga- gjald og hlutfall fæðingarorlofs- sjóðs í gjaldinu hækki úr 0,65% í 1,1%. Þetta þarf að gera til þess að standa undir fullri fjármögnun sjóðsins á árinu 2020 að teknu tilliti til halla ársins 2019, að því er fram kemur í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem sent var á efnahags- og viðskiptanefnd Al- þingis í síðustu viku. Vegna hærri hlutdeildar fæðing- arorlofssjóðs í Tryggingagjaldinu þá lækkar hlutfall lífeyris- og slysa- trygginga á móti. „Tekjur sjóðsins af almenna tryggingagjaldinu munu ekki duga fyrir útgjöldum hans á árinu og þrátt fyrir að tekið sé tillit til ríf- lega 2,5 milljarða kr. jákvæðrar stöðu sjóðsins í árslok 2018 stefnir í að hann verði rekinn með halla í árslok 2019“, segir í minnisblaðinu sem fjallar um breytingartillögur á frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2020. Í sama minnisblaði leggur dóms- málaráðuneytið til breytingar á lög- um um aukatekjur ríkissjóðs. Meðal annars leggur ráðuneytið til breytingartillögur um að hækka gjald fyrir vegabréfsáritanir. Verði þær tillögur samþykktar þá hækkar gjald úr 4.200 krónum í 5.500 krónur fyrir sex til tólf ára börn og úr 7.800 krónum í 11.000 krónur fyrir þrettán ára og eldri. Fjármálaráðuneytið leggur einn- ig fram tillögu að breytingum á sóknargjöldum, þau verði hækkuð og að lög um kirkjumálasjóð og sérframlög til hans verði felld úr gildi. 1.400 milljóna framúrkeyrsla  Fæðingarorlofssjóður þurfi meira Morgunblaðið/Ómar Börn Útgjöld sjóðsins á árinu voru mun meiri en gert var ráð fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.