Morgunblaðið - 25.11.2019, Side 8

Morgunblaðið - 25.11.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019 ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Björn Bjarnason skrifar um eftir-leik þess sem hann kallar nýj- ustu atlöguna að Samherja. Björn ræðir hvernig málið hefur verið rek- ið í fjölmiðlum og bendir á skrif Brynjars Níelssonar í því sambandi, þar sem vakið hafi verið máls á því „að frétta- stofa ríkisútvarpsins lét sem um lögbrot væri að ræða þegar sagt var frá vopna- flugi Atlanta til Sádi-Arabíu, man- sali á kínverskum veitingastað á Akur- eyri, gjaldeyrisbroti Samherja og skatta- lagabrotum ráða- manna tengdum Vafningi og Wintris. „Að vísu hefur fréttastofa RUV ekki verið farsæll uppljóstrari og reyndust þessi mál á sandi byggð. Bundnar eru þó tals- verðar vonir við að nýjustu upp- ljóstranir um skattalagabrot, pen- ingaþvætti og mútur eigi einhverja stoð í raunveruleikanum,“ segir Brynjar.“    Þessi reynsla af fréttastofu Rúv.gefur tilefni til að fara varlega í að draga ályktanir og leyfa þar til bærum yfirvöldum að rannsaka málið fyrst.    En Björn segir líka að grein rit-stjóra Stundarinnar hafi orðið til þess að hann hafi kynnt sér „að- eins eignarhald Stundarinnar og þá sem standa þar að baki. Sé ég ekki betur en í þeim hópi séu útgerðar- fyrirtæki sem eiga hagsmuna að gæta víða um heim meðal annars í Afríku. Þarna er kannski efni í nýj- an Kveiks-þátt?“    Það sem Björn nefnir þarna rétt-lætir vitaskuld engin meint lög- brot sem lýst hefur verið og verður að rannsaka. En þetta er óneitan- lega áhugavert innlegg í umræðuna. Björn Bjarnason Áhugavert innlegg STAKSTEINAR Jón Trausti Reynisson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fjöldi fólks lagði leið sína á kröfufund á Austurvelli á laugardag til að krefj- ast nýrrar stjórnarskrár, afsagnar sjávarútvegsráðherra og þess að arð- ur af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings. Var mörgum heitt í hamsi yfir meintu framferði forsvarsmanna Samherja í viðskiptum sínum í Nami- bíu. „Fasisminn er risinn upp í öllu sínu veldi íklæddur kapítalismanum sem er nýju fötin hans og hann bann- ar okkur að benda á sig, að tala um sig. Hann bannar okkur að tala um spillingu nema í Namibíu,“ sagði Auður Önnu Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri Landverndar, í ræðu sinni á fundinum. Fjöldi fólks krafðist afsagnar  Ný stjórnarskrá, afsögn ráðherra og almenningssjóður kröfur fundargesta Morgunblaðið/Eggert Fólksfjöldi Orðin „lýðræði ekki auðræði“ voru gestum ofarlega í huga. Öll gögn og vitnisburður Samherja- málsins benda til þess að mútur, pen- ingaþvætti og skattsvik hafi átt sér stað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ACC, namibísku spillingarlög- reglunni, sem greint var frá í nami- bískum miðlum í gær. Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráð- herra landsins, var handtekinn á laugardag, en sleppt degi síðar, að sögn vegna formgalla í handtökuskip- un. RÚV hefur eftir framkvæmda- stjóra ACC að önnur handtökuskipun verði hins vegar lögð fram í dag. Þá segja namibískir miðlar að þriggja manna, svonefndra „hákarla“, sé enn leitað, þeirra James Hatuikulipi, fyrr- verandi stjórnarformanns ríkisút- gerðarinnar Fishcor, Sacky Shang- hala, fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Tamson Hatuikulipi. Forsetinn snýr vörn í sókn Þing- og forsetakosningar fara fram í Namibíu á miðvikudag. Greint er frá því í namibískum miðlum að í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar eftir að hún fékk sjálfstæði gæti stefnt í tví- sýnar kosningar, en stjórnarflokkur- inn Swapo hefur haft öll tögl og hagld- ir í stjórnkerfi landsins frá því það öðlaðist sjálfstæði árið 1990. Nú heyr forsetinn, Hage Geingob, þó harða baráttu um endurkjör við tannlækn- inn Panduleni Itula, sem býður sig fram sem óháður, þrátt fyrir að vera einnig meðlimur Swapo. Forseti landsins sneri vörn í sókn á Twitter um helgina og beindi spjótum sínum að Íslendingum. Fjölmiðlar hefðu ráðist gegn Namibíumönnum og að- eins sagt frá þeim sem tóku við mútu- greiðslum. Hins vegar færi minna fyrir umræðu um þá sem hefðu veitt múturnar. Íslendingar ættu að ein- beita sér að því að rannsaka spillingu heima fyrir. Öll gögn bendi til spillingar  Esau á yfir höfði sér handtökuskipun Í ólgusjó Bernhard Esau, fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra Namibíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.